Alþýðublaðið - 29.12.1920, Qupperneq 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
€rlai símskeytl
Sjúkrasamlag- Reykj avíkur.
Hér með er skorað á alla samlagsmeaa, að
hafa greitt áfallin gjöld sín fyrir iok þ. m.
Gjaldkerinn Bergstaðastr. 3 (opið 7-8V0
Khöfn, 27. des.
Franskir jafnaðarmenu.
Símað er frá Tours að þing
franskra jafnaðarmanna standi nú
yfir. 2916 fulltrúar hafa samþykt
að byrja strax á umræðum um
inngöngu flokksins i 3 internatio-
nale. 414 voru á móti. Minnihlut
inn fær því að eins &ð vera kyr
i flokknum, að hann gangi að
kostum kommúnista. Búisf. er við
þvf, að franski jafnaðarmanna-
flokkurinn klofni þar með og verði
meirihlutinn kommúnistar [bolsé-
vfkar]. Cachin og Frossard [rit-
stjórar l’Humanété, sem báðir voru
á Moskvafundinum í sumar] eru
ioringjar þeirra. Minnihlutann skipa
endurbótamenn, með Renandel sem
íoringja, og flokkur Longuets [«m
er milliflokkur kommunista og
socialdemokrata].
Terndnn smáþjóðanna!
Frakkland hefir afnumið ræðis-
mannsembættið í Montenegro, þar
eð það viðurkennir ekki lengur
sjálfstæði landsins.
Ameríka og Rússland.
Rosta, fréttastofa Rússa [bolsé
vfka], segir, að sökum þess, að
Bandaríkm hafa vírað sendimanni
sovjetstjórnarinnar úr landi, hafi
Tschtscherin skipað að ónýta samn
iaga þá, sem gerðir hafa verið
við amerfsk auðfélög.
Khöfn, 28. des.
Álandseyjamálið.
Símað er frá Stokkhólmi, að
Branting segi að þjóðaráðið muni
útkljá Álandseyjamátin um miðjan
febrúar.
fýzkaland og Ámeríka.
Samband milli Þýzkalands og
Bandaríkjanna verður brátt opin-
bert.
Frá Tyrkjum.
Stjórn Tyrknesku þjóðernissinn-
anna f Angora vill engin mök
hafa viö Konstantinopel.
Einkaróttindin agn.
Rosta-fréttastofa tilkynnir að
Lenin hafi, á 18. þingi Sovjet-
Rússiands, lýst því yflr, að sér-
réttindapólitfkin væri fjármálalegt
sgn fyrir peningamennina, svo
Rússland geti sem fyrst fengið
eimvagna og vélar.
Nikita konnngnr.
Símað er frá Belgrad, að Serba-
stjórn hafi veitt Nikita fyr konungi
í Montenegro 300 þús. franka ár-
lega heiðursgjof.
Smeikir við Rússann.
Símað er frá Kovno, að þjóða-
ráðið hafl hætt við að senda her-
lið til atkvæðahéraðanna þar eýstra,
til þess að komast hjá deilum við
Sovjet Rússiand.
Lithá hefir afsalað sér þjóðarat
kvæðagreiðslu f Vilna.
Bókaútgáfan
Gyldendal er 150 ára 30. þ. m.
Hffl Ép 09 VSÍjÍEB.
Kveikja ber á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerum eigi sfðar en kl
3 f kvöld.
Bíóin. Gamla bfó sýnir: BSóI
skinssiúikan”, aðalhlutverkið leikur
Mary Pickford Nýja bíó sýnir:
„Stigvélaði kötturinn", afar-skemti-
leg mynd í 6 þáttum.
Undirvísun í íslenzku auglýsir
maður einn f Vísi. Illa valið orð,
ekki síst af kennara því það: *at
give Undervisning i noget" þýðir
á íslenzku: „að veita tilsögn
í eu., — kenna eitthvað, en ekki
að ve’ta undirsísun(l) í eu, eða
undirvísa(l). S. b.
10 krónn gullpcningur, er nú
16 kr. virði í Danmörku. Það
yrði laglegur skildingur sem Is
landsbanki yrði út með ef hann
væri látinn hafa gulltryggingu
samsvæmt lögum.
Svar frá prentsmiðjueigendum
íiventa,ska. með pening-
um og íl. í fundin á aðfangad.
Vitjist á afgr. blaðsins.
til Prentarafélagsins er nú komið
þremur dögum áður en samningar
eru útrunnir. Er svarið á þá leið,
að sennilega veldur það deslusn
að ýmsu leyti.
Botnvörpungarnir Skúli fógeti
Leifur hepni komu í gær frá Eng-
landi með kol Á veiðar fóru:
Hilmir, Ran og Njörður. Geir fór
til Englands með afla sinn.
Alþingiskosningarnar fyrir
Rvík, eiga að sögn að fara fram
(augardaginn 5 febrúar og er
framboðsfrestur til laugardagsins
8. jan 1921. Þetta hefir þó ekki
verið auglýst enn þá.
Yeðrið í morgnn.
Stöð Loitvog Vindur Loft Hitnstig
m. m. Átt Magn
Rv. 7501 ASA 4 0 3.8
Vm. 7493 A 7 4 4.8
Stro. tsf. 7S44 A 2 I 2,3
Ak 7552 logn O 4 2,0
Gst. 7552 SA 5 3
Rh. 7577 SAS 4 4 2 O
Sf. 7580 NA 4 5 06
Þ F 7 51 logn 0 3 4 5
Loftvægislægð fyrir suðvestan
iand, loftvog stöðug, austlæg átt.
Sama vindstaða.
Magn vindsins í tölum frá o—12
þýðir: logn, andvari, kul, gola, kaldi,
stinnings gola, stinnings kaldi,
snarpur vindur, hvassviðri, rok-
stormur, fárviðri. — Loft í tölum
frá 0—8 þýðir: Heiðskýrt, iétt-
skýjað, hálfheiðskýrt, skýjað, al-
skýjað, regn, snjór, móða, þoka.
-f- þýðir frost.
Tónskáldið P. E. Lange-Miiller
eitt þektasta núlifandi tónskáld
Dana, varð 70 ára I. desember.
Honum var sýndur margskonar
sómi þennan dag.