Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 10
10 C FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Iðunn Eir Jónsdóttir leiðbeinir norrænum stjórnendum fyrir IESE-háskólann í Barcelona
Fræðsla fyrir fróð-
leiksfúsa stjórnendur
s
Flestir Islendingar setja hina vinsælu
ferðamannaborg Spánar, Barcelona, án efa
í samband við rómantík, fallegan arki-
tektúr og skínandi sól. Færri vita hins veg-
ar að borgin hefur einnig að geyma spenn-
andi möguleika á sviði viðskipta. Iðunn Eir
Jónsdóttir er nú stödd hér á landi á vegum
IESE-háskólans í Barcelona til að kynna
fróðleiksþyrstum stjórnendum íslenskra
fyrirtækja athyglisverð námskeið. Margrét
Arna Hlöðversdóttir námsmaður í
Barcelona tók hana tali þegar hún var að
— 7
undirbúa ferð sína til Islands.
Morgunblaðið/Margrét Arna
IÐUNN Eir Jónsdóttir er nú
stödd hér á landi fyrir hönd
IESE-háskólans í Barcelona til að
kynna athyglisverð námskeið fyr-
ir stjórnendur fyrirtækja.
LEIÐBEINENDUR á námskeið-
unum skipa sér í fremstu röð í
heiminum í viðkomandi fagi, en
hér má sjá aðstoðarrektor Har-
vard, Earl Sasser, miðla af
þekkingu sinni.
EFTIRSPURN eftir góð-
um námskeiðum fyrir
æðri stjómendiu' fyrir-
tækja („senior executive
programs") hefur aukist verulega
undanfarin ár í takt við þá miklu
alþjóðavæðingu sem hefur átt sér
stað í heiminum. Þeir sem eru ekki
stöðugt að fylgjast með nýjungum
dragast því óhjákvæmilega fljótt
aftur úr á hraðbraut viðskiptanna.
Eitt af athyglisverðari nám-
skeiðum sem eru í boði f'yrir
stjórnendur fyrirtækja í dag eru
haldin í IESE - University of Na-
varra - í hinni vinsælu ferða^
mannaborg Spánar, Barcelona. I
um 40 ár hefur IESE boðið há-
skólamenntuðu fólki upp á MBA-
nám (master í viðskiptafræði) og
síðan 1992 hefur skólinn í sam-
vinnu við aðra virta háskóla eins og
t.d. Harvard, MIT og Stanford,
einnig boðið upp á sérstök nám-
skeið fyrir æðri stjórnendur fyiár-
tækja. Námskeiðin byggjast að
miklu leyti upp á svokallaðri „case
study“ aðferð, sem er sú aðferð
sem er notuð við kermslu í MBA-
náminu. Þessi aðferð hefur gefist
vel, en kennslan fer þá þannig fram
að nemendur lesa „case“ (mál, til-
vik) sem fjalla um raunveruleg
vandamál sem fyrirtæki hafa lent í
og glíma síðan við að leysa úr þeim
í tíma. Það segir meira en mörg
orð að IESE skrifar flest „case“
allra skóla í Evrópu, sem endur-
STAFRÆNN PRENTARI
UÓSRITUNARVÉl.
speglar þá miklu rannsóknarvinnu
sem er unnin í skólanum, enda er
skólinn talinn vera á meðal tíu
bestu skóla í heimi á sviði við-
skipta.
Samvinna
við aðra skóla
„Það sem IESE hefur upp á að
bjóða framyfir aðra auk frábærrar
kennsluaðferðar er fyrst og fremst
það, að hér er um að ræða fá há-
gæðanámskeið þar sem leiðbein-
endur eru prófessorar sem skipa
sér í fremstu röð í heiminum í við-
komandi fagi. I öðru lagi ei'u nám-
skeiðin mjög alþjóðleg og í þriðja
lagi er allt skipulag námskeiðanna
þannig að menn fá gullið tækifæri
til að byggja upp öflugt viðskipta-
net sín á milli,“ segir Iðunn Eir
Jónsdóttir, sem nýverið bættist í
hóp þeirra sem hafa yfirumsjón
með skipulagningu og kynningu
námskeiðanna.
Námskeiðin kynnt
á Norðurlöndum
Sú deild innan IESE sem sér
um skipulagningu námskeiðanna
hefur verið að þróast og stækka
Kassagerðin
og Völu-
steinn í
samstarf
KASSAGERÐ Reykjavíkur hf.
og Völusteinn ehf. hafa gert
með sér samstarfssamning um
smásölu og heildsölu á umbúð-
um fyrir smávöru ásamt sölu á
bylgjupappa í metratali. Samn-
ingur þessi er sá fyrsti simiar
tegundar sem Kassagerð
Reykjavíkur gerir. Samningur-
inn tók gildi hinn 1. desembr
1998 og eru þessar vörur fáan-
legar í heildsölu Völusteins að
Mörkinni 1 í Reykjavík, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
„Kassagerð Reykjavíkur hf.
hefur um langt skeið boðið
ýmsar gerðir umbúða af lager.
Með samstarfi við Völustein vill
Kassagerð Reykjavíkur auka
þjónustu við viðskiptavini sína
með því að gera umræddar vör-
ur aðgengilegri. Viðskiptavinir
geta nú sem fyrr sérpantað
undanfarin ár og nú starfa alls 8
manns í deildinni. Það er ekki of-
sögum sagt að deildin er mjög al-
þjóðleg, því að íslenskunni meðtal-
inni tala deildarmeðlimir 10 tungu-
mál.
Iðunn, sem lauk MBA-námi frá
IESE síðastliðið vor, hefur nú ver-
ið falið starf framkvæmdastjóra
kynningar- og markaðsmála þess-
ara námskeiða á Norðurlöndum og
einnig í Frakklandi. Undanfarið
hefur hún verið á ferð um Norður-
löndin að kynna væntanleg nám-
skeið fyrir fyrirtækjum þar, nú
síðast í Noregi og dagana 4.-11.
þessa mánaðar er röðin komin að
Islandi.
Norsk Hydro í Noregi, Bang &
Olufsen í Danmörku, SAS í Svíþjóð
og Nokia í Finnlandi eru meðal
þekktra fyrirtækja á Norðurlönd-
um sem hafa sent fulltrúa sína á
námskeiðin. Vert er að gefa sér-
stakan gaum að fyrsta námskeið-
inu af 9 á næsta ári, sem nefnist á
ensku „Learning to Lead through
Global Teamwork" og er haldið í
samvinnu við Harvard, en Iðunn
hefur einmitt yfirumsjón með
skipulagningu námskeiðsins.
þessar vörur hjá Kassagerð
Reykjavíkur séu þær í hag-
kvæmu framleiðslumagni.
Völusteinn hefur boðið ýmsar
gerðir af körfum og skartgripa-
öskjum, bæði í heildsölu og
smásölu. Með samstarfi þessu
mun starfsfólk Völusteins bjóða
Eins og nafnið gefur til kynna
felst það í að þjálfa stjórnendur í
að vinna að lausn vandamála í hóp-
um, þar sem þátttakendur eru
staddir í mismunandi löndum.
Helmingur þátttakenda verður
staddur í IESE í Barcelona og
hinn helmingurinn í Harvard í
Boston og munu þeir hafa sam-
skipti með hjálp nýjustu tölvu-,
síma- og myndbandstækni. Þó að
tækni þessi sé ekki alls óþekkt,
hafa ekki verið haldin sambærileg
námskeið áður, en því er ætlað að
undirbúa stjórnendur íyrirtækja til
að taka á þeim flóknu vandamálum
sem þeir munu standa frammi fyrir
þegar sótt er á markaði í öðrum
löndum. Onnur námskeið verða
ekki tíunduð hér, en áhugasamir
geta haft samband við Iðunni í
síma 34 93 253 4360 eða með tölvu-
pósti á netfangið Idunn@iese.es.
Þá eru upplýsingar um námskeiðin
á heimasíðu skólans: www.iese.edu.
Samvinnan gefur
námskeiðunum aukið vægi
Eins og Iðunn segir, heldur
IESE námskeiðin í samvinnu við
þá skóla sem eru fremstir á sínu
viðskiptavinum fjölbreyttara
úrval umbúða en áður.
Kassagerð Reykjavíkur von-
ar að þessi breyting verði við-
skiptavinum sínum til hagsbóta
og þeir snúi sér til Völusteins
með óskir sínar,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Verb
SHARP AL-IOOO
• Tengjanleg viS tölvu
• 10 eintök á mínútu
• Fast frumritaborð
• Stækkun - minnkun 50%-200%
• 250 blaða framhlaöinn
pappirsbakki
Morgunblaðið/Halldór
ÁRNI Björn frá Kassagerð Reykjavíkur og Valgeir Magnússon frá
Völusteini með dæmigerðan kassa hannaðan utan um flösku, en hann
selst ávallt mikið í desember.
sviði og því um að ræða einvalalið
leiðbeinenda. „Þessi samvinna við
aðra skóla gefur námskeiðunum
aukið vægi á alþjóðlegum mæli-
kvarða. Til dæmis ef halda á nám-
skeið um þjónustu- og markaðsmál
er höfð samvinna við Harvai'd þar
sem þetta er þeirra sterkasta svið,
ef halda á námskeið á sviði upplýs-
ingatækni er höfð samvinna við
MIT, sem er í forystu á því sviði
o.s.frv. Hér er um að ræða fá há-
gæðanámskeið sem eru aðeins
haldin einu sinni á ári hverju, en
ekki fjöldaframleiðslu á námskeið-
um eins og víða tíðkast.
Það getur vissulega skipt sköp-
um í viðskiptum að þekkja venjur
og hefðir þeirra landa sem við-
skipti eru stunduð við. Hámarks-
þátttakendur á námskeiðum IESE
eru 30 og koma þeir að meðaltali
frá 15 löndum svo það gefur auga-
leið að námskeiðin eru alþjóðleg
með afbrigðum. Þetta er einmitt
ein af höfuðástæðunum fyrir því að
skólar frá Bandaríkjunum leita
mikið eftir því að halda námskeið
með IESE þar sem okkar nám-
skeið eru miklu alþjóðlegri en hjá
þeim, þar sem meirihluti þátttak-
enda er yfirleitt Bandaríkjamenn.
Þeir gera sér grein fyrir því hversu
mikilægt það er í hinu alþjóðlega
umhverfi að fá innsýn í líf og menn-
ingu annarra landa,“ segir Iðunn.
Þátttakendur
valdir sérstaklega
Eins og alkunna er skipta við-
skiptatengsl ekki hvað síst máli í
viðskiptum og á þessu er einnig
tekið í skipulagi námskeiðanna.
„Fræðslan fer ekki eingöngu fram
í fyrirlestraformi heldur einnig ut-
an skólastofunnar. A meðan á nám-
skeiðunum stendur, sem geta var-
að allt frá 3 dögum upp í 3 vikur,
búa þátttakendur og leiðbeinendur
á sama hóteli og því hægt að koma
með spurningar og ræða málin yfir
morgunverðarborðinu eða kaffi-
bolla. Þátttakendm-, sem eru sér-
staklega valdir á þessi námskeið af
skipulagsnefndinni, fá þarna einnig
gullið tækifæri til að fræðast og
fræða meðþátttakendur sína
hvaðanæva úr heiminum og mynda
öflug viðskiptatengsl sín á rnilli,"
að sögn Iðunnar.
Það hlýtur að vera kostur fyrir
stjómendur fyrirtækja sem ætla
að mennta sig á þennan hátt, að
læra í öðm umhverfi en þeir eru í
dags daglega. Þá geta þeir einbeitt
sér alfai-ið að menntuninni án
stöðugs áreitis í hæfilegi’i fjarlægð
frá daglegu amstri. Þeir sem hafa
komið til Barcelona geta án efa
tekið undir það að umhverfið hér
spillir síður en svo fyrir.
Total og Petro-
Fina í eina sæng
París. Reuters.
TOTAL SA í Frakklandi hefur
sameinazt PetroFina í Belgíu í
sjötta stærsta olíufélag heims, en
bréf í félaginu fengu slæma útreið
á verðbréfamarkaðnum í París.
Samningur félaganna hljóðar
upp á 39 milljarða dollara og var
gerður sama dag og Mobil samein-
aðist stærsta olíufélagi heims,
Exxon.
Með því að kaupa belgíska félag-
ið verður Total stærra en keppi-
nauturinn Elf Aquitaine SA og
verður stærsta olíuféla Frakk-
lands. Þó vora fjárfestar lítt hrifnir
af sameiningunni.
Verð bréfa í Total lækkaði um
7,8% í 650 franka þegar viðskipti
hófust. Viðskiptum með bréfin var
hætt að nokkrum mínútum liðnum
og verðið ákveðið 604 frankar.
Hið nýja Total Fina fyrirtæki
verður undir stjórn stjórnarfor-
manns Totals, Thierry Desmarest.
Sala í fyrra nam 52,96 milljörðum
dollara, hagnaður nam 1,92 millj-
örðum dollara og sameiginlegt
markaðsvirði fyrirtækjanna nemur
38,8 milljörðum dollara miðað við
verð hlutabréfa á föstudag.