Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 4
'TTH' *\ CT OOO' fr/TTr rsr rr' r a m ij rrr rjrj 4 B ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ■ ÓMAR Sigtryggsson hefur yfirgefið herbúðir Fram og gengið til liðs við Þrótt, í 1. deild. ■ ÍVAR Jónsson, leikmaður Fram, hefur náð sér eftir handleggsbrot sem hann hlaut fyrir skömmu. ■ ARNAR Hallsson leikmaður Vfldngs var ekki með félagi sínu gegn Grindvíkingum á sunnudag vegna meiðsla. Þá er Sigurður Sighvatsson leikmaður Vfldngs enn meiddur. ■ BRYNJAR Björn Gunnarsson lék með Orgryte gegn Hammarby sem gerðu markalaust jafntefli í sænsku 1. deildinni. Orgryte er efst í deildinni með 22 stig. Helsingborg er í öðru sæti með 18 stig. ■ EINAR Brekkan lék með Örebro, sem vann Malmö 2:0 í sænsku 1. deildinni. Örebro er i 7. sæti deildarinnar. ■ HAMMARBY, sem Pétur Marteinsson lék með áður en hann gekk til liðs við Stabæk í Noregi, hefur ekki gengið vel í ár. Liðið var meðal efstu liða í fyrra en er nú í neðsta sæti. Ll Morgunblaðið/Jim Smart INGI Bjöm Albertsson Áréttri leið „ÞAÐ er vissulega gott að skora fjögur mörk á útivelli, en það er ekki nóg ef það dugar ekki til sigurs. Sér- staklega þegar liðið er tveim mörkum yfir þegar tíu mín- útur eru eftir af leiknum," sagði Ingi Björn Albertsson sem var að stýra Valsmönn- um í fyrsta sinn í sumar. Ingi Björn sagði að leik- mennirnir hefðu misst ein- beitinguna í leikslok og ekki átt svör við þungri pressu Keflvíkinga. „Þrátt fyrir það er ég sáttur. Það hefur verið mikil stemmning 1 hópnum 1 vikunni og það skilaði sér í leiknum. Við höfðum aðeins skorað tvö mörk fyrir þenn- an leik. Nú skorum við fjög- ur, þannig að við erum á réttri Ieið.“ Aðspurður um framhaldið sagði Ingi Björn að ætlunin væri að byggja á þeim grunni sem settur var fyrir leikinn á móti Keflvíkingum. „Við ætlum að bæta okkur enn frekar og leika skemmtilega knattspyrnu bæði fyrir leikmenn og áhorfendur. Við erum með ágætis hóp sem á eftir að styrkjast þegar líða tekur á sumarið." Komnir í botn- Morgunblaðið/Jim Smart LEIKMENN Vals fögnuðu fjórum mörkum í Keflavík. Hér fagna þeir öðru marki Amórs Guðjohnsen, sem kom þeim yfir 4:2. Tvö mörk Amórs dugðu ekki - Keflvíkingar náðu að jafna, 4:4. baráttuna ann auðveldlega framhjá Hjörvari Hafliðasyni, sem stóð í marki Vals- manna. Miðjuspilið hjá Keflavík var í skötulíki framan af leiknum. Liðið missti boltann oft klaufalega frá sér og ef Valsmennimir væru með beitt- ari sókn hefðu mörk þeirra getað orðið fleiri. Þrátt fyrir góðan mann- skap hefur Keflavíkurliðið ekki enn náð að smella saman í sumar. Það sýndi ágætis leik á köflum en það dugir ekki til, leika þarf vel allan leikinn. Um Valsliðið léku ferskari vindar en vanalega. Spumingin er hversu lengi það varir. Bæði liðin munu geta dregið ákveðinn lærdóm af þessum leik, en hann er sá að menn mega ekki sofna á verðinum, sama hversu útlitið er gott. Markasúpa KEFLVÍKINGAR tóku á móti Valsmönnum á laugardag. Hvorugt þessara liða hefur séð til sólar í sumar. Keflvíkingar hafa ein- ungis unnið einn leik og Valur ekki neinn, en hafa gert tvö jafn tefli. Leikurinn var með fjörugra móti og þegar fiautað var til leiksloka höfðu liðin gert átta mörk, lokatölur 4:4. Valsmenn byrjuðu af krafti og menn ætluðu greinilega að sýna mátt sinn og megin fyrir nýja þjálf- HHBHi arann. Var ákafinn Örn svo mikill að strax á Amarson annarri mínútu sýndi skrifar Gylfi Orrason dómari Ólafi Ingasyni gult spjald fyrir brot á Zoran Ljubicic. En krafturinn hjá Valsmönnum skilaði sér ekki í sókn- inni og það vom heimamenn sem skomðu fyrsta markið. Zoran tók homspymu á 20. mínútu og Ragnar Steinarsson framlengdi sendinguna á Karl Finnbogason sem skallaði boltann inn í markið. Markið virtist slá Valsmenn algjörlega út af laginu og kraftur þeirra fór þverrandi. Annað mark leiksins kom á 36. mínútu og var það gegn gangi leiks- ins. Arnór Guðjohnsen tók auka- spymu hægra megin fyrir utan víta- teig Keflvíkinga. Mikill hamagangur var í teignum og þegar boltinn var á leiðinni út fyrir endalínu kom Ólafur Ingason og sendi boltann með hælspymu á Jón Stefánsson sem kom boltanum í markið. Eftir þetta ríkti jafnræði með lið- unum. Vörn Keflvíkinga var ósann- færandi, en sókn Valsmanna var að sama skapi ekki beitt. Keflvíkingum gekk illa að halda boltanum og misstu hann oft á sínum vallarhelm- ingi, en Völsumnum tókst ekki að gera sér mat úr þeim tækifæmm. Rétt fyrir leikslok komust heima- menn aftur yfir. Ragnar Steinarsson sendi góða fyrirgjöf fyrir mark Vals- manna, Kristján Brooks kom á ferð- inni og kastaði sér fram og skallaði knöttinn glæsilega í markið. Keflvíkingar byrjuðu mun betur í seinni hálfleik og léku ágætis knatt- spymu á köflum, en miðja Valsmanna var sterk og áttu heimamenn erfítt með að skapa hættuleg marktæki- færi. Það kom svo að því að Amór Guðjohnsen fór að láta til sín taka. Hann hafði ekki látið mikið að sér kveða framan af leiknum, en hrökk svo í gang um miðjan hálfleik og skoraði tvö. mörk og fískaði víti á tæpum tíu múnútum. A 60. mínútu fiskaði hann víta- spymu, en Bjarki Guðmundsson markvörður hafði brotið klaufalega á honum. Sigurbjörn Hreiðarsson tók spyrnuna og Bjarki kom engum vömum við. Jöfnunarmarkið hleypti miklu lífí í leik Valsmanna og fimm mínútum síðar geystist Ólafur Inga- son upp hægri kantinn og gaf á Arnór, sem skaut öruggu skoti fyrir utan vítateig í bláhomið. Amór var ekki hættur, því á 69. mínútu skor- aði hann fjórða mark Valsmanna. Keflvíkingar misstu boltann klaufa- lega á miðjunni. Arnór skaust fram og fékk góða sendingu og var ekki í miklum vandræðum með að koma knettinum í netið. Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir heimamenn að Arnór Guðjohnsen, sem seint verður sagður vera skjótari en skuggi, skuli geta stungið vörn þeirra af að vild. Það sem eftir lifði leiks réðu Kefl- víkingar ferðinni. Þeir breyttu leik- skipulaginu, léku með þriggja manna vörn og settu meiri þunga í sóknarleikinn. A 82. mínútu minnk- uðu þeir muninn í eitt mark. Róbert Sigurðsson, sem kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik, kom auga á Kristján Brooks óvaldaðan inni í teig Valsmanna. Róbert gaf góða sendingu fyrir og Kristján skoraði örugglega framhjá mark- manni Valsmanna. Þrem mínútum síðar jafnaði annar varamaður, Marko Tanasic, fyrir heimamenn. Kristján Brooks skaut fóstu skoti að marki Valsmanna og Marko náði frákastinu og sendi bolt- „VIÐ erum ekki í neinni aðstöðu til að vera með allt á hælunum í leikjum," sagði Gunnar Oddsson, leikmaður og þjálfari Kefl- víkinga, eftir leikinn. „Þetta var mikilvægur leikur og ég á erfitt með að átta mig á því af hverju þetta gekk ekki upp hjá okkur.“ Keflvíkingar gáfust ekki upp þrátt fyrir að vera tveimur mörkum undir í seinni hálfleik og var Gunnar ánægður með þau umskipti sem áttu sér stað í leik liðsins undir lokin. „Við náðum loks góðum takti í spilið og jöfnuðum, eitt stig úr leik er betra en ekki neitt. Við erum komn- ir í botnbaráttuna og verð- um því að leggjast undir feld og átta okkur á hvað er að fara úrskeiðis hjá okkur.“ Sigurður Björgvinsson, sem þjálfar Keflvíkinga ásamt Gunnari, var ekki í vafa um ástæðuna fyrir úr- slitunum. „Menn ætluðu sér að sækja, en gleymdu varnarleiknum. Það vant- aði helminginn í leikinn." Morgunblaðið/Jim Smart KRISTJÁN Brooks fagnaði tveimui mörkum gegn Val. í Keflavfk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.