Morgunblaðið - 27.04.1999, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 B 5
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
LITHÁÍSKI leikstjórnandinn Gintaras fær heldur óblíðar móttökur frá FH-ingunum Gunnari Beinteinssyni (t.v.) og Lárusi Long í leiknum
á sunnudagskvöld. Afturelding sigraði í leiknum og tryggði sér íslandsmeistaratitilinn.
Bergsveinn reið
baggamuninn
AFTURELDING úr Mosfellsbæ tryggði sér íslandsmeistaratitilinn
í handknattleik á sunnudag með 23:25-sigri á FH í fjórða leik lið-
anna í Hafnarfirði. Þar með vann Afturelding einvígi liðanna um
ísiandsmeistaratitilinn með þremur sigrum gegn einum og sýndi
og sannaði í eitt skipti fyrir öll að þar fer besta handknattleikslið
landsins um þessar mundir. Mosfellingar hafa aldrei áður hamp-
að sigri á íslandsmótinu, en þeir gerðu gott betur á leiktíðinni;
urðu einnig deildar- og bikarmeistarar og geta því fagnað afar
ríkulegri uppskeru á 90 ára afmæli Ungmennafélagsins. Hið
gamalreynda lið Hafnfirðinga varð hins vegar að játa sig sigrað
að lokum, en þar á bæ geta menn aldeilis borið höfuðið hátt eft-
ir magnaða framgöngu í úrslitakeppninni.
Loft var lævi blandið í íþróttahöll-
inni í Kaplakrika strax upp úr
kvöldmatnum á sunnudagskvöldið,
■^■■■1 áhorfendur tóku að
Björn Ingi streyma að löngu fyrir
Hrafnsson leik, margir skemmti-
skrífar iega gkreyttir í litum
síns félags, aðrir of
stressaðir til að láta slíkt koma sér í
hug. Rauðklæddir áhangendur gest-
anna úr Mosfellsbænum fylltu aðra
stúkuna og létu þar mikið fyrir sér
fara. Gesthmir enda aðeins einum
sigri frá íslandsmeistai'atitlinum
langþráða.
Jafnræði var með liðunum framan
af, heimamenn skoruðu fyrsta mark-
ið og náðu raunar að komast í 2:0 og
fengu kjörið tækifæri til að ná
þriggja marka forystu, en þá loks
vöknuðu leikmenn Aftureldingar til
lífsins og fyrirliðinn Bjarki Sigurðs-
son jafnaði metin með tveimur
mörkum, hinu fyrra úr víti.
Markvörðurinn Bergsveinn Berg-
sveinsson hefur verið helsta hetja
þeirra Mosfellinga í úrslitaleikjunum
og hann hrökk snemma í gang á sín-
um gamla heimavelli, tók til við
markvörslu í hæsta gæðaflokki. Eftir
eina slíka náðu gestimir hraðaupp-
hlaupi og Jón Andri Finnsson skilaði
því örugglega í hús eftir snilldar-
sendingu Bjarka Sigurðssonar og
þar með forystunni, 4:5, í fyrfeta sinn í
leiknum. Sigurður Sveinsson jók
muninn í tvö mörk, en Knútur Sig-
urðsson stökk þá upp og minnkaði
muninn með góðu skoti, Magnús
Ámason varði slakt skot Mosfellinga
og eftir hraðaupphlaup jafnaði Hálf-
dán Þórðarson metin af línunni, 6:6.
Liðin skiptust áfram á um að hafa
eins marks foyrstu fram að leikhléi,
Bergsveinn hélt áfram að hrella
Hafnfírðinga í vítunum og Knútur
Sigurðsson var fórnarlambið í fyrri
hálfleik. Sóknir FH-inga vom þó
markvissari, gengu hraðar fyrir sig
og þeir vora mestu klaufar að hafa
ekki forystu í leikhléi. Þannig náði
Einar Gunnar Sigurðsson að jafna
metin beint úr aukakasti eftir að
leiktíminn var liðinn í fyrri hálfleik,
rauðklæddum áhorfendum til
ómældrar gleði.
Mosfellingar breyttu nokkuð leik
sínum í seinni hálfleik, tóku hinn
unga Maxím Trúfan af velli og settu í
staðinn litháíska leikstjórnandann
Gintaras, sem meiddist illa fyrr í
keppninni og virðist hafa náð merkj-
anlegum bata vonum fyrr. Gintaras
skapplappaðist meira af vilja en
SÓKNARNÝTING
Fjórði leikur iiðanna í úrslitunum,
leikinn í Hafnaiiirði 25. apríl 1999
Mörk Sóknir %______MörK Sóknir %
12 23 52 F.h 12 23 52
11 27 41 S.h 13 27 48
23 50 46 Alls 25 50 50
11 Langskot 4
1 Gegnumbrot 3
6 Hraðaupphlaup 4
4 Horn 5
1 Lína 5
0 Víti 4
mætti framan af í seinni hálfleík, en
hafði þó alls ekki erindi sem erfíði -
gerði mörg mistök. Landi hans Gint-
as hreinlega labbaði gegnum vörn
heimamanna og skoraði fyrsta mark-
ið, 12:13. Hinum megin jafnaði Knút-
ur með frábæra skoti og í næstu
sókn á eftir fékk Gunnar Beinteins-
son reisupassann í tvær mínútur eft-
ir hörkuleg viðskipti sín við Magnús
Má á línunni. Gunnar var einn af
fjölmörgum leikmönnum sem þannig
fengu óumbeðna „kælingu“ í leikn-
um, en afar athyglisvert var að hvor-
ugu liðinu tókst að nýta sér liðsmun-
inn hverju sinni, raunar virtist það
alltaf virka á hinn veginn ef eitthvað
var og í samræmi við það kom Guð-
jón Amason sínum mönnum yfii'
með hörkuskoti.
Jafnræðið hélst enn um sinn, jafnt
var í stöðunum 14:14 og 16:16, en þá
gerði of mikið bráðlæti vart við sig
hjá FH og gestimir gengu á lagið
með markvissum leik og náðu aftur
forskoti, 16:18 og 18:20. Bergsveinn
var sínum gömlu félögum erfiðm' á
þessum kafla, varði frá þeim úr opn-
um færum og skilaði knettinum
strax í leik. Jón Andri vippaði úr
horninu og jók muninn í þrjú mörk,
19:22 og skömmu síðar skoraði
Bjarki úr hraðaupphlaupi, 19:22.
Munurinn var því skyndilega orðinn
fjögur mörk, Bergsveinn kominn í
mikinn ham í markinu og því ráð hjá
Kristjáni þjálfara Arasyni að biðja
um leikhlé, sem hann og gerði.
Bjarki reif sig lausan og skoraði með
frábæru langskoti, 19:23, en þá loks
snerist dæmið við og heimamenn
náðu að rétta úr kútnum með þrem-
ur mörkum í röð. Liðið fékk raunar
kjörið tækifæri til að minnka muninn
enn frekar, en þar strandaði á Berg-
sveini sem varði vel og á mikilvæg-
um stundum, t.d. í vítakasti Vals
Arnarsonar, tæpum þremur mínút-
um fyrir leikslok. Magnús Már skor-
aði strax á eftir, 22:25, og þar með
var björninn unninn, allt varð gjör-
samlega brjálað og engu skipti þótt
Knútur Sigurðsson skilaði síðustu
sókninni í markið, 23:25-sigur gest-
anna var staðreynd og Islandsmeist-
aratitilinn því þeirra.
FH-ingar geta litið sáttir til baka,
þrátt fyrir tapið í úrslitarimmunni.
Eftir magurt gengi framan af vetri,
hrökk allt í rétta gírinn og hðið vann
marga á sitt band sakir leikgleði og
bráðsmitandi baráttu. Fyrir í Aftur-
eldingu hittu þeir einfaldlega ofjarla
sína en voru raunar furðanlega
nærri þessu besta liði landsins.
Bestir Mosfellinga í þessum leik
vora án efa þeir Bergsveinn Berg-
sveinsson og Bjarki Sigurðsson, ein-
hverjir reyndustu leikmenn deildar-
innar. Bjarki, sem skoraði níu mörk í
leiknum, átti frábæra leiktíð, ekki
síst í sjálfri deildarkeppninni en þeg-
ar í úrslitakeppnina kom tók við
þáttur Bergsveins Bergsveinssonar
og hann reið líklega baggamuninn er
upp var staðið. Bergsveinn varði alls
96 skot í leikjunum fjórum við FH,
þar af 10 vítaköst og það reyndist
Hafnfírðingum einfaldlega of stór
biti að kyngja.
Árangur Skúla Gunnsteinssonar
með lið Aftureldingar er einkar
glæsilegur og morgunljóst er að nafn
þjálfara sem vinnur þrjá titla á einni
og sömu leiktíðinni verð>ir skráð
stórum og skýrum stöfum í sögu
handknattleiks hér á landi. Vissulega
hefur markvisst starf uppbyggingai'
átt sér stað í Mosfellsbæ á undan-
förnum árum og vissulega vora
Skúla skapaðar ákjósanlegar að-
stæður sem þjálfara. En það hefur
ekki alltaf reynst nóg,
til þarf skynsemi og
skipulag til að koma öllu
heim og saman og yfir
því hefur Skúli búið í
vetur. Og fyrir vikið er
ekki annars að vænta en
að Mosfellingar mæti
sterkari og reynslunni
ríkari til leiks í haust og
hafi þá titla að verja.
Þannig vörðu þeir
(Innan sviga, skot aftur til mótherja).
Magnús Árnason, FH, 11;
7(2) langskot, 1 eftir gegnumbrot, 1(1) úr horni, 2(1) af
línu.
Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA, 27/2;
9(1) langskot, 3(3) eftir gegnumbrot, 3(2) úr hraðaupp-
hlaupi, 9(3) úr homi, 1(0) af línu, 2(0) vítaköst.
Varði 10 af
18 vítum
BERGSVEINN Bergsveins-
son, markvörður Aftureldingar,
varði tíu af þeim átján vítaköst-
um sem FH-ingar fengu í úr-
slitaleikjunum fjórum. Þar af
varði hann fimm vítaköst í
fyrsta leiknum en þá náðu
Hafnfirðingar að skora í fjór-
gang. I öðrum leik varði Berg-
sveinn eitt en FH-ingar skor-
uðu úr þremur. í þriðja leiknum
snerist dæmið við og Berg-
sveinn varði í þrígang en and-
stæðingurinn skoraði einu sinni.
Bergsveinn varði síðan bæði
vítaköstin sem FH fékk í síð-
ustu viðureigninni. Samtals
varði hann 96 skot í leikjunum
fjóram.
Fjórtán ár
milli titla
JON Andri Finnsson, horna-
maður UMFA, vai'ð á sunnudag-
inn í fyrsta sinn Islandsmeistari
í meistaraflokki karla í hand-
knattleik, en hann varð einnig
Islandsmeistari með 5. flokki
Aftureldingar fyrir 14 árum,
vorið 1985. Þá lagði hann ásamt
félögum sínum liðsmenn Fram í
úrslitaleik. Meðal leikmanna
Fram vai' Jason Ólafsson sem
seinna lék með Aftureldingu.
Jón Andri er eini liðsmaður
þessa 5. flokks liðs sem skipar
Islandsmeistai-a Aftureldingar
1999 í meistaraflokki kai-la. Þess
má geta að Ríkharður Daðason,
knattspymumaður, var í Is-
landsmeistaraliðinu í 5. flokki.
Sigurður
laus mála
„ÞAÐ var algjörlega nauðsyn-
legt fyrh' mig að fara ekki út í
fimmta leikinn því líkamlegt
ástand mitt er slæmt og ég lá að
mestu fyrir á milli þriðja og
fjórða leiks,“ sagði Sigurður
Sveinsson, leikmaður Aftureld-
ingar og fyrrverandi FH-ingur.
Sigurður var þó ekki ókunnugur
í herbúðum Mosfellinga er hann
kom þangað sumarið 1996 því
hann er alinn upp hjá félaginu
og lék með því til 18 ára aldurs.
„Það var annaðhvort að vinna
núna eða þá að leika fimmta
leikinn algjörlega á varahreyfl-
unum,“ bætti Sigurður við og
brosti. „Rétt fyrir úrslitaleikina
tóku sig upp gömul meiðsli í öxl
og síðan fékk ég í bakið fyrir
helgina og hef af þeim sökum
verið mjög slæmur. Þar að auki
fékk ég flensu, þannig að ég hef
fengið það óþvegið þessa síð-
ustu daga.“
Sigurður sagði að að sjálf-
sögðu gleymdust öll eymsl og
meiðsl um stund með sigri sem
þessum og keppnistímabilið
hefði verið eitt ævintýri. Hvað
sem öllu liði yrði hann klár í
slaginn í haust. „Samningur
minn við félagið rennur reyndar
út í vor en ég reikna með að vera
áfram í herbúðum þess, að
minnsta kosti er áhugi af minni
hálfu. Og eftir að hafa tekið hvíld
um tíma og síðan unnið aðeins í
uppbyggingu líkamans í sumar
þá verð ég til í leikinn á ný.“
Tveir hafa
unnið þrefalt
TVEIR leikmenn Aftureldingar,
Bergsveinn Bergsveinsson og
Sigurður Sveinsson, hafa nú
unnið bikarinn, deildina og Is-
landsmótið á sömu leiktíðinni
með tveimur félögum. Þeir eru
einu handknattleiksmenn hér á
landi sem hafa náð þessum
áfanga en báðir voru þeir í sigui'-
liði FH sem vann þrefalt keppn-
istímabilið 1991 til ‘92 undir
stjóm Kristjáns Arasonar.