Morgunblaðið - 13.12.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.12.1998, Blaðsíða 30
 30 C SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ N INO D ANIELI fiertu GARÐURINN -klæðirþigvel Meðlagsgreiðendur Meðlagsgreiðendur, vinsamlegast gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað. Innheimfustofnun sveitarfélaga, Lágmúla 9, 108 Reykjavík, sími 568 6099, fax 568 6299. CDD-Z56 Allt að 150 númera minni Þar af 50 með nafni Blikkljós Valhnappur Tímamæling samtala Getur geymt útfarandi númer íslenskar leiðbeiningar íslenskar merkingar Jélotilboð A vegg eða borð TDD-D00D Allt að 150 númera minni stgr- Þar af 50 með nafni Blikkljós Valhnappur Timamæling samtala Getur geymt útfarandi númer 23 skammvalsminni Hátaiari íslenskar leiðbeiningar islenskar merkingar Jófatilbcið A vegg eða borð --------------- TDD-1000 30 númera minni Blikkljós Valhnappur 3 skammvalsminni jslenskar feiðbeiningar islenskar merkingar Á vegg eða borð stgr. CDD-H003 30 númera minni Blikkljós Valhnappur jslenskar leiðbeiningar íslenskar merkingar [ Áveggeða borð Td afgmaslu 1&12.9e ffl htrA stgr. na&«fe*><&?Z9í Slöumúla 37 108 Reykjavik S. 588-2800 Fax 588-2801 Mörkun fótabaða ÞEGAR ég var á hressingargöng- unni á sunnudaginn fór ég að hugsa um það hvað ég væri eigin- lega búinn að skrifa þessa dálka í Moggann í mörg ár. Datt mér í hug hvort verið gæti að næsta ár yrði tuttugasta árið og þá yrði ég að gera eitthvað til þess að halda upp á það með pomp og pragt. Þegar heim kom gáði ég upp í skáp, en þar geymi ég möppur sem varðveita þessar skriftir. Þar fann ég út að ég er bara að klára sautjánda árið svo ég hefi ekkert til að halda upp á enn þá. Við gluggun í möppumar sá ég frum- rit af grein frá 1986, sem bar yfir- skriftina „Hvar eru Clairol-fóta- böðin?“ Prentuðu greinina var hvergi að finna og er því mögu- leiki á því að þessi ritsmíð hafi aldrei verið birt. Efnið er enn í fullu gildi og ætla ég að skella henni hér á ykkur, til vonar og vara. Það skal tekið fram til skýr- ingar að 1986 var bara ein sjón- varpsstöð í landinu og skilst mér að allur landslýður hafi horft dyggilega á allt það efni sem hún færði á skjáinn: „Eftir því sem Islendingum hefir vaxið fiskur um hrygg í út- flutningsmálum og annarri versl- un, og umsvifin hafa aukist á er- lendum sem innlendum vettvangi hafa þeir rekist á skort íslenskra orða til að lýsa starfsemi sinni. Það er fyrst of fremst enska orðið „marketing“ sem valdið hefir því að mörgum manninum hefir orðið fótaskortur á tungunni. Það hefir sem sagt ekki tekist að íslenska þetta títtnotaða orð svo að öllum líki. Það væri ef til vill ekki úr vegi að útskýra íyrir þeim, sem ekki eru með á nótunum í umfangi frjálsrar verslunar, muninn á sölu og „marketing". Það síðamefnda innifelur þá vinnu og kostnað, sem það útheimtir að skapa eftir- spurn eftir vörunni, svo hgæt sé að selja hana á viðunandi verði. Svo eru líka til einhliða sölur, eins og þegar undirritaður er samn- ingur við Rússa um að þeir kaupi 10.000 tonn af karfaflökum. Hér þurfum við ekkert að hugsa um „marketing". Ymsar uppástungur um þýð- ingu á enska orðinu hafa komið fram og vinninginn virðist hafa haft „markaðssetning", sem mér finnst bæði ljótt og stirt í notkun. Hvað skyldi svo heita persónan sem markaðssetur? Mundi það vera markaðssetningur samanber Þórir S. Gröndal skrifar frá niðursetningur? Væri ekki nær að kalla „marketing" mörkun? Þetta er kvenkynsorð, sem til er í mál- inu, en mjög lítið notað nema í mörkun sauðfjár og í samsetning- unni takmörkun. Hér er stutt og lipurt orð af sama stofni og mark- aður og ætti það að geta tekið að sér þetta nýja hlutverk með glans. Fljótlega gætum við séð setningar eins og þessar: „Mörk- un lagmetis í Ameríku gengur vel“. „Jón sér um mörkun og sölu fyrir Fugleiðir í Færeyjum". Þegar markaðssetningarnir þurfa að nota sagnorðið, kalla þeir það „að markaðssetja", sem ég vil kalla „að merkja“. Þetta orð fyrirfinnst ekki í málinu sam- kvæmt orðabók Menningarsjóðs. Skulum við nú taka nokkur dæmi þar sem hægt væri að nota nýyrð- ið. Héma í henni Ameríku, þar sem einkaframtakið og kapítal- isminn eru allsráðandi, hefir mörkun lengi verið í hávegum höfð. Verðlaun eru veitt fyrir mörkunar-afrek og sögur eru sagðar af vel heppnuðum mörk- unar-herferðum. I höfuðstöðvum Clairol-fyrir- tækisins í Kaliforníu er enn verið að tala um eitt mesta afrekið í mörkun í sögu þess, þá er þús- undir fótabaða voru seldar til ís- lands á fáum mánuðum fyrir nokkrum árum. Mörkunarher- ferðin á Fróni fólst aðallega í snjöllum sjónvarpsauglýsingum, sem höfðu feikileg áhrif. Herferð- in þótti ekki dýr enda auðvelt að ná til allra landsmanna, því þeir eru allir límdir við sömu sjón- varpsstöðina. Það fannst Clairol- mönnum sniðugt. Svo mikið lá á að koma fleiri fótaböðum til landsins fyrir jólin að grípa varð til þess að senda viðbótarbirgðir með flugvélum. Um tíma voru forráðamenn Cla- irol famir að halda að ef til vill væru Islendingar fjórfættir! Hvergi nokkurs staðar í heimin- um hafði náðst slíkur árangur í sölu þessa tækis. Um þau jól hefir stór hluti þjóðarinnar líklega þvegið fætur sína daglega í þessum forláta Cla- irol-apparötum, sem ekki aðeins þvoðu lúnar lappir, heldur nudd- uðu iljamar og veittu mikinn unað ef trúa má auglýsingunum. En hvað skyldi svo hafa orðið af öll- um þessum fótaböðum? Ég hefi ekki heyrt nokkum mann minn- ast á þau í langan tíma og heldur veit ég ekki, hvort fótamenning þjóðarinnar hefir batnað til lang- tíma. Er kannske minni táþefur í landinu? Hefi ég sterkan gran um það að Clairol-fótabaðstískan hafi staðið stutt við og síðan orðið að víkja fyrir öðram menningar- straumum. _ En hvar eru annars fótaböðin? Ég hefi haldið uppi spurnum en ekki orðið mikils vísari og aðeins heyrt um tvö af öllum þeim þús- undum sem seld voru. Annað ku hafa sést úti á svölum í Vestur- bænum, skartandi útsprungnum stjúpmæðrum og öðrum sumar- blómum. Hitt sætti mikilli niður- lægingu, því það er notað fyrir sand handa heimilisketti í Holtun- um, fyrir hann að ganga þar öma sinna. Væri fróðlegt að heyra frá lesendum ef þeir geta varpað ljósi á örlög einhverra af þeim þúsund- um fótabaða, sem landsmenn eignuðust á umræddum jólum. Látum við þetta nægja um fóta- baða mörkunar-afrekið mikla. Mýmörg dæmi er hægt að tína til um atvik, þar sem vamingur hefir verið sendur á markað án þess að tilhlýðileg mörkun hafi fyrst farið fram. Svoleiðis getur oft farið illa enda varla við öðru að búast. Fyrir mörgum árum var mikið magn af lagmeti selt japönsku fyrirtæki sem ætlaði að selja vörurnar í Ameríku. Japanskir gerðu enga tilraunir til að merkja þetta íslenska lagmeti og þess vegna seldust ekki afurð- irnar. Lágu miklar birgðh- í skemmu í Virginíuríki heilt heitt sumar og kom margt skrítið fyrir. Svarti grásleppukavíarinn breytti um lit eins og kameljón varð fyrst grænn og svo gulur. Sfldardósir bólgnuðu út og urðu bústnar en fjöldinn allur af krukkum og dós- um sprakk í loft upp. Önnur sorg- leg dæmi mætti til tína en við lát- um þetta vera nóg að sinni. Þann lærdóm má af draga að fyrst verður að koma mörkun en svo sala.“ Að lokum vil ég svo óska les- endum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Barnamyndir Líka þegar maður er lítill B A RN A ^rjÖLSKYLDl) LJOSMYNDIR Ármúla 38 • sími 588-7644 Gunnar Leifur Jónasson - yERLENT Lafontaine býður blaðamenn Sun velkomna Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn eðaltré, i hœsta gœðaflokki og prýða þau nú mörg hundruð íslensk heimili. Wáraábyrgð 12 stærðir, 90 - 500 cm Stálfótur fylgir Ekkert barr að ryksuga ». Truflar ekki stofublómin ^SNORRABRAUT 60 ;*• Eldtraust Þarfekki að vökva íslenskar leiðbeiningar Traustur söluaðili ;« Skynsamleg fjárfesting Bamitaiag ísltmskro skaia íœsmua&vk ÆMBsmsa&, Saarbriickcn. Reutcrs. OSKAR Lafontaine, fjármála- ráðherra Þýzkalands, sem brezka æsifréttablaðið The Sun hefur gengið svo langt að kalla „hættulegasta mann Evrópu" vegna stefnu hans í Evrópumál- um, sagði á þriðjudag að blaða- menn blaðsins ættu að heim- sækja heimaland sitt til þess að fræðast um Evrópu. The Sun hefur tekið illa upp yfirlýsingar Lafontaines um að æskilegt væri að samræma að nokkru leyti skatta í aðildarríkj- um Evrópusambandsins (ESB) og kallaði hann í uppslætti „mestu ógnina við brezka lífs- hætti frá því í síðari heimsstyij- öld“. Fréttir á Netinu En Lafontaine sagði að saga heimahéraðs hans, Saarlands - þar sem ófáar orrustur milli Þjóðverja og Frakka hafa verið háðar í gegnum tíðina - væri nægileg sönnun fyrir því hve samruni Evrópu væri eftirsókn- arvert takmark. „Ef til vill ættum við að bjóða blaðamönnum The Sun hingað til að leyfa þeim að upplifa hinn menningarlega fjölbreytileika Evrópu og góð samskipti ná- granna af ólíku þjóðerni,“ sagði Lafontaine er hann ávarpaði flokksþing Jafnaðarmanna- flokksins, sem lialdið var í Sa- arbriicken, heimabæ flokksfor- mannsins. ^mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.