Morgunblaðið - 24.01.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.01.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1999 . E Fiskveiðar og mannlíf í Víetnam Víetnam var um árabil vettvangur harðra stríðsátaka og á allra vörum. Einar Eyþórsson þjóðfélagsfræðingur hefur undanfarið ár tekið þátt í norsku rannsóknarverkefni um sjávarútveg _____í Víetnam. Hér segir hann frá_ reynslu sinni af landi og þjóð. , , ^ __ Ljósmyndir/Einar Eyþórsson BÁTAFÓLKIÐ er enn fjölmennt í Víetnam. A fyrri hluta aldarinnar héldu flestir til á ám og lónum, en í dag eru mörg fljótandi þorp á sjónum, eins og hér, inn á milli klettahólmanna á Halong-flóa. Undanfarin tvö ár hafa þeir best stæðu byggt bambuskofa sem fljóta á olíutuiinum. Víetnam! Fyrir okkur sem komumst til vits og ára á áttunda áratugnum skip- ar þetta land mikilvægan sess í minningunni um ósættan- legar pólitískar deilur þessa ára- tugs. Við minnumst stríðsins sem aldrei virtist ætla að taka enda, vægðarlausra loftárása Banda- ríkjamanna og að því er virtist óbilandi baráttuvilja Víetnama undir forystu kommúnista. Öll gerðum við okkur einhverjar hug- myndir um þetta land, jákvæðar eða neikvæðar, allt eftir því hvar við töldum okkur eiga heima á hægri-vinstri skalanum. Nú er þetta allt liðin tíð og yngri kyn- slóðin getur með réttu spurt um hvað var barist, til hvers var milljónum mannslífa fórnað? Þegar mér bauðst að taka þátt í norsku rannsóknarverkefni um sjávarútveg í Víetnam, var ekki laust við að sh'kar minningar ykju forvitnina; hvernig var nú ástatt í landinu sem fyrir aldarfjórðungi var á allra vörum? Eftir eitt ár og þrjár heimsóknir til Norður-Ví- etnams þykist ég nú nokkurs vís- ari. Það er „Norsk Institutt for By- og Regionforskning" sem hefur tekið að sér að skoða áhrif endur- nýjunarstefnu kommúnistastjórn- arinnar í Hanoi á þróun sjávarút- vegs í Víetnam, en norsk þróunar- aðstoð beinist meðal annars að ví- etnömskum sjávarútvegi. Örar breytingar Það fyrsta sem slær íslenskan sveitamann við komuna til Hanoi er mannhafið. íbúar landsins eru nú rúmlega 70 milljónir, í landi sem er á stærð við Noreg. Um- ferðin í Hanoi virðist ekki lúta sömu reglum og heima, vélhjól, reiðhjól og bílar velta fram í óskipulegri bendu, flautan er óspart notuð. Nú, þegar frjálst framtak er aftur orðið leyfilegt, er erfitt að komast leiðar sinnar í borginni fyrir ötulum sölumönn- um og konum. Útlendingar skera sig úr fjöldanum, vestrænt útlit gefur til kynna að hér séu dollar- ar á ferðinni. Þrátt fyrir fortíðina er Bandaríkjadollarinn í miklum metum. Yngri kynslóðin leggur sig líka fram um að læra ensku og vill gjarnan prófa kunnáttuna á okkur. Þótt kommúnistaflokkurinn sitji enn sem fastast við völd hafa orðið örar breytingar í landinu undanfarinn áratug. Eftir að styrjöldinni lauk 1975 settu Ví- etnamar traust sitt á Sovétríkin, sem veittu landinu efnahagsað- stoð til þess að byggja upp sósíal- ískt þjóðfélag eftir sovéskri fyrir- mynd. Fjöldi Víetnama fékk æðri menntun í austantjaldslöndunum, og Víetnam gerðist aðili að Comecon, efnahagsbandalagi kommúnistaríkja. Um miðjan ní- unda áratuginn var þó orðið nokk- ÓNÝTIR hervöi-ubflar geta lengi komið að gagni. Ökutæki af þessu tagi sér maður hvarvetna í Víetnam. Tveir vörubflsöxlar og gírkassi á grind, knúið af litlum kínverskum díselmótor. uð ljóst að sovétfyrirkomulagið myndi ekki standast til frambúð- ar, hvorki í Víetnam né í Sovét- ríkjunum sjálfum. Víetnamstjórn hefur síðan reynt að feta svipaða leið og Kína, leyfa einkaeignarrétt og frjálsan markað, án þess að flokkurinn láti völdin af hendi. Þessi stefna er kölluð Doi Moi, eða endurnýjun. Að vissu leyti má segja að end- urnýjunarstefnan hafi skilað góð- um árangri, að minnsta kosti ef borið er saman við framvindu mála í Sovétríkjunum fyri-ver- andi. Fyrir mikinn meirihluta þjóðarinnar hafa lífskjörin batnað til muna. Athafnafrelsið hefur leyst úr læðingi mikla atorku meðal fólks, það er líkast því að hver einasta fjölskylda sé að reyna að drýgja tekjurnar með einhverskonar viðskiptum. Það er fjölskyldukapítalisminn sem hefur leyst sósíalismann af hólmi. En atorka og hugkvæmni almennings er kannski ekki nóg. Samanborið við Kína gengur seinlega að lokka erlent fjármagn til landsins, Ví- etnam er enn eitt af fátækustu löndum heims. Aukinn sjávarafli En hvernig vegnar víetnömsk- um sjávarútvegi í ölduróti breyt- inganna? Strandlengja landsins er álíka löng og sú norska, og um- talsverðar auðlindir er að finna í hafínu á landgrunninu. Fiskur og önnur sjávardýr gegna líka mikil- vægu hlutverki í matarræði lands- manna. Sjávarafli og aflaverð- mæti hefur stóraukist á undan- förnum árum, en nú er hætta á að auðlindirnar, sérstaklega við ströndina, séu ofnýttar. Á árunum milli 1960 og 1980 var samyrkjufyrirkomulaginu komið á í fiskveiðum í Norður-Ví- etnam, eftir stríðslokin 1975 var gerð skammvinn tilraun til að koma sama skipulagi á í suður- hluta landsins. Ríkisstyrkt sam- vinnufélög gerðu út báta, ríkið lét í té veiðarfæri og eldsneyti og ráðstafaði aflanum, en sjómenn fengu hrísgrjónaskammt til að halda lífi í fjölskyldunni. Ekki „CYCLO“ kallast þetta ökutæki sem enn er notað til leiguaksturs í Ha- noi. Ungir cyclo-ökumenn eru aðgangsharðir og alls staðar nálægir í höfuðborginni. Margir þeirra eru atvinnulausir bændasynir sem búa í þorpum utan við borgina. BÁTAFÓLKIÐ er fátækt og barnmargt - takmörkun barneigna við tvö börn, sem er stefna stjórnvalda, virðist ekki ná til þeirra. Skóla- ganga heyrir til undantekninga, ríkið greiðir ekki lengur allan skóla- kostnað, og auk þess er langt í skóla frá fljótandi fiskiþorpum á Ha- long-flóa. Hér er greinarhöfundur um borð í fleka með bátafólki í Cua van á Halong-flóa. FLÓTTINN til Hong Kong hélt áfram fram yfir 1990. Konan á miðri mynd sagðist hafa flúið með fjölskyldunni árið 1991, skömmu áður en flóttaniaimabúðununi þar var lokað. Fjölskyldan sneri aftur af f'rjáls- um vilja eftir fjóra mánuði. Það var eins gott, segir hún, því sonur hennar (til hægri) hefði orðið ónytjungur ef hann hefði vanist letilífinu í flóttamannabúðunum. Ferðin til baka var ógleymanleg, hún hafði aldrei áður ferðast með svo stóru skipi. Þetta ferðalag var reyndar ekki alveg árangurslaust, því fjölskyldan fékk 15.000 ísl. kr. frá Sa- meinuðu þjóðunum fyrir að fara heim og sfðan hagstætt lán fyrir heimkomið flóttafólk gegnum Evrópusambandið. Nú er fjölskyldan ekki Iengur bátafólk, heldur býr í eigin húsi og gerir út bát. Fyrir aft- an hana situr flokksfulltrúinn frá sveitarfélaginu (með derhúfu) og hlær dátt að öllu saman. þótti þó gerlegt að þjóðnýta allar þær tugþúsundir smábáta sem haldið var til hefðbundinna strandveiða. Margir þessarra báta voru, og eru enn þann dag í dag, heimili fátækra fjölskyldnæ * sem ekki eiga sér samastað á þurru landi. Sviptingar í sjávarútvegi Þótt Víetnamstríðinu lyki 1975, var hremmingunum ekki lokið. Þremur árum síðar tók við ný styrjöld og hernám Kambódíu, sem þá var undir járnhæl rauðu khmeranna. Þótt hernámið byndi enda á eitthvert versta þjóðar- ‘ morð okkar tíma, var Víetnömuní*’ refsað, bæði af Vesturlöndum með Bandaríkin í broddi fylkingar, sem komu á viðskiptabanni, og af Kínverjum, sem réðust á landið úr norðri. Vinslitin við Kína urðu til þess að fjöldi fólks af kínverskum uppruna var hrakinn úr landi til Kína. Þetta hafði afar slæm áhrif á sjávarútveginn í Norður-Ví- etnam. Kínverjarnir voru margir hverjir dugandi sjómenn og víða fremstir í flokki í rekstri sam- vinnufélaganna. Flótti Kínverj- anna skildi útgerðina eftir í rúst á mörgum stöðum. Við þetta bætt- ust gífurlegir erfiðleikar í efna- hagslífinu, sem urðu upphafið á^. stórfelldum flóttamannastraumi, sem frá norðurhluta landsins lá til Hong Kong. Margir flóttamann- anna voru fátækt bátafólk í leit að þolanlegra lífi. Sumsstaðar voru fískiskip samvinnufélaganna tekin traustataki til að sigla til Hong Kong. Fyrstu árin komust margir til annarra landa, eftir lengri eða 1 skemmri dvöl í flóttamannabúð- , um, en seinna var farið að senda J flóttamennina heim aftur. Strax og farið var að slaka á i miðstjórnarvaldinu í viðskiptum ‘ með sjávarafla upp úr 1980, fóru < sjómenn að yfirgefa samvinnufé- i lögin, en smábátum í einkaeign j fjölgaði að sama skapi. Á árunumr-.' 1985 til 1995 varð gífurleg afla- , aukning, en sá gallinn er á að nær i öll stærri fiskiskip sem samvinnu- < félögin gerðu út eru nú horfin úr j rekstri, en smábátarnir sem sækja á heimamiðin eru orðnir • fleiri en góðu hófi gegnir. Stjórn- | völd reyna nú að bregðast við ; þessu með því að bjóða hagstæð lán til togarakaupa, og talsverður fjöldi nýrra togara er nú um það bil að komast í gagnið. Hin hliðin á málinu, hvernig hægt er að minnka sóknina á heimamiðin, en^. öllu erfiðari viðfangs, eða hvar á bátafólkið, sem oft á tíðum er ólæst og óskrifandi, að leita sér viðurværis ef því verður bannað að veiða fisk? Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og starfar við Háskélann ( Finn- mörku, sem er í Alta i Norður-Nor^ egi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.