Morgunblaðið - 15.06.1999, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.06.1999, Qupperneq 12
TORFÆRA wmammmmBam Morgunblaðið/Gunnlaugur Einar Briem GUNNAR Pálmi Pétursson frá Höfn í Hornafirði náði öðru sæti á götujeppa og lét gamminn geisa í vatnselg í timaþraut. Sigurður Arnar Jónsson stefnir á titilsókn eftir sigur í öðru torfærumóti ársins Lipurð og útsjónar- semi skilaði gullinu ÁHUGAMENN héldu að það heyrði til und- antekninga að götujeppar gætu unnið tor- færumót, lagt sérútbúna jeppa að velli, eft- ir að slíkt henti í fyrsta móti ársins fyrir nokkrum vikum. Þá vann Ásgeir Jamil All- ansson á götujeppa. Núna varð Hornfirð- ingurinn Gunnar Pálmi Pétursson á götu- jeppa í öðru sæti í keppni í Jósepsdal á sunnudaginn, en Akureyringurinn Sigurður Arnar Jónsson á sérútbúnum jeppa fyrstur. Munaði aðeins 20 stigum á þeim. Ásgeir Jamil varð sjötti og leiðir íslandsmótið, á götujeppa. Hriktir því í stoðum meðal öku- manna á sérútbúnum ökutækjunum eftir fyrstu tvö mót ársins. Greinilegt er að miklar og dýrai- græjur eru ekM leiðin að titilinum, a.m.k. ekki á fyrri- hluta keppnistímabilsins. Sigurður Arnar Jónsson er síst reyndur miðað við þá öku- Gunnlaugur kappa sem hann mætir. Margir Rögnvaldsson með reynslu sem skiptir nærri ein- skrífar um tug ára. En útsjónarsemi og lipurð er það sem skilar honum í toppsætið um helgina. „Mér fmnst mikilvægt að velja aksturslínurnar í þrautunum þannig að ég sé ekki að sópa niður dekkjum og fá refsingu. Reyni að sneiða framhjá dekkjum, reyni ekki við ókleif börð, til að halda jeppanum í lagi í gegnum alla keppnina,“ sagði Sigurður Arnar í samtali við Morgunblaðið. Hann er rútubílstjóri hjá Sérleyfis- bílum Akureyrar og það hjálpaði honum óneitan- lega að hafa tamið ökutæki sitt nokkur kvöld fyrir keppnina í Jósepsdal. Slæm byrjun á heimavelli „Mér gekk illa í íyrsta mótinu, sem var á heima- velli. Beygði stýristjakk og braut millikassa og varð Morgunblaðið/Gunnlaugur Einar Briem SIGURÐUR Arnar Jónsson vann sigur eft- ir vandaðan undirbúning og æfingaakst- ur fyrir keppnina í Jósepsdai. að hætta eftir fjórar þrautir, sem var grátlegt," sagði Sigurður. Hann smíðaði nýtt ökutæki í vetur, kannski af vanefnum miðað við aðra keppendur sem stefna á toppinn og notaði vél og hásingar úr jeppa, sem hann ók í íyrra. „Ég græddi mikið á því að prófa jeppann rækilega eftir fyrsta mótið og hristi úr honum veikleikana, auk þess að fá akst- ursæfingu. Ég ætla að leggja áherslu á það að aka mikið á milli móta. Það stoðar lítið að mæta beint í mót, æfingalaus. Undirbúningurinn er það sem skilar árangri. Það sannaðist í Jósepsdal." „Mér gekk vel í þrautunum þar og fannst skipu- lagið til fyrirmyndar og brautinar skemmtilegar. Ég klúðraði reyndar fyrstu þraut, lenti kjánalega eftir stökk sem olli mér vandræðum. Var aðeins fimmti eftir fyrstu tvær þrautirnar. Svo vann ég vel á í 3. og 4. þraut af átta sem við tókumst á við. Ég á kannski ekki möguleika á tilþrifaverðlaunum í mótum, en reyni að skila jeppanum gegnum þrautirnar af kappi, en með forsjá. Það er líka alltof dýrt að skemma hluti, nóg kostar þetta samt. Það er betra að mæta í allar þrautir og fá einhver stig í hverri.“ Hefur augastað á meistaratitlinum „Mér líst vel á stöðuna í íslandsmótinu og mun berjast við toppana um meistaratitilinn. Ég hélt að ég hefði glatað möguleikanum eftir fyrsta mótið. Götujepparnir hafa staðið sig vel og Gunnar Pálmi sýnir það að þekkja hegðun jeppans skilar góðum árangri. Því mun ég leggja allt kapp á að ná tökum á nýsmíði minni milli móta, með stöðugum æfing- um. Svo vona ég að keppt verði á Egilsstöðum í júh', þó talað sé um að keppa frekar í Jósepsdal aft- ur. Mér finnst það ekki spennandi. Það er skemmtilegra að vera á mismunandi svæðum og keppnin á Egilsstöðum býður alltaf upp á skemmtileg tilþrif,“ sagði Sigurður Amar Jónsson. m Liðfrá Eyjaálfu líklega beint á HM ALÞJÓÐA knattspyrnu- sambandið, FIFA, íhugar að gera breyt ingu á úr- Itökureglum fyrir heims- meistarakeppnir og heim- ila þvf liði sem vinnur Eyjaálfukeppnina að fara beint í lokakeppnina í stað þess að þurfa að taka þátt í sérstakri keppni um sæti á HM. Búist er við að ef breytingin verði að veruleika geti hún átt stað fyrir lokakeppnina árið 2002. Samkvæmt þeim reglum sem eru í gildi verður lið, sem vinnur Eyjaálfú- keppnina, að leika við landslið sem ekki hefur tekist að komast áfram í undankeppnií annarri álfú. Búist er við að það land í Eyjaálfú sem hagn- S ist mest á þessari breyt- ingu verði Ástralía, sem hefúr fallið út fyrir Skotlandi, Argentínu og Iran fyrir síðustu þijár lokakeppnir HM. ■ ÁSGEIR JAML ALLANSSON er með 26 stig í stigakeppni öku- manna eftir mót helgarinnar. Hann ekur götujeppa. Einar Gunnlaugs- son er með 24, Gísli G. Jónsson 23, Sigurður Amar Jónsson 20 og Gunnar Pálmi Pétursson 15. ■ SIGURÐUR ARNAR JÓNSSON hlaut 1.905 stig í keppninni í Jós- epsdal en götujeppamaðurinn Gunnar Pálmi Pétursson 2.160. Einar Gunnlaugsson 1.985, Ragn- ar Skúlason í sinni fyrstu keppni á árinu 1.975, Gísli G. Jónsson 1.950 og Ásgeir Jamil 1.910. ■ HARALDUR PÉTURSSON á nýsmíðuðum jeppa braut enn drif- búnað og nýstárleg smíði hans hef- ur ekki enn náð að komast á topp- inn, þrátt fyrir mikinn hug Harald- ar. ■ GÍSLI G. Jónsson meistari í akstri í tímabraut var ólánsamur í vatnselg sem var í tímabrautinni. Sprengdi heddpakkningu í hama- ganginum og tapaði dýrmætum hestöflum í lokaþrautunum fyrir vikið. ■ EINAR Gunnlaugsson sagðist hafa klúðrað sigurmöguleikanum í 3. braut, eftir að hafa sleppt enda- hliði, sem hann sá ekki. Fyrir lokaþrautina var hann þriðji að stigum og vildi næla í gullið með því að klífa erfitt barð. En barðið hafði betur og Einar náði aðeins í brons. ■ GUNNAR Pálmi Pétursson, sem varð annar að stigum á götu- jeppa, býr á Höfn í Homafirði og rekur þar bílaverkstæði. Hann hef- ur keppt manna lengst og á sama jeppa sem hann'getur einnig notað á götum heimabæjar síns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.