Morgunblaðið - 09.06.1999, Page 16

Morgunblaðið - 09.06.1999, Page 16
■ Kmkmyndir Endurspeglast þjóðarsálin í Lísu og Finnboga? Perlur og suín á þjóðhátíðar- daginn Aö kvöldi þjóöhátíóardags okkar ís- lendinga mun Sjónvarpiö sýna kvik- myndina Perlur og Svín eftir Óskar Jónasson og af því tilefni ræddi Eyrún Baldursdóttir viö höfundinn. Um þessar mundir hefur Óskar Jónasson í mörgu aö snúast, hann er að vinna að sjónvarpsleikriti, föndra við handrit, gera upp íbúöina sína og troða upp sem skemmtikraftur. Þrátt fyrir að geta ekki horft á myndina í Sjónvarpinu 17. júní sökum anna gaf hann sér tíma til þess að svara spurningum blaöamanns. Telur þú aO boöskapur myndarinnar tengist á ein- hvern hátt þjóðhátíðardegin- um? „Ég á nú erfitt með aó sjá tengingu þar á milli en ástæð- an fyrir því aö myndin er sýnd 17. júní er líklega að á merkis- dögum reynir Sjónvarpiö gjarn- an að tjalda til íslensku efni. Myndin fjallar auðvitað um ís- lensku þjóðarsálina. Við ís- lendingar erum svolítið að braska með fjöreggiö og mynd- in er einmitt um fólk sem er f „matadorbisness" með ýmsa hluti, þau Lísa og Finnbogi kaupa hrörlegt bakarí sem er ansi hæpið að geti gengiö." Finnst þér það lýsa þjóð- inni? „Já, sumu fólki sem ég hef kynnst." Er nýja sjónvarpsieikritið sem þú vinnur að kannski framhald af lífi Lísu og Finn- boga? „Nei, í sjónvarpsleikritinu kemur fram önnur hlið á mannlífinu og ekki íslenska þjóðarsálin eins og hún leggur sig." Hvað er eftirminniiegast við gerð myndarinnar Perlur og svín? „Að koma um borð í Rússa- togarann. Það var óhrjálegur ryðdallur og lyktin í honum var ólýsanleg, því miður náðist hún ekki á filmu." Var togarinn pantaður sér- staklega hingað til iands fyrir tökur myndarinnar? „Nei þetta var algjör heppni. Togarinn birtist hér viö land viku fyrir tökur og okkur samd- ist við þá um að fá að taka myndir um borð. Við fengum að hífa heilu farmana af bíldruslum um borð og klessa þær með látum. Rússunum fannst þetta mjög spennandi og fengu meira að segja að leika í myndinni." Ég frétti að þú hefðir fengið Jón Svavarsson Ijósmyndara Morgunblaðsins til að leika Rússa." „Já, hann tekur sig vel út með loðhúfu. Varstu ánægður með viðtök- urnar sem myndin fékk? „Já, hún fékk yfirleitt ágætis viötökur og fína aðsókn enda eru persónur myndarinnar manngerðir sem margir kann- ast við." Nú voru 22.000 manns sem + Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Oskar Jónasson höfundur myndarinnar Perlur og Svín hefur þessa dagana mörg járn í eldinum. Hér kannar hann aðstæður um borð í ónefndum ryðdalli. Ætli íslendingar fylgist jafn grannt með sýningu myndarinnar Perlur og svin 17. júní og þessar persónur fylgjast með gangi mála? Hér má sjá leikarana Ólafíu Hrönn, Steinunni Ólínu, Ólaf Darra og Þröst Leó í hlutverkum sínu. sáu myndina þína og því margir að sjá hana aftur, heldurðu að hún sé jafn góð í annað sinn? „Ég get vitnað um að hún þolir þaö alveg enda hef ég séð atriðin ótal sinnum á klippiborðinu og myndina nokkru sinn- um í heild sinni." - Ætlar þú að horfa á myndina 17. júní? „Ég verð með skrípa- læti hingaö og þangað og mun því miður ekki hafa tíma til að sjá hana. Þjóðhátíðardagur- inn er nefnilega einn af þeim dögum sem maöur dettur í skemmtanir. Það er oróiö eitt og hálft ár síöan ég sá hana síðast og því myndi ég gjarnan vilja sjá hana þann 17. Ég verð þvf bara að vona að sjónvarpið endursýni hana bráðlega." Oárennilegur hópur rússneskra togarasjómanna úr kvikmyndinni Perlur og Svín Nýbakað bakkelsi meðhöndlað í Lísu-bakaríi. 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.