Morgunblaðið - 12.06.1999, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
Evrópumótið í sveitakeppni að hefjast
Metþátttaka í opnum flokki
BRIPS
Malta
EVRÓPUMÓTIÐ í
SVEITAKEPPNI
Evrópumótið í sveitakeppni hefst um
helgina á Möltu og stendur yfir
næstu tvær vikur. Hægt er að fylgj-
ast með mótinu á Netinu á slóðinni:
http://www .bridge.gr/tourn
/Malta.99/malta.htm.
ÍSLENDINGAR senda lið til
keppni í opnum flokki og kvenna-
flokki á Evrópumótinu í brids, sem
sett verður á Möltu í dag, en einnig
er keppt þar í öldungaflokki og tví-
menningi kvenna. Metþátttaka er í
opna flokknum, 37 þjóðir, en í
kvennaflokki keppa 22 þjóðir.
íslenska liðið hefur undanfarin
átta ár ávallt verið í fremstu röð
þjóða í opna flokknum á Evrópu-
mótum. Besti árangurinn á þessu
tímabili er 4. sætið árið 1991 í Killar-
ney á írlandi. Þetta sæti gaf rétt til
keppni á heimsmeistaramótinu síðar
þetta ár sem Islendingar unnu, sæll-
ar minningar.
Róðurinn gæti orðið þyngri í
þetta skipti því enginn þeirra spil-
ara, sem myndað hafa kjarnann í
landsliðum Islands á síðasta áratug,
gaf kost á sér í þetta skipti. Ailir eru
liðsmennirnir á Möltu þó reyndir
spilarar og munu án efa ekki gefa
neitt eftir í baráttunni við hinar
Evrópuþjóðirnar.
Tveir í landsliðinu nú, Asmundur
Pálsson og Jakob Kristinsson, hafa
keppt áður á Evrópumóti. Asmund-
ur var fastamaður í landsliðinu á
sjöunda og áttunda áratungum en
hefur ekki keppt í því síðan 1979.
Jakob tók þátt í Evrópumóti árið
1995 og hann hefur einnig keppt á
nokkrum Norðurlandamótum, síð-
ast í fyrra ásamt félögum sínum í
landsliðinu nú, Magnúsi Magnús-
syni, Antoni Haraldssyni og Sigur-
birni Haraldssyni, og þeir urðu
nokkuð óvænt í 2. sæti. Sjötti mað-
urinn í Evrópuliðinu, Þröstur Ingi-
marsson, hefur ekki spilað fyrir Is-
lands hönd í opnum flokki áður og
þeir Magnús hafa einnig takmark-
aða spilareynslu saman. Fyrirliði
liðsins, Ragnar Hermannsson, er
einnig nýliði í því hlutverki, en hann
hefur oft áður komið að þjálfun og
stjómun bridsliða og er reyndur
íþróttaþjálfari.
EVRÓPUMEISTARAR ítala á sviðinu í Montecatini árið 1997. Frá
vinstri eru Carlo Mosca fyrirliði, Andrea Buratti, Lorenzo Lauria, Al-
fredo Versace, Giorgio Duboin, Massimo Lanzarotti og Norberto Bocci.
Endurnýjun hjá
mörgum þjóðum
Þegar farið er yfir þátttakenda-
listann sést að nokkur endurnýjun
er einnig meðal annarra sterkra
bridsþjóða. í landslið ítala vantar til
dæmis Lauria, Versace, Buratti og
Lanzarotti sem myndað hafa kjarn-
ann í liðunum sem unnið hafa tvö
síðustu Evrópumót og Rosen-
blumbikarinn. í liðinu nú eru Gi-
orgio Duboin og Norberto Bocchi,
sem einnig voru í síðasta Evrópuliði,
Soldano de Falco og Guido Ferraro,
auk tveggja nýliða.
Aðeins tveir af heimsmeisturum
Frakka eru í Evrópuliðinu nú,
Franc Multon og Christian Mari, en
aðrir liðsmenn er lítt þekktir. Það
vekur nokkra athygli að Hervé
Mouiel, einn heimsmeistaranna, er
nú jiðsstjóri Mónakóliðsins.
í pólska liðið vantar fjandvini ís-
lendinga, þá Balici, Zmudzinski,
Gawrys og Lasoci. í þeirra stað spila
heimsmeistaramir í tvímenningi,
Kwiecien og Pszczola, og aðrir liðs-
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
^igæða flísar
^ipæða parket
i^jyóð verð
^jyóð þjó
nusta
menn eru reyndir spilarar, Kowalski,
Romanski, Tuszynski og Jassem.
Hollendingar senda tvö af heims-
meistarapörum sínum til Möltu,
Wubbo de Bauer, Bauke Muller,
Jan Westerhof og Piet Jansen. Þá
vekur athygli að John Collins er
kominn í lið Breta en hann var síð-
ast í bresku landsliði árið 1981 og
lítið hefur heyrst til hans síðan. Þrír
nýliðar em í liðinu en kjölfestan er
tvíburamir Stuart og Gerald Tred-
innick.
Hin Norðurlöndin munu án efa
blanda sér í baráttuna um efstu sæt-
in. Norðmenn senda liðið sem kom
hingað á Bridshátíð í vetur, þá Tor
Helness, Jon-Egil Fumnes, Boye
Brogeland og Erik Sælendsminde
og með þeim em Jon Sveindal og
Arild Rasmussen sem em gamal-
reyndir landsliðsmenn. Svíar senda
svipað lið og venjulega, þá Bjöm
Fallenius, Mats Nilsland, Tommy
Gullberg, Lars Andersson, Peter
Fríkirkjan
í Reykjavík
Messa kl. 14.00
Altarisganga
Organisti Bjarni Jónatansson
Allir hjartanlega velkomnir.
Séra Hjörtur Magni Jóhannesson.
Qí
Iff
8
13 33
&§ @§
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 65
«■
Fredin og Magnus Lindkvist. Steen
Möller er kominn aftur í danska
landsliðið og spilar þar við Sören
Godtfredsen og með þeim em hjónin
Peter og Dorthe Schaltz, Sören
Christiansen og Morten Andersen.
Spennandi barátta
í kvennaflokki
íslenska kvennaliðið hefur á und-
anförnum ámm verið við miðjan hóp
á Evrópumótum. íslenska liðið sem
keppir á Möltu er orðið talsvert
reynslumikið og hefur æft vel und-
anfama mánuði og hefur því alla
burði til að blanda sér í baráttu
efstu liða. Liðið er skipað Esther
Jakobsdótturj Ljósbrá Baldursdótt-
ur, Önnu ívarsdóttur, Guðrúnu
Óskarsdóttur, Hjördísi Sigurjóns-
dóttur og Ragnheiði Nielsen. Stef-
anía Skarphéðinsdóttir er fyrirliði
en Einar Jónsson er þjálfari.
Kjarninn úr Evrópumeistaraliði
Breta er áfram í liðinu á Möltu, þær
Heather Dhondy, Liz McGowan,
Nicola Smith, Pat Davies og Sandra
Landy. Frakkar em með svipað lið
og varð Evrópumeistari fyrir fjómm
áram, þær Veronique Bessis, Dani-
elle Avon, Sylvie Willard og Bened-
icte Cronier. í þýska liðinu spila að
venju Daniele von Armin, Sabine
Auken, Beate Nehmert og Andrea
Raucheld.
Norðurlöndin em flest með sterkt
lið að venju. I sænska liðinu spila
m.a. þær Pia Andersson, Catarina
Midskog og Eva-Liss Göthe. í
danska liðinu spila m.a. Kirsten
Steen Möller, Bettina Kalkemp og
Charlotte Koch-Palmlund. Þá senda
Norðmenn kvennalið eftir margra
ára hlé.
Spilamennska hefst á sunnudag.
Ekki er enn ljóst hvemig mótstaflan
lítur út.
Guðm. Sv. Hermannsson
BODYSLIMMERS
NANCY GANZ
Q0
VALENTINO
INTIMO
WARNEKS
Aubade
1. hæð Kringlunni, sími 553 7355
Glæsilegur undirfatnaður
FSkálastærðir
AA-A-B-C-D-DD-E-F
I þeim efnum á enginn að s
Folksam tryggingafélagió sænska hefur tekiö
sér leiðandi hlutverk í öryggismátum með
þvi að meta öryggi bíta út frá
raunverulegum slysum. Rannsókn
Folksam tryggingafétagsins á líkamtegu
tjóni í 120.000 bifreiðaslysum í
Svíþjóð leiðir í tjós að Opel Astra er
öruggasti bíllinn í mióstæróarftokki
fjölskyldubíta.
NCAP er rannsóknarstofnun sem setur
á svið bifreiðaárekstra og rannsakar meó
vísindategri nákvæmni öryggi bítstjóra og
farþega. NCAP er strangasta árekstrapróf sem
gert er í Evrópu. Opel Astra fékk hæstu einkunn
hjá NCAP, fjórar stjörnur.
V.