Morgunblaðið - 11.02.1999, Síða 1
SKATTAR Hlutdeild í greiddum sköttum 1991-1997 ÍIVIARK IDNADUR mmm
Irmlánsstofnanir ' Sparisjóöir Athyglisverðustu jjjggjHgS Viðskipti og f
greiddu3,l milljarð /4 auglýsingamar /6 1 ÍMARK-Jl verksmiðjur /8 m MRhIhM
vœsmpn aivinnuiíf
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR11. FEBRÚAR1999 BLAÐ
Vöruskiptin
Vöruskiptin við útlönd í desember
voru hagstæð um 800 milljónir en í
desember 1997 voru þau óhagstæð
um 100 milljónir. Allt árið 1998
voru fluttar út vörur fyrir 136,6
milljarða króna en inn fyrir 162,1
milljarð króna fob. Halli var því á
vöruskiptunum við útlönd sem nam
25,5 milljörðum króna en á sama
tíma árið áður voru þau óhagstæð
um 100 milljónir á föstu gengi. /2
Europay ísland
Hagnaður Europay Island nam um
108 milljónum króna á liðnu ári.
Meginstarfsemi fyrirtækisins hefur
verið greiðslumiðlun, útgáfa
greiðslukorta og lánastarfsemi
henni tengd. Stjórn Europay hefur
sótt um starfsleyfi sem lánastofnun
og er vonast til að viðskipta-
ráðuneytið afgreiði umsóknina
fljótlega. /2
Frumkvöðull
Þóra Guðmundsdóttir, annar eig-
andi Atlanta, liefur verið valin af
samtökunum „Europe’s 500“ sem
framsæknasti frumkvöðull meðal
evrópskra kvenna og mun taka við
sérstökum verðlaunum fyrir þá
nafnbót úr höndum Tony Blair, for-
sætisráðherra Breta, á ráðstefnu
samtakanna 12. mars næstkom-
andi í Edinborg. /2
Breytingar á vísitölu neysluverðs
■BMHaaBnlaMMaMHaaaMaMBaaBMaBMBaHHnMMMaiMLaBMaaaaBBaaMaaaBii
Mars 1997 = 100
Tölurísvigumvísatil
vægis einstakra Ira.
Frá jan. til feb. 1999
01 Matur og óáfengar drykkjarvörur (17,5%)
011 Matur (15,4%)
0112 Kjöt (3,3%)
0114 Mjólk, ostar, egg (3,2%)
02 Áfengi og tóbak (3,4%)
03 Fötog skór (5,7%) -6,5% |
031 Föt (4,6%) -5,8% [
04 Húsnæði, hiti og rafmagn (17,9%)
043 Viðhald og viðgerðir á húsnæði (1,2%)
05 Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. (5,6%)
051 Húsgögn og heimilsbúnaður (2,2%)
06 Heilsugæsla (3,2%)
07 Ferðir og flutningar (16,2%)
08 Póstur og sími (1,1 %)
09 Tómstundir og menning (13,7%)
10 Menntun (1,0%)
11 Hótel og veitingastaðir (5,4%)
12 Aðrar vörur og þjónusta (9,4%)
H +0,6%
□ +0,7%
-0,8% □
m +1.2%
1 +0,2%
| 0,0%
□ +1,!%
-0,4% 1
1,4% r i
i +0,5%
Q+0,3%
| 0,0%
|+0,1%
10,0%
□ +0,8%
0 +0,5%
VÍSITALA NEYSLUVERÐS í FEB.: 103,4 stig
1-0,1%
Verðbólga í nokkrum ríkjum
Breyting samræmdrar neysluverösvísitölu frá des. 1997 til des. 1998
SÖLUGENGI DOLLARS
Grikkland
Portúgal
írland
Noregur
Ítalía
Bandaríkin
Holland*
Bretland
Spánn
Danmörk
Finnland
Japan*
Belgía B3 ísland ■v 0,5%
Austurríki* 1 1 0,5%
Lúxemborg m 0,4%
Þýskaland m 0,4%
Frakkland C3 0,3%
Svíþjóð Sviss □ 0,0% -0,2%
’ * Bráðabirgðatölur
0,8/o ** Samkvæmt gengisvog
0,7% Seðlabanka Islands
Viðskiptalönd** I I 1,2%
Meðaltal ESB* I............1 1,0%
Meðaltal EES* I I 1,0%
Meðaltal EMU* |-----------1 0,8%
í EES rikjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðs-
vísitölu en í Bandar., Japan og Sviss við neysluverðsvisitölur.
Vísitala neysluverðs lækkar um 0,2%
Verðbólgan
0,9% síðustu
þrjá mánuði
VÍSITALA neysluverðs miðað við
verðlag í febrúarbyrjun lækkaði um
0,2% frá fyrra mánuði, en spár
höfðu almennt gert ráð fyrir hækk-
un vísitölunnar. Vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis lækkaði einnig
um 0,2%. Undanfarna þrjá mánuði
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 0,2% sem jafngildir 0,9% verð-
bólgu á ári.
I tilkynningu frá Hagstofu íslands
kemur fram að verðlækkun á fótum
og skóm, sem stafi aðallega af vetr-
arútsölum, hafi lækkað vísitölu
neysluverðs um 0,39%. Verð á mat
og drykkjarvörum hækkaði um 0,6%
sem hafði í för með sér 0,11% hækk-
un á vísitölu neysluverðs. Síðastliðna
12 mánuði hefur vísitalan hækkað
um 1,4% og vísitala neysluverðs án
húsnæðis hefur hækkað um 0,5%.
Verðbólgan í EES-ríkjum frá des-
ember 1997 til desember 1998, mæld
á samræmda vísitölu neysluverðs,
var að meðaltali 1,0%. í Svíþjóð stóð
neysluverðlag í stað og í Frakklandi
hækkaði það aðeins um 0,3%. A
sama tímabili var verðbólgan á Is-
landj 0,5% og í helstu viðkiptalönd-
um Islendinga var verðbólgan 1,2%.
Spáðu óverulegri lækkun eða
hækkun milli mánaða
I verðbólguspá Kaupþings hf. var
gert ráð fyi'ir 0,20-0,22% hækkun
vísitölu neysluverðs milli mánaða, en
það samsvarar um það bil 2,5-3,0%
verðbólgu á ársgrundvelli. í spánni
var m.a. byggt á 11,1% hækkun póst-
burðargjalda til útlanda, lítillegri
hækkun matvöru, 0,85% hækkun að
meðaltali á áfengi og 0,33% hækkun
að meðaltali á bjór. Reiknað var með
að fataliðir stæðu í stað eða hækk-
uðu lítillega og búist var við að hús-
næði hafi hækkað vegna mikillar eft-
irspurnar í janúar.
I verðbólguspá sinni gerði Is-
landsbanki ráð fyrir 0,1% hækkun á
vísitölu neysluverðs og 2,5% verð-
bólgu næsta mánuð á ársgrundvelli.
Hækkun næstu þrjá mánuði yrði 3%
og næstu 12 mánuði 2,4%. Hvað
varðai- helstu atriði varðandi verð-
bólguhorfur fælist helsta óvissan enn
sem fyrr í gengisþróun, þróun er-
lends verðlags og þróun framleiðni
(samkeppnisáhrifum). I spá bankans
er gert ráð fyrir óbreyttu innflutn-
ingsgengi frá síðasta gildi, 2% launa-
skriði umfram samningsbundnar
launahækkanir og 1,5% fi'amleiðni-
aukningu 1999. Þá er gert ráð fyrir
að erlent verðlag verði óbreytt árið
1999 og sérstökum árstíðabundnum
áhrifum er bætt við.
í Morgunfréttum Viðskiptastofu
íslandsbanka frá því í gær kemur
fram að lækkun vísitölu neysluverðs
komi nokkuð á óvart. Ekki sé þó
ástæða til að endurtaka verðbólgu-
spár vegna hennar, enda séu tíma-
bundnir þættir meginskýiúng lækk-
unarinnar.
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
spáði nær óbreyttri vísitölu neyslu-
verðs í febrúar eða örlítilli lækkun
hennar. Helstu forsendur spárinnai'
eru að áhrifa útsölu á fótum og skóm
muni gæta í svipuðum mæli og í
fyrra, en lítilsháttar hækkanir á mat-
vöru og hækkanir á húsnæðislið
færu langt með að eyða þeim lækk-
unaráhrifum.
Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, VERÐBRÉFASJÓÐIR LÁNDSBRÉFA
s.s. fyrirtæki, sjóði, sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga. " þú Velur þann sem gefur þér me S t
Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupum.
Yfir einn og hálfur milljarður í öruggum höndum.
Nafnávöxtun sl. 3 daga 7,39%
Nafnávöxtun sl. 30 daga 7,80%
Nafnávöxtun sl. 150 daga 7,23%
Láttu lausaféð vinna fyrir þig.
Aðeins eitt símtaL.nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar
og umboðsmanna okkarí öllum útibúum Landsbanka íslands.
y LANDSBRÉF HF.
Lðggilt verfibréfafyrirtæki. Aðli aðVerðbréfaþingi Islands.