Morgunblaðið - 13.12.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 13.12.1998, Síða 12
12 C SUNNUDAGUR13. DESEMBER1998 MORGUNBLAÐIÐ áfram og megum fara inn á landsvæði lýðveldis Serba. Núna er bíll frá lögreglu Serba í Prijedor í fararbroddi. Eftir nokkurra mínútna akstur liggur vegurinn rétt hjá fljótinu Sana. Við höldum áfram, grænt vatnið í ánni tindrar í sólskininu. Fjarlæg fjöllin ei'u fal- lega blá í morgunmistrinu. Hitinn eykst smám saman. Jæja þetta verður enn einn svækjudagurinn. Morgunblaðið/Kristinn EVA Klonowski með fjölskyldu sinni í Reykjavík. Frá vinstri eru Alexandra, þá Eva (með tuskuhundinn Buw-Buw), siðan Irek og loks Monika. Að rífa upp sár og græða þau BYRJAÐ var fyrir þrem árum að grafa upp líkamsleifar fórnarlamba átak- anna hryllilegu í Bosníu-Herzegóvínu. Fórnariamba grimmdariegra þjóðahreinsana sem Serbar hófu í apríl og maí 1992. Manndrápin byrjuðu í austur- og norðvestur- hluta Bosníu-Herzegóvínu og þeim lauk í austur- og suðausturhlutan- um, í Srebrenica, Foca, Gorazde. Fólkið er grafíð á mörgum stöðum í þessu fagra landi en fjölskyldur bíða í örvæntingu eftir því að jarð- neskar leifar þeirra sem féllu verði grafnar upp og borin á þær kennsl. Það verður enginn friður eða sátt fyrr en búið er að finna og bera kennsl á leifar þeirra sem létu lífíð eingöngu vegna þess að þeir voru múslimar og jarðsetja fólkið í sam- ræmi við hefðir staðarins. 12. ágúst 1998. Tók þátt í að grafa upp líkamsleifar allan daginn. Mér fínnst sumarið heitt, ákaflega heitt hér í Bosníu-Herzegóvínu. Eg bý núna í Sanski Most í norðvestur- hluta landsins og vinn sem sjálf- boðaliði fyrir bosnísku ríkisnefnd- ina um mál þeirra sem týndust. Eg er í reynd réttarmannfræðingm- en virðist vera grafari. Frá 16. júlí hefur hópurinn okkar unnið við að grafa upp lík á Pri- jedor-svæðinu. Eg vakna alltaf fyr- ir sólarupprás, þá er enn dimmt úti. Það kemur á óvart hve næturloftið er svalt og ferskt eftir dæmalausa hitamolluna á daginn. Það er held- ur hljótt, borgin sefur enn þá. Einu hljóðin sem berast inn um glugg- ann eru stöku fuglasöngur, hundgá í fjarska eða hanagal. Eg rétti út höndina eftir Buw- Buw sem liggur á koddahorninu og gæli við hann. Buw-Buw er gamall og býsna slitinn tuskuhundur sem yngri dóttir mín, Monika, á. I hvert Sorg aðstandenda sem missa ástvini verður oft enn óbærilegrí ef einhver óvissa ríkir um afdrifín eða líkamsleifar finnast ekki. Eva Klonowski er réttar- mannfræðingur, búsett í Reykjavík, og vinnur nú við að grafa upp bein fórnar- lamba svonefndra þjóðahreinsana í átök- unum í Bosníu-Herzegóvínu. Hún segir hér frá reynslu sinni. sinn sem ég fer frá Islandi biður hún mig um að taka hann með mér. Buw-Buw er því ferðalangur og hann „annast“ mig líka. Hann minnir mig á heimilið, fjölskylduna og „hina“ tilveruna mína langt í norðri. Heimili mitt á Islandi. Þegar dagur rennur upp les ég bækur eða rifja upp ný bosnísk orð sem ég hef lært. Ég get þegar bjargað mér vel á bosnísku en þarf að læra fleiri orð til að geta tjáð mig betur. Ég fer í sturtu, klæði mig og fer ut. „Hvernig svafstu í nótt?“ Á leiðinni á hótelið kaupi ég „pletenec", brauðsneið með val- múafræjum, vatn og ferskjusafa sem ég ætla að fá mér í hádeginu. Við hótelið er þegar fjöldi fólks, hér er mannsöfnuður á hverjum degi. Þetta er fundarstaðurinn okkar. Ég sest við eitt af borðunum framan við kaffístofu hótelsins og panta fyrsta kaffisopa dagsins. Tvöfaldan exjjresso með þeyttum rjóma. Ég borða brauðsneiðina mína með kaffinu og rabba við fólkið. Við skiptumst á venjulegum kurteis- isyrðum, „komdu sæl“, „hvemig svafstu í nótt?“, brosum. Rúmlega hálfníu setjumst við í bílana og röð 10 eða fleiri farartækja leggur af stað í áttina að Prijedor. Ég sit í fremsta bílnum, gömlum Toyota Land Cruiser sem Alþjóða- nefnd Rauða krossins gaf bosnísku nefndinni fyrir tveim mánuðum. Fyrir aftan mig og bílstjórann, Kemo, sitja Nermin, réttarmeina- fræðingur, Ismet, krufningasér- fræðingur, Jasmin, félagi í bosn- ísku nefndinni og aðalskipuleggj- andi starfsins á Prijedor-svæðinu, og „Sudja“, héraðsdómari frá Bihac, ásamt þrem vitnum. Við er- um með ný vitni á hverjum degi. Eftir u.þ.b. tíu mínútna akstur stansar bílalestin. Við erum komin að fyrirhuguðum fundarstað í Ostra Luka á svonefndu ZOZ eða aðskilnaðarsvæði sem er báðum megfcn við ósýnileg landamæri sam- bandsríkisins Bosníu-Herzegóvínu og lýðveldis Bosníu-Serba. Hér hittum við embættismenn hinna síðarnefndu. „Rambo“, afar hávaxinn og fríð- ur, tékkneskur hermaður og tveir félagar hans í SFOR eins og það heitir hér, friðargæsluliðið á vegum NATO, bíða eftir okkur. Þeir eru úr tékkneskri liðsveit sem hefur BUW-BUW gætir vegabréfsins miðans vandlega. bækistöðvar á Stari Majdan- svæðinu og gæta öryggis okkar á leiðinni. Einnig er Cire, svartur lögreglumaður frá Senegal, með en hann er fulltrúi Alþjóðasambands lögi-eglumanna. Nýr starfsdagur með hefðbundnum verkefnum hefst - farið er yfír lista með nöfnum Bosníumannanna í hópnum. Við Kemo ræðum hvað muni koma okkur á óvart í dag. Undan- farnar tvær vikur hefur allt gengið snurðulaust en stundum hafa Serbar verið með einhverjar mót- bárur. Einn daginn sögðu þeir að á listanum væru „stríðsglæpamenn", í annað skiptið fannst þeim nöfnin of mörg. Þetta kostaði langar viðræður. Tíminn leið, hart var deilt en alþjóðlegu eftirlitsmennirnir, sem voru með okkur, reyndu að fínna lausn á „vandanum". Mér fannst að málið allt væri hluti af einhvers konar leik með það að markmiði að gera hópnum gramt í geði, að minnsta kosti um hríð. En í dag gekk allt vel. Eftir að hafa heilsast kurteislega er farið yf- ir listann og nokkrum mínútum síð- ar erum við reiðubúin að halda Misfellur í landslagi Örstutta stund finnst mér að við séum að fara í indælt ferðalag. Mér tekst einfaldlega að njóta útsýnis- ins smástund án þess að hugsa. Bara smástund í morgunmistrinu. Smástund af því að það er alls ekki hægt að njóta landslagsins. Það er ekki hægt að komast hjá því að sjá allar beinagrindurnar, brot úr hrundum og brenndum húsum. Þau standa beggja vegna vegar- ins eins og hræðilegar misfellur í þessu fallega landslagi. Þögul vitni hörmunganna sem hér urðu fyrir sex ánim. Fyrir nákvæmlega sex árum, sumarið heita 1992, varð þetta yndislega svæði vettvangur einhverra gi-immdariegustu að- gerða sem um getur gegn múslim- um í landinu. Þetta var ósköp blátt áfram nefnt þjóðahreinsun. í mínum huga merkir oi'ðið hreinsun eitthvað gott og hreint. Þetta var ALLS EKKI þannig. Velvopnaðir liðsmenn úr sveitum Serba, studdir af meira en fúsum serbneskum nágrönnum, myrtu á Prijedor-svæðinu yfir 3.800 manns, aðallega karla, og ráku þúsundir kvenna og bama af heimilum sínum og gerðu þau að flóttamönnum. Öll heimili múslima vora rænd og síðar eyðilögð og brennd. Fyrirvaralaust var tilveru þeirra sem lifðu af fjöldamorðin umturnað á ægilegan hátt og til frambúðar. Á hverjum degi heyri ég nýjar sögur hjá vitnunum okkar. Hvem dag velti ég fyrir mér hvemig fólkið geti lifað eðlilegu lífi eftir það sem gerst hefur. Hvemig geta þau hald- ið áfram? Hvernig geta þau brosað? Hvernig . . . ? Ég held áfram að spyrja og er viss um að þau muni aldrei gleyma því sem gert var á hlut þeirra. Hvernig geta þau gleymt þessum skelfingaratburðum, öllum hryðju- verkunum? Ég held að það sé ekki hægt. Ég er hrædd um að það sé elcki hægt að fyrirgefa. Ég held að ég gæti það ekki . . . Við förum til Zenovici í dag. I nokkurra kíló- metra fjarlægð frá Pri- jedor beygjum við til vinstri, alls staðar era nýbyggð hús. Staflar af múrsteinum eru við þau, alls ekki nýir steinar. Sama mynstrið, sömu hvítu blettirnir, era á þeim öllum. Þeir. eru úr húsum múslima sem hafa verið lögð í rúst. Stolnir. Þorpið sem við ökum fyrst um er, eins og öll slík umhverfis Prijedor, eins og draugabær. Hvert einasta hús er í rúst, þeim sem ekki féllu strax var eytt síðar. Þar sem það var hægt var múrsteinunum stolið, rafmagnsvírar voru fjarlægðir úr veggjunum. Gluggar, keramikflísar á gólfunum, allt sem hægt er að nota aftur sem byggingarefni, er horfið. Öðra hverju föram við fram úr hestvagni sem hlaðinn er múrstein- um úr yfírgefnum húsum. Ég velti fyrir mér hvernig uppranalegu íbú- arnir geti nokkurn tíma snúið aftur ef ekkert er eftir. Löng bílalestin þokast hægt í átt að kjarna þorpsins. Vegurinn mjókkar og er þakinn gróðri. Flest- ar húsarústirnar eru faldar á bak við hátt gras, ranna og tré. Alls staðar á leiðinni era plómur og epli sem enginn hefur hirt. Fullþroskuð brómber eru enn á runnunum. Loksins náum við á áfangastað. Bílarnir nema staðar og allir fara út. Fyrstu þrír staðirnir sem við ætlum að kanna í dag eru allir á litlu svæði, aðeins nokkur hundruð metrar á milli þeirra. og flug-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.