Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 12
KNATTSPYRNA
Einvígið um Englandsmeistaratitilinn er nú milli Arsenal og Man. Utd
Slórsigur
Arsenal
LEEDS United gaf iítið eftir gegn hinu magnaða liði Manchester
United er liðin mættust á Elland Road á sunnudag og skildu jöfn,
1:1. Þar með tapaði Man. Utd tveimur dýrmætum stigum og
missti af toppsætinu til meistaranna í Arsenal sem voru í mikl-
um ham á útivelli í Middlesbrough - unnu, 1:6. Kapphlaupið um
titilinn virðist nú aðeins vera á milli Arsenal og Man. Utd, því
Chelsea hefur ekki leikið vel að undanförnu og varð að sætta sig
við markalaust jafntefli gegn Sheffield Wednesday á sunnudag.
Arsenal hefur nú eins stig forskot á toppi deildarinnar, en Man.
Utd hefur leikið einum leik minna. Chelsea heldur þriðja sætinu,
en fjórum stigum munar nú á þeim og toppliðinu. Þá féllu nýlið-
arnir úr Nottingham Forest endanlega um helgina og Charlton,
sem einnig kom upp úr 1. deild síðasta haust, tapaði stórt og er
í vondum málum.
Franski heimsmeistarinn í vörn
Chelsea, Franck Leboeuf, við-
urkenndi eftir jafntefli Chelsea að
möguleikar liðsins á fyrsta meist-
aratitli sínum síðan 1955 væru úr
sögunni. „Við hefðum þurft að
vinna síðustu fimm leikina til að
eiga möguleika á titlinum. Nú er
það úr myndinni að mínu mati. En
við eigum enn möguleika á öðru
sætinu og keppikefli okkar er að ná
sæti í Meistaradeildinni," sagði Le-
boeuf.
Hið unga og kraftmikla lið
Leeds United hefur staðið sig frá-
bærlega á leiktíðinni og leikmenn
liðsins virðast lítið ætla að gefa eft-
ir á lokasprettinum, ef marka má
frammistöðu þeirra á heimavelli
gegn Man. Utd. Þeir voru mun
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, áttu
nokkur ágæt færi og komust yfir
með marki Hollendingsins Jimmys
Floyds Hasselbainks eftir ríflega
hálftíma leik. I seinni hálfleik
hresstust leikmenn Manchester-
liðsins hins vegar nokkuð og Andy
Cole jafnaði metin af stuttu færi á
55. mín. Gestimir hefðu getað
„stolið" sigrinum undir lokin, en
Dwight Yorke skaut himinhátt yfir
og örskömmu síðar var leikurinn
úti.
„Við vorum slakir í fyrri hálfleik
og gáfum þeim færi á okkur,“ sagði
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Man. Utd, eftir leikinn. „Við náðum
ekki að herða okkur á endasprett-
inum og gera út um leikinn.“
Næsti leikur United er á heima-
velli gegn Aston Villa um næstu
helgi og svo taka við þrír útileikir
gegn Liverpool, Middlesbrough og
Blackbum Rovers. „Titillinn er
enn í okkar höndum. Enn er nokk-
uð eftir og á veginum verða marg-
ar hæðir og hindranir,“ sagði
Ferguson. Lokaleikur liðsins verð-
ur á heimavelli gegn Tottenham 16.
maí.
Leeds keppir að sæti í Evrópu-
keppni og gæti jafnvel komist í
Meistai’adeildina. "Þar getur það
ráðið úrslitum á fleiri vegu, því lið-
ið á enn eftir að leika gegn Arsenal
og Chelsea og gæti vel reitt af
þeim stig líkt og gegn Man. Utd á
sunnudag.
Markaregn
Tilburðir Englands- og bikar-
meistara Arsenal á útivelli gegn
Middlesbrough á laugardag benda
þó alls ekki til þess að þar á bæ séu
leikmenn eitthvað að gefa eftir.
Meistaramir léku andstæðinga
sína sundur og saman í leiknum og
unnu stórsigur, 1:6, og hefði hann
allt eins getað orðið stærri. Á
mánudeginum áður höfðu meistar-
amir tekið Wimbledon í bakaríið á
heimavelli, 5:1, og ellefu skoruð
mörk í tveimur leikjum hljóta að
hringja ótal viðvörunarbjöllum hjá
keppinautunum frá Manchester.
Framherjamir Nicolas Anelka
og Kanu gerðu sín tvö mörkin hvor
og síðara mark Kanus var aldeilis
frábært - snörp hælspyrna af
nokkru færi í bláhornið. Patrick Vi-
eira og Marc Overmars gerðu sitt
markið hvor, en Alan Armstrong
minnkaði muninn undir lokin með
skalla. Það var aðeins fimmtánda
markið sem Arsenal hefur fengið á
sig í 34 leikjum í vetur. Stórsigr-
amir tveir hafa aukinheldur lagað
markahlutfalhð gagnvart Man. Utd
og munar nú aðeins einu marki þar
á, United í vil.
„Ég er afar hamingjusamur,"
sagði Arsene Wenger, stjóri Ar-
senal. „Við virðumst hafa ratað á
hárrétta leikaðferð og náum upp
miklum hraða." Arsenal á fjóra
leiki eftir og vamarmaðurinn gam-
alreyndi, Steve Bould, telur mögu-
leikana talsverða á að verja titilinn.
„Nú erum við á toppnum og þar
viljum við vera. Við vitum að við
þurfum að vinna fjölmarga leiki,
jafnvel alla. Þetta verður afar tví-
sýnt,“ sagði hann.
Erfitt fyrir nýliðana
Nottingham Forest féll endan-
lega úr úrvalsdeildinni með 2:0-tapi
gegn Aston Villa. Nýliðarnir sáu
sjaldan til sólar á leiktíðinni og era
aftur komnh- í 1. deild, en hana
unnu þeir einmitt með miklum yfir-
burðum í fyrra. Aðrir nýliðar,
Charlton, gætu farið sömu leið eft-
ir stórtap gegn Everton, 4:1. Að
sama skapi hafa leikmenn Everton
aldeilis rétt úr kútnum að undan-
fömu og með sigrinum færðist liðið
úr fallbaráttunni. Mestu munaði að
venju um framherjann Kevin
Campbell sem skoraði tvennu, rétt
eins og hann hafði gert í tveimur
leikjum á undan. Sex mörk í þrem-
ur leikjum undir lok leiktíðarinnar
er ekki slæmt þegar haft er í huga
ALEX Fergusson, knattspyrnustjóri Manchester United, var ekki
ánægður með gang mála á Elland Road, en aftur á móti var Da-
vid O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds, fyrir aftan hann, mjög yfir-
vegaður.
að Campbell er í láni frá tyrkneska
liðinu Besiktas.
Tríóið fyrir ofan Forest, Black-
bum Rovers,'Charlton og Sout-
hampton hafa öll 32 stig og róa líf-
róður. Southampton náði marka-
lausu jafntefli við Derby en Black-
burn steinlá á heimavelli gegn Li-
verpool, 1:3. Þar vora varnarmenn
liðsins í miklu óstuði og hreinlega
færðu Liverpool stigin þrjú á silf-
urfati. Athyglisvert er að Charlton
og Blackburn mætast einmitt um
næstu helgi.
■ Úrslit / B10
■ Staðan / B10
Barátta Lazio
og AC Milan
Christian Vieri tryggði Lazio
sinn fyrsta sigur í fjóram leikj-
um gegn Sampdoria í ítölsku 1.
deildinni um helgina. Vieri skoraði
sigurmark liðsins á 60. mínútu
leiksins, en sex mínútum síðar var
félagi hans, Matias Almeyda, rek-
inn af velli. Það kom ekki að sök
fyrir Lazio, sem er enn á toppi
ítölsku deildarinnar.
AC Mflan, helstu keppinautar
Lazio, héldu sigurgöngu sinni
áfram er liðið vann Vicenza 2:0
með mörkum frá Þjóðverjanum
Oliver Bierhoff og Brasilíumannin-
um Leonardo. AC Mílan er einu
stigi á eftir Lazio þegar fjórir leikir
era eftir í deildinni.
Fiorentina er í þriðja sæti
ítölsku deildarinnar. Liðið tapaði
fyrir Juventus 2:1 og virðist ekki
lengur eiga möguleika á meist-
aratitlinum. Filippo Inzaghi gerði
fyrsta markið fyrir Juventus en
Luis Oliveira jafnaði er sex mínút-
ur voru eftir af leiknum. T\'eimur
mínútum síðar náði Antonio Conte
að gera sigurmark Juventus.
Parma, sem er komið í úrslit
Evrópukeppni félagsliða, er í
fjórða sæti í deildinni, en það gefur
sæti í Meistaradeild Evrópu næsta
vetur. Þrjú lið, Roma, Juventus og
Udinese, era þar fyrir neðan og
sækja hart að Parma í von um að
hreppa sætið.
■ JÓHANN B. Guðmundsson var
ekki í leikmannahópi Watford, sem
vann góðan 2:l-sigur á Crystal
Palace á heimavelli í 1. deildinni.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék í
vörn Stoke sem steinlá á heimavelli
gegn Burnley, 1:4. Stoke á ekki
lengur neina möguleika á að kom-
ast upp í 1. deild.
■ HERMANN Hreiðarsson var í
byrjunarliði Brentford sem virðist
á leið upp úr 3. deild eftir 4:l-sigur
á Southend Utd. á laugardag. Her-
mann hefur verið valinn í lið ársins
í 3. deildinni, samkvæmt vali leik-
manna.
■ DAVID Ginola, leikmaður
Tottenham, hefur verið valinn leik-
maður ársins í Englandi, sam-
kvæmt vali leikmanna. Dwight
Yorke, leikmaður Manchester
United, var í öðra sæti, og
Emmanuel Petit, leikmaður Ar-
senal, í þriðja sæti.
■ NICOLAS Anelka, leikmaður Ar-
senal, var valinn efnilegasti leik-
maður ársins í Engiandi. Michael
Owen, leikmaður Liverpool, var í
öðra sæti.
■ SIGURÐUR Jónsson og félagar í
skoska úrvalsdeildarliðinu Dundee
Utd. gerðu jafntefli, 2:2, við Dun-
fermline. Sigurður lék í vörninni.
■ ÓLAFUR Gottskálksson var að
vanda í markinu hjá Hibernian sem
vann einn sigurinn til í skosku 1.
deildinni. Hibs hefur fyrir löngu
tryggt sér sigur í deildinni og sæti í
úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
■ RANGERS er einum sigri frá því
að tryggja sér skoska meistaratitil-
inn. Liðið vann Aberdeen 3:1 um
helgina.
■ ARNAR Gunnlaugsson sat á
varamannabekk Leicester sem
sigraði Coventry 1:0. Það var hinn
gamalreyndi Ian Marshall sem
gerði eina mark leiksins.
■ WEST Ham hafði betur á útivelli
í Lundúnaslagnum gegn Totten-
ham. Framherjinn Ian Wright kom
gestunum yfir á fimmtu mínútu og
Marc Keller bætti öðru marki við á
þeirri 66. David Ginola náði að
minnka muninn fyrir heimamenn
skömmu síðar en lengra komust
þeir ekki þótt John Moncur væri
rekinn af velli í liði West Ham.
■ WIMBLEDON og Newcastle
gerðu l:l-jafntefli í Lundúnum.
Markahrókurinn Alan Shearer
kom gestunum frá Newcastle yfir á
18. mínútu en John Hartson jafnaði
metin litlu síðar.
■ RON Atkinso, knattspyi-nustjóri
Nottingham Forest, ætlar að draga
sig í hlé í vor. Atkinson, sem er sex-
tugur, hefur starfað sem knatt-
spyrnustjóri í 28 ár.
■ ATKINSON, eða „Big Ron“, eins
og hann er kallaður, hóf ferilinn hjá
Kettering árið 1971 en hefur einnig
stýrt Cambridge, WBA, Manchest-
er United, Sheffield Wednesday,
Aston Villa, Nottingham Forest og
Coventry. í Englandi. Hann þjálfaði
einnig á Spáni, en entist aðeins þar
í þrjá mánuði.
■ ATLETICO Madrid stöðvaði sig-
urgöngu Barcelona er liðin gerðu
l:l-jafntefli á sunnudag. Juan Car-
los Valeron gerði mark Madrid-
liðsins en Abelardo Ferandez jafn-
aði fyrir Barcelona, sem hefur níu
stiga forystu í deildinni.
■ ÖÐRUM liðum á toppi spænsku
deildarinnar tókst ekki að bæta
stöðu sína um helgina nema Mall-
orca sem vann 6:l-sigur á Athletic
Bilbao.
■ REAL Madrid fór illa að ráði
sínu er liðið gerði l:l-jafntefli gegn
Salamanca, sem er í neðsta sæti
deildarinnar. Madrid-liðið er í
fimmta sæti deildarinnar.
mu
•Inj.;
lilg
s 8
8f9
•!K‘
rio
JI8Í
!íii
íT/t
189
ÍOÍ
M
m
5ui
mi
iio
m