Morgunblaðið - 23.05.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.05.1999, Blaðsíða 10
10 E SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ r Þjónustufulltrúi STARFSSVIÐ ► Almenn ráðgjöf ogsalaífiármálum ► Kynning til einstaklinga á þeirrí þjónustu sem fyrirtækið býður upp á HÆFNISKRÖFUR ► Framúrskarandi þjónustulund ► Ski puiagshæfilei kar ► Hæfni í mannlegum samskiptum ► Að geta unnið sjálfstætt sem og í hóp Stórt og traust fjármálafyrirtæki leitar að þjónustufulltrúa í útibú sitt á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið er umfangsmikið á fiármálamarkaðinum og býður upp á góða vinnuaðstöðu þar sem góður og líHegur starfsandi rikir. Fyrirtækið leggur mikið upp úr að veita framúrskarandi þjónustu og umhyggja fyrir viðskiptavinum er ávallt höfð að leiðarljósi. Lögð verður áhersla á að þjálfa réttan aðila í starfið. Nánari upplýsingar veitir Hilmar G. Hjaltason eða Jensína K. Böðvarsdóttir hjá Gallup. Umsókn ásamt mynd þarfað berast Ráðningarþjónustu Gallupjýrir mánudaginn 31. maí n.k. - merkt „Þjónustufulltrúi - 17427“. GALLUP RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Smiöjuvegi 72, 200 Kópavogi Sfmi: 540 1000 Fax: 564 4166 Netfang: r a d n I n g a r ® g a 11 u p . I s rm SECURITAS SECURITAS ÖRYGGISGÆSLUDEILD Securitas er leiðandi fyrirtæki á sviði rœstinga, öryggisgœslu og öryggiskerfa, með alls um 560 starfsmenn Hjá öryggisgæsludeild starfa um 100 starfsmenn við öryggisgœslu. Starfsmenn deildarinnar sinna staðbundinni gœslu, farandgæslu, verðmœtaflutningum og rýrnunareftirliti ásamt margvíslegum sérverkefnum. Þeir eru sérþjálfaðir ífyrirbyggjandi eftirliti og að bregðast við hvers konar neyðartilvikum. Öryggisverðir í boði er: Áhersla á: Umsóknir: Vegna aukinna verkefna getum við bætt við öryggisvörðum í sumar með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Störf í farandgæslu henta sérstaklega fyrir aldurinn 20 - 30 ára, og störf í staðbundinni öryggisgæslu geta hentað þeim sem eru á aldrinum 30 - 60 ára. Starfsferill öryggisvarðar hefst með námskeiði í öryggismálum, skyndihjálp og eldvörnum. Umsækjendur þurfa að geta axlað ábyrgð, unnið sjálfstætt, vera vel agaðir og skipulagðir. Ahersla er lögð á lipurð í mannlegum samskiptum, snyrtimennsku og ríka þjónustulund. Hreint sakavottorð, bílpróf og almennt flekklaus ferill er skilyrði. Umsóknareyðublöð fást hjá Ernu Guðmundsdóttur, starfsmannastjóra, Síðumúla 23, næstu daga. Skrifstofan er opin kl. 9-17. Hveragerðisbær Leikskólakennarar óskast Leikskólakennararóskast við leikskólann Óska- land frá 1. september nk. og við leikskólann Undraland frá 1. ágúst nk. Óskaland er lítill tvískiptur einnar deildar leik- skóli. Þar er unnið samkvæmt stefnu Loris Malaguzzi frá Reggio Emilia ásamt heilsubók barnsins. Undraland er þriggja deilda, blandaður leik- skóli með bæði heils- og hálfsdagsvistun. Þar er unnið samkvæmt stefnu Loris Malaguzzi frá Reggio Emilia. Tónlistarstarf er líflegt við báða leikskólana. Umsóknum skal skilað fyrir 15. júní nk. á skrif- stofu bæjarins. Nánari upplýsingar veita leikskólastjórar Gunn- vör Kolbeinsdóttir í síma 483 4139 og Sesselja Ólafsdóttir í síma 483 4234. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraþjálfarar Á Heilbrigðisstofnun Hornafjarðar er laus hluta staða hjúkrunarfræðings á heilsugæslu. Einnig vantar sjúkraþjálfara til starfa. Ný og glæsileg sjúkraþjálfunaraðstaða vartekin í notkun sl. haust. Fyrir er starfandi sjúkraþjálfari í 50% starfi. Upplýsingar veita Guðrún J. Jónsdóttir hjúkr- unarforstjóri í síma 478 1021/478 1400 og Tryggvi Þórhallsson framkvæmdastjóri í síma 470 8000. Heilbrigðis-og öldrunarþjónusta er rekin af sveitarfélaginu sem reynsluverkefni sam- kvæmt sérstökum þjónustusamningi við ríkið. 23 maí 1999, Bæjarstjóri Hornafjarðar. ss. /jjiA Isí-::F ái»\ i:r /iiíwQv ® 'k' í! itb A L Þ I Ní G I Net- og kerfisstjóri óskast Laus er til umsóknar staða kerfisstjóra við tölvu- deild sem er innan upplýsinga- og tæknisviðs skrifstofunnar. Tölvudeild veitiralþingismönn- um og starfsfólki skrifstofu Alþingis almenna notendaþjónustu, sér um reksturtölvubúnað- ar, gerir tillögur um uppbyggingu kerfa og ann- ast framkvæmdir við hug- og vélbúnað. í boði er líflegt og skemmtilegt starf í nútíma- legu tölvuumhverfi þarsem gerðareru miklar kröfur umtæknilega kunnáttu, áreiðanleika og framsýni. Leitað er að einstaklingi sem hefur ánægju af þjónustustörfum, á auðvelt með að umgangast fólk og nýtur sín vel í samstarfi við aðra. Hér er um að ræða ákjósanlegt starfstæki- færi fýrir metnaðarfullan net- og kerfisstjóra. Kerfisstjóri hefur í samstarfi við aðra starfsmenn tölvudeildar, umsjón með rekstri, viðhaldi og uppsetningu NT þjónustustöðva, einkatölva, prentara og alls annars tölvubúnaðar sem skrif- stofa Alþingis á og rekur og stýrir vinnslu þeirra. í því felst m.a. viðhald og umsjón ýmis konar kerfisgagnasafna s.s. notendaskráa o.fl. Jafn- framt gerir kerfisstjóri tillögur um framtíðarupp- byggingu sömu kerfa. Áskilin er reynsla við sam- bærileg verkefni og þekking á MS Win95, MS NT og Unix stýrikerfum. Staðan er laus skv. samkomulagi og launakjör eru skv. kjarasamningi Félags starfsmanna Alþingis. Þau geta tekið mið af hæfni og frammistöðu starfsmanns. Nánari upplýsingar veitir Haukur Arnþórsson forstöðumaður upplýsinga- og tæknisviðs í síma 563 0651. Umsóknum með starfságripi og öðrum gögnum skal skila til rekstrarskrifstofu Alþingis, Kirkju- stræti 10,150 Reykjavík, eigi síðar en 7. júní 1999 merktar: „Kerfisstjóri". Öllum umsóknum verður svarað. Starfsfólk í áhafnadeild Cargolux Airlines international S.A. Vegna hraðvaxandi umsvifa hjá fyrirtækinu leitum við að starfsfólki í áhafnaskrá (Crew scheduling) í Lúxemborg. Starfssvið: • Skipulagning og undirbúningur áhafnaskrár félagsins. Menntun og hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða önnur sambærileg mennt- un. • Mjög góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. Frönsku og/eða þýskukunnátta er æski- leg. • Góð almenn tölvukunnátta. • Þekking á áhafnaskipulagningu flugfélaga. • Þekking á ferðaáætlunum flugfélaga (time tables). • Góðir samskiptahæfileikar. • Útsjónarsemi og skipulagsgáfur. Góð laun og hlunnindi eru í boði. Umsóknir sendist til: Director of Human Resources Department, Cargolux Airlines International S.A., Luxembourg Airport, L-2990 Luxembourg, Grand Duchy of Luxemborg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.