Morgunblaðið - 15.06.1999, Síða 6

Morgunblaðið - 15.06.1999, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA ÍBV og Fram gerðu jafntefli í eínum grófasta leik sumarsins ÍSLANDS- og bikarmeistarar Eyjamanna hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit í sumar og hinn sterki leikmannahópur iiðsins hefur verið brokkgengur í meira lagi. 1:1-jafntefii við Fram á Hásteinsvelli á sunnudag sýnir að nú geta Eyjamenn ekki einu sinni treyst á sigur á heimavelli í viðureignum sín- um og er nú svo komið að liðið á í sarpi sínum átta stig að loknum fimm leikjum, þar af þremur heimaleikjum. Þegar um tvöfalda meistara síðasta árs er að ræða lætur nær að tala um sjö stig töpuð fremur en átta stig unnin í því sambandi og Ijóst er að Eyjamenn verða hreinlega að hysja upp um sig brækurnar ef sigur á að vinnast á íslandsmótinu þriðja árið í röð. Ekki aðeins þarf að bæta leik liðsins heldur er og um- hugsunarefni að prúðasta lið deildarinnar í fyrra safnar nú að sér spjöldum og á sunnudaginn fengu fjórir leikmenn að sjá gula spjaldið. Ef ekki hefði komið til kjarkleysi dómarans hefði einum og jafnvel tveimur leikmönnum liðsins verið vikið af leikvelli fyrir ruddaleg brot. Því hafa menn ekki - hingað til - átt að venjast af hálfu Vestmannaeyinga. Bjöm Ingi Hrafnsson skrifar Leikur liðanna hófst af krafti og frá upphafi var ljóst að mikið var í húfi. Leikmenn nutu þess greinilega hve grasið á Hásteinsvelli er gott og gerðu í byrj- un nokkrar heiðar- legar tilraunir til að leika knatt- spymu en fljótlega tók harkan öll völd á vellinum og minna fór fyrir markvissu spili. Hinn gamalreyndi vamarjaxl í liði Fram, Jón f>. Sveinsson, varð fyrstur til að lenda í svörtu bókinni dómarans fyrir ljótt brot og skömmu síðar hefði Eyjamaðurinn ívar Bjarklind átt að fara sömu leið en af einhverjum ástæðum slapp hann með skrekkinn. Þar með var tónninn gefinn og pústrar og minni háttar líkamsmeiðingar sáust út um víðan völl. Ingi Sigurðsson fór fyrir sínum mönnum í Eyjaliðinu í slíkum leik, en þó ekki meira en dómarinn leyfði, og fyrir ágengni Inga kom fyrsta mark leiksins. Sævar Guð- jónsson, varnarmaður Fram, fékk knöttinn í vöminni frá Ólafi Péturs- syni markverði og vildi ekki betur til en svo að Sævar sendi á Inga Ekki tilbúinn? GÍSLI dómari Jóhannsson átti afar slakan leik í Vest- mannaeyjum og frammistaða hans setti því miður mikinn svip á leikinn. Er ávallt baga- legt þegar slíkt gerist, því leikur ÍBV og Fram var geysi- mikilvægur báðum liðum í toppbaráttu deildarinnar. Mikilvægi leiksins kom ber- lega í ljós í tilburðum leik- manna og góður dómari hefði strax átt að taka málin í sínar hendur, kalla menn til sín og setja hinum brotlegu stólinn fyrir dyrnar. Þetta gerði Gísli því miður ekki, heldur flautaði ótt og títt, áminnti leikmenn næsta tilviljunarkennt og án þess að tala við þá um leið, og brast svo kjark og þor er á reyndi og rautt spjald hefði verið eina eðlilega niðurstað- an. Ekki er spuming að leikur- inn var grófur og eflaust hefur ekki verið auðvelt að dæma hann. En ef menn hafa ekki kjark í slík verkefni er hvorki þeim né viðkomandi liðum neinn greiði gerður með að setja þá í jafn erfið verkefni. sem þakkaði kærlega fyrir sig með næsta auðveldu marki rétt innan vítateigslínunnar. Fram að markinu höfðu Eyjamenn sótt meira og stjórnað leiknum en ekki átt nein umtalsverð færi. Þær breytingar vom gerðar á uppstill- ingu liðsins að Hlynur Stefánsson og ívar Bjarklind vora færðir á miðjuna og virtist það gefa ágæta raun í byrjun; allténd unnu Eyja- menn flest návígi og voru oft við það að sleppa ^gegnum ótrausta vöm gestanna. Atökin á miðjunni kost- uðu þó sitt og einkum vöktu við- skipti Hlyns og Steinars Guðgeirs- sonar athygli því þeir slógust nán- ast eins og hundur og köttur í fyrri hálfleiknum. Hlaut Steinar gula spjaldið fyrir brot og skömmu síðar tók fyrirliðinn Hlynur sig til og sló Steinar greinilega 1 andlitið. Ekki hlaut Hlynur þó hina eðlilegu refs- ingu fyrir slíkt athæfi, þ.e. rautt spjald, heldur aðeins gult spjald og var sú ákvörðun dómarans, Gísla H. Jóhannssonar, auðvitað ekkert ann- að en hneyksli. Kjartan Antonsson, varnarmaður Eyjamanna, varð fjórði leikmaður- inn á vellinum til að hljóta áminn- ingu fyrir leikhlé en í því höfðu heimamenn sanngjama forystu, 1:0, þótt markið hefði vissulega verið af- ar slysalegt og komið upp úr engu. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Eyja- manna, gerði strax breytingu á liði sínu í hálfleik og tók af velli vamar- manninn Bjarna Geir Viðarsson og setti í staðinn færéyska landsliðs- manninn Mörkore. Sannarlega fækkaði í vörn heimamanna við þetta og var eins og við manninn mælt að sóknarmenn gestanna tóku að láta meira á sér bera. Þetta átti einkum við um Hollendinginn Marcel Orlemans sem vann giska vel til baka, fór samviskusamlega í öll skallaeinvigi og kallaði ótt og títt til samherja sinna, oftast í þeim til- gangi að hvetja til sendinga í stað kýlinga upp völlinn. Þar mælti Hollendingurinn laglega, því ná- kvæm stungusending Freys Karls- sonar inn fyrir vöm meistaranna var nóg til þess að Orlemans jafnaði metin og sást vel á vinnubrögðum hans þá að þar fer vanur marka- skorari. Hlynur Stefánsson varð að yfir- gefa völlinn strax eftir mark Framaranna vegna meiðsla. Það kom þó vart að sök því Hjalti Jóns- son gaf hvergi eftir í baráttunni á miðjunni og smám saman tóku Eyjamann aftur við stjómar- taumunum. Framarar stóluðu greinilega á skyndisóknir en annars lágu þeir fremur til baka og vörðust af skynsemi. Um hálfleikinn miðjan lá við að það reyndist þeim dýr- keypt er Steingrímur Jóhannesson hamraði knöttinn af stuttu færi eftir ágæta sókn en aðstoðardómarinn veifaði rangstöðu við litla hrifningu heimamanna sem þar töldu sig illa svikna. Undir lokin pressuðu heimamann nokkuð stíft en Framarar vörðust af miklum móð. Zoran Miljkovic, vam- armaður Eyjamanna, var stálhepp- inn að sleppa „aðeins“ með gula spjaldið fyrir hrikalegt brot á Ivari Jónssyni á hægri kantinum. Og undir lokin munaði minnstu að Framarar hreinlega stælu sigrinum er Höskuldur Þórhallsson brunaði einn upp völlinn í skyndisókn þegar varnarmenn Eyjamanna vora enn í sókn á hinum enda vallarins. Höskuldur náði þó ekki að nýta hið upplagða færi, var greinilega ekki nógu snöggur að hlaupa, og ívar Bjarklind gerði vel í að hlaupa á eft- ir honum og verjast. Höskuldur gaf á Hauk Snæ Hauksson, varamann Framara, sem skaut hnitmiðuðu skoti að marki en landsliðsmark- vörðurinn Birkir Kristinsson var vel staðsettur og varði vel. í því flautaði dómarinn til leiksloka. Jafntefli verða í heildina að telj- ast sanngjörn úrslit en af viðbrögð- um leikmanna að dæma að leik loknum er ljóst að heimamenn töldu tvö stig hafa tapast en Framarar voru að sama skapi sátt- ir við stigið sitt. Eyjamenn geta enda verið ósáttir við frammistöðu sína því ekki aðeins er lið þeirra ósannfærandi og aðeins svipur hjá sjón frá í fyrra, heldur virðist prúð- mennskan einnig á bak og burt og leikgleðin í lágmarki. Hringl með stöður leikmanna virðist ekki gefa nægilega góða raun og í vörninni Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson BARÁTTAN var mjög hörð í leik Eyjamanna og Framara á Hásteinsvelli á sunnudag. Steinar Guðgeirsson átti þá oft í harðri baráttu við fyrrverandi félaga sína í Eyjaliðinu og hefur hér betur gegn Rúti Snorrasyni (nr. 14). Eyjamaðurinn Hjalti Jónsson og Framarinn ívar Jónsson fylgjast með. er hinn gamalreyndi Miljkovic ekki nálægt því jafn sterkur og undan- farin ár. Þá hefur Hlynur fyrirliði Stefánsson ekki heldur náð sér á strik, þráðurinn hans virðist grun- samlega stuttur og annað rauða spjaldið í þremur leikjum hefði verið furðuleg uppskera hjá jafn reyndum og frábærum knatt- spyrnumanni. Enn er þá ótalinn Baldur Bragason, einn besti miðju- maður landsins um margra ára skeið. Hann er geymdur á vinstri kantinum í Eyjaliðinu, er þar eins og þorskur á þurru landi og nýtur sín alls ekki. Miklu munar er slíkir lykilmenn ná sér ekki á strik og á meðan er ekki mikill meistarabrag- ur á Eyjaliðinu. I raun má segja að aðeins Ingi Sigurðsson hafi leikið af eðlilegri getu en ívar Ingimars- son var einnig traustur. Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, er á hinn bóginn greinilega á réttri leið með sitt lið. Þar fer saman ágætur leikur á köflum og það að leikmenn reyna ekki mikið meira en þeir hafa getu og burði til. Enn sem fyrr stóð Jón Þórir Sveinsson upp úr í jöfnu liði þeirra. Hins vegar verða þeir, eins og Eyjamenn, að taka sig saman í andlitinu og fækka brotum sínum því grófur leikur hef- ur ekki hingað til átt upp á pallborð- ið í Safamýrinni fremur en í Vest- mannaeyjum og vonandi er það ekki að breytast. „Gaman að skora“ Iollenski sóknarmaðurinn Marcel Orlemans skoraði í öðr- um leik sínum með Fram og tryggði Safamýrarliðinu dýrmætt stig á erf- iðum útivelli. Orlemans hefur verið iðinn við markaskoran þar sem hann hefur leikið og sagðist eftir leikinn í Eyjum á sunnudag vera mjög ánægður með markið. „Það er alltaf gaman að skora, sérstaklega mikilvæg mörk eins og þetta. Sendingin sem ég fékk [frá Frey Karlssyni] var frábær og ég gat varla annað en skorað,“ sagði Hollendingurinn. Orlemans segist hafa náð að sjá nokkra leiki í deildinni frá því hann kom og viðurkennir að liðin leiki flest mun harðari knattspymu en hann eigi að venjast. „Hraðinn í leikjunum er mikill og maður þarf að hafa sig allan við í baráttunni. Vissulega þætti mér betra ef leik- menn spiluðu meira sín á milli og fækkuðu aðeins þessum tilgangs- lausu langspörkum fram völlinn. Við reyndum að spila í þessum leik, en andstæðingurinn var erfiður og leikurinn kannski nokkuð grófur. Ég gat séð KR leika á laugardag og hafði verið sagt að þeir væra mjög góðir. Vissulega spiluðu þeir meira saman en mörg liðin, en samt voru þeir ekki eins góðir og mér hafði verið sagt. En ég er nýkominn til landsins og enn er mikið eftir af mótinu. Því er betra að vera ekki með ótímabærar ályktanir,“ sagði Orlemans. Vítaverð framkoma EYJAMENN voru allt annað en sáttir við jafnteflið í leiknum og í lokin spöruðu þeir síst stóru orðin í garð dómara leiksins. Slíkt getur vart talist til fyrirmyndar, en getur þó hent í hita leiksins og er oftast gleymt litlu síðar. Oprúðmannleg framkoma í garð andstæðingsins er hins vegar önnur saga og Ingi Sigurðsson, einn leik- reyndasti leikmaður íslandsmeistar- anna, gerði sig sekan um vítaverða framkomu eftir leik þegar hann gekk !■ vasklega að Frey Karlssyni, einum yngsta leikmanni Framara, og hótaði í honum með miklum tilþrifum að hann skyldi hafa verra af ef hann þegði ekki. Gerðist þetta fyrir fram- an Ijölda áhorfenda og setti slæman uj blett á leikinn, sem var þó nógu gróf-íö- ur fyrir. Morgunblaðið hefur fengið staðfest að eftirlitsdómari KSÍ varð vitni að umræddu atviki og lét þess getið í skýrslu sinni um leikinn. Má því bú- ast við að framkoma Inga komi til umræðu hjá aganefnd Knattspyrnu- sambandsins á fundi hennar í dag. Mörkore lék með Eyjamönnum NÝR leikmaður Eyjamanna fékk sína eldskírn í seinni hálfleik og var þar færeyski landsliðsmaðurinn Allan Mörkore. Sá er framherji og getur einnig leikið framarlega á miðjunni. „Mörkore fékk tækifæri í seinni hálfleik og stóð sig þokkalega. Hann á eftir að laga sig að leik okkar og verða sterkur í baráttunni,“ sagði Bjarni þjálfari Jóhannsson um hinn nýja leikmann sinn, sem kom til Eyja b[ eftir að hafa leikið tvívegis með fær- - eyska landsliðinu í vikunni og náði ekki að æfa með Eyjaliðinu fyrir leik-ái inn gegn Fram. Fer ekki á milli mála sl. að þar fer sterkur leikmaður, stór og g>..- fylginn sér. Steinar Guðgeirsson barðist gegn gömlu félögunum í Eyjum „Hlynur sló mig í andlitið“ STEINAR Guðgeirsson, fyrirliði Fram, átti ágætan leik gegn Eyja- mönnum, en með þeim varð hann einmitt tvöfaldur meistari á síðustu leiktíð. Steinar lenti oft í harkalegri baráttu á miðjunni og einkum vakti athygli hve mjög þeir börðust hann og Hlynur Stefánsson fyrirliði IBV. Enduðu þau viðskipti með því að Hlynur sló greinilega til Steinars svo hann féll við, en dómarinn gaf Hlyni aðeins gula spjaldið fyrir. „Hlynur sló mig í andlitið, ég held að það hafi flestir á vellinum séð. Þetta var mikill baráttuleikur og fór út í hreina vitleysu í fyrri hálfleik, sem var grófur. En jafntefli í Eyj- um eru alls ekki slæm úrslit fyrir okkur og sýna að allt er hægt í deildinni." Telurðu að Eyjamenn séu með jafn sterkt lið ogífyrra? „Já, það held ég. Þeir eiga eftir að ná upp meiri styrk í sinn leik og verða erfiðir viðfangs. Við fóram þrír frá þeim og þeir hafa fengið sterka leikmenn í staðinn." Steingrímur skoraði ekki STEINGRÍMUR Jóhannesson, sá mikli markakóngur, náði ekki að skora gegn Frömurum og þykja það mikil firn í Eyjum, enda hefur Steingrimur skorað í siðustu ellefu heimaleikjum í röð - samtals nítján mörk. Hins vegar hefur Steingrími lítið gengið í framlínu meistaranna í útileikjum og þar er svo komið að hann hefur ekki náð að koma tuðrunni í netið sjö leiki í röð. í núuútum talið er það vel á sjö hundruð mínútur í leik. ^AIIs ekki áfall fýrir okkur“ Ijarni Jóhannsson, þjálfari lEyjamanna, sagði eftir leikinn að jafntefli væru ekki þau úrslit sem hann hefði kosið sér. „Við fengum fullt af færam, en þeir í raun aðeins tvö almennileg en samt náðum við aðeins jafntefli. Markið sem við fengum á okkur var mjög klaufalegt og í raun má segja það um okkar mark líka. En mér fannst við stjórna leiknum og vera betri,“ sagði hann, en viðurkenndi að undir lokin hefðu Eyjamenn verið heppnir að tapa ekki öllum stigunum. „En ég tel líka að löglegt mark hafi verið tekið af okkur þeg- ar Steingrímur skoraði og rang- staða var dæmd. En það mun lík- lega aldrei sannast.“ En hvaðmeðhörkuna íleiknum? „Leikurinn leystist upp í óþarfa hörku, enda mildð í húfi og Framar- ar vora greinilega komnir hingað til að ná í eitt stig - jafntefli. Það vora nokkur brot fremur gróf, en það er aðeins einn maður sem stjómar leiknum og undir honum er komið hvort leikurinn fer úr böndunum eða ekki. Þannig var Steinar [Guð- geirsson] t.d. búinn að ergja Hlyn mjög áður en hann braut á honum og svo fór að Hlynur fór meiddur af leikvelli. En dómarmn hafði alls ekki næg tök á leiknum." Er ekki áfall að hafa tapað sjö stigum í fímm fyrstu leikjum móts- ins? „Nei, þetta er alls ekki áfall fyrir okkur. Islandsmótið er að spilast þannig að allir geta tekið stig af öllum, hvar og hvenær sem er. Vissulega hefði ég viljað sigur í þessum leik og við erum ekki beinlínis þekktir fyrir að missa af sigrum hér á heimavelli. En það var margt jákvætt í okkar leik og einnig ýmislegt sem betur mætti fara. Við verðum bara að laga það fyrir næsta leik og verðum tilbún- ir fyrir KR-ingana hér á laugar- dag.“ Lflill meistara bragur á leik Eyjamanna ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 B 7 Sprunga en vantar enn vök „MARK er alltaf markmiðið og þegar færin eru mýmörg er það enn súrara að skora ekki því í leiknum var það ekki bara að færi væru mörg heidur vorum við algerlega að yfir- spila mótherjana og leika góðan fótbolta - það vantar það sem telur mest - mörkin,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari Skagamanna að leikslokum. „Ég var sáttur við allt nema að fá ekki mark, við höfðum leikinn algerlega í okkar höndum þar til okkar maður fer útaf, sem mér fannst harður dóm- ur.“ Er mikil pressa á liðinu um árangur? „Mér hefur ekki fundist það fram að þessu, við höfum reynt að hugsa eins lítið um það og hægt er og um leikina sem búnir eru sem liðna tíð og litum fram á veg. Við skoruð- um eitt mark á móti Fylki og vonuðum að það myndi brjóta ísinn en það er bara komin sprunga og spurning hvort að ekki komi vök til að fiska úr,“ sagði Logi spakmannlega. Það fiska ekki allir sem róa ÞAÐ fiska ekki endilega allir sem róa og þá lexíu fengu Skaga- menn að læra á laugardaginn þegar Leiftursmenn sóttu þá heim á Skipaskaga, því þrátt fyrir harða hríð að marki gestanna létu mörkin á sér standa og lauk leiknum með 0:0 jafntefli. Skaga- menn eru því enn án sigurs í næstneðsta sæti deildarinnar en stig norðanmanna heldur þeim fyrir ofan miðja deild. Alexander Högnason, fyrirliði Skagamanna, var vonsvikinn að leikslokum. „Það eru gífurleg vönbrigði að fá ekki þrjú stig úr þessum leik, því við vorum að spila virkilega vel, en það var einhver hindrun fyrir framan mark þeirra sem við náðum ekki að yfirstíga. Við verðum bara að vera jákvæðir og vona að sigur fari að koma. Það er pressa á okk- ur og við verðum bara að höndla hana, en ég vona að í næsta leik verði meira af fólki til að styðja við bakið á okkur, við þurfum vissu- lega á því að halda núna því það er ekki nóg að styðja bara í vel- gengni,“ sagði Alexander og hefur trú á að sigur sé innan seilingar. „Markmiðið í dag var eins og í öllum leikjum að berjast, en af því hefur ekki verið nóg í sumar. Nú var barist af meiri hörku og það skilaði sér svo að ég trúi ekki öðru en það fari að koma sigur. Stund- um er þetta svona í fótboltanum, það gengur ekki allt eftir, en það þýðir ekki að örvænta þó að topp- baráttan sé langt undan heldur vinna sína leiki og spá ekki í hvem- ig leikir hinna liðanna fari.“ Skagamenn náðu fljótlega góð- um tökum á leiknum. Sóknarmenn Olafsfirðinga komust lítt áleiðis gegn sterkri vörn ÍA með Reyni Leósson á miðjunni og lentu oft í rangstöðugildram þó að þeim tæk- ist stöku sinnum að koma boltan- um fyrir mark ÍA. Aftur á móti jókst sóknarþungi heimamanna stöðugt, en vamarmenn Leifturs vora vandanum vaxnir. En þegar einn þeirra var rekinn af velli þyngdist róðurinn á ný. Síðari hálf- leikur hófst með skothríð að marki Leifturs og boltinn small í stöng og slá auk þess sem varið var á línu, en mörkin létu á sér standa. Þegar skothríðin skilaði ekki árangri reyndu Skagamenn meira að spila sig í gegn en vöm Leifturs hélt vel. „Þetta var erfitt, við misstum mann út af og þurftum því að þjappa okkur enn meira saman og reyna að gera það besta úr stöð- unni og við vörðumst vel, vörnin small saman og við fengum okkar skyndisóknir,“ sagði Hlynur Birg- isson, varnarmaður Leifturs, sem átti stórleik. „Skagamenn sýndu í byrjun að þeir myndu gefa sig alla í leikinn og við vissum að þetta yrði sérstaklega erfitt fyrsta hálf- tímann, eins og raunin varð á, en síðan myndum við komast meira inn í leikinn. En þá misstum við mann út af og erfitt var að komast meira inn í leikinn, svo í heildina getum við því verið sáttir við jafn- teflið.“ Matjiane lofar góðu AKURNESINGAR tefldu fram nýjum liðsmanni á laugardaginn þegar Suður- Afríkubúinn Kenneth Oupa Matjiane lék sinn fyrsta leik. „Hann hefur sýnt að hann kann fótbolta og lofar góðu en við sjáum til,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari eftir leikinn um hinn nýja leikmaun, sem er á mánaðarreynslutíma. Fyrirliðinn, Alexander Högnason, tók í sama streng. „Það er gott að * spila á hann og það skap- ast spil í kringum hann þó að færin hafi ekki verið mörg en ég hef trú á að hann nýtist okkur ágæt- lega.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.