Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 1
k
isln
\A r
I
-J
*íi
ÍJ
[i
k
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA
l - - - - -1
1999
■ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL
BLAÐ
Morgunblaðið/Ami Sæberg
ÞAD ríkti mikil gleði á meðal stuðningsmanna Aftureldingar er félagið tryggði sér íslandsmeistara-
titilinn í handknattleik karla í fyrsta sinn er það lagði FH í fjórðu viðureign liðanna í Kaplakrika á
sunnudaginn, 25:23 og samtals 3:1 í einvíginu.
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari fslandsmeistara UMFA
Einstakur hópur
„SATT að segja var útlitið ekki mjög bjart í fyrrasumar hjá okkur
þegar við vorum að leggja niður fyrir okkur þann hóp sem við
hefðum úr að spila fyrir veturinn, staðan var þannig að við áttum
varla í lið,“ sagði Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftureldingar, eftir
að hann hafði stýrt Aftureldingu til sigurs á íslandsmótinu í hand-
knattleik á sunnudagskvöldið.
á vann Afturelding FH þriðja
sinni í fjórum leikjum liðanna í
einvíginu um Islandsmeistaratitilinn,
25:23, en leikurinn fór fram í
Kaplakrika í Hafnarfirði.
„Síðan stóð í þeim vangaveltum
um það hvort ég næði í lið hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar og við fengið
framúrskarandi leikmenn sem fallið
hafa einstaklega vel inn í þann hóp
sem var fyrir. En víst er að staðan
var ekki góð enda fóru frá okkur sjö
eða átta leikmenn eftir síðasta ár og
aðeins tveir menn eftir úr byrjunar-
liði síðasta vetrar, Sigurður Sveins-
son og Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður. Eg held hins vegar að
þessara breytinga hafi verið þörf að
ýmsu leyti.“
Þetta var annað keppnistímabil
Skúla við stjórnvölinn hjá Aftureld-
ingu en þegar hann tók við liðinu
hafði hann ekki mikla reynslu af
þjálfun meistaraflokks karla. A ný-
lokinni leiktíð vann liðið undir hans
stjórn ekki einatt Islandsmótið held-
ur einnig deildarkeppnina svo og
bikarkeppni HSÍ í fyrsta skipti.
Skúli á eftir eitt ár af samningi sín-
um við Mosfellinga.
„Ég hef aldrei kynnst eins heil-
steyptum og góðum hópi leikmanna
og þeim sem ég hef haft í mínu liði á
þessu keppnistímabili," sagði Skúli
að leikslokum í Kaplakrika á sunnu-
daginn.
„Okkur langaði bara svo ofboðs-
lega í íslandsmeistaratitilinn og sá
ásetningur og sú samstaða sem ríkti
innan hans að vinna var það sem
skildi liðin að í þessum fjórða og síð-
asta leik. Þetta lýsir -því andrúms-
lofti sem hefui' verið innan liðsins í
vetur og mín skoðun er sú að hafi
eitthvert lið leikið með hjartanu í
vetur, eins og sagt er, þá sé það Aft-
ureldingarliðið."
Skúli segir að hann hafi lagt meg-
ináherlsu á að liðið léki góða vörn,
enda hefði það sýnt sig í gegnum tíð-
ina að það lið sem leikur sterkustu
vömina standi uppi sem sigurvegari,
jafnt í deild sem í úrslitakeppni.
„Fyrir aftan vörnina var síðan sterk-
ur markvörður, Bergsveinn Berg-
sveinsson, sem lék mjög vel í úrslita-
keppninni.
Auðvitað lögðum við áherslu á að
sóknarleikurinn væri góður og með
honum gætum við svarað öllum
hugsanlegum varnaraðferðum FH-
inga og ég tel að það hafi tekist vel
til.
Aftureldingarliðið er sterkt og það
hefur eflst við hverja raun og sem
dæmi má nefna að við höfum ekki
tapa leik í vetur sem hefur skipt
veralegu máli. Arangurinn undir-
strikar það.“
■ Bergsveinn.../B5
■ Liggur við.../B6
■ Uppbygging.../B6
Island er
varaþjóð
á HM
ÍSLAND er fyrsta varaþjóð
fyrir heimsmeistarakeppnina í
handknattleik sem hefst í Eg-
yptalandi 1. júní nk. Frank
Birkefeld, framkvæmdastjóri
Alþjóðahandknattleikssam-
bandsins (IHF), staðfesti
þetta við Morgunblaðið í gær,
en sagði jafnframt að enn væri
stefnt að þátttöku Júgóslava á
HM, þrátt fyrii- stríðið sem
geisar nú á Balkanskaga.
„Stefna IHF er að blanda
ekki saman íþróttum og
stjórnmálum. Vissulega erum
við í afar erfiðri aðstöðu í þess-
um efnum og sitt sýnist þar
hverjum," sagði Birkefeld.
Hann nefndi m.a. að Alþjóða-
blaksambandið hefði nýlega
ákveðið að vísa Júgóslövum úr
keppni og fleiri heimssambönd
hefðu slíkt til athugunar.
Einar Þorvarðarson, stai-fs-
maður Handknattleikssam-
bandsins, segir að Islending-
um hafi borist staðfesting á því
að þeir séu varaþjóð, en annað
hafi menn ekki heyrt. „Það
yrði ekki stórmál að skipta um
ákvörðunarstað, því landsliðið
á hvort eð er að koma saman 3.
maí fyrir næstu átök á Norð-
urlandamótinu og í forkeppni
EM. En óneitanlega þurfa for-
svarmenn IHF að hafa hraðar
hendur í þessum málum, enda
lítill tími til stefnu.“
Ef Islendingar tækju sæti
Júgóslava á HM yrðu þeir í D-
riðli ásamt Svíum, Frökkum,
Kóreumönnum, Kínverjum og
Aströlum.
HANDKNATTLEIKUR: ARON DANSKUR MEISTARI MEÐ SKJERN / B2
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
I 24. 04.1999 |
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- | upphæð |
1. 5 af 5 0 5.747.360
2. 4 af 5+<# 4 102.870
3. 4 af 5 77 9.210
4. 3 af 5 2.643 620
FJÓRFALDUR
//* Lt. VINNINGUR A
'—kS laugardaginn
Jókertölur vikunnar
7 2 2 7 3
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæð á mann
5 tölur 0 1.000.000
4 síðustu 1 100.000
3 síðustu 7 10.000
2 síðustu 142 1.000
VINNINGSTÖLUR
MIÐVIKUDAGINN
21.04.1999
AÐALTÖLUR
BÓNUSTÖLUR
M4 í 45
Vinningar
1.6 af 6
2. 5 af 6+búnus
3. 5 af 6
4. 4 af 6
3. 3 af 6+Bónus 396
179
mí
Vinnings-
upphæð
37.378.730
340.000
53.420
2.370
450
Lottómiðarnir með bónusvinn-
ingunum sl. laugardag voru
keyptir í Mat og myndum við
Freyjugötu í Reykjavík,
Aðalstöðinni við Hafnargötu í
Keflavík, KEA Sunnuhlíð á
Akureyri og Olís Nesti við
Esjubraut á Akranesi. Annar
vinningur í Jóker kom á lottó-
miða sem keyptur var hjá
Okkar vídeói við Seljabraut 54
í Reykjavík.
Upplýsingar í sima:
568-1511
í Textavarp:
281, 283 og 284
í þágu öryrkja, ungmenna og íþrótta