Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 B 5 Mijatovic sektaður JUGOSLAVNESKI knatt- spyrnumaðurinn Predrag Mi- jatovic, framherji spænska stórliðsins Real Madrid, var í gær sektaður fyrir mótmæla- aðgerðir sínar vegna loftárása Atlantshafsbandalagsins (NATO) á Serbíu. Nijatovic og fleiri júgóslav- neskir knattspyrnumenn, sem Ieika með knattspyrnuliðum í aðildarlöndum NATO, hafa lýst því yfir að þeir muni ekki leika með liðum sínum meðan loftárásunum er haldið áfram. Real Madrid er eina liðið sem sektað hefur Ieikmann sinn fyrir þessa afstöðu, en fleiri lið munu þó í slíkum hugleiðingum. „Eg skil ekki þessa ákvörðun," var það eina sem Mijatovic hafði að segja um málið, en sekt hans nam hátt á þriðju milljón króna og ofan í kaupið var honum hótað að missa sæti sitt í Madridar- liðinu varanlega sæti hann fastur við sinn keip. Reuters Bergkamp, eftir að hann hafði tryggt Arsenal sigur á Blackburn i gærköldi. Lazio eykur forskotið Lazio jók forystu sína í ítölsku 1. deildinni um helgina, er liðið gerði markalaust jafntefli gegn AC Mílan. Að vísu náði markahrókur- inn Christian Vieri að koma knett- inum í net Mílan-liðsins strax á 2. mínútu, en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Lazio-liðið hafði yfírburði mestallan leikinn, en Christian Abbiati, markvörður Míl- an-Uðsins, átti góðan dag í marki liðsins og kom í veg fyrir að topp- liðið næði að skora. Undir lokin munaði hins vegar minnstu að Oli- ver Bierhoff og Zvonimir Boban næðu að skora fyrir AC Mflan og tryggja liðinu sigur, en þeim mistókst í upplögðum færum. Lazio hefur nú ekki tapað í síðustu 17 leikjum. Tvö mörk frá Ronaldo Fiorentina mistókst að minnka forskot Lazio á toppi ítölsku deild- arinnar, er hðið tapaði á útivelli fyrir Inter Mílan 2:0. Ronaldo skoraði úr vítaspymu á 45. mínútu og tryggði liði sínu sigurinn með öðru marki á 83. mínútu. Sigurinn á Fiorentina er sá fyrsti sem Inter vinnur á heimavelli í 11 leikjum og ólfur innsigl- sigur Herthu 2 sigur Herthu frá Berlín á neðsta n helgina. Eyjólfur skoraði fjórða lla. Sigurinn færði Eyjólf og félaga hefur 41 stig, einu stigi meira en heldur enn yfirburða stöðu, hefur ð Dormtund. Ottmar Hitzfeld, sem þjálfaði í árarað- ir lið Dortmund kom í fyrsta skipti í heimsókn með sitt nýja lið - Bayern Miinchen og Nerlinger, leikmaður Dortmund, lék í fyrsta skipti gegn sín- um gömlu félögum í Bayem. Mikill hiti var búinn að vera í blöð- um fyrir leikinn og hnútukast á báða bóga. Þannig móðgaði Uli Höness, framkvæmdastjóri Bayem, forráða- menn Dortmund þegar hann sagði að félagið ætti ekki innistæðu fyrir öllum þeim leikmönnum sem félagið væri að fjárfesta í fyrir næsta tímabil, en mikl- ar breytingar verða hjá félaginu og margir frægir leikmenn sagðir á leið- inni til liðsins fyrir mikið fé. Leikurinn hófst líka með miklum lát- um - Dortmund var mun betra liðið all- an leikinn og mark Heiko Herrlich á 13. mínútu sanngjarnt eftir hverja stórsókn liðsins. Þar með var met Oli- ver Kahn stöðvað, en hann hafði haldið marki Bæjara hreinu í 736 mín. Við þetta missti Kahn algjörlega stjóm á skapi sínu og hagaði sér eins og kjáni það sem eftir var leiks. Hann kom m.a stökkvandi með Kung Fu-bragði út úr teignum þegar dómarinn var búinn að flauta - og gat Chappuisat rétt forðað sér undan tökkum kappans. Þá gerði hann sig líklegan til að bíta Herrlich eftir að hann sótti að Kahn í einni sóknarlotu Dortmund. Blöð í þýskalandi eru uppfull af myndum og frásögnum af leiknum og segir Ottmar Hitzfeld framkomu Oli- vers Kahn ekki vera til fyrirmyndar. Heiko Herrlich var aftur á ferðinni á 32. mínútu og úrslitin virtust ráðin þegar Afríkubúinn Kuffour fékk reisupassann eftir ljótt brot á Lars Ricken, leikmanni Dortmund. En landsliðsmaðurinn Stefan Reuter hjá Dortmund var klaufi þegar hann braut af sér í byrjun seinni hálfleíks og fékk sína aðra áminningu og þar með rautt spjald. Bæjarar byrjuðu að sækja og Zi- eckler minnkaði muninn á 58. mín. og þeir jöfnuðu svo með marki Jancker á 63. mín. Margir vildu meina að markið hafi verið ólöglegt, þar sem knötturinn fór í hendi Jancker. Lars Ricken, landsliðsmaðurinn ungi, gat gert út um leikinn þegar Dortmund fékk vítaspymu á 77. mín. - hann skaut á mitt markið, í fót Olivers Kahn. Leiknum, sem var frábær skemmtun fyrir 70.000 áhorfendur, lauk með stórmeistarajafntefli 2:2. „Jafntefli hér er ígildi sigurs,“ sagði Kahn markvörður eftir leikinn. „Við lékum frekar illa í fyrri hálfleik en sóttum í okkur veðrið og verðskulduð- um þá jafntefli." Michael Skibbe, þjálf- ari Dortmund var ekki eins ánægður með skiptan hlut, en lið hans er nú 20 stigum á eftir Bayem. „Ég er óánægð- ur með jafnteflið. Eftir góðan leik í fyrri hálfleik þá mistókst okkur alveg að halda okkar striki í þeim síðari, sér- staklega eftir að þeir misstu mann út af.“ Hækkun miða- verðs veld- ur deilum FORRÁÐAMENN enska úr- valsdeildarfélagsins Manchester United hyggjast hækka miðaverð á heimaleiki liðsins fyrir næstu leiktíð. Segja þeir hækkunina óum- flýjanlega vegna launahækk- ana leikmanna, en aðdáendur liðsins hafa bmgðist ókvæða við. Launakostnaður Manchest- er United hækkaði um ríflega 300 milljónir króna á seinni helmingi síðasta árs og útlit er fyrir að sú þróun haldi áfram á þessu ári. Þá vom einnig dýrir leikmenn keyptir til liðsins og er búist við að sú verði aftur raunin fyrir næstu leiktíð. í tilkynningu félagsins í gær kom m.a., fram að hækkun miðaverðs yrði fyrir ofan með- allag vegna launahækkana og að forráðamönnum þess þætti miður að fara þyrfti þessa leið. Opinber aðdáendaklúbbur félagsins í Manchester lýsti strax vonbrigðum sínum með fyrirhugaðar hækkanir og sakaði forsvarsmenn félagsins um hreina gróðahyggju. Það er kannske ekki að undra, því á verðbréfaþinginu í Lundún- um var í gær kynnt milliupp- gjör sem sýnir hagnað á síð- ustu sex mánuðum sem nemur ríflega 1,2 milljörðum króna. Bjarnólfur skoraði WALSALL, lið þeirra Bjam- ólfs Lárussonar og Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar í ensku 2. deildinni, eygir nú ágæta möguleika á sæti í 1. deild á næstu leiktíð. Walsall sigraði Blackpool 2:0 á laugardag og skoraði Bjarnólfur annað marka liðsins, sem fyrir vikið er komið í 3. sæti deildarinn- ar. Lárus Orri Sigurðsson lék tvo leiki með Stoke um hátíð- araar, fyrst í 2:0-sigurIeik gegn Lincoln City og síðan í I:l-jafntefli við Chesterfield á útivelli. þakka heimamenn hann góðri markvörslu hins 19 ára Sebastien Frey, sem lék sinn fyrsta leik fyrir liðið. Juventus tapaði sínum fyrsta leik undir stjóm Carlo Ancelotti er liðið mætti botnliði Empoli. Filippo Inzaghi og Antonio Conte voru ekki í byrjunarhði Juventus, því þeir áttu að hvíla fyrir leikinn gegn Manchester United í Meistara- deildinni í kvöld. Þeir komu báðir inn á í síðari hálfleik, en tókst ekki að koma í veg fyrir 1:0 sigur Empoli, sem er sá fyrsti sem hðið vinnur í 16 leikjum. FOLK ■ ARON Kristjánsson skoraði 5/1 mörk fyrir Skjern sem lagði Es- bjerg 29:28 í öðrum og síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum dönsku 1. deildarinnar í handknattleik. Aron og félagar eru þar komnir í undan- úrslit og mæta FIF frá Kaupa- mannahöfn. Fyrsti leikurinn fer fram í Skjernhallen í kvöld. ■ ANDERS Veltmas verður næsti þjálfari Bad Schwartau. Frá þessu var gengið um helgina en framtíð félagsins er samt nokkuð óljós, enda steðja mikilir fjárhagserfið- leikar að félaginu og hafa leikmenn fengið laun sín með höppum og glöppum. Svfínn tekur því ekki við hjá félaginu í þægilegri stöðu. Fé- lagið mun sameinast öðru liði í Lu- beck næsta ár og mun þá heita VFL Bad Schwartau/HSV Lubeck. ■ RTVALDO gerði öll þrjú mörk Barcelona er liðið vann Oviedo 3:1 um helgina. Barcelona er í efsta sæti spönsku 1. deildarinnar með 56 stig. ■ VALENCIA er í öðru sæti, en liðið vann Racing Santander 1:0. ■ SEX júgóslavneskir leikmenn sniðgengu leiki með liðum sínum í 1. deildinni á Spáni um helgina í mótmælaskyni við loftárásir NATO á Serbíu. ■ JOHN Toshack, knattspymu- stjóri Real Madrid, heldur enn í vonina um að liðið verði Spánar- meistari. Liðið hefur unnið fjóra leiki frá því að hann tók við stjórn liðsins. Um helgina vann liðið Ala- ves 3:2. ■ PIETRO Viercowod, sem verð- ur fertugur á næstu dögum, gerði eitt mark fyrir Piacenza er hðið vann Udinese 4:3 á Ítalíu. ■ FABIAN de Freitas, hollenskur leikmaður WBA í ensku 1. deild- inni, vakti athygli enskra fjölmiðla er hann missti af leik liðsins gegn Crewe á öðrum degi páska. Leikur hðanna var leikinn síðdegis en Hollendingurinn hélt að leikurinn ætti að fara fram um kvöldið. Þegar Freitas mætti ekki með öðrum leik- mönnum liðsins gerðu forráðamenn þess örvæntingarfulla tilraun til þess að hringja í leikmanninn og láta hann vita, en tókst ekki þvf unnusta hans lá í símanum. WBA gekk allt í mót gegn Crewe og tap- aði 5:1. I Urslit / C6 l Staðan / C6 Hibs á ný í úrvalsdeildina HIBERNIAN, lið Ólafs Gottskálkssonar markvarðar, tryggði sér um helgina sigur í skosku 1. deildinni og sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir árs fjarveni. Hibernian hefúr haft mikla yfirburði í 1. deild í vetur og hefur nú 17 stiga forystu í deildinni er fimm uinferðum er ólokið. Liðið tryggði sér sætið góða með 2:0-sigri á Hamilton og að venju stóð Ólafúr Gottskálksson í markinu og varði tvívegis mjög vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.