Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
24. ANDRESAR ANDAR-LEIKARNIR
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 B 9
Við
erum
bestir
AKUREYRINGAR voru fjölmenn-
astir á Andrési og sendu alls 109
keppendur til leiks. Piltamir Arnór,
Haraldur Örn, fsak Öm, Ágúst
Freyr, Einar, Þorsteinn, Elmar og
Kristján Atli biðu spenntir eftir því
að fá að renna sér niður þegar
blaðamaður ræddi við þá. „Við eram
að fara að keppa í svigi og ætlum að
komast á verðlaunapallinn. Það er
alltént stefnan," sögðu þeir.
Þeir sögðust allir hafa keppt áður
á Andrésarleikum og vissu því út á
hvað mótið gekk. „Það er ofsalega
gaman að fá alla þessa krakka hing-
að í Hlíðarfjall. Við kynnumst öðr-
um krökkum ekkert voðalega mikið.
Við reynum bara að rústa þeim í
keppninni. Við Akureyringar eram
alltaf bestir,“ sögðu þeir með sigur-
bros á vör.
„Við eram ekki byrjaðir að slá
stangirnar í sviginu, en byrjum á
því næsta vetur þegar við föram í 11
ára flokk. Við hlökkum til þess og
þá fáum við hlífar á stafma. Okkur
finnst skemmtilegra í svigi, nema
kannski Elmari því hann er svo
mikill brunkall," sögðu þessir
hressu Akureyrarpiltar.
ÁRMENNINGURINN Guðjón
Ólafur Guðjónsson fékk sig-
ur í 12 ára afmælisgjöf.
Fékk sigur
í afmælis
GUÐJÓN Ólafur Guðjónsson úr Ár-
manni átti 12 ára afmæli á fóstudag
og gerði sér lítið fyrir og sigraði
þann dag í risasvigi í flokki 11 ára
drengja. Um leið og hann tók við
sigurlaununum í íþróttahöllinni um
kvöldið sungu félagar hans í Ár-
manni afmælissönginn. „Þetta er
besta afmælisgjöf sem ég hef feng-
ið,“ sagði hann kampakátur, en
þetta er í fyrsta sinn sem hann sigr-
ar á leikunum.
„Eg var í fimmta sæti í stórsvigi í
fyrra og 1997 var ég í fjórða sæti í
stórsvigi og fimmti í svigi. Það er
alltaf jafn gaman á leikunum þó svo
að þessir leikar séu toppurinn hjá
mér. Ég byrjaði að æfa skíði hjá Ár-
manni þegar ég var sex ára. Ég er
staðráðinn í að halda áfram að æfa
og reyna að verða eins góður og
Kristinn Björnsson,“ sagði Guðjón
Ólafur.
Morgunblaðið/Valur
AKUREYRINGAR voru sigursælir á heimavelli. Hér eru þeir (f.v.) Amór Sveinbjörnsson, Haraldur Örn
Arnarson, ísak Örn Arason, Ágúst Freyr Dansson, Einar Sigþórsson, Þorsteinn Ingason, Elmar Guð-
mundsson og Kristján Atli Dýrfjörð.
Skemmti-
legast að
keppa
ÍSFIRSKU strákarnir í 10 ára
flokknum voru ánægðir með lífið á
leikunum. Flestir þeirra vora að
koma í annað sinn á Andrés.
„Okkur finnst skemmtilegast að
keppa. Við kynnumst líka krökk-
um frá öðram stöðum," sögðu
þeir. „Við erum ákveðnir í að
halda áfram að æfa og koma hing-
að aftur næsta vetur. Við erum
búnir að æfa vel í vetur til að und-
irbúa okkur fyrir Andrésarleik-
ana.“
Þeir sögðust ánægðir með
skíðaaðstöðuna í Tungudal á Isa-
firði þar sem þeir hafa æft. „Að-
staðan er góð og nú á að setja upp
fleiri lyftur í Tungudal og þá verð-
ur aðstaðan enn betri. Þá verður
Isafjörður með besta skíðasvæðið
á landinu," sögðu þeir allir í kór.
Klessti á staur
SEYÐFIRÐINGAR vora mættir á
leikana eins og undanfarin ár og
vora þrír þeirra að keppa í 10 ára
flokki drengja, Elmar Bragi Ein-
arsson, Haukur Ingi Sigurðsson og
Alexander Már Einarsson. Þeir æfa
á skíðasvæði Seyðfirðinga, en segj-
ast fara stundum í Oddskarð. Þeir
hafa allir æft í þrjú ár og vora að
koma í fyrsta sinn á leikana, nema
Alexander.
„Okkur þykir gaman að keppa
hér og það er líka gaman að vera á
hóteli. Það eru aðeins betri brekkur
hér í Hlíðarfjalli en heima á Seyðis-
firði. Við höldum mest upp á Kristin
Björnsson. Við horfum alltaf á hann
í sjónvarpinu en hann dettur svolít-
ið oft.“ Þeir sögðust allir ætla að
halda áfram að æfa skíði svo þeir
eigi þess kost að keppa aftur á leik-
unum.
Elmar Bragi slasaðist á skíðum í
fyrra og brotnaði þá á báðum fót-
um. „Við voram nokkrir saman á
skíðum og síðan fór einn fyrir mig
og ég klessti á staur og brotnaði á
báðum fótum. Ég var frá í nokkra
mánuði frá, en er núna alveg búinn
að ná mér. Það kom aldrei til greina
að hætta að æfa skíði þrátt fyrir
óhappið," sagði Elmar Bragi.
ÍSFIRDINGAR sendu vaska sveit á leikana. Hér eru þeir Brynjar
Þorri Jónsson, Óskar Ágúst Albertsson, Snævar Víðisson,
Gísli Kristjánsson, Sigurður Gunnar Þorsteinsson og
Tryggvi Svanbjörnsson.
SEYÐFIRÐINGAR sendu 17 keppendur á leikana og voru þrír
þeirra sð keppa (flokki 10 ára pilta. Þeir Elmar Bragi Einars-
son, Haukur Ingi Sigurðsson og Alexander Már Einarsson.
MorgunblaðiÆ/Þórhallur Jónsson
ÞORSTEINN Þorvaldsson varð fyrsti Andrésarmeistari Mývetn-
inga, sem sendu keppendur í fyrsta sinn.
Stefni á landsliðssæti
BERGLIND Jónasardóttir
frá Akureyri sigraði bæði í
svigi og risasvigi í flokki 12
ára stúlkna. Hún var að taka
þátt í sjöttu Andrésarleikum
og var þetta í fjórða sinn sem
hún nær að sigra. „Það hefur
verið mjög gaman að taka þátt
í leikunum. Það er alltaf eitt-
hvað um að vera og því nóg að
gera. Ég er ákveðin í að halda
áfram að æfa og stefni á að
komast í landsliðið,“ sagði
Berglind. Hún segist hafa æft
knattspyrnu, en væri nú hætt í
þeirri grein því skíðin ættu
hug hennar allan.
„Ég hlakka til að taka
þátt í unglingameistaramótinu
næsta vetur. Ég á góðar minn-
ingar frá Andrésarleikum og
þeir gera mikið fyrir skíðaí-
þróttina. Það er varla talað um
annað en leikana allan vetur-
inn og það miðast allt við að
standa sig vel þar,“ sagði þessi
efnilega skíðakona.
Skíðin númer eitt
Björn Þór Ingason úr
Breiðabliki hefur verið sigur-
sæll á leikunum undanfarin ár.
Hann sigraði í risasvigi 12 ára
og var annar í sviginu. „Ég hef
unnið fimm sinnum á Andrés-
arleikunum og oftast verið í
verðlaunasætum," sagði hann.
„Ég hef æft mjög vel í vetur.
Fór á skíði nær alla daga sem
opið var í Bláfjöllum. Þetta
voru síðustu leikarnir hjá mér
og nú taka við bikarmótin
næsta vetur. Það verður
spennandi. Ég er ákveðinn í
að halda áfram að æfa skíðaí-
þróttina," sagði Björn Þór.
Hann æfir knattspyrnu á
sumrin með Breiðabliki. „Það
getur verið erfitt að samræma
þessar tvær gi-einar, en ég
sleppi æfingum í knattspyrn-
unni á veturna, en nú þegar
skíðatímabilinu er lokið fer ég
á fullu í fótboltann.“
'irSSm , ■ i'-
# f
**
jr
BERGLIND Jónasardóttir frá Akureyri
og Björn Þór Ingason úr Breiðabliki
sigruðu í risasvigi f flokki 12 ára.