Morgunblaðið - 23.05.1999, Blaðsíða 4
4 E SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
’
til starfa hjá einu stærsta fýrirtæki
landsins á sviði upplýsingatækni
Þjónusta EJS nær til flestra hliða nútíma upplýsinga- og samskiptatækni, allt frá sölu og þjónustu á heimsþekktum vél- og
hugbúnaði, til nýsmíða og þróunar á hugbúnaði og lausnum fyrir atvinnulífið, hér á landi sem erlendis. Hjá fyrirtækinu vinna
nú hátt í 200 manns.
Hugbúnaður og þjónusta
Vegna aukinna umsvífa opnast enn ný og spennandi tækifæri
hjá EJS. Við leitum eftir fólkí tíl starfa við þróun, ráðgjöf,
úttektir, verkefnastjórn og þjónustu.
Við leitum að fólki með háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði
eða tæknifræði, sem hefur mikinn áhuga á nýjustu tækni og vill vinna
með hópi sérfræðinga hjá traustu fyrirtæki. Umsækjendur þurfa að eiga
auðvelt með hópvinnu og hafa vilja til þess að tileinka sér fagleg vinnubrögð.
EJS leggur metnað sinn I að bjóða starfsöryggi, jafnrétti,
sanngjörn laun og jákvætt, gefandi starfsumhverfi.
Áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun starfsfólks, sjálfstæði
og hópvinnu.
I
EJS sinnir stórum verkefnum fyrir innlenda og erlenda aðila. Þjónusta
EJS er fjölbreytt og er í formi ráðgjafar, verkefnisstjórnunar, hönnunar
og hugbúnaðarsmíði.
EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfi sem hefúr svohljóðandi
gæðastefnu að leiðarljósi:
Tryggja skal að viðskipti við EJS séu besti kosturinn fyrir viðskiptavininn
með því að:
♦ Öll verk séu skipulega og faglega unnin.
+ Viðskiptavinurinn fáí trausta og góða vöru á umsömdum tíma.
Þekking og færni starfsfólks sé ávallt í samræmi við þarfir viðskiptavinarins.
EJS sé aðlaðandi vinnustaður, þar sem hæfileikar sérhvers starfsmanns
fái notið sín.
Nánari upplýsingar veita Árni R. Jónsson (arnij@ejs.is)
og Marta K. Lárusdóttir (marta@ejs.is).
Umsóknir berist til EJS, Grensásvegi 10,
108 Reykjavík, merkt „Starfsumsókn".
Farið verður með fýrírspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
I
EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfi EJS hf. + 563 3000 + www.ejs.is + Grensásvegi 10 + 108 Reykjavík