Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Lárus orðaður við Coventry
LÁRUS Orri Sigurðsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu
og leikmaður enska 2. deildar
liðsins Stoke City, var um
helgina orðaður við úrvals-
deildarliðið Coventry.
Lárus Orri hefur sem
kunnugt er hafnað nýjum
samningi við Stoke og vill
færa sig um set og til betra
liðs í efri deild. Er því talið
að forráðamenn Stoke séu
tilbúnir að selja kappann og
á Netinu í gær gerðu menn
því skóna að hugsanlegt
söluverð væri um 650.000
pund, eða sem nemur um 75
milljónum króna. Þess má
geta að Lárus Orri var á sín-
um tíma keyptur til Stoke frá
Þór á Akureyri fyrir 18 millj.
króna.
Á spjallsíðu Stoke á Netinu
er sagt að Lárus Orri hafi
staðið sig afar vel með liðinu í
gegnum tíðina, en liðið virðist
ekki á leið upp í 1. deild að
nýju og því vilji hann færa sig
um set. Kemur einnig fram að
Hollendingurinn Ruud Gullit,
stjóri Newcastle, hafi lýst
áhuga sínum á íslenska lands-
liðsmanninum.
Chelsea enn
í baráttunni
SPENNAN magnast enn í topp- og botnbaráttu ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu eftir fjölmarga leiki yfir páskahátíð-
ina. Á laugardag töpuðu bæði Manchester United og Arsenal
dýrmætum stigum er liðin gerðu jafntefli í viðureignum sínum,
en Chelsea sætti þá lagi með 1:0-sigri og er aftur komið í bar-
áttuna á toppi deildarinnar. Dennis Bergkamp lék á ný með Ar-
senal í gærkvöldi og skoraði hann sigurmarkið gegn Blackburn
á Highbury, 1:0. Á botninum virðist fátt annað en fall blasa við
Nottingham Forest, en fjölmörg önnur lið verða að herða á
endasprettinum til að fylgja skógarmönnum ekki niður í 1.
deild.
FOLK
■ ASTON Villa og West Ham
skildu jöfn í markalausum leik í úr-
valsdeildinni á föstudaginn langa.
■ SÖMU úrslit urðu í leikjum
Blackburn Rovers og Middles-
brough og Southampton og Arsenal
á laugardeginum, en Paul
Gascoigne var þó nærri því undir
lokin að tryggja gestunum frá Midd-
lesbrough öll stigin - aukaspyrna
hans small í þverslánni og fór þaðan
í fang markvarðar Blackburn.
■ ARSENAL þótti betri aðilinn í
leiknum gegn Southampton, en
gekk illa að skapa sér verulega
hættu upp við markið. Besta færi
þeirra kom undir lok leiksins er
Francis Benali bjargaði á marklínu
eftir skot Nígeríumannsins
Nwankwo Kanus.
■ ARNAR Gunnlaugsson var í leik-
mannahópi Leicester City sem vann
góðan útisigur á Tottenham á laug-
ardag, 0:2. Hann kom þó ekki við
sögu í leiknum, en þeir Matt Elliott
og Tony Cottee gerðu mörk Leicest-
er. Þetta var 200. deildarmark
Cottees á ferlinum.
■ SHEFFIELD Wednesday tapaði
fimmta leik sínum í röð á laugardag
er Coventry kom í heimsókn og hirti
öll stigin með l:2-sigri. Gary
McAllister kom gestunum yfir í
fyrri hálfleik úr vítaspyrnu en í upp-
hafi þess síðari jafnaði Norðmaður-
inn Petter Rudi metin. Framherjinn
Noel Whelan tryggði Coventry svo
dýrmætan sigur á lokamínútunum.
■ MARKAREGN varð hins vegar í
tveimur leikjum á laugardeginum.
Sóknarknattspyrna var kjörorð
dagsins er Newcastle sótti Derby
heim og sigraði 4:3. Heimamenn
komust tvisvar yfir í leiknum en
gestirnir gáfust þó ekki upp og
höfðu að lokum góðan sigur.
■ TEMURI Ketsbaia, Georgíumað-
urinn í framlínu Newcastle, var sem
fyrr í feiknastuði og kom sínum
mönnum í 3:2. Áður höfðu þeir Deon
Burton og Francesco Baiano komið
Derby tvívegis yfir, en Gary Speed
jafnað metin í bæði skiptin. Það var
síðan Perúmaðurinn Nolberto Sola-
no sem innsiglaði sigurinn undir lok-
in.
■ SÓKNARKNA TTSP YRNAN var
einnig í heiðri höfð í nágrannaslag
Liverpool og Everton sem lyktaði
3:2. Þetta var fyrsti sigur Liverpool
á þessum erkiféndum sínum á Ánfi-
eld á sex ár.
■ FRAKKINN Olivier Dacourt
skoraði þó fyrsta mark leiksins fyrir
Everton eftir aðeins 41 sekúndu
með frábæru skoti af 25 m færi, en
heimamenn voru ekki slegnir út af
laginu og Robbie Fowler skoraði tvö
mörk, hið fyrra úr víti, og kom
heimamönnum yfir. Tékkneski
landsliðsmaðurinn Patrick Berger
kom Liverpool svo í 3:1 áður en
varamaðurinn Francis Jeffers
minnkaði muninn fyrir Everton
undir lokin.
■ NEWCASTLE slapp með skrekk-
inn á mánudagskvöldið gegn
Tottenham er liðin skildu jöfn, 1:1, á
velli heilags Jakobs í Newcastle.
Gestirnir voru mun sterkari í leikn-
um og Darren Anderton kom þeim
yfir í upphafi seinni hálfleiks úr víta-
spyrnu. Georgíumaðurinn Temuri
Ketsbaia jafnaði hins vegar metin
fjórtán mínútum fyrir leikslok með
frábæru langskoti - hans annað
mark í tveimur leikjum. Liðin mæt-
ast svo aftur á sunnudag á Old Traf-
ford- í undanúrslitum bikarkeppn-
innar.
■ MIDDLESBROUGH skellti
Wimbledon, 3:1, á mánudag og siglir
fyrir vikið lygnan sjó um miðja
deild. Hamilton Ricard kom heima-
mönnum í Middlesbrough yfir eftir
aðeins 31 sek. og ítalski varnarmað-
urinn Gianluca Festa bætti öðru
marki við með skalla eftir átta mín-
útur. Ricard bætti svo þriðja mark-
inu við í seinni hálfleik, en Carl Cort
minnka
Hefð er fyrir knattspymuhátíð á
Bretlandseyjum um páskahá-
tíðina og þá eru jafnan leiknar
tvær umferðir, önnur fyrir páska-
dag og hin annan í páskum. Að
þessu sinni féllu þó nokkrir leikir
niður vegna þátttöku enskra liða á
Evrópumótunum í knattspyrnu,
Man. Utd. leikur gegn Juventus í
Meistaradeildinni í kvöld og annað
kvöld leikur Chelsea í keppni bik-
arhafa gegn Mallorca frá Spáni.
Markalaust jafntefli Sout-
hampton og Arsenal á laugardag
var einkar bragðdauft á að horfa,
en meistararnir voru þó sterkari
aðilinn og Arsene Wenger, stjóri
liðsins, vildi ekki gagnrýna leik-
menn sína um of, sagði aðeins að
þeir hefðu mátt vera ágengari í
sóknaraðgerðum sínum. Hið sama
má segja um Alex Ferguson, stjóra
United, sem var hinn spakasti eftir
l:l-jafntefli sinna manna á útivelli
gegn Wimbledon. David Beckham
jafnaði þar metin fyrir United eftir
að Jason Euell hafði komið
Wimbledon yfir með marki strax á
5. mínútu. Ársenal sigraði Black-
burn 1:0 í gærkvöld með marki frá
Dennis Bergkamp. Martin Keown,
Arsenal, og Keith Gillespie, Black-
bum, voru reknir af velli í leiknum.
Keown fyrir tvær áminningar og
Gillespie fyrir að brjóta á Berg-
kamp innan vítateigs. Hollending-
urinn tók sjálfur vítaspymuna en
bmbrást bogalistin.
Sanngjarn sigur Chelsea
Þetta nýttu leikmenn Chelsea
sér og l:0-sigur þeirra á Charlton
var fyllilega sanngjanij þótt ekki
hafi hann verið stór. ítalinn Ro-
berto Di Matteo gerði eina mark
leiksins á upphafsmínútunum eftir
mistök Sasa Ilic, markvarðar
Charlton.
„Þeir gerðu okkur ekki sérlega
erfitt fyrir og við áttum sigurinn
skilinn," sagði Gianluca Vialli,
knattspyrnustjóri Chelsea, eftir
leikinn. Hann sagði þó að sigurinn
væri ekki nóg fyrir Chelsea, for-
skot Manchester United^ og Chel-
sea væri enn of mikið. „Eg tel enn
að þau séu bestu lið deildarinnar,
en við munum auðvitað reyna að
fylgja þeim eftir,“ sagði Vialli og
gárungamir segja nú í léttum dúr
að hann sé eini maðurinn í
Englandi sem viðurkenni ekki að
Chelsea eigi raunhæfa möguleika á
meistaratitlinum.
„Þau hafa forskot á okkur og
einnig reynsluna sem er afar dýr-
mæt,“ sagði Vialli um toppliðin tvö.
„Ég sé ekki að þau tapi mörgum
stigum á lokasprettinum og staðan
væri önnur ef aðeins eitt lið væri
fyrir ofan okkur. Svo er á það að
líta að þetta em jú engin miðlungs-
lið,“ bætti Vialli við og dró hvergi
úr í yfirlýsingum sínum, sem era
greinilega hluti af sálfræði hans.
Leeds gengur einnig allt í hag-
inn og á nú góða von um Evrópu-
sæti á næstu leiktíð. Á laugardag
sigraði liðið Nottingam Forest, 3:1,
og jafnaði þar með félagsmetið
með sjöunda sigrinum í röð. Það
met var sett árið 1974 er liðið varð
Englandsmeistari undir stjórn Don
Revies.
Jimmy Floyd Hasselbaink kom
Leeds yfir snemma leiks með
glæsilegu langskoti, en Alan
Rogers jafnaði óvænt metin fyrir
botnliðið. Ungu mennirnir Ian
Harte og Alan Smith slökktu svo
allar vonir Forest um dýrmæt stig
í botnbaráttunni með sínu markinu
hvor og David O’Leary átti vart
orð til að lýsa gleði sinni með læri-
sveina sína í Leeds-liðinu eftir leik-
inn.
Fjör á botninum
Þótt fall sé nánast óumflýjanlegt
hjá Nottingham Forest tókst þeim
samt að ná jafntefli við Liverpool á
mánudag, 2:2. Liverpool hafði al-
gjöra yfirburði í leiknum, sem fór
fram í Nottingham, og Jamie Red-
knapp skoraði fyrsta mark leiksins
eftir stundarfjórðung beint úr stór-
glæsilegri aukaspyrnu. Heima-
menn neituðu þó að gefast upp og
Dougie Freedman jafnaði metin
gegn gangi leiksins í fyrri hálfleik.
Aftur náðu gestirnir forystunni
með marki Michaels Owens í seinni
hálfleik, en Hollendingurinn Pierre
Van Hooijdonk jafnaði metin á
lokasekúndunum beint úr auka-
spyrnu. Ekki er þó líklegt að stigið
eitt nægi Forest í grimmri fallbar-
áttunni.
Coventry og Southampton era
hins vegar lið sem bæði era þekkt
fyrir að sleppa við fall í 1. deild ár
eftir ár þrátt fyrir að dvelja lengst-
um í neðri helmingi deildarinnar.
Liðin mættust á mánudag og að-
eins mark Georges Boatengs skildi
þau að er upp var staðið og l:0-sig-
ur Coventry því staðreynd. Knatt-
spyrnuspekingar sjá nú fram á
betri tíð fyrir Coventry, en jafnvel
er búist við að Southampton muni
eiga erfitt með að verjast falli að
þessu sinni.
Hið sama gildir um stórlið
Everton, en lánleysið á þeim bæ
virðist algjört um þessar mundir.
Eftir naumt tap í nágrannaslagn-
um gegn Liverpool á laugardag tók
liðið á móti Sheffield Wednesday á
mánudag og varð enn að lúta í
gras, 1:2. Annan leikinn í röð náðu
leikmenn Everton foi-ystunni, en
fóra síðan á taugum í vörninni og
hreinlega „gáfu“ ítalska framherj-
anum Benito Carbone tvö mörk í
seinni hálfleik. Við ósigurinn er
Everton komið í fallsæti og vera-
lega er tekið að hitna undir stjóra
liðsins, Walter Smith.
Leicester skoraði tvisvar á síð-
ustu 30 mínútum leiksins gegn
Aston Villa í gærkvöld og náði
jafntefli. Aston Villa komst í 2:0
með mörkum frá Lee Hendrie, eft-
ir 80 sekúndur, og Julian Joachim
frétt fyrir leikhlé. En Robbie Sa-
vage og Tony Cottie tryggðu
Leicester eitt stig.
■Úrslit / C6
■ Staðan / C6
Bolton í
vandræðum
ÍSLENDINGALIÐIÐ Bolton
Wanderers í ensku 1. dcildinni
virðist ekki á leiðinni upp í úr-
vaisdeildina. Páskaleikir liðs-
ins tveir gáfu ekki nema eitt
stig í aðra hönd og l:2-tap á
heimavelli á öðrum degi páska
hefur sett framavonir forráða-
manna liðsins venilega út af
brautinni.
Eiður Smári Guðjohnsen
var í byrjunarliði Bolton á
laugardag er liðið gerði
markalaust jafntefli á útivelli
við Oxford. Guðni Bergsson
sat á varamannabekknum all-
an tfmann. Tveimur dögum
síðar sátu þeir félagar svo
báðir á bekknum er Bolton
tapaði á heimavelli, 1:2, fyrir
Stockport. Eiður Smári kom
inn á sem varainaður í seinni
hálfleik, en náði ekki að skora
fyrir Bolton, sem m.a. misnot-
aði vítaspymu.
Jóhann B. Guðmundsson
fékk tækifæri í byijunarliði
Watford eftir nokkurt hlé í
sigurleik liðsins gegn Tran-
mere, 2:1. Bæði Watford og
Bolton gætu nú þurft að
treysta á sæti í aukakeppni
fjögurra liða um þriðja sætið í
deildinni, en Sunderland og
Ipswich standa nú best að vígi
í baráttunni um sæti í úrvals-
deildinni á næstu leiktíð.
LEE Dixon sést her fagna Dennis I
aði
EYJÓLFUR Sverrisson innsiglaði 4::
liði þýsku deildarinnar Gladbach ur
mark Herthu á 77. mínútu með ska
upp í fjórða sæti deildarinnar, liðið
Dortmund sem er í 5. sæti. Bayern
15 stiga forystu eftir 2:2 jafntefli vi
Leverkusen komst upp í 2. sætið
með 1:0 sigri á útivelli á meisturam
Kaiserslautem og gerði Ulf Kirsten
eina mark leiksins. Bæði lið hafa þó 45
stig, en markahlutfall Leverkusen er
hagstæðara en meistaraliðsins. Kirst-
en skoraði mark sitt af stuttu færi
þremur mínútum fyrir leikslok eftir að
hafa fengið sendingu frá Emerson.
Þessi sigur Leverkusen eykur enn á
baráttu þessara tveggja liða um sæti í
meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Kirsten tryggði félögum sínum þar
með 700.000 krónur á mann í bónus-
greiðslur auk kannski félaginu 15 millj-
ónir þýski-a marka fyrir sæti í Meist-
aradeildinni næsta ár.
Sögulegur leikur í Dortmund
Leikur Dortmund og Bayern var
sögulegur fyrir margra hluta sakir.