Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍBV til
Færeyja
ÍSLANDS- og bikarmeistarar
ÍBV í knattspyrnu halda til
Færeyja og leika þar við Fær-
eyjar og bikarmeistara HB
suraardaginn fyrsta, 22. maí.
Færeyingar óskuðu eftir
leiknum, sem fer fram í Þórs-
höfn.
■ MARIO Basler verður ekki í
leikmannahópi Bayern Miinchen
sem mætir Dynamo Kiev í kvöld í
Kænugarði í Meistaradeild Evr-
ópu. Basler hefur verið meiddur í
hné en lék fyrri hálfleik gegn Dort-
mund um liðna helgi. Hann fann
fyrir meiðslunum í leiknum og bað
um skiptingu.
■ BIXENTE Lizarazu verður ekki
með Bayern -liðinu næstu 9 vikur,
einnig vegna meiðsla í hné. Frakk-
inn meiddist í leik með franska
landsliðinu gegn Úkraínu fyrir 10
dögum. I fyrstu var talið að þau
væri ekki alvarleg, en nú hefur hið
gagnstæða komið í Ijós að sögn
læknis þýska liðsins.
■ OLAF Thon, fyrirliði Schalke,
lék með liði sínu í fyrsta sinn í fjóra
mánuði er það vann Wolfsburg 2:0
með mörkum Belgans Michaels
Bueskens og Hollendingsins Jo-
hans de Kocks í síðari hálfleik.
■ PAVEL Kuka skoraði bæði
mörk Niirnbergs í mikilvægum 2:1
sigin á 1860 Miinchen á útivelli.
Fyrra markið gerði hann á 7. mín-
útu en hið síðara á 70. mínútu.
Bernd Hobseh gerði eina mark
Munchenarliðsins á 66. mínútu en
fimm mínútum áður hafði félagi
hans Gerald Vanenburch verið
rekinn af leikvelli.
■ TONY Yeboah gerði bæði mörk
Hamborgar í 2:1 sigri á Freiburg.
Mörkin skoraði hann á 30. og 48.
mínútu.
■ STUTTGART lék án Krassimir
Balakovs í jafntefli, 0:0 við Duis-
burg, en leikurinn þótti ekki vera
upp á marga fiska. Þá voru Jú-
góslavarnir Kristijan Djordjevic
og Sreto Ristic ekki með Stutt-
gart, en þeir óskuðu eftir því að fá
frí að þessu sinni vegna stíðsins í
heimalandi þeirra.
■ HIÐ fornfræga félag Borussia
Mönchengladbach er sem fyrr í
neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar
og fátt virðist geta komið í veg fyr-
ir að það falli í 2. deild. Gladbach
er nú fimm stigum á eftir Hansa
Rostock sem er í næst neðsta sæti.
Toni Polster, framherji Gladbach,
sagði eftir 4:2 tap fyrir Herthu
Berlín um helgina að leikmenn
hefðu ekki gefið upp alla von þrátt
fyrir að staðan væri ekki góð þegar
10 umferðir væru eftir.
■ RAINER Bonhoff, þjálfari Glad-
bach, sem tók við liðinu í nóvem-
ber, er ekki eins bjartsýnn og segir
það vera stórafrek takist liðinu að
forðast fall, eins og mál stæðu nú,
en aðalkeppinautar Gladbach,
Rostock, Einstrackt Frankfurt og
Nurnberg unnu öll leiki sína um
helgina.
■ BONHOFF sagði það vera nauð-
synlegt að halda liðinu saman
næsta vetur, félli það í 2. deild, og
reyna að vinna sæti í 1. deild að ári
eins og Kaiserslautern gerði í
hitteðfyrra. Hann sagði þó að það
yrði erfitt fyrir félagið að halda öll-
um sínum mönnum þar sem margir
leikmenn sættu sig ekki við að
leika í 2. deild.
ÍÞRÓTTIR
SKÍÐAMÓT ÍSLANDS Á ÍSAFIRÐI
rsRvm :J8mmí:n<'.'Kvik S®h-m>’>ki ®WN(,i
Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson
ÓLAFSFIRÐINGAR urðu íslandsmeistarar í boðgöngu karla á Skíðamóti íslands sem lauk á ísafirði á
skírdag. Hér er sigursveitin, Steinþór Þorsteinsson, Ámi Gunnarsson og Ólafur Bjömsson.
Akureyringar
sigursælastir
AKUREYRINGAR voru sigursælastir á Skíðamóti íslands sem
lauk á ísafirði á skírdag. Þeir hlutu samtals 17 verðlaun, 6 gull,
8 silfur og þrenn bronsverðlaun. Heimamenn komu næstir með
12 verðlaunapeninga, 5 gull, 5 silfur og tveinn bronsverðlaun.
Landsmótið var mjög vel heppnað, enda lék veður við mótsgesti
allan tímann. Eins var framkvæmd mótsins til mikillar fyrirmynd-
ar hjá heimamönnum, umgjörðin glæsileg og tímasetningar stóð-
ust allar. Menn höfðu á orði að þetta hefði verið besta landsmót
sem fram hefur farið og eru það orð að sönnu. Helstu afreks-
menn mótsins voru Ólafsfirðingurinn Kristinn Björnsson í alpa-
greinum og Haukur Eiríksson, Akureyri, og ísfirðingurinn Stella
Hjaltadóttir í göngu. Þau unnu öll þrenn gullverðlaun. Ungir og
efnilegir skíðamenn létu einnig nokkuð að sér kveða, bæði í
alpagreinum og göngu.
Valur B.
Jonatansson
J rífai
Kristinn Bjömsson fékk nokkuð
harða keppni, frá heimamann-
inum Amóri Gunnarssyni í sviginu
og frá Dalvíkingnum
unga, Björgvini
Björgvinssyni, í
stórsviginu. Kristinn
þurfti að taka á öllu
sínu til að landa íslandsmeistaratitl-
unum, sem nú em orðnir 16 talsins.
Hann var nú sprækari og sókn-
djarfari en sést hefur til hans á er-
lendum mótum í vetur. Uppskeran
á fsafirði ætti að gefa honum aukið
sjálfstraust og byr undir báða
vængi fyrir næsta keppnistímabil.
Ungir og efnilegir
Ungu skíðamennimir hafa verið
að sækja í sig veðrið og breiddin er
orðin meiri en nokkur undanfarin ár
í karlaflokknum. Björgvin Björg-
vinsson er þeirra fremstur. Hann
virðist hafa allt til að bera sem góð-
ur skíðamaður þarf. Jóhann Friðrik
Haraldsson úr KR kom kannski
mest á óvart, en hann var mjög ör-
uggur og náði þriðja sæti í stórsvigi
og alpatvíkeppni. Þá má nefna
Kristin Magnússon frá Akureyri og
Jóhann Hauk Hafstein, Armanni,
sem báðir sýndu ágæta takta, en
óheppnin hefur verið fylgifiskur Jó-
hanns Hauks á landsmótum og var
það einnig að þessu sinni.
Framtíðin björt
í kvennaflokknum vora þær
Brynja Þorsteinsdóttir, Theodóra
Mathiesen og Dagný L. Kristjáns-
dóttir bestar, eins og kannski vænta
mátti. Þessar stúlkur hafa æft lang-
mest undanfarin ár og þá aðallega
erlendis. Þær fengu harða keppni
frá ungu stúlkunum sem hafa verið
að æfa hér heima að mestu í vetur.
Stúlkur eins og Helga B. Ámadótt-
ir, Lilja Rut Kristjánsdóttir, Harpa
Heimisdóttir og Ragnheiður Tinna
Tómasdóttir eiga allar fi-amtíðina
fyrir sér.
Heimamenn söknuðu Sigríðar
Þorláksdóttur sem meiddist rétt
fyrir landsmót og gat því ekki verið
með. Sú sem vakti hvað mesta at-
hygli á ísafirði var sænsk-íslenska
stúlkan Emma Furuvik, sem er að-
eins 17 ára. Hún náði bestum tíma
bæði í sviginu og stórsviginu. Eftir
mótið lýsti hún því yfir að hana
langaði að keppa fyrir fsland í
framtíðinni og yrði það mikill hval-
reki fyrir íslenska skíðalandsliðið ef
hún léti verða af því.
Kynslóðaskipti
í göngunni
í skíðagöngunni vora allt of fáir
keppendur og ekki að furða þó að
Skíðasambandið hafi verið með sér-
stakt gönguátak til að efla áhuga
fólks á greininni. Keppnin var því
ekld eins spennandi og oft áður.
Sem dæmi um það vora aðeins
skráðir fimm keppendur í göngu
karla 20 ára og eldri og fjórir í
kvennaflokki.
Akureyringurinn Haukur Eiríks-
son, sem er 35 ára, varð þrefaldur
meistari nær keppnislaust. Hann
vann gullverðlaun á landsmóti í
fyrsta sinn í tíu ár. Stella Hjalta-
dóttir (31 árs) frá ísafirði hafði
sömu yfirburði í kvennaflokknum
sem var einnig fámennur. Hún
keppti í fyrsta sinn á landsmóti eftir
rúmlega tíu ára hvíld og virtist engu
hafa gleymt. Hún sagðist vera í
betri æfingu nú en fyrir tíu áram,
þrátt fyrir að hafa eignast barn fyr-
ir níu mánuðum. Vonandi að hún
hafi sýnt stallsystrum sínum ákveð-
ið fordæmi með glæsilegri frammi-
stöðu sinni.
Ljósi punkturinn í skíðagöngunni
er að nokkrir efnilegir strákar era í
piltaflokknum, 17-19 ára. Þeir geta
náð langt ef rétt verður á málum
haldið og þeim boðið upp á góða æf-
ingaaðstöðu á næstu áram. Þar fara
fremstir ísfirðingurinn Ólafur Th.
Ámason og Baldur Ingvarsson frá
Akureyri.
■ Úrslit / C7
Góður enda-
sprettur
Áma tryggði
sigur Ólafs-
fjarðar
LOKAGREIN Skíðalandsmóts ís-
lands á ísafirði varboðganga
sem fram fdr í Tunguskógi á
skírdag. Fimm sveitir voru
skráðar til leiks; ísafjörður og
Akureyri, sem sendu tvær sveitir
og Ólafsljörður eina. Það var
fljótlega ljóst að keppnin um
gullið myndi standa á milli Ólafs-
fjarðar og Akureyrar.
Steinþór Þorsteinsson tók
fyrsta sprett fyrir Ólafsfjörð og
Helgi H. Jóhannesson fyrir Akur-
eyri. Steinþór kom fyrstur í
mark eftir 10 km og skipti við
Ólaf Björnsson, sem hafði mínútu
í forskot á Baldur Ingvarsson,
sem gekk annan sprett fyrir
Akureyri. Baldur gekk mjög vel
og náði Ólafi flótlega og var
munurinn orðinn hálf mínúta
þegar hann skipti við Hauk Ei-
ríksson sem tók lokasprettinn
fyrir Akureyri. Árni Gunnarsson
tók siðasta sprett Ólafsfirðinga.
Hann var fljótur að éta upp for-
skot Hauks og tryggði sínum
mönnum sigur, var tæpri mínútu
á undan sveit Akureyringa. Is-
firðingar komu siðan í þriðja
sæti, fjórum mín. á eftir Ólafs-
fírðingum.
Göngumaðurinn ungi frá
Akureyri, Baldur Ingvarsson,
náði bestum brautartima allra
keppenda er hann fór 10 km á
29,40 mín. Ólafsfirðingurinn,
Arni Gunnarsson, var með næst
besta tímann, 29,47 mín. Aðrir
keppendur gengu allir á meira
en 31 mínútu.
Morgunblaðið/Golli
BJÖRGVIN Björgvinsson,
skíðamaðurinn efnilegi frá
Dalvík, sigraði í stórsvigi á
alþjóðamótinu á skírdag.
Unga fólkið
stal senunni
UNGA skíðafólkið stal senunni á al-
þjóða stigamótinu sem fram fór á
Isafirði á skírdag. Björgvin Björg-
vinsson frá Dalvík og Dagný L. Kri-
stjánsdóttir frá Akureyri sigraðu þá
í stórsvigi sem var lokamótið í
mótaröðinni um Flugleiðabikarinn.
Björgvin, sem er aðeins 18 ára,
sýndi og sannaði hversu öflugur
hann er með því að sigra í stórsvigi
karla. Hann náði frábærum tíma í
fyrri umferðinni og þurfti því ekki
að taka mikla áhættu í síðari um-
ferðinni til að tryggja sér sigurinn.
Norðmaðurinn Knut Arne Furseth
varð annar, Dalvíkingurinn Sveinn
Brynjólfsson þriðji, Jóhann Friðrik
Haraldsson úr KR varð fjórði og
Kristinn Björnsson fimmti.
Dagný, sem er 19 ára, náði best-
um tíma í báðum umferðum í stór-
svigi kvenna og sigraði. Næstar
henni komu KR-ingarnir Lilja Rut
Kristjánsdóttir sem varð önnur og
Theodóra Mathiesen þriðja. Brynja
Þorsteinsdóttir keyrði út úr í fyrri
umferð og það sama gerði Emma
Furuvik frá Sviþjóð.
Alls vora fimm alþjóðleg mót
„Icelandair Cup“ hér á landi að
þessu sinni, í Reykjavík og á ísa-
firði. Kristinn Bjömsson náði best-
um árangri úr þeim samanlagt í
karlaflokki, en Emma Furavik í
kvennaflokki. Þau hlutu því Flug-
leiðabikarinn þetta árið.