Morgunblaðið - 12.06.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 35
I skuggsjá
nútímans í
Snorrastofu
í SNORRASTOFU í Reykholti
verður formlega opnuð sýningin „I
skuggsjá nútímans" á morgun,
sunnudag kl. 14. Meginþemað er
margvísleg úrvinnsla úr fornum
menningararfi íslendinga. Verður
sjónum beint að ýmsum formum
þessarar úrvinnslu, þó einna helst
útgáfustarfsemi og rannsóknum í
handritafræði, bókmenntafræði og
fornleifafræði.
Borgfirðingnum Jóni Helgasyni
frá Rauðsgili, prófessor í Kaup-
mannahöfn, verður tileinkaður sér-
stakur sýningarhluti, spm unnin er
í náinni samvinnu við Arnastofnun.
Ennfremur verður aldarafmælis
Jóns minnst með dagskrá í Reyk-
holti 26. júní nk.
í öðrum sýningarhluta verður
fornleifarannsóknum í Reykholti
gerð skil í máli og myndum og upp-
gröfturinn tengdur heildarþema
sýningainnnar. Undirbúningur
þessa þáttar var unninn í samvinnu
við Þjóðminjasafn Islands. Sýning
af þessari gerð er nýjung á Islandi
auk þess sem sjálfar fornleifarann-
sóknirnar eru í anda nýrra
strauma í rannsóknum. I Reykholti
er markmiðið að víkka út fomleifa-
rannsóknimar og gera þær að fjöl-
faglegri rannsókn og afla þannig
nýrrar vitneskju, ekki síst um 13.
öldina. Fyrirhugað er að tefla sam-
an rannsóknum á staðnum á sviði
fornleifafræði, sagnfræði, bók-
menntafræði, handritafræði og
náttúravísinda í því skyni að sögu
byggðar á staðnum megi skoða í
nýju ljósi og í víðara samhengi en
áður.
Verk Snorra Sturlusonar
Nokkrar útgáfur af verkum
Snorra Sturlusonar verða til sýnis,
þ.e. Heimskringla, Snorra-Edda og
Egla. Safnahús Borgarfjarðar hef-
ur á undanförnum árum komið sér
upp góðu safni af fágætum útgáf-
um á þeim fornsögum, sem tengj-
ast Borgarfirði, og hafa nokkrar
þeirra verið fengnar að láni til sýn-
ingarinnar. Þá verður eitt sýning-
arpúlt tileinkað þeirri merku og
veglegu gjöf er Snorrastofu barst
nýlega, þ.e. bókasafni dr. Jakobs
Benediktssonar. Síðast en ekki síst
verða til sýnis bækur, sem gefnar
vora frá Háskólanum í Gautaborg í
tilefni sýningarinnar.
Sýningin er sett upp í samvinnu
við Stofnun Ái-na Magnússonar á
Islandi, Þjóðminjasafnið og Safna-
húsið í Borgamesi. Ferðaþjónust-
an Heimskringla annast vörslu
sýningarinnar. Hún er opin frá kl.
10-18 alla daga vikunnar yfir sum-
armánuðina og eftir samkomulagi
á vetrum.
BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur leikur léttklassíska tónlist
í Ráðhúsinu í dag.
Ráðhústónleikar
Blásarakvintettsins
LISTIR
BLÁSARAKVINTETT Reykja-
víkur heldur tónleika í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag, laugardag
kl. 16.
Blásarakvintettinn, er kamm-
erhópur Reykjavíkur, skipaður
þeim Bernharði Wilkinson, sem
leikur á flautu, Daða Kolbeins-
syni á óbó, Einari Jóhannessyni
á klarinett, Jósef Ognibene á
horn og Hafsteini Guðmunds-
syni á fagott. Þeir félagar hafa
staðið í ströngu í vetur og hafa
m.a. frá áramótum leikið inn á
þijár geislaplötur. í Ráðhúsinu
leikur kvintettinn léttklassíska
tónlist og eru þessir tónleikar
síðasta verkefnið á þessu starfs-
ári. Næsta starfsár hefst í ágúst
með tónleikaferð til Ástralíu og
Singapúr.
Sumar-
djass á
Jómfrúnni
SUMARDJASS, tónleikaröð
veitingahússins Jómfrúrinnar
við Lækjargötu, heldur áfram
í dag, laugardag, kl. 16-18. Þá
kemur fram tríó skipað Óskari
Guðjónssyni saxafónleikara,
Þórði Högnasyni bassaleikara
og trommuleikaranum Einari
Scheving.
Tónleikamir fara fram ut-
andyra, á Jómfrúrtorgi, ef
veður leyfir.
Einsöngs-
tónleikar í
Tónleikasal
Söngskólans
HRÓLFUR Sæmundsson bariton-
söngvari og Ólafur Vignir Alberts-
son píanóleikari halda einsöngstón-
leika í Tónleikasal
Söngskólans,
Smára, Veghúsa-
stíg 7, Reykjavík,
þriðjudagskvöldið
15. júní kl. 20.30.
Tónleikamir eru
lokaáfangi burtfar-
arprófs Hrólfs frá
Söngskólanum í
Reykjavík.
Á tónleikunum
verður ljóðaflokkurinn Dichterliebe,
ástir skáldsins, Op. 48 eftir Robert
Schumann fluttur í heild og enn-
fremur atriði úr þremur af þekkt-
ustu óperum Mozarts, Töfrafiaut-
unni, Don Giovanni og Brúðkaupi
Fígarós, þar sem tvær sópransöng-
konur og samnemendur Hrólfs við
Söngskólann, Valgerður G. Guðna-
dóttir og Brynhildur Björnsdóttir,
koma til liðs við Hrólf og Ólaf Vigni í
dúettum Pamínu og Papagenós og
Zerlinu og Don Giovannis.
--------------
Maður í mislitum
sokkum sýndur
á Stóra sviðinu
NÚ ER lokið leikferð Þjóðleikhúss-
ins um landið með leikritið Maður í
mislitum sokkum, eftir Arnmund
Backman. Sýningum verður haldið
áfram í Þjóðleikhúsinu og verður
þessi gamanleikur nú færður upp á
Stóra svið. Sýningar á Stóra sviðinu
verða 18., 19: og 20. júní.
Hrólfur
Sæmundsson
Lœgsta bilanatíðni allra bíla.
Niðurstöður þýsku skoðunarstofunnar DEKRA sem framkvœmir árlega skoðanir á yfir 7 milljónum bíla
sýndu að Fiat Bravo og Brava biluðu minnst allra þriggja ára gamalla bíla. Bravo og Brava fengu
einnig hœstu einkunn íl 00.000 km reynsluakstri Auto Motor und Sport en blaðamenn völdu hann
„Besta bílinn í millistœrðarflokki".
Komdu í reynsluakstur og gerðu samanburð á verði, gœðum og búnaði við aðra bíla í þessum flokki.
Staðalbúnaður er m.a: ABS hemlalœsivörn, 4 loftpúðar, kippibelti, rafdrifnar rúður og samlœsingar
Sportlegur 3 dyra Bravo 100 SX kostar aðeins kr, 1.360.000
Fjölhœfur 5 dyra Brava 100 SX kostar aðeins kr. 1.390.000
Istraktor
BÍLAR FYRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SÍMI 5 400 800
www.flat.com