Morgunblaðið - 27.04.1999, Side 2

Morgunblaðið - 27.04.1999, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ Martha setti met í Hamborg MARTHA Ernstsdóttir, hlaupakona úr ÍR, bætti eigið Islandsmet um tvær mínútur og 49 sekúndur er hún varð sjöunda í Hansa-maraþoninu, árlegu maraþoni Hamborgar í Þýskalandi sem fram fór á sunnudag. Martha hljóp vegalengdina á 2:38,05, en fyrra metið setti hún fyrir þremur árum í Rott- erdam í Hollandi, 2:38,05. Þar með náði Martha lágmarki fyrir heimsmeistaramótið í Sevilla í sumar. Sigurvegari í kvennaflokki í maraþoninu í Hamborg var Þjóðverjinn Katrin Dön-e- Heinig og setti hún brautar- met, hljóp á 2:24,34 klst. Víkingar semja við Skota KNATTSPYRNUDEILD Víkings hefur gert samning við Alan Prent- ice, 21 árs gamlan skoskan miðvall- arleikmann frá St. Mirren, um að hann leiki með Víkingum í sumar. Prentice er vinstri kantmaður og er uppalinn hjá skoska 1. deildarfé- laginu. Haraldur Haraldsson, gjaid- keri knattspyrnudeildar Víkings, segir að upphaflega hafí félagið leit- að að reynslumiklum leikmönnum fyrir átökin í efstu deild í sumar en foiráðamönnum þess hafí þótt mik- ið til hins unga Prentice koma er þeir sáu hann hjá St. Mirren í Skotlandi í vetur. Prentice kemur frá sama félagi og Tom Brown, sem hafði gert ráð fyrir að leika með Víkingum í sumar en snúist hugur og gert nýjan samning við St. Mir- ren. Von er á Prentice til landsins í næstu viku. Víkingar hafa gert öðrum skosk- um leikmanni tilboð um að leika með liðinu í sumar. Sá er 26 ára miðvallarleikmaður og dvaldi hér á landi í vikutíma við æfíngar og keppni hjá Víkingum. Hann hefur á undanförnum árum leikið með lið- um í Skotlandi. ■ HARALDUR Ingólfsson skoraði fyrir Elfsborg í 1. deildinni í Sví- þjóð er liðið lagði Hammarby 3:0 um helgina. Haraldur kom inn á sem varamaður á 80. mínútu og hafði aðeins leikið í þrjár mínútur er hann skoraði. ■ PÉTUR Björn Jónsson lék ekki í liði Hammarby í leiknum. ■ JULIAN Róbert Durnuona gerði 13 mörk fyrir Eisenach þegar liðið tapaði fyrir Schutterwald 25:22 í þýsku 1. deildinni um helgina. ■ VALDIMAR Grímsson gerði níu mörk fyrir Wuppertal sem vann Bad Schwartau 29:26 í þýsku deild- inni. Geir Sveinsson gerði þrjú mörk og Dagur Sigurðsson gerði eitt mark. Sigurður Bjarnason gerði fjögur mörk fyrir Bad Schwartau. ■ VILBERG Helgason, úr KA, sem hafði ekki æft júdó í 12 ár, kastaði Gísla Jóni Magnússyni, úr Ar- manni, í +100 kg flokki á íslands- mótinu í júdó, sem fram fór á Akur- eyri, um helgina. Ekki kom að sök fyrir Gísla að tapa þessari glímu því hann vann alla aðra andstæðinga í flokknum. ÍÞRÓTTIR HANDKNATTLEIKUR Aron Krístjánsson meistarí með Skjem ARON Kristjánsson og félagar í jóska handknattleiksliðinu Skjern urðu á laugardag Dan- merkurmeistarar í fyrsta sinn í sögu félagsins - sigruðu Kold- ing í seinni úrslitaleik liðanna, 24:21. Fyrri leikinn á heima- velli hafði Skjern einnig unnið og raunar sigraði Skjern í öll- um sex leikjum sínum í úrslita- keppninni. Mikið var fjallað um sigur liðsins í dönskum fjöl- miðlum, enda hefur það aldrei gerst áður að lið verði meistari á fyrsta ári sínu í efstu deild. Aron, sem verið hefur lykilmaður í jóska liðinu á leiktíðinni, gerði tvö mörk í leiknum, en leit svo rauða spjaldið undir lokin vegna þriggja brottvísana. Hann segir að stemmn- ingin eftir leikinn hafí verið engu lík. „Þetta var ótrúlegt og menn réðu sér ekki fyrir kæti. Svo biðu nokkur þús- und manns eftir okkur við heimkom- una og troðfylltu íþróttahöllina. Þar var síðan trallað og fagnað fram eftir laugardagsnóttinni," sagði Aron. Aron gekk til liðs við Skjern fyrir leiktíðina, kom frá Haukum í Hafn- arfirði og á eftir eitt ár af samningi sínum við danska félagið. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég verð landsmeist- ari í handknattleik og nú veit ég hvernig tilfínning það er - hún er æðisleg," segir leikmaðurinn sem varð deildarmeistari með Haukum 1994, bikarmeistari með sama liði 1997, Norðurlandameistari með ís- lenska U-21 landsliðinu og lék með sama liði sem varð í 3. sæti á HM í Egyptalandi. Mikið hefur verið gert úr frábæru gengi nýliðanna í Skjern í vetur og miklu lofí ausið á þjálfara liðsins, hinn gamalreynda Anders Dahl Ni- elsen, sem þjálfaði eitt sinn KR hér á landi. í fyrirsögn eins dagblaðanna á sunnudag var Nielsen m.a. nefnd- ur keisarinn á Vestur-Jótlandi, sem komið hefði frá Flensborg þar sem hann var konungur. Leynir sér ekki að Nielsen nýtur mikillar virðingar fyrir störf sín í dönskum fjölmiðlum. „Hann er gífurlega vinsæll og framtíðin er björt hjá félaginu. Nú tökum við þátt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð og fyrir því er mikil stemmning í bænum enda hefur liðið aldrei áður komist í Evrópukeppni. Þá eru ungir og efnilegir leikmenn að banka á dyrnar, auk þess sem við fáum markvörð úr atvinnumennsku á Spáni,“ segir Aron. Sigrar á Sádum ISLENSKA landsliðið í handknattleik vann landslið Sádi-Araba í tveimur æfingaleikjum um helgina. fslendingar unnu 33:26 á laug- ardag og 26:23 á sunnudag. ísland vann einnig fyrsta leik liðanna 25:21, seni fór fram á föstudag. fslenska landsliðið, sem var ein- göngu skipað leikmönnuin frá liðum hér á landi fyrir utan Aftur- eldingu og FH, hafði yfirburði á laugardaginn en mætti talsverðri mótspyrnu daginn eftir. Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, sagði að í leikjunum hefði hann fengið tækifæri til þess að fylgjast með leikmönnum sem sagð- ir eru hafa átt að fá tækifæri til þess að leika með landsliðinu. „Ég vel á næstu dögum nýjan hóp sem tekur þátt í verkefnum með íands- liðinu í maí og því þótti mér kærkomið að sjá marga af þessum strákum. Einhverjir þeirra verða í hópnum eru framtíðarleikmenn." Þorbjörn sagði að mótstaða íslenska liðsins hefði ekki verið inikil, mest í leiknum á sunnudag. „Við lileyptuin þeim of mikið inn í þann leik, en þegar á þurfti að halda náðum við að vinna og það er aðalatriðið.“ Morgunblaðið/Lars Mikkelsen ARON Kristjánsson reynir hér markskot í úrslitaleiknum á laug- ardaginn gegn Patrice Westerholm, leikmanni Kolding. KNATTSPYRNA Eyjólfur og sam- heijar í þriðja sæti EYJÓLFUR Sverrisson og fé- lagar hans í Hertha Berlín unnu lið Bochum sannfærandi, 4:1, á heimavelli og eru komnir í þriðja sæti þýsku deildarinn- ar. „Þetta hefur gengið framar vonum hjá okkur og nú eygjum við von um sæti í Meistara- deild Evrópu á næstu leiktíð. En það eru sjö umferðir eftir og kannski of snemmt að hugsa of mikið um það á þess- um tímapunkti," sagði Eyjólfur. Hann sagði að tvö efstu liðin færu beint í Meistaradeildina og liðin sem yrðu í þriðja og fjórða sæti myndu leika um sæti í Meistara- deildinni. Það lið sem verður í þriðja spilar einn leik við lið frá líklega Ítalíu eða Spáni og það lið sem verð- ur í fjórða sæti leikur tvo leiki. „Þetta var góður leikur hjá okkur á móti Bochum. Við réðum lögum og lofum á vellinum í fyrri hálfleik og voru 3:0 yfír í leikhléi. Þeir komust Morgunblaðið/Einar Falur EYJÓLFUR Sverrisson varla inn á okkar vallarhelming. í síðari hálfleik tókum við þetta frekar rólega, en þeir náðu að setja mark og eygðu þá smávon. En við settum þá fjórða markið á þá og tryggðum öraggan sigur. Við höfum aðeins tap- að einum leik á þessu ári og stemmn- ingin meðal áhangenda liðsins er gríðarleg,“ sagði Eyjólfur, sem var lykilmaður í vöm Herthu að vanda. Hertha Berlín mætir Bayer Leverkusen í næstu umferð á úti- velli. „Það verður gríðarlega erfíður leikur enda Leverkusen verið að leika mjög vel í síðustu leikjum.“ Eyjólfur hittir þar fyrrverandi þjálf- ara sinn, Christof Daum, sem stjórnar Leverkusen. „Við erum ágætir félagar og erum reglulega í símasambandi. Það verður gaman að hitta hann, en við gefum honum ekkert í leiknum,“ sagði íslenski Iandsliðsmaðurinn. ■ Úrslit / B10 ■ Staðan / B10 Þórður og Bjarni í sigurliði Genk BRÆÐURNIR Þórður og Bjarni Guðjónssynir voru í byrjunarliði Genk sem sigr- aði Germinal Ekeren 2:0 í belgísku 1. deildinni um helgina. Þetta var fyrsti deildarleikur Bjarna í byrj- unarliðinu. Þriðji bróðirinu, Jóhannes, var ekki í leik- mannahópi Genk. Genk er nú með tveggja stiga forskot á Club Brugge, sem vann Kortrijk 3:0, þegar Ijórar umferðir eru eftir. Mörk Genk gerðu Marc Hendrikx og Kröatinn Besnik Hasi í síðari hálfleik. Excelsior Mouscron er komið { þriðja sæti, 6 stigum á eftir Genk, eftir 1:0 sigur á Beveren. Lokeren burstaði Eendracht Aalst 6:2 þar sem Jan Köller gerði þrennu og er nú markahæstur í deild- inni með 22 mörk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.