Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 B 7
IÞROTTIR
Detroit - Philadelphia 96:100
Miami - Charlotte 100:93
Houston - LA Celippers 110:84
Portland - Denver ... .110:012
Sacramento - Phoenix ....111:110
STAÐAN:
AUSTURDEILD
Atlantshafriðíll:
• Miami .32 16 66,7
• Orlando .32 17 65,3
• Philadelphia .27 21 56,3
NewYork .25 23 52,1
Boston .19 29 39,6
Washington .17 31 35,4
NewJersey .15 33 31,3
Miðriðill:
• Indiana .32 17 65,3
• Atlanta .30 18 62,5
• Detroit .28 20 58,3
• Milwaukee .27 21 56,3
Charlotte .24 24 50,0
Cleveland .22 26 45,8
Toronto .22 26 45,8
Chicago .13 35 27,1
VESTURDEILD
Miðvesturdeild:
• Utah ,36 13 73,5
• San Antonio .35 13 72,9
• Houston .29 19 60,4
• Minnesota .25 23 52,1
Dallas .19 29 39,6
Denver .14 34 29,2
Vancouver . 8 40 16,7
Kyrrahafsdeild:
■ Portland .35 13 72,9
• LA Lakers .29 19 60,4
• Phoenix .26 23 53,1
Sacramento .25 23 52,1
Seattle .23 25 47,9
Golden State .20 28 41,7
LA Clippers . 9 39 18,8
■ Deildameistari.
• Tryggt sæti í úrslitum.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
San Antonio
á siglingu
SAN Antonio Spurs kemur inn í úrslitakeppnina á miklu skriði
eftir gott gengi undanfarnar vikur. Liðið hefur unnið 29 af síð-
ustu 34 leikjum og vann tvo stórleiki um helgina.
aráttan um efstu sætin í Vestur-
deOdinni hefur verið hörð und-
anfarnar vikur eftir að San Antonio
fór að setja strik í
reikninginn. Utah og
Portland virtust
lengst af ætla að ein-
angra toppsætin, en
lið San Antonio hefur vaxið stöðugt
allt keppnistímabilið og sigur í
tveimur síðustu leikjunum í vikunni
mun tryggja þeim deildarmeistara-
titilinn.
Á laugardag kom Portland í heim-
Gunnar
Valgeirsson
skrífar frá
Bandaríkjunum
Ingi Þór þjálfar KR
Ingi Þór Steinþórsson verður að öllum líkindum næsti þjálfari
meistaraflokks karla í körfuknattleik. Búist er við að körfuknatt-
ieiksdeildin geri samning við Inga Þór, sem var aðstoðarþjálfari
meistaraflokks síðasta vetur, til tveggja ára, en hann hefur jafn-
framt þjálfað yngri flokka hjá KR um árabil.
Danski landsliðsmaðurinn Jesper Sörensen, sem lék með KR í
síðustu umferðum íslandsmótsins sfðasta vetur, verður Ifkiega
áfram hjá félaginu, en það er ekki frágengið. Ef af yrði kæmi
Emelie Ramberg, unnusta hans, sem er í 21 árs landsliði Dana
einnig til landsins og léki með KR.
KAPPAKSTUR / FORMULA 1
sókn í Aiamo-höllina í San Antonio
og í hörkuleik jafnaði Damon Stou-
damire leikinn á síðustu sekúndu
með þriggja stiga skoti fyrir gestina.
Heimamenn létu það ekki á sig fá og
sigruðu með öryggi í framlenging-
unni, 98:90. Á sunnudag fékk Spurs
síðan Utah Jazz í heimsókn og í öðr-
um hörkuleik hafði heimaliðið sigur í
lokin, 84:78, í leik þar sem Utah
hafði forystuna lengst af. Spurs vann
leikinn örugglega og tryggði sér þar
með þrettánda heimasigur sinn í röð.
Tim Duncan var allt í öllu hjá Spurs.
Hann skoraði 26 stig og tók 14 frá-
köst. Karl Malone skoraði 24 stig
fyrir Utah. Þessir tveir leikmenn eru
taldir líklegastir til að verða kosnir
leikmenn ársins í deildinni.
San Antonio hefur nú unnið síð-
ustu sjö leiki sína gegn toppliðunum
í Vesturdeildinni og virðist vera á
toppnum á réttum tíma. Aðdáendur
liðsins geta verið bjartsýnir á gengi
liðsins í úrslitakeppninni.
Portland vann Denver á útivelli á
sunnudag, 110:102, og er því með
jafnmörg töp og Utah og San Ant-
onio. Síðustu tveir leikir þessara
þriggja liða munu skera úr um
hvort þessara liða vinnur deildar-
keppnina.
Snilldarleg kænska
færði Ferrari sigur
MICHAEL Schumacher var fagnað sem þjóðhetju á Ítalíu eftir að
hann hafði ekið Ferrari-bíl sínum til sigurs í San Marínó-
kappakstrinum á sunnudag. Allt gekk honum í hag í keppninni
og snilldarleg keppniskænska stjórnenda Ferrari-liðsins færði
liðinu fyrsta sigurinn í þessu móti frá 1983 eða í 16 ár. Til að
kóróna góðan árangur á heimavelli jók Ferrari forystu sína í
stigakeppni bílsmiða og ökuþórar liðsins skipa nú tvö efstu sæt-
in í stigakeppni ökuþóra.
Ágúst
Ásgeirsson
skrífar
Finninn Mika Hákkinen hafði
góða forystu er hann lenti of ut-
arlega í beygju í upphafi 17. hrings
af 62 með þeim afleið-
ingum að hann hafn-
aði á vegg og stór-
skemmdi McLaren-bíl
sinn. Hafði hann ekið
af miklu kappi og kenndi sjálfum sér
um mistökin. Við forystuhlutverkinu
tók félagi hans David Coulthard en
með snjallri keppnisáætlun náði
Schumacher af honum forystu og
hélt henni alla leið í mark.
í stað þess að stoppa einungis
einu sinni eins og Coulthard tók
Schumacher lítið bensín í fyrra
stoppi sínu og þar sem bíllinn var
því talsveret léttari en hjá Coult-
hard gat hann ekið mun hraðar og
unnið nógu gott forskot til að bæta
örlitlu bensíni við seint í keppninni.
Að því hléi loknu skaust hann út
skammt fyrir framan Coulthard sem
átti aidrei möguleika eftir það þó að
bilið minnkaði á lokahringjunum;
hugsanlega af því að Schumacher
varð að fara hægar og spara tak-
markað eldsneyti sitt.
Sigur Schumachers í Imolabraut-
inni var einkar kærkominn fyrir
Ferrari því síðast fagnaði ökuþór
liðsins þar siguri árið 1983, eða fyrir
16 árum.
Coulthard hélt því reyndar fram
að sigur hefði verið hafður af honum
með því að hægfara ökuþórar hefðu
sýnt óbilgirni og ekki vikið er hann
dró þá uppi. Vegna þessa lagði hann
fram formlega kvörtun við keppnis-
stjórann Charlie Whiting í lok
kappakstursins. „Eg er ánægður
með að vinna nokkur stig en ósáttur
að því leyti að ég hafði bíl til að
vinna í dag,“ sagði Coulthard.
„Það er mjög erfitt að komast
fram úr bílum í þessari hraut og
ökuþórar voru einstaklega ósam-
vinnuþýðir. Eg tafðist fyrir aftan
Pedro Diniz [Sauberj. Hann er mjög
viðkunnanlegur náungi en ég undr-
ast samt akstur hans. Síðan tafðist
ég fyrir aftan Benetton-bíl
[Fisichella] og síðan Prost-bíl [Pan-
isj. Eg tapaði um tveimur sekúndum
á hring fjóra hringi í röð. Ég held að
væn sekt myndi auðvelda þeim að
skerpa hugann varðandi það atriði
að víkja,“ sagði Coulthard, sem lauk
sinni fyrstu keppni á árinu.
Brasilíski ökuþórinn hjá Stewart-
liðinu komst á verðlaunapall með
því að standast atlögu frá Bretan-
um Damon Hill á Jordan-bíl. Með
því sýnir hann hversu Stewart-bíln-
um hefúr farið fram frá í fyn’a og
er við það að geta keppt við þá
bestu. Barrichello tileinkaði þriðja
sætið félaga sínum Ayrton Senna
sem fórst í þessu móti fyrir fimm
árum.
Á blaðamannafundi eftir keppnina
Sacramento vann mikilvægan sig-
ur gegn Phoenix á sunnudag,
111:100, og gerði það að verkum að
Seattle mun sjálfsagt ekki komast í
úrslitakeppnina að þessu sinni. Mik-
il óeining er innan liðs Seattle og er
ástandið svo slæmt að bæði Vyn Ba-
ker og Gary Payton gætu beðið um
að vera skipt til annarra liða í sum-
ar. Aðeins hjá Los Angeles Lakers
er liðsandinn jafn slæmur eða verri.
Þar á bæ gætu orðið enn meiri um-
skipti í sumar ef marka má fréttir af
óeiningu meðal leikmanna. Þessi tvö
lið mættust á sunnudag í Seattle og
hafði Lakers betur, 91:84. Shaquille
O’Neal gerði 34 stig fyrir Lakers.
Hann hefur reynt sitt besta að halda
liðinu á floti en meira þarf til.
I Austurdeildinni hefur Indiana
átt erfitt undanfarið, en liðið vann
þó New York Knicks létt á sunnu-
dag. Pacers vann leik liðanna,
94:71. „Strákarnir virðast vera að
skilja hvað þarf til þess að vinna
erfiðu leikina. Ef við náum að halda
einbeitingu okkar í úrslitakeppn-
inni þá líst mér vel á möguleika
þar,“ sagði Larry Bird, þjálfari
Indiana, í leikslok.
Miami og Orlando berjast enn við
Indiana um toppsætið í Áusturdeild-
inni. Miami vann mikilvægan leik
gegn Charlotte, 100:93. Charlotte og
New York berjast um síðast sætið
inn í úrslitakeppnina í Austurdeild-
inni.
San Antonio, Utah, Portland, Los
Angeles Lakers, Houston, Phoenix
og Minnesota eru í úrslitakeppninni
í Vesturdeildinni og Sacramento er
líklegt til að fylgja þeim eftir. í
Austurdeildinni eru Miami, Orlando,
Indiana, Atlanta, Detroit, Phila-
delphia og Milwaukee örugg og New
York ætti að tryggja sér síðasta
sætið. Síðustu leikimir í vikunni
skera síðan úr um hvaða lið keppa
saman í fyrstu umferðinni.
Rúnar
leikmaður
mánað-
arins
RÚNAR Kristinsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu sem
leikur með Lilleström, var um
helgina útnefndur besti leik-
maður aprílmánaðar í norsku
1. deildinni. Að kjörinu stöðu
Norska ríkissjónvarpið, NRK,
og norska knattspyrnusam-
bandið. „Það er mjög ánægju-
legt að fá þessa viðurkenn-
ingu fyrir fyrsta mánuð
deildakeppninnar,“ sagði
Rúnar við Morgunblaðið. í
sama kjöri var Lilleström út-
nefnt lið mánaðarins og þjálf-
ari nýliðanna, Odd Grenland,
þjálfari mánaðarins.
Rúnar fékk verðlaunin af-
lient fyrir leik liðsins gegn
Stabæk á sunnudaginn. Hann
fékk 5 þúsund krónur
norskar (50 þúsund ísl. kr.)
auk verðlaunagrips. Ilann
ákveð að láta peningana
renna til barnadeildar
Sentral sjúkrahússins í Ósló.
„Þeim sem hljóta þessi verð-
laun er uppálagt að gefa
þessa peuinga til góðgerðar-
mála. Þar sem við í Lilleström
höfum haft mikið samstarf
við barnadeild spitalans
ákvað ég að láta peningana
renna þangað."
„Það kemur alltaf eitt barn
af barnadeildinm á heimaleiki
okkar í boði félagsins. Það
fær að vera með liðinu inni í
búningsklefa fyrir og eftir
leik og fær að taka þátt í
þessu með okkur. Auk þess
leysum við börnin út ineð
gjöfum, húfum og peysunt
eða einhverju tengdu félag-
inu. Þetta hefur mæist vel
fyrir og ímynd félagsins verð-
ur betri út á við,“ sagði Rún-
ar.
Hann sagði að stuðnings-
klúbbur féiagsins framleiddi
gosdrykk til fjáröflunar og
færi ákveðin prósenta af seld-
um drykkjum til barnadeildar
spftaians í Ósló.
sagði Barrichello að í þessari braut
hefði hann umfram allt viljað kom-
ast á pall. Vegna vinskapar þeirra
Senna, en báðir voru frá Brasilíu,
væri frammistaðan í dag sér ein-
staklega mikilvæg. Senna beið
bana í Imola-brautinni 1994 er
hann var í forystu í San Marínó-
kappakstrinum. Sömu helgi mun-
aði ekki og miklu að Barrichello
missti sjálfur lífið er hann klessti
bifreið sinni í upphafi beina kafl-
ans, á sama stað og Mika
Hákkinen ók út af I dag.
Með glæsilegum sigri sínum tók
Schumacher forystu í stigakeppni
ökuþóra af félaga sínum Eddie Ir-
vine og jók forskot Ferrari í stiga-
keppni bflsmiða. Ólíkt því sem átti
sér stað í fyrra hefur Ferrari haft
forystu bæði í keppni bflsmiða og
ökuþóra frá fyrsta móti.
Schumacher hefur hlotið 16 stig, Ir-
vine er með 12, og með 10 stig eru
Mika Hákkinen og Heinz-Harald
Frentzen hjá Jordan.
Eftir aðeins þrjú mót hafa 12 öku-
þórar hlotið stig en fyrir utan fram-
angreinda ökuþóra skiptast stigin
þannig: Ralf Schumacher, Williams
7, David Coulthard, McLaren 6, Ru-
bens Barrichello, Stewart 6, Gi-
ancarlo Fisichella, Benetton 5,
Damon Hill, Jordan 3, Pedro de la
Rosa, Arrows 1, Olivier Panis, Prost
1, Jean Alesi, Sauber 1.
Athyglisvert er að níu lið af 11
sem þátt taka í Formúlu-1 eru
þegar komin með stig en aðeins
tæpur fimmtungur móta ársins er
búinn. Ferrari hefur 28 stig, McL-
aren 16, Jordan 13, Williams 7,
Stewart 6, Benetton 5 og Arrows,
Prost og Sauber eru með eitt stig
hvert.
GLERAUGNABUÐIN
HelmoutKivxUer
Laugavegi36
MORGUNHANI
fær 20% afslátt af
'O viðskiptum milli
kl. 9 og 11
OÉ
O
Predator Accelerator
<
LL Copa Mundial