Morgunblaðið - 09.06.1999, Side 26

Morgunblaðið - 09.06.1999, Side 26
Þættir Tæpir 2 milljarðar í skaðabætur Framdi morð eftir auðmýk- ingu í spjall- þætti Schmitz, til hægri, sem sést hér faðma Amedure í umræddum sjónvarpsþætti gaf enga vísbendingu um það að hann væri í uppnámi eftir þáttinn, að sögn Jones. Lögfræðingurinn Geoffrey Fieger heldur um föður Scott Amedure, Frank Amedure, eftir að dómurinn komst að niðurstöðu um skaðabætur til handa fjölskyldunni. Hætt er við að spjallþátta- stjórnendur í Bandaríkjunum hafi fengið fyrir hjartað þegar þeir lásu um niðurstöðu réttar- halda gegn Jenny Jones, en framleiðendur spjallþátta sem hún stýrir voru dæmdir til að greiða 1.750 milljónir í skaða- bætur til fjölskyldu manns sem var myrtur eftir að hafa opin- berað kynóra sína um annan mann í þættin- um. Scott Ame- dure var myrtur í mars 1995 af Jonathan Schmitz, þremur dögum eftir að hafa komiö fram í þætti Jenny Jo- nes sem fjallaði um duldar ástríður og opin- beraö þar tilfinn- ingar sínar og kynóra um Schmitz. Fjöl- skylda hans tel- ur að þátturinn hafi átt stóran þátt í moröinu og kviðdómurinn var á sama máli. Telja margir lagatúlkendur að niöurstaöan stangist á við ákvæði stjórnar- skrárinnar um tjáningarfrelsi. VONAÐIST EFTIR NÝJU ÁSTARSAMBANDI Lögfræðingurinn Geoffrey Fieger varð frægur fyrir að verja dr. Jack Kevorkian sem aðstoðar fólk við aö stytta sér aldur. Hann kallaði Jenny Jones og framleiðendur þátt- anna í vitnastúkuna til að leiða f Ijós hvernig þau lögðu á ráðin um aö auömýkja Schmitz, sem viðurkenndi að hafa myrt Amedure eftir aö hafa verið niðurlægður í þættinum. Schmitz samþykkti að koma fram í þættinum þegar honum var sagt að hann ætti leyndan aðdáanda sem langaði til að játa honum ást sína. Vonaðist hann til að úr því yrði nýtt ást- arsamband eftir að hafa lent í sársaukafullum skilnaði nokkrum mán- uðum áður. í upptöku af þættinum, sem aldrei var sjón- varpaö, gekk Schmitz inn á sviöiö og hitti fyrir nágranna- konu sína, Donnu Riley, viö kátínu áhorf- enda, en hann hafði verið hrif- inn af henni. Stjórnandinn kom Schmitz síðan á óvart með því að segja honum að það væri ekki Riley heldur Amedure, sem sat viö hliðina á henni, sem væri skotinn í hon- um. Schmitz fól andlit sitt í hönd- um sér en Jones lét sýna upp- tökur þar sem Amedure lýst kynferöislegri fantasíu sinni þar sem Schmitz kom viö sögu ásamt þeyttum rjóma, jarðar- berjum og kampavíni. Hafði þetta verið fengiö upp úr Amedure eftir að honum hafði verið gefið ótæpilega af áfengi baksviðs fyrir tilstuðlan fram- leiðendanna. Þremur dögum eftir að þátt- urinn var tekinn uþp keypti Schmitz byssu og nokkur skot, keyröi aö heimili Amedures og skaut hann tvisvar í brjósið fyrir fram- an herbergisfélaga Amedures. Schmitz játaði í símtali til lögregl- unnar að hann hefði myrt Amedure eftir að hafa verið auð- mýktur af honum í sjónvarpi. „Þetta eru mjög afgerandi sönnunargögn," segir Fieger. VISSI SCHMITZ AÐ KARL- MAÐUR GAT VERIÐ í SPILINU? Lögfræðingar framleiðslufyrir- tækis þáttanna, Warner Brothers, voru á öðru máli og héldu því fram að Schmitz hefði vitað að leyndi aðdáand- inn gæti mögulega veriö karl- maður. „Jonathan Schmitz sagðist aldrei hafa verið blekktur," segir verjandinn, James Feeney. „Honum var klárlega sagt aö leyndi aðdá- andinn gæti verið karlmaður eða kona og hann samþykkti aö láta á það reyna." í langri játningu hjá lögreglu sagði Schmitz að hann hefði orðið reiður þegar hann fann miða sem gaf ýmislegt í skyn og dregið þá ályktun að miöinn væri frá Amedure, að sögn Feeneys, sem bætirviö aö miðinn hefði ekki verið þættin- um yiökomandi að neinu leyti. „Á heildina litið haföi þáttur- inn mjög lítil áhrif á hvernig þetta fór allt saman,“ segir Feeney. Ljóst er að Schmitz hefði getað leyst úr nokkrum álitaefnum í réttarhöldunum en hann bar ekki vitni. Niðurstaða dómsins var gerð Ijós 7. maí síöastliðinn og var framleiðendum spjallþáttar Jenny Jones gert að greiða tæplega 2 milljarða til fjöl- skyldu Scott Amedure. Líklegt er að málinu verði áfrýjað og telja margir að þrátt fyrir dóm- inn muni spjallþættir framtíöar- innar taka litlum breytingum. Þó segir Jim Paratore, for- seti Telepictures, sem fram- leiðir spjallþætti Jones, Rosie O’Donnell og Queen Latifah: „Ég er enn að furða mig á þessu og spyrja lögfræöinga mína: „Þýðir þetta að við verð- um að leggja þróf fyrir gesti okkar til að athuga hvort þeir eru heilir á geðsmunum?”,, Jo- nes segist vera mjög brugðiö þótt hún ætli ekki að breyta þáttunum, t.d. með því að fella niðuFkapítulann duldar ástríð- ur. „Ég er mjög stolt af þeim,“ segir hún. „Það er ekki svona auðvelt að hræóa mig.“ Jenny Jones, stjórnandi spjallþáttarins sem leiddi til morðsins á Scott Amedure, í vitnastúkunni. 26

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.