Morgunblaðið - 18.05.1999, Síða 19

Morgunblaðið - 18.05.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 C 1-9 verður með sextán íbúðum. Að sögn Helga Jóns verður byrjað á því upp úr næstu áramótum og íbúðirnar afhentar um næstu ára- mót þar á eftir. „í því húsi er strax búið að taka frá fimm íbúðir, sem sýnir áhuga fólks á þessum íbúðum,“ segir Helgi Jón. „Markhópurinn er eink- um fólk yfir fertugt en kannski síð- ur barnafólk. Ibúðirnar henta afar vel fólki, sem er að fara úr stærri eignum í minni, þar sem bömin eru uppkomin og farin að heiman.“ Helgi Jón segir nokkur ár vera frá þvi að svona hús vom byggð í Hafnarfirði, en það var síðast í Hvaleyrarholti í Suðurbænum. „Þörfin er því mikil fyrir íbúðir af þessu tagi hér í Firðinum, en þær hafa ekki verið til staðar, segir Helgi Jón. „Hafnfirðingar hafa því þurft að flytja til Reykjavíkur eða í Kópavog, hafi þeir viljað komast í nýjar íbúðir í lyftuhúsum. Það er því mjög kærkomið að fá þessar byggingar hér í bæ. Þær svara mjög vel kröfum markaðarins fyr- ir slíkar íbúðir.“ „Annars er markaðurinn hreint ótrúlegur núna,“ heldur Helgi Jón áfram. „Framboðið er svo miklu minna en eftirspurnin, að ég man ekki annað eins ástand og er ég þó búinn að fást við fasteignasölu í tólf ár. Góðar eignir á eftirsóttustu svæðunum em að fara á upp- sprengdu verði. Þannig seldist hús, sem sett hafði verið á 15,4 millj. kr., á 15,8 millj. kr. nú fyrir skömmu, eftir að þrír aðilar höfðu boðið í það. Húsið fór því á yfirverði og það sem meira var, það var greitt út í hönd við samning. Venjulega er þessu á annan veg farið, því að yfirleitt er sett aðeins hærra á eignirnar en seljandi sættir sig við að lokum.“ Helgi Jón kveðst álíta, að upp- bygging nýs byggingarsvæðis í As- landi fyrir ofan Reykjanesbraut eigi eftir að hafa mikil áhrif á fast- eignamarkaðinn í Hafnarfirði og segir: „Það verður byrjað að byggja í Áslandi í sumar og haust og þegar það hverfi byggist, þurfa þeir sem þar byggja eða kaupa að selja þær eignir sem þeir eiga fyr- ir. Þá má gera ráð fyrir, að fram- boð á eignum aukist hér í Firðin- um, en þangað til verður ríkjandi mikil umframeftirspum. Svipað má segja um Garðabæ, en eins og er þá ríkir þar sama um- frameftirspumin. En nú em farnar af stað talsverðar nýbyggingar í GJALDTAKA ■ ÞINGLÝSING - Þinglýsingar- gjald hvers þinglýsts skjals er nú 1.200 kr. ■ STIMPILGJALD - Það greiðir kaupandi af kaupsamningum og af- sölum um leið og þau era lögð inn til þinglýsingar. Ef kaupsamningi er þinglýst, þarf ekki að greiða stimpilgjald af afsalinu. Stimpil- gjald kaupsamnings eða afsals er 0,4% af fasteignamati húss og lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri milljón. ■ SKULDABRXEF - Stimpilgjald skuldabréfa er 1,5% af höfuðstóli (heildarapphæð) bréfanna eða 1.500 kr. af hverjum 100.000 kr. Kaup- andi greiðir þinglýsingar- og stimp- ilgjald útgefinna skuldabréfa vegna kaupanna, en seljandi lætur þing- lýsa bréfunum. ■ STIMPILSEKTIR - Stimpil- skyld skjöl, sem ekki era stimpluð innan 2ja mánaða frá útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt. Húri er 10% af stimpilgjaldi fyrir hverja byrjaða viku. Sektin fer þó aldrei yfir 50%. ■ SKIPULAGSGJALD - Skipu- lagsgjald er greitt af nýreistum húsum. Af hverri byggingu, sem reist er, skal greiða 3%o (þrjú pro mille) í eitt sinn af brunabótavirð- ingu hverrar húseignar. Nýbygging telst hvert nýreist hús, sem virt er til branabóta svo og viðbyggingar við eldri hús, ef virðingarverð hinn- ar nýju viðbyggingar nemur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á einnig við um endurbætur, sem hækka brunabótavirðingu um 1/5. Hraunsholti og þegar þessar nýju eignir verða teknar í notkun, má búast við auknu framboði á eignum í Garðabæ.“ Verðhækkanir á fasteignum ekki óraunhæfar Að mati Helga Jóns era þær hækkanir, sem orðið hafa á íbúðar- húsnæði að undanfömu ekki óraunhæfar. „Byggingaraðilarnir, sem byggja til að selja, era loksins farnir að selja á raunvirði,“ segir hann. „Áður var verð á nýsmíðinni oft býsna lágt, þannig að margir þeirra græddu lítið á henni. Á síð- asta ári og það sem af er þessu ári hefur þetta verið að breytast og nú era byggingaraðilarnir byrjaðir að fá rétt verð fyrir nýjar íbúðir. Það lága verð, sem var á nýsmíð- inni, hélt líka verðinu á notuðu hús- næði niðri og þegar þar við bættist, að offramboð var á eignum á mark- aðnum, hélzt fasteignaverð mjög lágt. Nú hefur þetta snúizt við. Verð hefur greinilega hækkað mik- ið á þessu ári, fyrst og fremst vegna mikillar eftirspumar en lítils framboðs alls staðar á höfuðborg- arsvæðinu. Annað sem er mjög athyglisvert við þróunina á fasteignamarkaðn- um nú, er að jaðarsvæðin á höfuð- borgarsvæðinu era hætt að vera jaðarsvæði. Þetta kemur hvað skýrast fram í Lindahverfinu í Kópavogi og Staðahverfi í Reykja- vík. Líklegt er að það sama eigi eft- ir að gerast í Áslandi í Hafnarfirði. Þó að það svæði virðist vera svo- lítið út úr við fyrstu sýn, þá granar mig, að það eigi eftir að byggjast miklu hraðar upp en nokkurn gat órað fyrir. Ég byggi þetta mat mitt m. a. á því, að fólk er ekki eins staðbundið í íbúðarvali eins og áð- ur og er miklu fúsara til þess að færa sig um set og fara í ný hverfi. Það er ekki eins bundið ákveðn- um hverfum og var. Þar að auki er Áslandið afar gott byggingarland og allt umhverfi og útsýni þar einkar skemmtilegt. Þar á vafa- laust eftir að rísa eitt bezta íbúð- arhverfið á öllu höfuðborgarsvæð- inu.“ „Það er einnig mikil eftirspurn eftir lóðum á Álftanesi og nýjar íbúðir og hús jafnt sem notaðar eignir hafa yfirleitt selzt þar mjög hratt að undanfómu,“ segir Helgi Jón Harðarson að lokum. „Þar sem annars staðar er hækkandi verð á fasteignum. Það er alls staðar sama sagan.“ Þegar reykjarmökkurinn stígur upp af grillinu íbúðareigandi getur ekki ráðið yfír og hag- nýtt sér eign sína að vild, segir Sandra Baldvinsdóttir, lögfræðingur hjá Húseig- endafélaginu. Honum er skylt að taka eðli- legt og sanngjarnt tillit til annarra. AÐ era margar og mismun- andi fylgjur sumarsins og margt er það sem til ófriðar heyrir. Nú er sá tími árs sem menn taka grillið fram. Við hjá Húseig- endafélaginu höfum fengið nokkrar fyrirspurnir vegna grillmaníu ná- granna. Segja ekki allir farir sínar sléttar í því efni. Það sem einum er til ánægju get- ur valdið öðrum ónæði og óþægind- um, t.d. þegar reykjarmökkurinn stígur upp af grillinu og á næstu svalir fyrir ofan. En hver er réttur fólks í þessu efni og hversu langt geta menn gengið og hvað þurfa aðrir að þola? Takmarkanir á eignarráðum Eignarráð íbúðareiganda í fjölbýl- ishúsi eru venjubundin eignarréttar- ráð. Hann hefur þannig öll þau rétt- indi sem eigandi hefur venjulega yfir fasteign. Þar af leiðandi getur hann hagnýtt íbúð sína á hvem þann lög- lega hátt sem honum sýnist, án sam- þykkis annarra í húsinu. Eignarráð eiganda í fjölbýlishúsi era hins vegar háð meiri takmörkunum en almennt gerist um fasteignir. í fjöleignarhúsalögunum er að finna takmarkanir á rétti eiganda til hagnýtingar og umráða yfir séreign sinni. Hann getur því ekki ráðið yfir og hagnýtt eign sína að vild. Þessi takmörkun felst í þeirri skyldu eig- anda að taka eðlilegt og sanngjamt tillit til annarra við hagnýtingu sér- eignar. Honum er skylt að haga af- notum og hagnýtingu eignar sinnar með þeim hætti að aðrir eigendur eða afnotahafar í húsinu verði ekki fyrir ónauðsynlegu og óeðlilegu ónæði, þ.e. meiri ama, ónæði og óþægindum en óhjákvæmilegt er og eðlilegt þykir í sambærilegum hús- um. Ekki er að finna neina útlistun á því í lögunum hvað telst vera ónauð- synlegt og óeðlilegt ónæði. Ekki er unnt að telja upp með tæmandi hætti öll slík tilvik. Slíkt hlýtur ávallt að vera háð mati og verður að meta hvert tilvik út af fyrir sig út frá reglum nábýlisréttar. Ólögfestar meginreglur Svokallaðar grenndarreglur eða reglur nábýlisréttar, sem eru ólög- festar meginreglur, setja eignarráð- um fasteignareiganda takmörk af tilliti til eigenda nágrannaeigna. Hvað einn má og annar verður að þola byggist á hagsmunamati í hverju tilviki. Vegnir era saman hagsmunir fasteignareiganda af því að geta hagnýtt eign sína og hagað sér eins og hann vill á sinni eign og svo hagsmunir nágrannans af því að fá notið sinnar eignar í friði og verða ekki fyrir óþarfa óþægindum og ónæði. Það er meginregla að nágranni getur krafist þess, að athöfn sú sem ónæði veldur verði hætt ef hún hef- ur í fór með sér óþægindi fram yfir það sem honum er skylt að þola samkvæmt reglum nábýlisréttar eða að úr óþægindunum verði dreg- ið niður að því marki sem hann verður að una við. Ef það er ekki hægt er það meginreglan að ná- granni eigi kröfu á því að athöfnin verði stöðvuð eða bönnuð. Hagsmunamatið Mál sem upp koma vegna grilla á svölum eru mjög fátíð og virðist gæta sérstaks umburðarlyndis hvað þau varðar hjá nágrönnum, enda verður það að teljast hluti af dag- legu lífi manna að grilla úti á svöl- um, allt innan eðlilegra marka. Al- gert bann við því að grilla á svölum fjölbýlishúsa verður að telja slíka skerðingu á umráða- og afnotarétti eiganda séreignar að því verði ekki fram komið nema með samþykki allra eigenda. Sé hið umdeilda grill hins vegar til verulegs ama og óþæginda, um- fram það sem eðlilegt getur talist, þá getur verið um brot á fjöleignar- húsalögunum og grenndarreglum að ræða og á eigandi þá kröfu á hendur nágranna sínum að úr óþægindunum verði dregið. Gluggi yfir höfða- gaflinum MENN hafa misjafnan smekk. Sumir vilja ryóta birtunnar en ekki loka hana úti þegar þeir sofa. Svona gluggi væri skemmtilegur fyrir þá. SUÐU RLAN DSBRAUT 5066 2 • S Ml 588 5060 • FAX 588 HaukurGeirGarðarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasaii Opið laugardaga kl. 12-14 mbl.is/f asteignir / f i habil.is/fi 2ja herbergja FELLSMÚLI - LÁN Vorum að fá ( einkasölu 2ja herb. íb. í fjölb. sem nýbúið er að taka í gegn að ut- an og Steniklæða á kostnað selj- anda. Suðursvalir. Úsýni. Áhv. 2,6 millj. byggsj. rík. Verð 5,9 millj. VESTURBÆR - LAUS - LÁN Falleg 2ja herb. (b. á 3. hæð I fjölb. ásamt stæði í bflskýli. (b. er björt með suður- svölum. Hús og sameign nýmálað. Áhv. 3,2 millj. Byggsj. rik. Laus strax. Verð 5,9 millj. SPÓAHÓLAR -SUÐUR Falleg og rúmgóð 2ja herb. (b. á 2. hæð ( litlu fjölbýli. Suðursvalir. Verð 5,5 millj. ÓÐINSGATA - LAUS Vorum að fá 2ja herb. íb. á jarðh. ( þríbýli á þessum vinsæla stað. Hús nýl. Steniklætt að utan. Laus strax. Verð 4,4 millj. STÓRAGERÐI Vorum að fá i söiu 2ja herb. (b. á jarðhæð í fjölb. á þessum vinsæla stað. Hús nýl. málað. Laus fljótl. Verð 5,4 millj. MIÐBORGIN Góð stúdlóíbúð á jarðhæð með sérinngangi. Ibúðin er öll nýstandsett. Laus fljótlega. Verð aðeins 2,9 millj. SELJENDUR ATHUGIÐ: HÖFUM KAUPENDURÁSKRÁ, GÓÐAR GREIÐSLUR, JAFNVEL STAÐGREIÐSLA. PERSÓNULEG OG TRAUST ÞJÓNUSTA. HRINGDU NÚNA! HAFNARFJÖRÐUR Rúmgóö 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinn- gangi ( nýlegu tvfbýli. Gott aukarými sem gefur möguleika á að stækka íbúðina. Uþplagt fyrir iðnaðarmanninn. Verð 7,3 millj. 3ja herbergja VANTAR - VANTAR höf UM KAUPENDUR Á SKRÁ AÐ 3JA HERB. IBÚÐUM M.A. I BREIÐHOLTI, KÓPAVOGI OG AUSTURBÆNUM. TRAUST ÞJÓNUSTA. HRAUNBÆR - AUKAHER- BERGI Falleg 3ja herbergja íb. á 3. hæð í litlu fjölbýli ásamt aukaherbergi ( kallara. með sameiginlegri snyrtingu. Parket. Áhv. 3 millj. hagst. langt. lán. Verð 7,1 millj. ÞINGHOLTIN Vorum að fá I sölu fallega töluvert endumýjaða 2-3ja herb. íb. á 1. hæð í þríbýli. Nýl. eldhúsinnrétting og á baði. Verð 6,6 millj. 4-6 herbergja VANTAR Á SKRÁ okkur BRÁÐVANTAR FYRIR ÁKVEÐNA KAUPENDUR 4-5 HERBERGJA (BÚÐIR VlÐA Á HÖFUÐBORGAR- SVÆÐINU. HRINGDU OG REYNDU ÞJÓNUSTUNA. BREIÐAVÍK Ný og glæsileg 4ra herb. íbúð á jarðhæð með sérinngangi ( litlu fjölbýli. Vandað þarket, mahóníinn- réttingar. LAUS STRAX. Hæðir KÓPAVOGUR Góð 120 fm efri sér- hæð (tvíbýlishúsi. Stofa, borðstofa og 3 herbergi. Góður suðurgarður. Verð 10,7 millj. SUÐURHLÍÐAR - RVK Vorum að fá í einkasölu glæsilega nýlega neðri sérhæð ( tvíbýli á þessum vinsæla stað. Fallegar innr., nýl. tæki í eldh. Parket. Suðurverönd. Sérbílastæði. ÁKVEÐIN SALA. Einbýli-parhús-raðhús SELJAHVERFI - SKIPTI Á ÓDÝRARI Gott endaraðhús á 3 hæðum ásamt bllskýli. Stofa, 6-7 her- bergi. Hús er klætt að utan. SKIPTI ATH. Á ÓDÝRARI EIGN. KLEPPSVEGUR - EINB. /TVIB. Lítiö einbýli á 2 hæðum sem skiptist í 2ja herb. (b. á jarðhæð og 3ja herb. á efri hæð. Stór lóð, góðir bygg- ingamöguieikar. I smíðum GARÐABÆR Vorum að fá í einka- sölu glæsilegt 193 fm parhús m. innb. bílskúr. Fráb. útsýni. fokh. innan og frág. utan. Teikningar á skrifstofu Sumarbústaðir EILIFSDALUR - KJÓS Tii söiu þessi fallegi sumarbústaður í nágrenni Rvk. Skiptist í stofu, 2 herbergi, baðher- bergi og svefnloft, samtals um 70 ferm. Rafmagn/kalt vatn. Nýtt parket. Nánari uppl. á skrifst. GRÍMSNES Nýkominn í sölu falleg- ur um 50 fm sumarbústaður í landi Hraunkots, Hraunborgum. Stór verönd. Verðtilboð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.