Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 B 3 KNATTSPYRNA Njósnarí St. Johnstone fylgdist með fjórum leikjum DONALD S. Mackay, yfír- njósnari skoska úrvalsdeildar- félagsins St. Johnstone, var staddur hér á landi um helgina og fylgdist með fjórum leikjum í efstu og 1. deild. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var Mackay að fylgjast með fram- heijum en varð ekki vitni að mörgum mörkum í leikjum í efstu deild. Á föstudag sá hann 1. deild- arleik Stjörnunnar og KVA í Garðabæ, sem endaði 5:2 fyrir heimamenn og þijá jafnteflis- leiki í efstu deild á laugardag og sunnudag. Fyrst fylgdist hann með leik KR og Breiða- bliks og síðan með leik Skaga- manna og Leifturs í beinni út- sendingu í sjónvarpi, en báðir þessir leikir enduðu með markalausu jafntefli. Þá sá hann Víking og Grindavík gera 1:1 -jafntefli í Laugardal. „Eg á nokkra vini hér á Is- landi og ákvað að nýta tæki- færið meðan á dvöl minni stóð til þess að sjá hvort ég sæi efnilega leikmenn sem félagið gæti notað. Maður sér alltaf einhverja sem hafa hæfileika, en ég ætla ekki að nafngreina þá.“ Mackay sagði að þrátt fyr- ir að hann hafí ekki séð mikið af mörkum í leikjum efstu deDdar hafí hann séð margt at- hyglisvert í leikjunum fjórum. Mackay sagði að gæði ís- lenskrar knattspyrnu væru meiri en áður og lofaði frammi- stöðu íslenska landsliðsins, sagði að það hefði komið veru- lega á óvart í undankeppni heimsmeistaramótsins en það hefði sett heimsmeistara Frakka í erfíða aðstöðu í riðli þjóðanna tveggja. „Margir leik- menn hafa reynt fyrir sér er- lendis á síðustu árum og það er til góðs fyrir knattspymuna hér á landi því þeir kynnast nýjum hlutum og geta síðar miðlað af reynslu sinni. Þessi reynsla er þegar farin að skila sér hjá íslenska landsliðinu.“ Mackay vildi ekki segja til um hvort hann hygðist koma aftur hingað til lands í sumar til þess að skoða leikmenn, sagði að það væri alfarið undir knattspymustjóra félagsins komið. „Það er mikið af leikj- um í sumar sem hægt er að fylgjast með en einnig gæti komið til greina að félagið sendi hingað unga leikmenn til þess að þeir fái meiri reynslu áður en næsta tímabil hefst í Skotlandi. Þrátt fyrir að tals- verður getumunur sé á efstu deild í Skotlandi og Islandi geta skoskir leikmenn vel lært af þeirri knattspyrnu sem leik- in er hér á Iandi.“ Sex Skotar vom í leik- mannahópum Grindvíkinga og Víkinga á sunnudag og að- spurður hvað Mackay hafí fundist um frammistöðu þeirra sem léku í leiknum sagði hann að þeir hefðu gefíð sig alla í leikinn eins og Skotar gerðu ævinlega en þeir þyrftu greini- lega að bæta tæknina. „Þeir hafa hæfíleika en verða að leggja meiri rækt við sending- ar og tækni.“ Þrándur Sigurðsson, fyrirliði Víkinga, óhress með að ná aðeins jafntefli Ferguson aðlaður ELÍSABET Bretadrottning hyggst aðla Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóra Manchester United. Fergu- son, sem fagnaði tilnefningunni með fjölskyldu sinni í suðurhluta Frakk- lands um síðustu helgi, sagðist hlakka til að verða aðlaður af drottn- ingunni. „Ég er mikill þjóðernissinni, eins og flestir Skotar,“ sagði knatt- spyrnustjórinn. Ferguson var tilkynnt um að hann yrði aðlaður skömmu eftir að lið hans lagði Bayern Miinchen 2:1 í Meistaradeild Évrópu. Hann sagðist ekki halda að hann hefði hlotið aðals- nafnbótina fyrir árangur liðsins í vetur, en það vann þrjá titla, heldur fyrir framlag sitt til knattspyrnunn- ar og velgengni sem knattspyrnu- stjóri undanfarin ár. Ferguson kvaðst ekki myndi leyfa leikmönnum sínum að kalla sig „sir“ Ferguson í sinni návist, þess í stað vildi hann láta kalla sig „stjórann", eins og_ leikmenn hefðu hingað til gert. „Ég leyfi þeim ekki að kalla mig „sir“ á æfingum eða annars staðar þar sem ég er nálægur, en þeim er frjálst að gera það sem þeim sýnist að mér fjarstöddum,“ sagði Ferguson. „Þurftum á sigri að halda“ „ÉG er hrikalega svekktur með úrslitin því það voru aðeins fimn mínútur eftir þegar Grindvíkingum tókst að jafna leikinn. Við þurftum á sigri að halda til þess að komast nær efstu liðunum í deildinni, en herslumuninn vantaði til þess að það gengi eftir,“ sagði Þrándur Sigurðsson, fyrirliði Víkinga, sem gerðu 1:1-jafn- tefli við Grindvíkinga á Laugardalsvelli á sunnudagskvöld. Leikur liðanna var tilþrifalítill og fá marktækifæri sem litu dags- ins ljós. Grindvíkingar sóttu meira í upphafi leiks án þess Q[sij þó að skapa sér Þorsteinsson mörg marktækifæri. skrifar Hættulegustu færin í hálfleiknum komu hins vegar í hlut Víkinga. Fyrst komst Sumarliði Arnason, leikmað- ur Víkings, einn á móti Alberti Sæv- arssyni, markverði Grindvíkinga, sem var á réttum stað og varði vel. Síðan náði Arnar Hrafn Jóhannsson, leikmaður Víkings, skoti á markið af stuttu færi, en Albert var aftur á réttum stað og varði knöttinn í hom. Síðari hálfleikur byrjaði fjörlega er Grindvíkingurinn Paul McShane náði að skalla knöttinn að marki Víkinga, en knötturinn hafnaði í stöng. Ekki náðu leikmenn liðanna að fýlgja eftir líflegri byrjun og til- raunir þeirra til þess að byggja upp sóknir runnu flestar út í sandinn þrátt fyrir nokkur ágæt tilþrif, eink- um hjá hinum ungu miðjumönnum Laudrup til Ajax DANSKI knattspyrinimaðurinn Brian Laudrup, sem hætti hjá FC Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Ajax í Amsterdam. Laudrup, sem er þrítugur, ságði að fímmtán fé- lög hefðu haft samband við sig eftir að hann liætti hjá Kaup- mannahafnarliðinu. Knatt- spyi'nuferill hans spannar nú 13 ár. Hann hefur leikið með Brundby, Bayern Míinchen, Fi- orentina, AC Milan, Glasgow Rangers, Chelsea og nú síðast FC Kaupmannahöfn. Víkings: Bjama Hall og Hauki Úlfarssyni. Víkingum tókst að brjóta múrinn er þeir fengu vítaspymu á 72. mín- útu sem Sumarliði skoraði úr. Mark- ið hleypti miklu lífi í Grindvíkinga sem sóttu talsvert undir lok leiksins. Fyrst átti Grétar Hjartarson, besti leikmaður Grindvíkinga í leiknum, skemmtilega bakfallsspyrnu að marki sem Gunnar Magnússon, markvörður Víkings, varði vel, en hann stóð hins vegar ráðþrota er Grétar skallaði knöttinn framhjá honum og í netið 5 mínútum fyrir leikslok. Undir lokin fékk Colin McKee, leikmaður Víkings, ágætt tækifæri til þess að skora mark er Albert markvörður hætti sér of langt út úr markinu, en varnar- mönnum gestanna tókst að komast fyrir skotið. Þrándur fyrirliði Víkinga sagði vonbrigði að liðið náði ekki að halda forystunni út leikinn. „Það getur allt gerst þegar knetti er spyrnt fyrir markið, en honum [Grétari Hjartar- syni] tókst að ná fyrirgjöfinni og sneiða boltann í fjærhornið og ekk- ert við því að gera.“ Aðspurður sagðist Þrándur ekki sáttur við frammistöðu liðsins það sem af er móti og kvaðst hafa gert sér vonir um að það fengi fleiri stig. „Ég er sérstaklega ósáttur við úr- slitin gegn Leiftri í 4. umferð og nú gegn Grindvíkingum. Við töpuðum 3:0 fyrir Leiftri og vorum staðráðnir í að standa okkur betur gegn Grind- víkingum. Við sýndum mikla baráttu í þessum leik, en því miður tókst okkur ekki að ná í þrjú stig, sem hefði komið sér vel því aðrir leikir í umferðinni enduðu einnig með jafn- tefli. Öll stig skipta máli í þessari baráttu enda er skammt á milli efstu og neðstu liða.“ Morgunblaðið/Kristinn ÞORRI Ólafsson, varnarmaður Víkings, í baráttu við Duro Mijuskovic, sóknarmann Grindvíkinga. Helgi Bogason, aðstoðarþjálfari Grindavíkur Sáttur við jafntefli „VIÐ ætluðum okkur þrjú stig í leiknum. Þeir [Víkingar] náðu hins vegar að skora mark þegar skammt var til leiksloka og ég tel að við get- um verið sáttir við að ná að jafna leikinn þegar fímm mínútur voru eftir af leiknum," sagði Helgi Boga- son, aðstoðarþjálfari Grindvíkinga. Hann sagði að bæði lið hefðu skap- að sér nokkur færi í leiknum, en í heild hefðu úrslitin verið sanngjörn. Aðspurður um hvort honum hefði fundist vítaspymudómurinn réttlát- ur sagði Helgi að menn í búnings- klefa Grindvíkinga hefðu talið dóm- inn strangan og hann væri þeim að mörgu leyti sammála. „En þegar leikmaður rennir sér eftir knetti inni í vítateig er þessi hætta alltaf fyrú hendi. I raun var ekki mikil hætta fyrir framan markið þegar atvikið gerðist og mistök sem ollu því að Víkingar náðu að komast svona ná- lægt markinu og næla sér í víti.“ Helgi sagði að Grindavíkurliðið hefði fengið fimm stig eftir fimm umferðir, en það hefði fyrirfram gert sér vonir um að ná fleiri stigum í fyrstu umferðunum. „Næsti leikur í deildinni er gegn Keflvíkingum í Grindavík. Okkur hefur gengið vel gegn þeim á heimavelli undanfarin ár og ætlum að halda því áfrarn."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.