Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 35
MÍþróttir Leiðir Erik Veije Flensborg til sigurs? • Fariö er að síga á síöari hluta þýsku 1. deildarinnar í handknattleik og Ijóst að keppnin um meistaratign stendur á milli þriggja liöa í þessari „erfiöust deildarkeppni heims," eins og þýskir hand- knattleiksfrömuöir kjósa að kalla keppnina. Sýnt er frá þýsku deildinni í þeinni á Breiðvarpinu og einnig svipmyndir í þáttum í Sjónvarp- inu. Flest bendir til aö lið SG Flensburg-Flandewitt, undir stjórn Danans Eriks Veije Rassmusen, standi uppi sem sigun/egari, en liðið hefur verið að leika mjög vel til þessa og lengst af verið t efsta sæti. En tvö af sterkustu liðum síðustu ára, Lemgo og Kiel, munu ef- laust ekkert gefa eftir. Það gæti sett strik í reikning Flens- borgar og Lemgo aö bæði eru þau enn með á Evrópumótun- um, en meistaraliö síðasta árs, Kiel er fallið úr keppni og getur nú einbeitt sér aö því að verja meistaratitilinn. Kiel er með mjög vel skipaö lið og hefur afar sterka fjárhags- stöðu, óiíkt mörgum liðum í deildinni. Það vann bæði deild- ar- og bikarkeppnina sl. vor og mun ekkert gefa eftir á loka- sprettinum til þess aö bæta upp fyrir vonbrigðin á Evrópu- mótinu. Til marks um styrk Ki- el síöustu ár má nefna að liöið hefur orðið meistari fjórum sinnum á síðustu 5 árum. Eina árið sem liðiö stóð ekki í efsta þrepi var 1997 er Lemgo hampaði meistaratitlinum. FYRSTI TITILL FLENSBORG? Daninn Rasmussen tók vió liði Flensborgar sl. sumar af landa stnum, Anders Dahl Niel- sen, eftir að hafa verið leik- maður og þjálfari hjá St. Ot- mar í Sviss um nokkurn tíma. Ekki voru allir jafn vissir um aö hann væri rétti maöurinn í starfið og gerði félagið aðeins Magnus Wislander, fyrirliði Svía og einn af lykilmönnum meistaraliðs Kiel. eins árs samning við hann. Samningurinn var síðan fram- lengdur til tveggja ára um síð- ustu áramót þegar það sýndi sig að Daninn var að gera góða hluti með liðið. Mikill áhugi er fyrir handknattleik í Flensborg og er uppselt á flesta leiki liðsins og víst er að stuöningsmenn liðsins geta riðiö baggamuninn á loka- sprettinum og tryggt félaginu meistaraitilinn í fyrsta sinn í sögu þess. Beinar útsendingar í Mlðvikudagur 17. febrúar Sýn 19.55 Frá leik Manchester United og Arsenal í undanúr- slitum ensku deildabikar- keppninnar. Föstudagur 19. febrúar Sýn 01.00 NBA-leikur vikunnar. Phoenix Suns og Detroit Pi- stons. Laugardagur 20. febrúar Sýn 02.00 Hnefaleikar - Felix Trini- dad, heimsmeistari IBF-sam- bandsins í veltivigt, og Pernell Whitaker. Sjónvarpid 13.00 Frá úrslitaleik bikar- keppni í blaki kvenna. 14.25 Frá leik Hertha Berlín og Borussia Dortmund í úrvals- deild þýsku knattspyrnunnar. 16.15 Frá úrslitaleik bikar- keppni í blaki karla. Stöð 2 14.45 Enski boltinn. Sunnudagur 21. febrúar Sýn 15.45 Frá leik Wimbledon og Aston Villa í ensku úrvalsdeild- inni. 19.25 Frá leik Fiorentina og Roma í ítölsku 1. deildinni. Mlðvikudagur 24. febrúar Sýn 19.50 Frá landsleik Islands og Bosníu-Hersegóvínu I D-riðli í Evrópukeppni I körfubolta. Föstudagur 26. febrúar Sýn 00.30 NBA-leikur vikunnar. Or- lando Magic og Indiana Pacers. Laugardagur 27. febrúar Sjónvarpið 12.35 Frá seinni umferðinni í sjónuarpi keppni í bruni kvenna í Áre t Svíþjóö. 14.25 Frá leik í úrvalsdeild þýsku knattspyrnunnar. Stöð 2 14.45 Enski boltinn. Sýn 16.00 Frá landsleik Islands og Litháens í D-riðli í Evrópu- keppni í körfubolta. Sunnudagur 28. febrúar Sjónvarpió 12.00 Frá keppni í svigi karla í Ofterschwang t Þýskalandi. 15.00 Frá úrslitakeppni Is- landsmótsins í atskák þar sem margir sterkustu skák- menn þjóðarinnar tefla. Sýn 15.45 Frá leik Newcastle United og Arsenal í ensku úr- valsdeildinni. 19.25 Frá leik Inter og Juvent- us í ítölsku 1. deildinni. Anfernee Hardaway, leik- maður Oriando Magic, er kominn á ferðina. Mánudagur 1. mars Sýn 19.55 Frá leik Leicester City og Leeds United t ensku úrvals- deildinni. 35

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.