Morgunblaðið - 03.12.1998, Page 12

Morgunblaðið - 03.12.1998, Page 12
12 C FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Nýtt skipurit Skeljungs hf. Stjórn Skeljungs hf. ----------i--------- Forstjóri Kristinn Björnsson Kynningardeild Starfsþróunardeild Gunnar E. Kvaran Rebekka Ingvarsdóttir M-svið smásölu Margrét Guðmundsd. M-svið stórviðskipta Kristinn Bjömsson Smásala Margrét Guðmundsd. Fjármálasvið Gunnar K. Guðmundss. . Bein viðskipti Friðrik K. Stefánsson Fjárreiður Árni Ármann Árnason Heildsala Sigurður Kr. Sigurðss. Hráetni Þorsteinn A. Guðnason Fjárhagur Reynir A. Guðlaugsson Flugþjónusta Gunnlaugur Helgason Innra eftirlit Ólafur Jónsson Skeljungur h.f. Skipurit, des. 1998 Upplýsingatækni Gunnar Þór Pálmason Eldsneytisinnkaup Gunnar K. Guðmundss. Dreifingarsvið Þórir Haraldsson Dreifing Þórir Haraldsson Framkvæmdir STJÓRN Skeljungs hí'. hefur staðfest breytt skipurit félagsins og tók það gildi 1. desember. Breytingarnar eru liður í þeirri endurskipulagningu og hag- ræðingu sem undanfarið hefur farið fram á rekstri félagsins og miða að því að efla kostnaðareftir- lit og skilvirkni og að draga úr rekstrarkostnaði. Markaðssvið smásölu sér um rekstur Shell-stöðva, Skeljungsbúð- ar, Shell-markaða og heildsölu. Framkvæmdastjóri er Margrét Guð- mundsdóttir. Hlutverk markaðssviðs smásölu er að sjá neytendum á smásölumai-kaði fyiir eldsneyti og tengdum vörum til bifreiðanotkunar auk matvöru og skyndibita, tóm- stundavöru og annarri smávöru. Heildsala Skeljungs hf., sem annast innflutning á neyslu- og þjónustu- vörum, verður rekin sem sjálfstæð eining innan markaðssviðs smásölu. Forstöðumaður heildsölu er Sigurð- ur Kr. Sigurðsson. Markaðssvið stómotenda: Hlut- verk sviðsins er að annast þjónustu og sölu á eldsneyti, smurolíum, rekstrarvörum og hráefnum til fyr- irtækja og umsvifamikilla við- skiptavina. Markaðssvið stómot- enda heyi'ir beint undir forstjóra félagsins og greinist það í þrjár sjálfstæðar undirdeildir. Deild beinna viðskipta annast samskipti og þjónustu við útgerðir, verktaka og flutningaaðila og er þar með tal- in skipaþjónusta Skeljungs. Svæðisskrifstofur félagsins á landsbyggðinni falla einnig undir deild beinna viðskipta. For- stöðumaður deildarinnar er Friðrik Þ. Stefánsson. Hráefna- deild annast innflutning og sölu á hráefnum og efnavörum til iðnaðar og stórframkvæmda og er for- stöðumaður hráefnadeildar Þor- steinn Guðnason. Flugþjónusta sér um samskipti við flugrekstraraðila og er forstöðumaður hennar Gunn- laugur Helgason. Fjármálasvið: Meginhlutverk fjármálasviðs er yfirumsjón og stjórnun fjármála félagsins auk eldsneytisinnkaupa. Fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs er Gunnar Karl Guðmundsson. Fjár- málasvið greinist í fjórar undir- deildir. Fjárreiðudeild annast inn- heimtu, áhættustýringu og fjárávöxtun, samningagerð og eignaumsýslu. Arni Ai'mann Arna- son fjármálastjóri stýrir fjárreiðu- deild. Fjárhagsdeild skiptist í bók- hald, kostnaðareftirlit og hagdeild og er forstöðumaður fjárhags- deildar Reynir A. Guðlaugsson. Upplýsingatæknideild undir stjórn Gunnars Þ. Pálmasonar sér um tölvumál og upplýsingakerfi félagsins. Fjórða deildin á fjármálasviði er innra eftii'lit, sem annast innri • Gunnar Karl Guðmundsson er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Skeljungs hf. Hann hóf störf hjá félaginu 1988 sem deOdarstjóri hag- deildar og tók síð- ar við innkaupum og áhættustjórnun auk umsjónar með verðlags- og tryggingarmálum félagsins. Gunnar Karl er 39 ára. Hann lauk prófi í hagfræði frá Ohio University í Bandaríkjunum árið 1985. Hann starfaði áður sem deildarstjóri hagdeildar Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Gunnai' er kvæntur Hrefnu Hrafnkelsdótt- ur, starfsmanni Heimsferða, og eiga þau tvö börn. • Margrét Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri markaðssviðs smásölu. Margrét réðst til Skelj- ungs sem for- stöðumaður þess sviðs árið 1995. Á árunum 1986 til 1995 starfaði hún sem fram- kvæmdastjóri hjá olíufélaginu Q8 í Danmörku, síðast sem yfirmaður sölu- og markaðs- sviðs. Áður hafði hún starfað hjá Dansk Esso frá 1981 til 1986. Margrét er við- skiptafræðingur frá HI 1978 og lauk eand.mere.-prófi frá Við- skiptaháskólanum í Kaupmanna- höfn 1981. Margrét er 44 ára, gift Lúðvíg Lárussyni sálfræðingi og eiga þau 2 böm. • Þórir Haraldsson er fram- kvæmdastjóri dreifingarsviðs. Hann hóf störf hjá Skeljungi hf. árið 1991 og varð yfirmaður fram- kvæmdasviðs ári síðar. Þórir, sem er 45 ára, lauk prófi í rekstrar- verkfræði frá Aal- borg Uni- versitetscenter árið 1978 og starfaði að námi loknu hjá Bygg- ingarfélaginu Reyni um árs skeið. Á árunum 1980 til 1988 gegndi hann starfi verksmiðjustjóra hjá Nóa og Síríusi hf. og Hreini hf. Árið 1988 tók hann við starfi deild- arstjóra flutningamiðstöðvar Eim- skipafélagsins. Síðar varð hann forstöðumaður yfir starfsemi félagsins í Sundahöfn. Þórir er kvæntur Maríu S. Þorbjörnsdótt- ur, móttökuritara hjá Sjúkrahúsi Þórir Iíaraldsson Forstöðumenn í breyttu skipuriti Skeljungs hf. Árni Árinann Árnason Friðrik Þ. Stefánsson Reykjavíkur, og eiga þau þrjá syni. • Árni Ármann Árnason er fjár- málastjóri og forstöðumaður fjár- reiðudeildar Skelj- ungs hf. Árni er lögfræðingur að mennt. Áður en hann réðst til Skeljungs 1995 starfaði hann hjá Landsbanka Is- lands frá 1988 til 1995. Árni Ár- mann er 35 ára að aldri og er hann kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur þroskaþjálfa og eiga þau fjögur börn. • Friðrik Þ. Stefánsson er for- stöðumaður beinna viðskipta. Hann er lögfræðingur frá HI 1982 og kom til starfa hjá Skeljungi 1985 sem deildarstjóri fjárreiðudeildar. Friðrik tók við starfi forstöðu- manns beinnar sölu í desember 1995. Áður en hann hóf störf hjá Skeljungi hf. starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá Sjúkrasam- lagi Reykjavíkur. Friðrik er 43 ára, kvæntur Margréti H. Hauksdótt- ur, deildarstjóra hjá Flugleiðum, og eiga þau einn son. • Gunnar E. Kvaran er for- stöðumaður kynn- ingardeildar félagsins. Áður en hann réðst til Skeljungs 1995 starfaði Gunnar sem fréttamaður hjá Sjónvarpinu og Ríkisútvarpinu og fleírí fjölmiðl- um um 16 ára skeið. Hann lauk mastersprófi í fjölmiðlun frá San Jose State University í Bandaríkj- unum árið 1992. Gunnar, sem er 45 ára gamall, er kvæntur Snæfríði Þóru Egilson, lektor við Háskól- ann á Akureyri, og eiga þau tvö börn. • Gunnar Þór Pálmason er for- stöðumaður upp- Gunnar E. Kvaran Gunnar Þór Pálmason lýsingatæknideildar, sem er deild innan fjármálasviðs. Gunnar Þór réðst til Skeljungs árið 1996 en starfaði áður sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Netverki frá 1994 til 1996. Gunnar er tölvunarfræðingur frá HÍ 1989 og með MS-próf í tölv- unarfræði og MBA í rekstrarhag- fræði frá University of Southern Califomia. Gunnar er 32 ára gam- all. • Gunnlaugur Helgason er for- stöðumaður flugþjónustu Skeij- ungs hf. Gunnlaugur hóf störf hjá félaginu 1967 sem sölumaður í smurolíu- og verktakaþjón- ustu. 1971 tók hann við umsjón með flugþjónustu félagsins sem hann hefur haft með höndum síð- an auk þess sem hann var stöðvar- stjóri í Skerjafirði og síðar í Orfirisey til fjölda ára. Gunnlaug- ur er 62 ára. Hann er véltækni- fræðingur frá Technishe Hoehschule í Hamborg 1964. Gunnlaugur er kvæntur Valgerði Björnsdóttur, gjaldkera hjá Skelj- ungi. Gunnlaugur á fjögur börn frá fyrra hjónabandi, eina stjúp- dóttur og 8 barnabörn. • Ólafiir Hvanndal Jónsson er forstöðumaður innra eftirlits. Hann hefur starfað hjá Skeljungi hf. frá 1988, fyrst sem deildarstjóri þjónustustöðvar í Skerjafirði, en síð- ustu 3 ár hefur hann haft umsjón með innra eftirliti, umhverfis- og öryggismálum. Áður starfaði Olaf- ur um tveggja ára skeið sem bygg- ingastjóri birgðastöðvar og eldsneytisaf- greiðslunnar á Keflavíkurflugvelli. Olafur, sem er 42 ára, er bygg- ingatæknifræðingur frá TI 1979. Ólafur er kvæntur Guðbjörgu Árnadóttur og eiga þau þrjá syni. • Rebekka Ingvarsdóttir er for- stöðumaður starfsþróunarsviðs. Hún réðst til Skeljungs sem starfsmannastjóri félagsins árið 1987 og hefur gegnt því starfi síð- an. Rebekka er 47 ára. Að undan- skildu tveggja ára námi í ensku og Gunnlaugur Helgason íslensku við HÍ starfaði hún sam- fellt í starfs- mannahaldi varn- arliðsins á Kefla- víkurflugvelli frá 1972, lengst af sem deildarstjóri. Rebekka er gift Einari Á. Krist- Ingvarsdóttir inssyni húsgagna- smiði og eiga þau tvö böm. • Reynir Arnberg Guðlaugsson er forstöðumaður fjárhagsdeildar. Reynir, sem er 33 ára, hóf störf hjá Skeljungi sem deildarstjóri hag- deildar 1992. Reynir er við- skiptafræðingur að mennt og lauk námi frá Uni- versity of South Alabama í Band- aríkjunum 1990. Hann starfaði áð- ur sem viðskipta- fræðingur í hag- deild Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Reynir er kvæntur Sigríði Hrand Guðmundsdóttur, sérfræðingi hjá Landsbréfum, og eiga þau eina dóttur. • Sigurður Kr. Sigurðsson er for- stöðumaður heildsölu Skeljungs hf. Sigurður hóf störf hjá félaginu 1991 sem yfirmað- ur smávörudeildar og hafði umsjón með rekstri Skelj- ungsbúðarinnar. Áður var Sigurður með eigin inn- flutning og heildsöluna G. Hinriksson hf. auk þess sem hann rak Shell- stöðina við Hraunbæ í 11 ár. Sig- urður er kvæntur Erlu Möller og eiga þau þrjú börn. • Þorsteinn A. Guðnason er for- stöðumaður hráefnadeildar Skelj- ungs hf. Hann hefur starfað hjá félaginu frá 1988 lengst af sem deildarstjóri efnavörudeildar. Þorsteinn er 38 ára og er vél- fræðingur að mennt. Hann starfaði áður sem sölu- og þjón- ustustjóri hjá Optima. Þor- steinn er kvæntur Ingigerði Þórð- ardóttur, starfsmannastjóra hjá Flugfélagi Islands, og eiga þau tvö börn. endurskoðun á einstaka þáttum í starfsemi félagsins. Forstöðumað- ur innra eftirlits er Ólafur Jóns- son. Dreifingarsvið: Meginhlutverk dreifingarsviðs er rekstur olíu- dreifikerfis Skeljungs hf., þar með talin umsjón og viðhald olíu- birgðastöðva, flutningatækja, af- greiðslubúnaðar og annarra eigna sem tengjast dreifikerfi félagsins. Dreifingarsvið annast losun úr er- lendum olíuskipum, birgðahald í innflutningshöfn, dreifingu og geymslu birgða á olíubirgðastöðv- um um land allt og afgreiðslu á fljótandi eldsneyti í samræmi við pantanir og þai-fir viðskiptavina Skeljungs hf. Þá mun dreifingar- svið fyrst um sinn hafa umsjón með framkvæmdum á vegum félagsins. Framkvæmdastjóri dreifmgarsviðs er Þórir Haralds- son. Auk fjögurra meginsviða Skelj- ungs eru reknar tvær stoðdeildir, sem heyra beint undir forstjóra félagsins. Þetta eru starfsþróunar- deild og kynningardeild. Starfsþróunardeild stýrir Rebekka Ingvarsdóttir starfs- mannastjóri, en auk starfsmanna- halds heyra öryggismál undir deildina. Gunnar E. Kvaran, kynn- ingarfulltrúi er forstöðumaður kynningardeildar. Yfírmaður Rover segir af sér London. Reuters. FORMAÐUR stjórnar hins brezka dótturfyrirtækis BMW, Rover Group, hefur sagt af sér í kjölfar róttækrar niðm'skui'ð- aráætlunai' þýzka fyrirtækisins til að koma í veg fyrir að stærstu verksmiðju Rovers, í Long- bridge, Birmingham, verði lokað. Walter Hasselkus sagði fréttamönnum að hann færi á eftirlaun eftir 22 ár hjá BMW. Eftirmaður hans verður Werner Samann úr stjórn BMW sem hefur stjórnað véla- og undii'- vagnsdeild fyrirtækisins í sex ár. Tap á Rover hefur verið BMW stöðugur höfuðverkur síð- an BMW keypti fyrh'tækið af British Aerospace 1994. BMW og starfsmenn Rovers hafa náð samkomulagi um að 2.500 starfsmönnum af 39.000 verði sagt upp og sveigjanlegri vinnutilhögun tekin upp til að auka framleiðni í Longbridge. Tekin verður upp fjögurra daga vinnuvika í stað fimm og vinnuvikan stytt í 35 tíma að meðaltali samkvæmt sveigjan- legra kerfi úr 37 tímum auk yfh'- vinnu eins og nú er. BMW segir að samningurinn muni spara Rover 150 milljónir punda á ári frá árinu 2000. ----------------- Ný bók frá Bókaklúbbi atvinnulífsins BÓKAKLÚBBUR atvinnulifs- ins hefur gefið út bókina Minnis- punktar leiðtogans eftir Gabriel Hevesi, en bókin er hluti af rit- röð klúbbsins og Viðskiptafræði- stofnunar Háskóla íslands. I fréttatilkynningu kemur fram að í bókinni sé að finna marga hagnýta punkta um stjórnun grundaða á þekkingu, reynslu og innsæi. Lögð sé áhersla á notagildi og oft séu dregnar fram andstæðar kenn- ingar og skoðanir til að hrista upp í mönnum og hvetja þá til frjórrar hugsunar. Höfundur bókarinnar, Gabriel Hevesi, hef- ur yfir 40 ára starfsreynslu hjá fyrirtækjum í þremur þjóðlönd- um og hefur upplifað ótal mis- munandi aðstæður sem upp geta komið í daglegum rekstri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.