Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 4
23. júní - 6. júLí
Erfiðir tímar hjá
Brooke Shields
íþróttir
Beinar útsendingar
f sjónvarpi .............29
Morgunblaðið á
netinu www.mbl.is
Morgunblaðiö / Dagskrá Útgefandi Árvakur hf. Kringl-
unni 1 103 Reykjavik. SÍMAR: SkiptiborÖ: 5691100
Auglýsingar 5691111. Dagskrá: beinn sími: 5691259
SJÓNVARP .....623
ÚTVARP.......30-43
Ýmsar stöðvar . .30-43
Krossgátan .......44
Þrautin þyngri ... .45
Lyfjanauðgun
Heimildamynd um fórnarlömb
nauðgara...............9
Andmann
Dýrslegur einkaspæjari . .11
David Strickland
Óvæntur harmleikur . . .16
Tilkynning tennisstjörnunnar
Andre Agassi og leikkonunnar
Brooke Shields um aö þau
væru að skilja
eftir næstum
tveggja ára
hjónaband kom
eins og þruma
úr heiðskíru
lofti því hjóna-
band þeirra
hafði verið talið
til fyrirmyndar-
hjónabanda í
Hollywood Þau
leggja þó mikla
áherslu á það
aó þau séu enn mjög góðir
vinir og séu í daglegu sam-
bandi.
Sigur Agassi á opna franska
meistaramótinu f tennis í júnf-
byrjun bendir til þess að hann
sé að komast á réttan kjöl en
honum hafði ekki gengiö nógu
vel undanfariö. Shields var þó
ekki á staðnum. „Hún hefði
viljað vera hér, en er að vinna
hörðum höndum að kvik-
mynd," er haft
eftir Agassi.
Shields hef-
ur átt erfitt
undanfarið því
auk þess að
standa í skiln-
aði við Agassi
varð hún fyrir
miklu áfalli
þegar meðleik-
ari hennar, Da-
vid Strickland,
í þáttunum
„Laus og liðug" fyrirfór sér í
mars síðastliðnum. „Dauöi
hans hefur breytt lífi mínu fyrir
fullt og allt. Ég hef aldrei vitað
eins hörmulegan atburð," seg-
ir Shields en bætir því við að
hún viti að tfminn lækni öll
sár og að hún muni komast í
gegn um þessa erfióu tíma.
Brooke Shields og Agassi
Helen úr
Nágrönn-
um látin
Ástralska leikkonan Anne
Haddy er lék til margra ára í
sápuóperunni Nágrönnum er
látin, 68 ára aö aldri. Hún varð
að yfirgefa þáttinn fyrir tveimur
árum, en í tólf ár hafði hún
leikió ömmuna Helen Daniels.
Haddy þjáðist af ýmsum kvill-
um. Hún fékk hjartaáfall árið
1979 og fór í aðgerð af þeim
Anne Haddy í hlutverki
sínu f Nágrönnum.
sökum árin 1982 og 1983.
Hún fór einnig í mjaðmaaðgerö
áriö 1996 og hafði lengi átt við
nýrnabilun að stríöa.
„Sjónvarpsstöðin harmar frá-
fall hennar," sagði talsmaður
Ten Netwprk sem sýndi Ná-
granna í Ástralíu. „Anne hafði
ekki verið í þáttunum í tvö ár en
kom samt alltaf annað slagið
hingað til að svara aðdáenda-
bréfum." Persóna hennar í þátt-
unum lést fyrir framan sjónvarp-
ið er hún horfði á brúðkaup
barnabarns síns, sem Jason
Donovan lék en brúður hans
var leikin af Kylie Minogue.
í raunveruleikanum lést
Anne á sjúkrahúsi 6. júní síð-
astliöinn og skilur eftir sig eig-
inmann, sex börn og fimm
barnabörn.
EJFólk
Fékk konfekt
frá Kubrick
• Leikkonan
Leelee Sobieski
er aðeins sextán
ára en lék engu
að sfður Jóhönnu
af Örk í dýrustu
sjónvarpsþátta-
röð sem gerð hefur veriö. Hún
lék einnig í myndinni „Eyes
Wide Shut" undir leikstjórn St-
anley Kubrick sem lést fyrr á
árinu. „Ertökum lauk skrifaði
hann mér og sendi mér og
móður minni konfektkassa,"
segir Sobieski í nýlegu viðtali
við People. „Ég borðaði síð-
asta molann fyrir nokkrum
mánuöum og það átti að boða
gæfu. Núna vildi ég að ég
hefði geymt hann." Hún ætlar
þó alltaf að halda upp á bréf
leikstjórans. „Stanley skrifaði:
„Mér finnst leitt að ég skuli
ekki hafa haft tíma til aö sýna
þér London. Næst þegar þú
kemur skal ég fara með þig í
skoðunarferð."
—★★★—
Rick Spring-
field aftur í
sviðsljósið
• Einhverjir
muna sjálfsagt
eftir Rick Spring-
field frá byrjun
níunda áratugar-
ins þegar hann
lék kyntröllið Dr.
Noah Drake í
þáttunum General Hospital og
sló í gegn með smáskífulagiö
„Jessie’s Girl". Hann hætti
síöar í þáttunum til að ein-
beita sér að tónlistinni og
kvikmyndum en þegar myndin
„Hard to Hold" náði engri að-
sókn fór að halla undan fæti
hjá honum og brátt hvarf hann
úr sviðsljósinu. Nú er hann
hins vegar farinn að gera vart
við sig aftur og lék nýlega ást-
mann Brooke Shields í tveim-
ur þáttum af Lausri og liöugri
eða „Suddenly Susan" og gaf
út fyrstu breiöskífu sína,
„Karma", sem fékk ágæta
dóma í Rolling Stone.
4