Morgunblaðið - 12.06.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 55 ,
MINNINGAR
SNORRISVEINN
FRIÐRIKSSON
+ Snorri Sveinn
Friðriksson
fæddist á Sauðár-
króki 1. desember
1934. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans 31.
maí síðastliðinn og
fór útför hans
fram frá Háteigs-
kirkju 8. júm'.
Fyrir rúmum fjór-
um áratugum, haustið
1958, þegar ég hóf
nám í Handíða- og
myndlistaskólanum kynntist ég
vini mínum Snorra Sveini Friðriks-
syni. í hópnum sem innritaðist í
skólann þetta haust var eitthvað á
annan tug og varð hann fljótt sam-
stæður. Snorri hafði sótt námskeið
við skólann áður og kunni því
meira fyrir sér en flest okkar. Til
hans var því oft leitað um góð ráð
og ætíð var hann tilbúinn að miðla
af reynslu sinni. Þennan vetur urð-
um við Snorri góðir vinir og hefur
vinátta okkar staðið óslitið.
Við áttum gott samtal í síma
skömmu fyrir andlát hans. Hann
var þá veikur heima og við ráð-
gerðum að hittast þegar hann væri
orðinn frískur. Ekki óraði mig fyrir
því að þetta væri okkar síðasta
samtal. Nokkrum vikum áður hafði
ég setið heima hjá honum þar sem
við skoðuðum nokkur þeirra verka
sem hann var að vinna að. Við
ræddum um myndlist, lífið og til-
veruna.
Það var ævinlega gaman og
gagnlegt að eiga samræður við
Snorra. Hann var fljótur að mynda
sér skoðun og rökvís afstaða hans
til þeirra vandamála sem lífinu
fylgja var í senn raunsæ og ein-
kenndist af bjartsýni. Um erfið-
leika sagði hann einfaldlega: „Þeir
líða hjá.“ Ungur varð hann fyrir al-
varlegu slysi og þurfti að dvelja
lengi á sjúkrahúsum vegna þeirra
meiðsla sem slysið olli. Langvar-
andi afleiðingar slyssins hafa án
efa reynt á skaphöfn hans en með-
fæddir eiginleikar, rólyndi, sterk
skapgerð og trú á lífið var styrkur
hans í þessum erfiðleikum. Kona
mín heitin hjúkraði Snorra á
Sjúkrahúsi Akureyrar eftir slysið
og var hann henni minnisstæður
sökum þess hve gott og auðvelt
hafði verið að hjúkra honum. Hann
hafði verið jafnlyndur, hógvær og
þakklátur þrátt fyrir mikil veik-
indi.
Samskipti okkar jukust þegar
Snorri kom heim frá Svíþjóð að
loknu framhaldsnámi. Eg leitaði
oft til hans um góð ráð eða aðstoð
og hann reyndist mér ávallt vel.
Við unnum oft saman og nutum að-
stoðar hvor annars. Mér er sér-
staklega minnisstætt sumarið er ég
vann með honum á leikmyndadeild
sjónvarpsins. Þar naut dýrmætrar
reynslu hans og þekkingar. Snorri
var frábær myndlistarmaður og af
fjölmörgum verkum hans má ráða
hversu fjölhæfur hann var og
snjall.
Hryggur í huga kveð ég Snorra
Svein vin minn en um leið er ég
þakklátur fyrir vináttu hans og
þær samverustundir sem við átt-
um. Dagnýju, börnum þeirra og
öðrum aðstandendum votta ég
mína dýpstu samúð. Megi trúin á
lífið og góðar minningar vera þeim
styrkur.
Björgvin Sigurgeir Haraldsson.
Snorri Sveinn stýrði rólegu
deildinni hjá Ríkissjónvarpinu.
Undir hans stjórn var ævinlega
unnið ofsalaust og af yfirvegun, en
jafnframt af augljósri virðingu fýr-
ir yfirmanninum. Og samt gerði yf-
irmaðurinn fátt til að hefja sig yfir
einn eða annan. Bæði var að hann
þurfti þess ekki og þá ekki síður að
slíkt hefði verið andstætt eðli hans.
Sem aðvífandi leik-
stjóri átti ég gjarnan
athvarf hjá Snorra
Sveini. Mér fannst
gott að leita til hans
um eitt og annað sem
alls ekki þurfti að
tengjast leikmyndinni.
Tvisvar gekk ég svo
langt að biðja um að fá
að koma mér upp að-
stöðu við undirbúning
einhverra verkefna
inni á deildinni hjá
honum, einfaldlega
vegna þess að þar var
mest ró og vinnufrið-
ur. Það reyndist auðsótt mál.
Snorri Sveinn hafði einkar þægi-
lega nærveru, eins og það mun orð-
að nú til dags. Það leiddi af sjálfu
sér að viðræður okkar leiddust oft
inn á ýmiss konar vangaveltur sem
tengdust viðhorfum hans til mynd-
listarinnar. Myndir hans fengu líka
nýja vídd þegar hann útstkýrði
þær. Vinna hans með form og fleti
hafði gjarnan víðtækari merkingu
en virtist við fyrstu sýn.
Hann var fjölhæfur listamaður.
Hann málaði málverk með ýmis-
konar tækni, skreytti hús að utan
og innan, og bókaskreytingar hans
eru með því besta sem unnið hefur
verið á því sviði og nægir þar að
nefna einkar fallegar útgáfur á
smásögum eftir Halldór Laxness.
Og sem leikmyndahönnuður var
hann í fararbroddi á Islandi.
Þegar til stóð að leika Gullna
hliðið í sjónvarpssal, var fyrsta
hugmyndin sú að nota þekktar
vatnshtamyndir sem grunn að leik-
myndinni, til dæmis var reynt að
láta íbúa himnaríkis spígspora í
Húsafellsskógi Asgríms Jónssonar.
Þessi tilraun sýndi einungis að
mála þyrfti sérstaklega myndirnar
sem nota átti sem bakgrunn leiks-
ins. Það var Gunnar Baldursson,
náinn samstarfsmaður Snorra
Sveins um áratuga skeið, sem benti
á að enginn væri betur til þess fall-
inn að vinna það verk en sjálfur yf-
irmaður deildarinnar. Athyglisvert
er að sjálfur hafði Snorri Sveinn
ekkert annað um málið að segja en
að romsa upp nöfnum á góðum
listamönnum sem til greina kæmu.
Hann hafði meira að segja for-
göngu um að tala við þekktan list-
málara og bjóða honum verkið. Sá
hafnaði tilboðinu.
Eftir nokkrar fortölur tók Snorri
Sveinn sér stutt frí frá skrifstofu-
störfum og málaði allar myndirnar
sem síðan voru notaðar í uppfærslu
Sjónvarpsins á Gullna hliðinu.
Þessar myndir reyndust afar vel
sem bakgrunnur leiksins, en að
auki vöktu þær verulega athygli
einfaldlega sem vatnslitamyndir,
enda prýða þær nú fjölmarga veggi
í hinu nýja útvarpshúsi á Efstaleiti.
Þetta var frumlegasta og jafnframt
fallegasta leikmynd sem ég hef
nokkurn tíma komið nálægt.
Stundum þegar ég sá Snorra
Svein sitja með launaseðla eða önn-
ur kontórplögg þótti mér sem þessi
merki listamaður ætti að sinna
verðugri verkefnum. Þegar að
þessu var ýjað, gaf hann sjálfur lít-
ið út á það. Hann var hógvær mað-
ur að eðlisfari, og ég sá ekki betur
en að hann væri fyllilega sáttur við
hlutskipti sitt.
Eg er þakklátur fyrir öll sam-
skipti mín við Snorra Svein. Fjöl-
skyldu hans sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.
Ágúst Guðmundssonn.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect
einnig nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-
4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt
til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og vináttu við fráfall ástkærrar móður
minnar, tengdamóður, ömmu og fósturmóður,
ÁSLAUGAR KRISTINSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar K-2,
Landakotsspítala.
Guð blessi ykkur öll.
Kristinn Bjarnason, Sigrún Guðmundsdóttir,
Guðmundur Rúnar Kristinsson,
Ása Magnúsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför
ÖNNU MARGRÉTAR SIGURGEIRSDÓTTUR
frá Steinum,
Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og heimilisfólks á Kirkjuhvoli.
Ólöf Bárðardóttir, Kristján S. Guðmundsson,
Sigurgeir Bárðarson, Helga Ásta Þorsteinsdóttir,
Magnús Bárðarson, Björg Valgeirsdóttir
og aðrir aðstandendur.
SIGURÐUR
ÁRNASON
+ Sigurður Árna-
son fæddist á
Akranesi 24. júlí
1923. Hann lést 14.
maí síðastliðinn og
fór útfór hans fram
frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 3. júní.
Afreksmenn Is-
lands. Eg mundi halda
að hann Sigurður
Arnason afi minn væri
einn af þeim. Ekki í
einhvers konar
afreksíþróttum heldur
í jífinu sjálfu. Sigurður
Ámason, Siggi í teppi þekktu
flestir hann undir. Ef ég færi að
telja allar þær góðu minningar sem
ég á um hann held ég að heilt
Morgunblað væri ekki nægjanlegt.
En hann afi minn var mikill
veiðimaður og fór ég nú oft með
honum^ í veiðitúra þegar ég var
yngri. I einum slíkum fékk ég minn
fyrsta lax, 12 punda hrygnu, aðeins
átta ára gamall. Vegna þess að afi
var með fékk ég þá viðurkenningu
sem ég átti skilið, því að hann var
mjög hreinskilinn maður og sagði
alltaf skoðanir sínar hreint út og
fékk ég sko að heyra það, því mín
tilfinning varð sú að ég væri besti
veiðimaður í heimi eftir að afi var
búinn að segja mér hversu
ánægður og stoltur hann væri af
mér. En síðan leiddi tíminn
náttúralega í ljós, að þetta snýst
svolítið um heppni líka. En það var
alveg sama hvað það var, hann gat
alltaf stappað í mann stálinu og
látið mann verða stærri en maður
var í rauninni. Það er alveg
merkilegt, að minnsta kosti í mínu
tilviki, að atburður
eins og að fara út í
ísbúð með afa þegar
ég var lítill strákur
festist í mér og gleður
mig í minningunni.
Það sýnir líka hvað
mér þótti vænt um
hann og að mér þótti
flest - hvort sem það
var að fara í veiði eða
keyra í bæinn að vinna
eða hvað sem var -
gaman því ég var með
honum. Nú ert þú
farinn og ég mun
sakna þín mikið. Mér
fannst alltaf eins og við tveir
ættum heiminn og að þú mundir
lifa að eilífu. En svona er þetta,
maður tekur stærstu gjöfina í allri
veröldinni sem sjálfsagðan hlut og
allt í einu er hún tekin af manni
eins og hendi sé veifað.
Svo í lokin. Vertu blessaður afi
minn. Það var mikil ánægja að eiga
þig að. Vonandi ertu á þeim stað
sem þú vildir fara á. Innilegar
samúðarkveðjui- til fjölskyldu
okkar. Megir þú hvfla í friði.
Þinn dóttursonur,
Ástþór Helgason.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
FELAGSLIF
I.O.O.F. 3 = 1806125 = H.F.
UT
Hallvcigarstíg 1 • sími 561 4330
Dagsferd sunnudagínn 13.
júní Frá BSI kl. 10.30. Bakaleiðin.
'Gengið frá Flúðum að Stóru
Laxá. Gangan er helguð kon-
ungskomunni 1907. Verð 1.700/
1.900.
Næstu helgarferðir
18.—20. júní Skjaldbreiður —
Hlöðufell — Úthlíð. Gengið að
Skjaldbreið. Næsta dag er
gengið að Hlöðufelli og á sunnu-
degi er gengið um Brúarskörð
niður í Úthlíð. Gist í skálum.
18. —20. júní Básar. Gönguferð-
ir, varðeldur og góð stemmning.
Tilvalin fjölskylduferð.
19. —20. júní Fimmvörðuháls.
Gengið frá Skógum á laugar-
dagsmorgni. Gist í Fimmvörðu-
skála. Á sunnudegi er gengið í
Bása við Þórsmörk.
Jeppaferðir
12. júni. Dagsferð jeppadeildar á
Heklu. Brottför frá Essó, Ártúns-
höfða kl. 9.
18.—20. júni. Básar með jeppa-
deild. Jeppaferð í Bása. Boðið
verður upp á námskeið í vatna-
akstri.
Jónsmessunæturganga
25.-27. júní.
Hin árlega Jónsmessunætur-
ganga verður 25.-27. júní.
Næturganga yfir Fimmvörðu-
háls. Gist í Básum fram á
sunnudag. Varðeldur, grill-
veisla og góð stemmning i
Básum um Jónsmessuhelgi.
Nánari upplýsingar fást á
skrifstofu Útivistar eða á
heimasíðu: www.utivist.is.
Ný vefslóð hjá Útivist:
www.utivist.is
ðGA^
Dagskrá helgarinnar
12,—13. júni
Sumardagskrá Þjóðgarðsins á
Þingvöllum fer af stað nú um
helgina. ( sumar verður að vanda
boðið upp á fjölbreytta dagskrá
þar sem saman fer fræðsla,
skemmtun og holl útivera. Þátt-
taka er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Laugardagur 12. júní kl. 14:
Lambhagi — Vatnskot
Róleg og auðveld náttúruskoð-
unarferð með vatnsbakka Þing-
vallavatns. Hugað að vaknandi
gróðri og fjölbreyttu fuglalffi.
Hefst á bílastæði við Lambhaga
og tekur 3—4 klst. Takið með
ykkur nesti og verið vel búin til
fótanna!
Sunnudagur 13. júní kl.13:
Skógarkot
Gengin fáfarin leið um Sandhóla-
stíg í Skógarkot og til baka um
Skógarkotsveg og Fögrubrekku.
Lagt af stað frá þjónustumiðstöð.
Gangan tekur 2—3 klst. Hafið
gjarnan með ykkur nesti.
Kl. 14: Guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju
Prestur sr. Rúnar Egilsson. Org-
elleikari Ingunn H. Hauksdóttir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferð 13. júní kl.
10.30 Djúpavatn — Mél-
tunnuklif. Genginn spennandi
hluti Reykjavegarins hjá Núps-
hlíðarhálsi og víðar. Verð 1.500
kr. Um 5—6 klst. ganga. Brottför
frá BSf, austanmegin og Mörk-
inni 6. Stansað við kirkjug. Hafn-
arfirði.
Næstu ferðir eru kynntar á texta-
varpi bls. 619, heimasíðu Fl:
www.fi.is og DV: Fókus (ferðir) í
dv.is. Góða ferð!