Morgunblaðið - 11.02.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999 B 5
skattarnir 62 milljónir, eða samtals
74 milljónir króna. Itrekað skal að í
þessum tölum er einungis miðað við
skattgreiðslur móðurfélaganna, en
ekki skattgreiðslur dótturfélaga.
Ónotað skattalegt tap Islands-
banka að klárast
Arsuppgjör Islandsbanka fyiir
síðasta ár var nýlega birt og sam-
kvæmt því var hreinn hagnaður
bankans og dótturfélaga hans 1.415
milljónir króna árið 1998. Bankinn
greiddi engan tekjuskatt á árinu, en
eitt dótturfélaga hans, Glitnir,
greiddi 67 milljónir í tekjuskatt.
Astæða þess að bankinn greiðir ekki
tekjuskatt er fyrst og fremst ónotað
skattalegt tap sem á rætur að rekja
allt til þess að Alþýðubankinn,
Iðnaðarbankinn og Verslunarbank-
inn keyptu hlut ríkisins í Útvegs-
banka íslands árið 1989, en íslands-
banki varð til með samruna þessara
þriggja banka og Útvegsbankans.
Með í kaupunum á Útvegsbankanum
fylgdi yfirfæranlegt tap sem klárast
á næsta ári, en við stofnun Islands-
banka var tap þetta 619 milljónir
króna.
Á aðalfundi Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis í maí í fyrra gagn-
rýndi Guðmundur Hauksson sparis-
sjóðsstjóri harðlega stöðu fjármála-
stofnana hvað varðar skattgreiðslur
og samkeppnisstöðu sem hann sagði
mjög ólíka, og benti hann á að
hvorki Landsbankinn né Islands-
banki hefðu greitt tekjuskatt; Is-
landsbanki frá því hann var stofnað-
ur og Landsbankinn í mörg ár. Báð-
ir hafi bankarnir skilað hagnaði á
þessum tíma og þess vegna væri
eðlilegt að þeir greiddu skatta.
Sagði Guðmundur að skekkjan lægi
í því að þegar ríkissjóður hafi að-
stoðað þessa banka í erflðleikum
þein-a hafi það verið gert með bein-
um greiðslum til styrkingar eigin-
fjár bankanna. Greiðslurnar hafí
ekki komið inn í rekstrarreikning
bankanna og þess vegna hafi þeir
getað geymt rekstrartapið og síðar
nýtt sér það á móti rekstrarhagnaði.
Þannig hafi ríkissjóður með öðrum
orðum ekki aðeins styrkt bankana
með beinum greiðslum heldur gefið
þeim skattfríðindi umfram það sem
venjuleg fyrirtæki búi við og þannig
skapað þeim mikið forskot á hin fyr-
irtækin sem ekki hafi þurft aðstoðar
við.
Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka, svaraði þeirri gagnrýni
sem fram kom á skattleysi bankans
og neitaði hann því að Islandsbanki
hefði þegið opinbera styrki til starf-
semi sinnar. Hann sagði að ástæður
þéss að Islandsbanki hefði ekki
greitt tekjuskatt væru í fyrsta lagi
hið skattalega tap sem til hafi orðið
við breytingu Útvegs-
bankans í hlutafélag
árið 1987 og eftirstöðvar
þess verið 534 milljónir
króna þegar bankarnir
sameinuðust í íslands-
banka. í öðru lagi hafi
verið gerð sú breyting á
skattalögum árið 1994,
til samræmis við laga-
reglm- í Evrópu, að leyft
var að taka að fullu tillit
tO framlags á afskrifta-
reikning útlána við
skattalegt uppgjör fjár-
málastofnana. Þessi
breyting hafi gert það
að verkum að yfirfæran-
legt skattalegt tap hjá
íslandsbanka jókst um
vel á annan milljarð
króna.
Valur sagði að í
þriðja lagi hefði bank-
inn orðið fyrir rekstrar-
legu tapi á árunum 1992
og 1993 sem tekið væri
tillit til við álagningu
skatta, en í íslenskum
skattalögum væru
heimildir til að taka tillit til rekstr-
artaps fyrirtækja, og þar með
tapaðra útlána, áður en til álagning-
ar tekjuskatts kæmi. Þá sagði Valur
að í fjórða lagi yrði að hafa í huga að
Islandsbanki væri almennings-
hlutafélag sem greiddi hluthöfum
sínum arð. Þessar arðgreiðslur
kæmu til frádráttar hagnaði áður en
tekjuskattur væri lagður á, enda
greiddu hluthafarnir skatta af þeirri
fjárhæð, og bankinn hefði á hverju
ári síðustu sjö árin greitt arð. Sam-
tals væru arðgreiðslurnar 1.718
milljónir króna, en á sama tímabili
hafi hagnaður bankans numið sam-
tals 1.884 milljónum, og því hefði
bankinn greitt 91% hagnaðar síns í
arð. Benti Valur á að ofangreindar
heimildir við álagningu tekjuskatts
giltu um fyrirtæki og banka al-
mennt og engar sérreglur giltu um
þessi mál hvað varðar Islandsbanka
eða Landsbanka. íslandsbanki hefði
ekki þegið neina opinbera styrki til
starfsemi sinnar, hvorki beinar
greiðslur né óbeinar, og bankinn
byggi ekki við nein forréttindi í
skattamálum.
Miklar útlánaafskriftir
Landsbankans
Ástæða þess að Landsbankinn
hefur ekki greitt tekjuskatta á um-
ræddu tímabili er fyrst og fremst
mikill taprekstur á árinu 1992, en þá
nam tap bankans rúmlega 2,7 millj-
örðum króna. Var þar fyrst og
fremst um að ræða gífurlegar
útlánaafskriftir vegna Sambandsins,
og þurfti bankinn að setja sérstakt
2,6 milljarða króna framlag í af-
skriftasjóð útlána. Þetta yfirfæran-
lega tap hefur bankinn verið að nýta
sér síðan, og í árslok 1997 nam tapið
2,9 milljörðum króna. Samkvæmt
upplýsingum Hauks Þórs Haralds-
sonar, fjármálastjóra Landsbankans,
klárast tapið tæknilega séð eftir þrjú
ár og standi eitthvað eftir af því þá
mun það fymast.
Landsbankinn hefur verið að
greiða eignarskatta upp á 50-60
milljónir á ári undanfarin ár, en þar
sem bankinn er nú orðinn að
hlutafélagi þarf hann framvegis ekki
að greiða eignarskatta.
Fyrirkomulag spari-
sjóðanna sannað sig
Þór Gunnarsson, sparissjóðsstjóri
Sparisjóðs Hafnarfjarðar og formað-
ur Sambands íslenskra sparisjóða,
segir að skattgreiðslur innlánsstofn-
ana leiði í Ijós að það fyrirkomulag
sem verið hefur á sparisjóðunum sýni
og sanni að þeir geti vel spjarað sig
þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu
og það hafi þeir gert. Sparisjóðimir
hafi verið mjög gagnrýndir fyrir
eignar- og rekstrarfyrirkomulagið,
en afkoma þeirra og skattgreiðslurn-
ar sýni m.a. að þetta rekstrarfyrir-
komulag eigi fullan rétt á sér.
„Rekstrarfonn sparisjóðanna er al-
veg klárt. Þeir eru sjálfseignarstofn-
anir og í reyndinni í eigu viðkomandi
samfélags. Menn hafa náttúrulega
verið að hnýta í þetta vegna þess að
okkur hefur gengið mjög vel samfellt
í 11 ár á meðan bankamir hafa tekið
feiknarlegar dýfur. Það er auðvitað
meðal annars ástæðan fyrir því að við
höfum greitt margfalt meiri skatta
heldur en þeir þegar litið er til þessa
tímabils," sagði Þór.
Hann sagði erfitt að svara þeirri
spurningu hvort mismunandi skatt-
greiðslur innlánsstofnana skertu
samkeppnisstöðu þeirra, en vissu-
lega væri það álitamál hve lengi
mætti geyma skattalegt tap.
„Ég held að skattaleg töp íslands-
banka séu að mestu leyti tilkomin
þegar hann sameinast á sínum tíma,
og það er auðvitað með ólíkindum að
þetta skuli geta fengið að vera svona
lengi við lýði, og það er Ijóst að bank-
inn hefur fengið feiknarlega forgjöf
þegar hann tók til starfa. Þá má
benda á það að hlutafélagabankamir
skulda hlutaféð, en allir sparisjóðirn-
ir era með tiltölulega lítið stofnfé,
þannig að þar myndast skattalegt
misræmi varðandi eignarskatta og
það getur líka skekkt rekstrarum-
hverfið. Það er engin tilviljun að aðal-
gagnrýni á rekstrarfyrirkomulag
sparisjóðanna kemur frá samkeppn-
isaðilum á fjármagnsmarkaði og legg
ég það í hlut hvers og eins að meta
það hvort keppinautarnir era hæfari
en við til að ákveða rekstrarfyrir-
komulag sparisjóðanna," sagði Þór.
Hann sagði vert að benda á það að
hagnaður af hefðbundinni banka-
starfsemi færi minnkandi hjá inn-
lánsstofnunum, en hagnaður af dótt-
urfyrirtækjum og alls kyns hliðar-
starfsemi færi hins vegar vaxandi.
„Þetta er hægt að sjá mjög
auðveldlega út úr reikningum fyrir-
tækja, en þeir fara að liggja fyrir í
þessum og næsta mánuði. Það flýtur
því mjög undan hefðbundinni banka-
starfsemi og það tel ég vera veralega
hættulegt fyrir okkur ef það heldur
áfram að gerast. Þetta gæti haft
áhrif á greiðslumiðlunina, og spurn-
ingin er hver vildi taka að sér
greiðslumiðlunina með bullandi tapi.
Það er ekki hægt að reka hana enda-
laust á kostnað annarra þátta í starf-
seminni og álitamál hvort menn
verði að fara að skoða gjaldtöku af
greiðslumiðluninni,“ sagði Þór.
v^>mb l.i is
ALLTAf= ŒirTH\SA£> I\fÝT7
Faxtæki
IA.I
SHARP F-1500
• Faxtæki,sími, simsvari
• Windows prentari,
skanni oa tölvufax
fyrir stæmina A4.
Attu átta i ?
19. febrúar á Grand Hótel Reykjavík
Upplýsingamiðlun um vefinn er komin til að vera. Nýjasta kynslóð gagnagrunna
frá Oracle er hönnuð með þetta að leiðarljósi. Aðalnýjung Oracle 8i er samþáttun við
Internetið sem gerir mönnum kleift að þróa og reka Internetlausnir á auðveldan hátt.
Kynntar verða helstu nýjungar sem koma með Oracle 8i svo sem:
- WebDB - nýtt umbverjl til vefgerdar
- iFS (Internet File System)
- Oracle inter Media
- Java™ in the Database
Kynningin er tœknileg og böfðar til allra sem starfa við upplýsingameðhöndlun.
Aðgemgttr er ökeýpisf
Dagskrá
13:15 •Skráning
13:30 • Oracle 8 i- Internet gagnagrunnurinn
• Oracle 8 i - Java™ í gagnagrunninum
14:45 •Kaffihlé
15:15 • Oracle 8i - Nýir eiginleikar í kerfisstjórnun og fyrir OLTP
• Oracle 8 i- Nýir möguleikar fyrir gagnaskemmur (Data Warehouse)
16:30 • Léttar veitingar
Skráning fer fram á heimaslou Teymis www.teymi.is, með tölvupósti
til radstefna@teymi.is eða í síma 561-8131. Skráningarfrestur er til 17. febrúar.
TEYMI
B o r g a r t ú n i 2 4
Sími 56 1 813 1
nwmwmmrme
Flugleiðahótelin á Kirkjubæjarklaustri, Héraði og Höfn og Flughótelið bjóða
frábæra fundaraðstöðu i friðsælu umhverfi
AaAtu rcuíóte/riusia ú &&Mýéei3aA&te$ri
ÍCELANDAIR HÓTELS
Sími: 5050 919 • póstfang: drofnth@icehotel.is