Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 42
Ht Meistaraverk
Góð
Sæmileg
Y LéleS
X3RAMA
The Asphalt Jungle (‘50)
i íh Grípandi blanda drama og
fip spennumyndar. Einstæð
persónuskoðun, byggð á
frábæru handriti leikstjórans og
handritshöfundarins Johns Hu-
ston. Glæpamaður (Sterling Ha-
yden), nýkominn úr fangelsi, setur
saman hóp skálka til að fremja
„síðasta ránið". Meðal leikaranna
er Marilyn Monroe, undur góð, í
einu sínu fyrsta hlutverki. TNT,
17.2.
Bjartasta vonin -
Golden Boy (‘39)
Fræg mynd um ungan, ráð-
villtan mann, sem á í erfið-
leikum með að ákveða
hvort hann eigi að leggja fyrir sig
fiðluleik eða hnefaleika. Frægust
fyrir glæsta frumraun Williams
Holden í titilhlutverkinu, Maltin
segir hana eldast illa. Látum Hall-
iwell ráða, hann var sérfræðingur í
myndum frá þessum tíma og segir
hana góða. Barbara Stanwyck.
Stöð 2, 28.2.
Butterfield 8 (‘60)
Sögufræg sápa. Kunnust
fyrir að vera myndin sem
færði Elizabeth Taylor
Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk lúx-
usgleðikonu sem hyggst byrja nýtt
líf er hún telur sig hafa fundið
rétta mannsefnið. Frekar ódýrt,
alltsaman, en hjúpað MGM-
óraunveruleika einsog hann gerð-
ist bestur. Aukaleikararnir ekki af
verri endanum: Laurence.Harvey,
Eddie Fisher, Dina Merrill, Mildred
Dunnock. TNT, 25.2.
The Ghost and Mrs. Muir (47)
Ekkjan Gene Tierney neitar
að láta afturgöngu skip-
stjórans Rex Harrisons
flæma sig úr húsi. Og ástin kvikn-
42
&
ar. Þætti vesældarlegur draugur á
íslandi. Sögufræg og fyndin gam-
anmynd sem varð kveikja vinsælla
sjónvarpsþátta á sjöunda áratugn-
um. Sýn, 2.3.
Hangin’ With the Homeboys
(‘91)
Sætsúr mynd um unga
blökkumenn og Púertórík-
ana í suðupottinum í
Bronx. Þeir bregða sér kvöldstund
niður á Manhattan í dálítið mann-
dómspróf. Með fyndnum frekar en
dramatískum afleiðingum. Doug E.
Döug, John Leguizamo. Sýn, 21.2.
Herbergi Marvins -
Marvin’s Room (‘96)
Hver gæðaleikarinn á fætur
öðrum, Meryl Streep, Di-
ane Keaton, Leonardo Di
Caprio, Robert De Niro og Gwen
Verdon, hlunkast á botninn á ferl-
inum í vellulegri mynd um fjöl-
skyldu sem á við flestar raunir að
glíma í lífsins táradal. Hume gamli
Cronyn setur einn mark á mynd-
ina. Stöð 2, 27.2.
Hjartfólginn staður -
Places in the Heart (‘84)
iy Ung ekkja, tveggja barna
móðir, í ströggli við að
^ halda búskapnum gang-
andi á kreppuárunum í Suðurríkj-
unum. Stenst árásir á öllum svið-
um með góðra manna hjálp. Fal-
leg og heiðarleg mynd frá blóma-
tíma Roberts Benton. Óskarsverð-
launaleikur hjá Sally Field, en
John Mankovch á til að stela sen-
unni. Ed Harris, Danny Glover,
Amy Madigan. RÚV, 20.2.
Mogambo (‘53)
Stjörnurnar, leikstjórinn og
kvikmyndatakan eru þess
virði að menn láti ekki
þetta gamaldags melódrama fram-
hjá sér fara. Clark Gable leikur
mann á górilluveiðum (!) í Afríku.
Grace Kelly og Ava Gardner kon-
urnar í lífi hans. Meistari John Ford
stjórnar aðgerðum í hlutlausum.
Kvikmyndataka Freddies Young og
Roberts Surtees er hinsvegar
snilldarleg. TNT, 21.2.
The Night of the Iguana (‘64)
Richard Burton er trúverð-
ugur fyrrverandi klerkur,
sem drykkja og kvennaf-
langs hefur svipt hempunni. Tekur
nú á móti túristum í Mexíkó. Gaml-
ir brestir rumska er þrjár ólíkar
glæsikonur í hópi gestanna svipta
hann sálarró. John Huston stýrir
kvikmyndagerð leikrits Tennessee
Williams og konurnar vel leiknar af
Övu Gardner, Deborah Kerr og Sue
Lyon. Forvitnilegust fyrir leikhóp-
inn. TNT, 24.2.
Orðhákur -
Ridicule (‘96)
Rómað, franskt drama um
aðalsmann sem heldurtil
hirðar Loðvíks 16., til að
viðra af sér sveitamennskuna.
Finnur ekki það sem hann leitar í
snobbhjörð konungsríkisins sem
riðar til falls. Vönduð, vel skrifuð
búningamynd um átakatíma 18.
aldar og gefur skynsamlega innsýn
í hnignunina sem leiddi til bylting-
arinnar. Fanny Ardant (hin fagra),
Charles Berling. Stöð 2, 28.2.
Reikningsskil -
Ghosts of Mississippi (‘96)
Byggð á sönnum atburðum
frá ‘63. Svartur mannrétt-
indafrömuður er skotinn til
bana og réttað yfir þeim (hvíta)
grunaða til málamynda. Fjallar um
enduruþþtöku málsins 30 árum
síðar. Litlaust drama þrátt fyrir
traustan leikhóp þar sem Whoopi
Goldberg (sem ekkja hins myrta)
ogJames Woods (sem morðinginn)
láta ein að sér kveða. Flatt handrit
og leikstjórn Robs Reiner, sem virð-
ist heillum horfinn. Stöð 2, 26.2.
Sweet Bird of Youth (‘62)
Draumar sem bregðast, ást
í meinum, æska og elli,
eftirlætis hugðarefni Tenn-
essee Williams komast frábærlega
til skila í einni af bestu kvik-
myndagerðum verka hans. Paul
Newman leikur ungan Hollywood-
fola sem kemur í heimsókn á
æskuslóðirnar í Suðrinu ásamt
kvikmyndastjörnu sem hefur lifað
sitt fegursta (Geraldine Page). Fær
óblíðar móttökur vegna gamalla
ástamála. í hrífandi leikhópnum
eru einnig Rip Torn, Ed Begley og
Shirley Knight. Uppáhald á þess-
um bæ. Ómissandi. TNT, 24.2.
QAMflNMYNDIR
A Night at the Opera (‘35)
Klassík. Marx-bræður (án
Zeppós) fara hamförum í
heimi óperunnar. Syngja,
dansa og láta yfirleitt öllum illum
látum. Yndisleg. TNT, 20.2.
Arsenic and Old Lace (‘42)
Gamanmyndir gerast ekki
svartari en þessi síunga
’ Capra-klassík. Tvær Ijúfar
eldri konur drepa tímann með því
að drepa herramenn. Njóta að-
stoðar kolruglaðs skyldmennis.Vel
leikin, fjörug, fyndin og ófor-
skömmuð. Cary Grant, Josephine
Hall, Jean Adair, Raymond Mass-
ey, Peter Lorre. TNT, 22.2.
Bedazzled (‘67)
Breskt meinfyndið tilbrigði
við Faust, samið af félög-
unum Peter Cook, sem
leikur af innlifun húsbóndann í
neðra, og Dudley Moore, sem fer
ekki síður skemmtilega með hlut-
verk treggáfaðs skítkokks sem fell-
ur kylliflatur fyrir freistingum
Djöfsa. Enda hasarkroppurinn
Raquel Welch í boði. Sýn, 26.2.
Casino Royale (‘67)
Eina James Bond-bókin
sem ekki komst í hendur
framleiðenda bálksins fær
afspyrnulélega meðferð í viðhafnar-
útgáfu. Sex leikstjórar (einn þeirra
John Huston, af öllum mönnum)
og fjöimargar af skærustu stjörnum
sjöunda áratugarins - með David
Niven í hlutverki spæjarans, fá
engu um breytt. Löng, þreytandi,
íburðarmikil aulafyndni. Peter Sell-
ers, Ursula Andress, Woody Allen.
Bíórásin 2.3.
Gröf Rósönnu -
Roseanna’s Grave (‘97)
Svört gamanmynd sem var
jörðuð jafnt af gagnrýnend-
um sem áhorfendum. Jafn-