Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 30

Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 30
30 C ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999 JL MORGUNBLAÐIÐ Ný viðhorf í hús- næðismálum MARGT í samtíma okkar ber því vitni að við lifum nú aldahvörf. Fyr- ir utan hin augljósu aldamót og ár- þúsundaskipti, eftir aðeins rúm þrjú misseri, líta margir svo á, að tuttug- ustu öldinni „hinni skömmu“ sem hafíst hafi 1914, hafi í rauninni lokið árið 1989 við hrun harðstjómarríkja Mið- og Austur-Evrópu. Við virðumst lifa á tímum sem eru eftirhreytur annars tíma, og vit- um ekki enn hvað bíður á einhverj- um nýjum tíma, forskeytið „póst“ (,,eftir“) er mikið notað, talað er um „póst-módemisma“ og t.d. innan velferðarrannsókna tala menn um svonefndan „póst-Fordisma“, þ.e. þann tíma þegar færibönd og skipu- lag fjöldaframleiðslu að hætti Henrys gamla Fords hafa runnið skeið sitt á enda sem meginregla í iðnaðarframleiðslu. Um áratugi hefur tímatal manna í allri þjóðfélagsumræðu, ekki síst um félagsmál, hafist við lok síðari heimsstyrjaldarinnar og tímaskeið- ið kallast „eftirstríðstíminn". í hús- næðismálunum, hefur þetta verið mjög svo áberandi, tímatalið hefur þar að mörgu leyti hafist með þeirri velmegunarbyltingu sem hófst um og eftir stríðslokin 1945. Eg held hins vegar að nú í dag fari það ekki á milli mála að „eftir- stríðstímanum" er endanlega lokið og kannski er enn óljóst hvað tekur við, það verður þó örugglega eitt- hvað með forskeytinu „póst“ fyrir framan. Valtasti velferðarstólpinn Talið er að hið vestræna velferð- arþjóðfélag eftirstríðsáranna hafi náð hápunkti útþenslu sinnar um 1975, þrjátíu árum eftir stríðslokin; það hafi verið olíukreppan mikla 1973 sem hafi markað upphaf þess að hin kratíska velferðarbylgja byrjaði að fjara út. Það er dálítið misjafnt milli ólíkra málaflokka hversu miðlægir þeir hafa verið í velferðarþróuninni, þannig eru sjúkratryggingar og líf- eyrismál í flestum löndum megin- þáttur í velferðarkerfinu, húsnæðis- mál hafa hins vegar í mörgum lönd- um haft jaðarstöðu sem velferðar- þáttur. Norskur stjórnmálafræðing- ur, Ulf Torgersen, hefur lýst þessu vel með því að auðkenna húsnæðis- kerfið sem „valtasta stólpa velferð- arþjóðfélagsins". Hér á Islandi hefur jaðarstaða húsnæðisþáttarins í velferðarþjóð- félaginu verið sérstaklega áber- andi, það var eiginlega fyrst á ár- unum upp úr 1980 og ekki af krafti fyrr en seint á síðasta áratug að uppbygging húsnæðiskerfis með skandinavísku velferðaryfirbragði hófst hér á landi. A þeim tíma hafði Thateherisminn og nýfrjálshyggj- an hafist til valda sem leiðandi hug- myndafræði hins vestræna heims, en sú stefna hóf einmitt sigur- göngu sína með einkavæðingu stórs hluta félagslega húsnæðis- kerfisins í Bretlandi. Innan íslenska húsnæðiskerfis- ins gætti útþenslu ríkisafskipta í húsnæðismálum í rauninni aðeins í stuttan tíma, hin mikla aukning ríkisumsvifa kringum 1990 innan húsnæðislánakerfisins er nú þegar farin að hjaðna. A Islandi ein- kenndust húsnæðismál á eftir- stríðstímanum mest af öflugri sjálsbjargarstefnu sem fæddi af sér hina sérstöku íslensku séreign- arstefnu. Hér á landi voru það ýmis samfé- lagsöfl, fjölskyldan, byggingarsam- Jón Rúnar Sveinsson. * A næstu misserum blasir við það mikil- væga verkefni að styrkja leigumarkað- inn, segir Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræð- ingur hjá íbúðalána- sjóði, bæði félagslegan á vegum sveitarfélag- anna, fyrirtækja þeirra og félagasamtaka og ekki síður almennan leigumarkað, sem rek- inn væri á markaðs- grundvelli. vinnufélög og ættarsamfélagið sem í rauninni leystu meginhluta hús- næðisvandans, ríkisafskipti af hús- næðismálum voru hér miklu minni og komu miklu seinna til sögunnar en í nálægum löndum. Almennar áherslubreytingar Sé litið yfir húsnæðismál hinna þróuðu ríkja Vesturlanda, þar á meðal hér á landi, þá blasir það við að ýmsar helstu áherslur fyrri stefnu eru mjög að breytast og ýmsir nýir og áður óþekktir hlutir að gera sig gildandi: Horfið er frá almennum opinber- um niðurgreiðslum og stuðningsað- gerðum sem beinast að fjármögnun- ar- og framleiðslustigi húsnæðisins, jafnt „yfir alla línuna“, ef svo má FRAMlTIÐIN Söiumenn: Óli Antonsson Þorsteinn Broddason Sveinbjörn Freyr sölustjóri Ingibjörg Eggertsdóttir ritari Kjartan Ragnars hrl., lögg. fasteignasali Sími Fax Gsm 511 3030 511 3535 897 3030 NÓATÚNI 17, - 105 REYKJAVÍK Opid: Virka daga frá kl. 9-18. Sunnudaga frá kl. 12-14. Einb., Raðh., Parh. MOSFELLSBÆR - EIN- BÝLI/SKIPTI Enmn með kaupanda að góöu ca 130-200 fm einbýli i Mos. í skiptum fyrir 110 fm sérbýli í Grafarvogi. Erum með kaupanda að góðu einbýli m/4 svh. VESTAN Vesturlandsvegar í Mos. i skiptum fyrir nýlega 4ra herb. íb. m/bílsk. i Mos. Erum með kaupanda sem leitar eftir einbýli AUSTAN Vesturlandsvegar í skiptum fyrir vandað 110 fm raðh. m/bilskúr (Mos. 4-6 herb. íbúðir VEGHUS - MEÐ BILSKUR Ný i einkasölu 115 fm íbúð á 2. hæð með 29 fm bílskúr. Þvottah. innan íb. Stórar SVsvalir. Verð aðeins 10,5 millj. Áh v. 3,8 millj. Bygg- sj. 35779 BARRHOLT - MOS. Roskið fólk í 150 fm húsi leitar eftir góðri ný- legri fb. á jarðhæð eða lyftuhúsi í skipt- um fyrir húsið sitt. Leitum eftir góðu einbýli í Mos. í skipt- um fyrir glæsilega 130 fm íbúð i lyftu- húsi. ASVALLAGATA - BIL- SKÚR Nýkomin í sölu 4-5 herb. íbúð uþb. 95 fm Ibúðin er á 2 hæðum, kj. og hæð í tvíbýlishúsi og hefur verið talsv. endumýjuð; m.a. gluggar, gler, rafmagn, ofnar og lagnir. Biiskúr. Fal- legur lokaður garður bakatil og einnig fyrir framan. Verð 8,2 millj. Ahv. 3,7 millj. húsbr. LÆKJARSMARI MEÐ BIL- SKYLI Vorum að fá í einkasölu 82 fm íbúð á jarðhæð á þessum vinsæla stað með stæði í bílskýli. Góö eld- húsinnrétting með vönduðum tækjum og góðum borðkrók með glugga. Baðherb. flísal. í hólf og gólf. Þvottah. innan fb. SKIPTI Á STÆRRI EIGN MEÐ BÍLSKÚR ATHUGANDI. 36473 í smíðum KLUKKURIMI Á góðum stað innst í botnlanga, fokhelt 170 fm hús með innb. stórum bílskúr, fullbúið ut- an. Teikningar á skrifstofunní. Verð 11,5 millj. Áhv. 7,5 millj. húsbr. til 40 ára. Húsið er til afh. fljótlega. FAXATUN - GBÆ Vorum að fá í einkasölu 120 fm einbýli með u.þ.b. 70 fm bílskúr. ESJUGRUND - TVÆR IBUÐ- IR Vorum að fá í sölu 265 fm raðhús á 3 hæðum með tvöföldum bílskúr. Glæsilegt útsýni. 2ja herb. íbúð með sérinng. á jarðh. Stórar stofur önnur þeirra með arni. Stórt eldhús með vandaöri eikarinnr. Verð 13,7 millj. Áhv. 6,4 millj. MOFELLSDALUR - ÚTSÝNI Einbýlishús á tæpl. 6000 fm grónu landi og stendur hátt, sér vlða yfir. I húsinu eru þrjú svh., góðar innréttingar, náttúrufegurð. Verð 13,5 millj. Áhv. 7,3 millj. Sa mvinnusj. EKKERT GREIÐSLUMAT. Ath. sklpti. FANNAFOLD M/BILSKÚR Gullfalleg 110 fm endaibúð með sérinn- gangi af svölum á 2. hæð. 3 rúmgóð svh. vandaðar innréttingar og gólfefni. Þvh. í búð. Stórar vestursvalir. Góður bílskúr. Áhv. Byggsj. rik. 5 millj. EIGNIN ER BOÐIN í SKIPTUM FYRIR 4-5 HERB. SÉRBÝLI M/B(LSKÚR I FOLD- UM/HÖMRUM. ÆSUFELL Nýkomin í sölu 5 herb. 105 fm endaíbúð. Eldhús m. nýl. innr., rúmgóð- ar stofur, parket á gólfum. Verð aðeins 7,9 millj. 3ja herb. íbúðir BERJARIMI - BILSKYLI Mjög góð 86 fm (búð með 32 fm bílskýli á 3. hæð (efstu) I góðu húsi. Þvottaherb. innan íb.. Glæsileg eldhúsinnr. Parket á herb. Falleg innr. á baði með halogen. Verð 8,8 áhv. 3,1 millj. húsbr. 36765 NÝBÝLAVEGUR - ÚTSÝNI vor um að fá (sölu 76 fm íbúð á efri hæð I fjór- býlishúsi. Parket á stofu, þvottah. innan íb., stórar svalir. Ver ö 7,6 millj. Áhv. 5,5 millj. húsbr. 33909 MOSFELLSBÆR - BYGGSJ. Stór og góð 114 fm Ib. á 3ju hæð í fjölb. Mikið útsýni. Verð 8,8 millj. Áhv. Byggsj. 5,3 millj. Greiðslubyrði aðeins 27 þús. á mán. 2ja herb.íbúðir FRAMNESVEGUR 2ja herb. jarðhæð u.þ.b. 60 fm ásamt 10 fm úti- geymslu. Nýl. raf- og hitalagnir. Nýlegt á baði. Sérinngangur. Verð 6,2 millj. áhv. 2,8 millj. húsbr. SELÁS Mjög góð tæpl. 60 fm íbúð á 1. hæð. FKsar og parket á gólfum. Verð 5,2 millj. Áhv. 3,0 millj. BAKKASTAÐIR - EINBYLI Er- um með 200 fm einbýli á einni hæð með 33 fm innb. bílskúr. Fjögur rúmgóð svefnher- bergi. Framúrskarandi fyrirkomulag. H úsið afhendist fullbúið að utan og fokhelt að innan. Aliar nánari uppl. á skrifst. 33707 VÆTTABORGIR - PARHÚS Bráðskemmtilega hönnuð 166 fm hús á tveimur hæðum með innb. bílskúr. Á neðri hæð er anddyri, 3 svh. þvh. og geymsla auk bílskúrs. Uppi eru eldhús og stórar stofur með ami og útg. á stórar þaksvalir. Húsin afh. fokh. innan tilb. u. málningu ut- an. Verð frá 11,0 millj. ATVINNUHUSNÆÐI MIÐHRAUN 22, GARÐABÆ Glæsilegt atvinnuhúsnæði ( nýbyggingu. Endabil 417 fm við fjölfarin gatnamót. Hentar undir hverskyns atvinnustarfsemi. Stórar innkeysludyr, gnótt bilastæða. Verð 25 millj. KRÓKHÁLS - NÝTT Glæsilegt atvinnuhúsnæði að Krókhálsi 5 í Reykja- vík til afhendingar í vor. Innkeyrsludyr á jarðhæð að norðanverðu en á 3ju hæð að sunnanverðu. Lofthæð 4,5-6,0 m. Aðkoma er bæði frá Krókhálsi og Jám- hálsi og afar rúmt I kring. Hentar fyrir verslun og hvers kyns þjónustutengda starfsemi. Selst í heild sinni eða hlutum frá 500-5000 fm 34785 FLUGUMYRI - IÐNAÐAR- HÚSNÆÐI Iðnaðarhúsnæði með| góðri lofthæð og stórum innkeyrsludyrum 266 fm alls. Jarðhæð er u.þ.b. 185 fm en efri hæð skiptist í 40 fm (búð og 40 fm lagerpláss. Áhv. langtímalán. Verð 8,5 mlllj. DALVEGUR - MIKLIR MÖGULEIKAR Endabil 265 fm næst götu á Dalvegi 16-A ( Kópavogi. Glæsilegt atvinnuhúsnæði á tveimur hæð- um tilbúið til afhendingar. Verð 21 millj. Morgunblaðið/Golli segja. í staðinn fyrir þetta eru komnir sértækir, tekjutengdir hús- næðisstyrkir á neyslustigi sem beinast að fjölskyldunum sjálfum, en ekki að íbúðunum. Bæði vaxta- bótakerfið og húsaleigubótakerfið íslenska eru dæmi um þetta. Sér- tækar aðgerðir eru mildu ódýrari en almennar stuðningsaðgerðir, sem að sjálfsögðu skýrir vinsældir þeirra hjá flestum ríkisstjórnum. Ríkisvaldið hefur hvarvetna ver- ið að draga sig út úr fjármögnun húsnæðismála jafnframt því sem bankar hafa verið að eflast. Þróun- in í Bretlandi er nokkuð dæmigerð. Þar hafa gömlu, sérhæfðu lánsfé- lögin, „Building Societies“, meira og meira verið yfirtekin af bönkun- um, sem eru komnir í harða sam- keppni um húsnæðislánamarkað- inn. Sumir bjóða lán er nema 120% af matsverði íbúðanna og sam- keppnin birtist í ýmsum tilbrigðum af lánskjörum og alls konar auka- tilboðum í tengslum við húsnæðis- lánin. Bretar hafa jafnvel stigið það skref að félagslega íbúðakerfið, sem þar er nú meira og meira í höndum félagasamtaka í stað sveitarfélag- anna áður, er að stórum hluta fjár- magnað með upptöku lána á alþjóð- legum fjármagnsmarkaði. Meira að segja hér á landi eru bankarnir, sem kunnugt er, farnir að láta veru- lega til sín taka á húsnæðislána- markaðnum. Þess gætir nú víða um heim að ábyrgð á framkvæmd húsnæðis- stefnunnar er færast frá hinu mið- læga ríkisvaldi til lægra stjóm- sýslustigs. í sambandsríkjum eins og Kanada og Þýskalandi em hús- næðismál nú eingöngu á könnu ein- stakra sambandsríkja og fylkja og taka má dæmi af Spáni þar sem stjóm Katalóníu meir og meir stýrir sínum húsnæðismálum, sama á við um Skotland og Wales innan breska ríkjasambandsins. Hér á íslandi sjáum við sömu til- hneigingn í aukinni ábyrgð sveitar- félaga samkvæmt nýju húsnæðis- löggjöfinni sem tók gildi um síðustu áramót. Það ýtir undir þessa þróun að fyrst á allra síðustu árum hafa við sameiningu sveitarfélaga orðið til nógu stórar stjómsýslueiningar til þess að geta framkvæmt virka húsnæðistefnu í hverju einstöku byggðarlagi. Þá er það áberandi, að í það minnsta evrópskar ríkisstjórnir beina sjónum æ meir að borgar- og skipulagsmálum, jafnframt því sem umhverfismál og umhverfisvænar íbúðabyggingar em mjög mikið á döfinni. Þessar nýju áherslur koma í rauninni í stað fyrri áherslna á fjármögnun og framleiðslu sem flestra nýrra íbúða. Dæmi um þessa áherslubreytingu mátti nýlega sjá þegar frændur vorir Danir breyttu nafni ráðuneytis húsnæðismála úr „húsnæðismálaráðuneytið" í „borg- ar- og húsnæðismálaráðuneytið." Húsnæðismál em víðast að verða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.