Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 9

Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 C 9 , VIÐSKIPTI Atvinnumiðstöðin bætir lokaverkefnabanka við þjónustuna Tengir atvinnulíf og nám sterkari böndum NÝVERIÐ var opnaður lokaverkefnabanki á vegum Atvinnumiðstöðvarinnar, sem er rekin af Félagsstofnun stúdenta, FS. Markmið bankans er að tengja atvinnulíf og nám sterk- ari böndum og auðvelda námsmönnum leit að áhugaverðum lokaverkefnum. Að sögn Bernhards A. Petersen, fram- kvæmdastjóra Félagsstofnunar stúdenta, hef- ur Atvinnumiðstöðin verið starfrækt síðan í apríl sl. Hugmyndin að stofnun hennar varð til í stefnumótunarstarfi stjórnar FS og starfsmanna fyi-irtækisins um framtíðarsýn þess til ársins 2005. „Með Atvinnumiðstöðinni voru ýmis verk- efni sem FS hefur átt aðild að, ásamt Stúd- entaráði Háskóla Islands, Bandalagi js- lenskra sérskólanema, Iðnnemasambandi ís- lands og Félagi framhaldsskólanema, færð undir einn hatt í samstarfí við Pricewater- houseCoopers og Nýsköpunarsjóð náms- manna. Má þar nefna sumarstarfamiðlun, hlutastarfamiðlun, verkefnamiðlun og aðstoð við leit að framtíðarstörfum . Lokaverkefna- bankinn er nýjasta afurð Atvinnumiðstöðvar- innar, en lokahluti háskólanáms felst yfirleitt í verkefnavinnu sem yfirleitt tengist því nýjasta sem er að gerast á fræðasviðinu. Námsmenn hafa oft ferskar hugmyndir og sjá hlutina í nýju ljósi og við verkefnavinnuna fá þeir tækifæri til að spreyta sig á raunveru- legum verkefnum og reyna nýjar hugmyndir. Okkur þótti því rétt að hafa samband við íyr- irtæki og bjóða þeim upp á þann möguleika að leggja inn í bankann hugmyndir að verk- efnum sem þau hafa áhuga á að láta vinna fyrir sig. Atvinnumiðstöðin heldur utan um lýsingu á verkefninu og námsmanninum sem óskað er eftir. Námsmenn leita svo til At- vinnumiðstöðvarinnar og skoða skráningar í bankanum í leit að hugmyndum," segir Bern- hard. Að hans sögn var boðið upp á sumarstarfa- og hlutastarfamiðlun hjá Atvinnumiðlun námsmanna áður en Atvinnumiðstöðin tók til starfa en með tilkomu hennar er hægt að bjóða upp á þjónustu árið um kring. Jafn- framt voru umsóknareyðublöðin tölvutengd þannig að námsmenn geta skráð sig í gegn- um Netið hvar sem þeir eru staddir í heimin- um án þess að þurfa að koma á skrifstofu At- vinnumiðstöðvarinnar við Hringbraut. Netið léttir á starfseminni „Nemendur geta þannig fylgst með hvaða störf og verkefni eru í boði án þess að koma við á skrifstofunni. Petta Iétti mjög mikið á starfinu og fundum við það í vor hvað starfið varð allt miklu þægilegra og einfaldara. í stað þess að standa í langri biðröð eftir ski'áningu og upplýsingum gátu nemendm- skráð sig og skoðað þau störf sem í boði voru í rólegheit- um fyrir framan tölvuna. Petta hefur einnig í för með sér mikinn sparnað í mannahaldi þar sem nemendur sjá að miklu leyti um skrán- inguna sjálfir." Bernhard segir að sumarstarfamiðlunin hafi gengið mjög vel og fleiri námsmenn feng- ið vinnu í gegnum atvinnumiðlunina í sumar en árið á undan. Að hans sögn er hægt að nálgast yfir tuttugu verkefni á vef FS, www.fs.is, í lokaverkefnabanka Atvinnumið- stöðvarinnar. Nýverið voru send fréttabréf til ríflega 500 fyrirtækja þar sem lokaverkefna- bankinn er kynntur. ,A-tvinnumiðstöðin hefur milligöngu um miðlun verkefnanna og áskilur sér rétt til að leita eftir umsögn kennara um nemendur. Þegar hæfur námsmaður hefur fundist er hann sendur til umsjónarmanns til viðræðna, en nemandinn þarf að fá verkefnið samþykkt hjá kennara samkvæmt reglum viðkomandi skóla. Fyrirtækin bera yfirleitt kostnað af vinnslu verkefnanna og greiða Atvinnumið- stöðinni væga þóknun fyrir miðlunina, en það er undir fyiúrtækjunum komið hvort þau greiða námsmönnunum laun,“ segir Bern- hard. Fjölbreyttari flóru verkefna Hann segist vonast til þess að sem flestar deildir Háskólans geti nýtt sér lokaverkefna- bankann og segist ekki sjá neina meinbugi á því. „Flestar hugmyndirnar sem nú era í bankanum eru á sviði viðskipta en ég tel að flóran eigi eftir að verða fjölbreyttari þar sem það eru verkefni á mörgum öðram sviðum sem fyrirtæki þurfa að láta vinna fyrir sig. Við erum ekki bara að kynna lokaverkefna- banka heldur einnig ýmis önnur verkefni sem fyrirtæki óska eftir án þess að þau þurfi að tengjast lokaverkefnum nemenda. Má þar nefna verkefni á sviði skjalastjórnunar og þýðinga." ÖIl þjónustan innifalin í ársgjaldinu Samstarf PricewaterhouseCoopers og At- vinnustöðvarinnar er á sviði framtíðarstarfa. PricewaterhouseCoopers aðstoða námsmenn við gerð ferilskráa, koma þeim í samband við vinnumarkaðinn og kynna námsmenn sem era að Ijúka háskólanámi fyrir fyrirtækjum. Morgunblaðið/Golli BERNHARD A. Petersen, framkvæmda- stjóri Félagsstofnunai' stúdenta. Námsmenn greiða ekkert fyi'ir þjónustu Atvinnumiðstöðvarinnar en styrktaraðilar hennar era Háskóli íslands, menntamála- ráðuneytið, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Reykjavíkurborg og Kópavogsbær. Auk þess greiða fyrirtæki fyrir þá þjónustu sem þau fá hjá Atvinnumiðstöðinni. Jafnframt hefur Fé- lagsstofnun stúdenta gert árssamning við sex fyrirtæki, Markhúsið, EJS, Eimskip, Fjár- festingarbanka atvinnulífsins, Olís og Sjóvá- Almennar. Að sögn Bernhards greiða þessi fyrirtæki ákveðið árgjald fyi-ir þjónustu Atvinnumið- stöðvarinnar og fá í staðinn alla þjónustu sem miðstöðin býður upp á án þess að greiða sér- staklega fyrir hana. „Við viljum gjarna að fleiri fyrirtæki nýti sér þessa þjónustu og er- um þess fullviss að það geti verið mun hag- kvæmari kostur í mörgum tilvikum,“ segir Bernhard A. Petersen, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta. ' Tilboð þetta gildir til ársloka 1998 og miðast við „AST Ascentia VL 5260" GRENSÁSVEGI 10 • S(MI 563 3050 • BRÉFSÍMI 568 71 1 5 • sala@ejs.is TIL VINSTRI kr. 176.900,- stgr. m. vsk* Er vinnusvæði þitttölvan á skrifborðinu á þriðju hæð, gengið um aðaldyr inn til vinstri, fram ganginn, inn um dyr á hægri hönd og svo þrjá metra áfram? Og um leið og tölvan er utan seilingar, þá ertu í raun víðsfjarri öllum þeim upplýsingum og verkefnum sem þú vilt vinna með, senda frá þér og taka á móti? Með öfluga fartölvu í höndunum skapar þú þér nýjar aðstæður. Þú vinnur ekki aðeins tíma, heldur vinnur þú þar sem þér hentar og þegar þér hentar. Fartölva veitir þér frið til að hugsa og frelsi til að framkvæma. Aukin framleiðni og ánægja koma síðan af sjálfu sér. Einn af hornsteinum gæðakerfis EJS er að velja aðeins til samstarfs birgja sem uppfylla þarfir kröfuhörðustu notenda upplýsingatækninnar. EJS býður þér upp á fartölvur frá DELL og AST sem allar eru framúrskarandi á sínu sviði. EJS býður öllum viðskiptavinum sínum upp á fyrsta flokks þjónustu; leiðbeiningar við val á tölvu og fylgihlutum, sveigjanlega greiðsluskilmála og örugga og hraða viðhaldsþjónustu. TILBOÐ: • Intel 266MHz Pentium MMX örgjörvi • 32 MB vinnsluminni • 3,2 GB harður diskur • 2MB skjáminni • Móðurborð með Intel 430TX kubbasetti • 24X geisladrif • 16 bita hljóðkort og hátalarar • 12,1“ TFT skjár • Innbyggður spennubreytir, disklingadrif og geisladrif • 3ja ára ábyrgð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.