Morgunblaðið - 07.04.1999, Page 8
$|&»" ' ' :
HANDKNATTLEIKUR
Konumar til Kína
HANNA G. Stefánsdóttir og samherjar hennar halda til Kína í sumar.
„ÉG átti ekki von á að ná
þessum árangri en þegar ég
sá hin liðin spila vissi ég að
það var möguleiki," sagði
Svava Ýr Baldvinsdóttir, þjálf-
ari kvennalandsliðs 19 ára og
yngri í handknattleik, á páska-
dag eftir að lið hennar hafði
tryggt sér þátttökurétt í úrslit-
um heimsmeistaramótsins,
sem fram fer í Kína í ágúst
með því að ná öðru sæti á al-
þjóðlegu móti í Kaplakrika um
páskahelgina. íslenska liðið
sigraði það finnska í fyrsta leik
og síðan Slóvena en tveir sigr-
ar dugðu liðinu í annað sæti
riðiisins og sæti í úrslitunum.
ÆT
Isíðasta leiknum biðu þær lægri
hlut fyrir Ungverjum. „Ég átti
von á Slóvenum sterkari, við vissum
■■■■■■■I nokkurn veginn
Stefán hvar við höfðum
Stefánsson Finnana en Ung-
skrllar verjar eru með betra
lið svo _ að úrslitin
eru góð,“ bætti Svava Yr við og var
mjög ánægð með sitt lið. „Þær spil-
uðu allar vel, þó að þær hafi ekki
náð toppleik í síðasta leiknum við
Ungverjaland var erfitt að rifa sig
upp eftir sigurinn daginn áður þar
sem þær höfðu þegar tryggt sig inn
í úrslit en það sýnir hve mikill
karakter býr í liðinu með því að
berjast eins og þær gerðu í síðasta
leiknum.“
Pað verður ekkert sumarfrí hjá
ungum handboltakonum í sumar því
landslið 18 ára og yngri fer til Ung-
verjalands í maí, í byrjun júní hefst
mót í Danmörku og síðan eru úrslit
heimsmeistaramóts 19 ára og yngri
í Kina í ágúst.
„Nú taka við þrotlausar æfingar
hjá okkur og nú þarf strax að fara
að hugsa um Kínaferðina,“ sagði
Svava Ýr en hvað þarf að bæta?
„Það þarf til dæmis að fínpússa
vamarleikinn og halda áfram að
bæta sig á öllum sviðum en best
væri ef hægt væri að bæta nokkrum
sentímetrum við hæðina. Það verð-
ur spennandi að fara til Kína og
heimsmeistarakeppni er toppurinn.
Þar verða bestu þjóðir heims og frá-
bært ef við náum jið vinna leiki þar
því við vitum að á Islandi er verið að
byggja upp kvennahandknattleik-
inn og þetta er eitt skref til þess.
Við í liðinu ætlum að gera allt sem
við getum og svo sjáum við til með
fjárhagshliðina," bætti þjálfarinn
við.
Vel gert á móti ungverskum
atvinnumönnum
„Þetta var vel gert hjá stelpunum
og þriðja sætið er í lagi enda era all-
ir leikmenn ungverska liðsins at-
vinnumenn," sagði Judit Rán
Esztergal, annar þjálfari liðsins, en
hún kemur einmitt frá Ungverja-
landi. „Það verða mörg lið eins og
það ungverska á mótinu í Kína en
við höfum tímann fyrir okkur og
þetta er allt á réttri leið hjá stelpun-
um.“
Kína - af öllum löndum
„Ég er mjög ánægð en afar
þreytt því þetta var erfitt,“ sagði
Þórdís Brynjólfsdóttir sem lék vel á
mótinu. „Það var ekki erfitt að fara
í síðasta leikinn því mestu press-
unni á okkur var aflétt eftir sigur-
inn á Slóveníu. Við ætluðum að sýna
og sanna hve við vorum ákveðnar í
að komast áfram en okkur var spáð
þriðja sætinu í mótinu og áttum
ekki alveg von á að ná öðru sætinu.
Svo stóðum við ágætlega í þeim
ungversku framan af og þó að þær
hafi verið nokkuð stórar hefðum við
getað unnið þær. Það verður spenn-
andi að fara til Kína - af öllum lönd-
um,“ bætti Þórdís við.
„Ég er mjög ánægður með þenn-
Gífurleg spenna er komin í
þýsku 1. deildina í handknatt-
leik eftir leiki páskahelgarinnar.
Flensburg tapaði um helgina nokk-
uð óvænt og er þetta annað tapið í
röð á útivelli og þar með galopnað-
ist deildin því bæði Kiel og Lemgo
sem unnu sína leiki eru nú aðeins
stigi á eftir Flensburg þegar fimm
umferðir eru eftir. Það sem verra er
fyrir Flensburg er að liðið á eftir
útileik í Kiel þar sem liðið hefur
ekki unnið í áraraðir.
Groswallstadt fékk efsta liðið,
Flensburg, í heimsókn og sigi'aði
hið fornfræga félag toppliðið sann-
færandi. Jacskon Richardson var
maður vallarins og skoraði átta
mörk auk þess að eiga fjölda
stoðsendinga. Þá lék Daninn Claus
Jacob Jensen mjög vel fyrir
Groswallstadt á móti hinum mörgu
löndum sínum, en sem kunnugt er
leika fimm Danir auk þjálfarans
Rassmussen í Flensborgarliðinu.
Chrisiansen var markahæstur
Flensborgara með 7/5 mörk.
Kiel lék sér að Bad Schwartau
eins og köttur að mús. Liðið sigldi
an frábæra árangur hjá liðinu sem
sýnir að íslenskur kvennahand-
knattleikur er í sókn og um leið
unglingastarf því litlu munaði að
strákarnir í yngra landsliðinu
kæmust líka áfram,“ sagði Guð-
mundur Ingvarsson, formaður HSÍ,
að mótslokum og lét kostnaðinn við
Kínaförina ekki skemma gleðina
eftir sigurinn. „Ég lít fyrst og
fremst á björtu hliðarnar en auðvit-
að verðum við að fara af stað með
betlistafinn."
hægt og örugglega fram úr Sigurði
Bjarnasyni og félögum. I hálfleik
var staðan 21:13 og endaði leikurinn
39:29 Kiel í vil. Það bar helst til tíð-
inda í leiknum að Daninn Nicolaj
Jacobsen gerði sér lítið fyrir og
skoraði 17 mörk í öllum regnbogans
litum, þar af fimm úr vítakasti.
Magnus Wislander gerði 8 mörk.
Hjá Schwartau var Ludtke mark-
hæstur með 9 mörk en Sigurður
Bjarnason gerði eitt mark.
Lemgo átti í litlum vandræðum
með Dutenhofen. I hálfleik var stað-
an 22:13 og úrslitin ráðin. Hand-
knattleiksmaður ársins í Þýska-
landi, Daniel Stephan, átti stórleik
og gerði 11 mörk. Ungverjinn
Marosi gerði 6 og Khalepo 5, en
þeir munu báðir yfirgefa herbúðir
Lemgo að loknu þessu tímabili.
Wuppertal átti slakan leik á móti
Eisenach á útivelli á laugardag. Það
var aðeins í fyrri hálfleik sem
Wuppertal hélt í við gestgjafana
Duranona og félaga. Duranona lék
mjög vel og setti 8 mörk. Fyrir
Wuppertal var Dagur Sigurðsson
með 4 mörk, Valdimar Grímsson
Dómararnir Guðjón L. Sigurðs-
son og Olafur Haraldsson voru
fyrstir til leggja lóð sitt á vogarskál-
arnar þegar ljóst var að kvenna-
landslið Island - 19 ára og yngri,
hafði unnið sér þátttökurétt á
heimsmeistaramótinu í Kína í sum-
ar. Hvor um sig lagði fram 10.000
krónur og ef fleiri gerðu slíkt hið
sama verður ferðin Handknattleiks-
sambandinu, stúlkunum og aðstand-
endum þeirra auðveldari svo að þær
geta einbeitt sér að handboltanum.
7/5 og Geir Sveinsson 1. Geir
Sveinsson fékk reisupassann 15
mínútum fyi'ir leikslok er hann var
þriðja sinni vísað af leikvelli. Leik-
urinn endaði 28:21 Eisenach í vil
eftir að í hálfleik munaði tveimur
mörkum, 13:11.
Tilkynnt var fyrir leikinn að
Stephan Schöne yrði þjálfari Wupp-
ertal næsta tímabil að minnsta
kosti. Liðið þarf nú minnst fimm
nýja leikmenn en margir hætta hjá
liðinu í vor og því ljóst að róðurinn
næsta ár verður ekki auðveldur því
erfitt er að finna leikmenn svo seint
og hafa margir undrast seinagang
forráðamanna félagsins.
Essen vann góðan sigur á Nettel-
stedt en liðin berjast um sæti í Evr-
ópukeppninni að ári. Þegar aðeins
12 mínútur voru til leiksloka var
staðan 17:21 fyrir Nettelstedt í vil
en þá sagði markvörður Essen,
Stefan Hecker, hingað og ekki
lengi-a. Varði hann allt hvað af tók
og breyttu félagar hans stöðunni í
24:21 og varði Hecker allt sem á
markið kom í talsverðan tíma.
Leiknum lauk með sigri Essen,
■ ALFREÐ Gíslason þjálfari Ha-
meln missti sennilega af því að fara
beint upp í 1. deild á ný þegar Ha-
meln beið ósigur, 27:20, í toppslag 2.
deildar í norður-riðli. Liðið tapaði
fyrh' Nordhorn sem hefur verið stigi
á efth- Hameln nær allt tímabilið.
Nordhorn hefur ellefu Norðurlanda-
búa innan sinna vébanda auk þjálf-
arans Kent Harry Anderson.
■ ÞEGAR tvær umferðir eru eftir
hefur Nordhorn eins stigs forskot á
Hameln. Ef liðið nær að halda því
forskoti fer það beint upp, en Ha-
meln, sem lið í öðru sæti, verður þá
að leika aukaleiki um sæti í 1. deild -
væntanlega við Willstatt eða Schutt-
erwald.
■ ALEXANDER Dedu, 25 ára gam-
all rúmenskur línumaður, skrifaði í
gær undir þriggja ára samning við
Wuppertal. Er Dedu ætlað að koma
í stað Geirs Sveinssonar hjá Wupp-
ertal. Dedu hefur að undanfórnu
leikið með spænska meistaraliðinu
Barcelona.
■ GÚSTAF Bjarnason skoraði 3
mörk er Willstatt lagði Bayer Dor-
magen 26:25 í viðureign efstu liða 2.
deildar suður í þýska handknatt-
leiknum. Eigi að síður hefur Dor-
magen eins stig forystu á Willstátt í
efsta sæti deildarinnar.
■ HÉÐINN Gilsson skoraði fjögur
mörk fyrir Dormagen í leiknum og
Róbert Sighvatsson var með 2 mörk
auk þess sem hann var rekinn af
leikvelli með rautt spjald við þriðju
brottvísun. Daði Hafþórsson komst
ekki á blað hjá Dormagen.
■ HARALDUR Þorvarðarson skor-
aði 2 mörk fyrir Diisseldorf er liðið
vann CSG Erlangen 24:20 í suður-
riðli 2. deildar þýska handknattleiks-
ins um páskahelgina.
■ JÚLÍUS Jónasson skoraði 2 mörk
í 26:25 sigri St. Otmar á Pfadi
Winterthur í fyrsta leik liðanna í 4-
liða úrslitum svissnesku deildar-
keppninnar. í hinum leik undanúr-
slitanna lagði Kadetten liðsmenn Su-
hr, 25:22. Það liðanna sem fyiT vinn-
ur tvo leiki vinnur sér sæti í úrslita-
leikjum um meistaratitilinn.
■ GUNNAR Andrésson hefm' skrif-
að undir tveggja ára samning við
Amicitia frá Ziirich, en Gunnar lék
einmitt með hðinu sl. vetur. Að sögn
Gunnars er það ætlun forráðamanna
Amicitia að styt'kja liðið verulega fyr-
h- næsta tímabil, en nýlega keypti lið-
ið markvörðinn kunna, Suik Hyung
Lee, sem eitt sinn lék með FH.
26:23, og skoraði Páll Þórólfsson 2
marka Essen.
Magdeburg er ekki sannfærandi
þessa dagana rétt fyrir úrslitaleik-
ina í Evrópumótinu. Liðið lék í
Gummersbach og var leikurinn afar
slakur. Það voru þó leikmenn Gum-
mersbach sem jöfnuðu þegar Yoon
skoraði 20 sekúndum fyrir leikslok.
Olafur Stefánsson átti góðan leik og
gerði 8/6 mörk en Stefan
Kretzehmar var næstur með 4.
Yoon gerði aðeins 4 mörk að þessu
sinni sem þykir ekki mikið á hans
bæ enda meðaltalið hans um 10
mörk að jafnaði í leik það sem af er
tímabilinu. Leiknum lauk með jafn-
tefli 22:22.
Um 30.000 áhorfendur sáu leiki
þessa páskahelgi. Flensburg er
eftst í deildinni með 39 stig og 137
mörk í plús en Kiel hefur 38 stig og
129 mörk í plús. Lemgo er svo í
þriðja sæti með 38 stig og 80 mörk í
plús. Essen er í 8. sæti og Wupper-
tal féll niður í 13. sæti, sem er léleg-
asta staða liðsins frá því það fékk
sæti sitt í deildinni fyrir tveimur ár-
um.
Flensburg að missa flugið?