Morgunblaðið - 23.06.1999, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.06.1999, Blaðsíða 9
□ föMc Lyfjanauðgun á dagskrá Sjónvarpsins Skelfingin er ofboðsleg Á undanförnum árum hefur borið á því að nauögarar byrli fórnarlömbum sínum svefnlyf á skemmtistöóum. Sjónvarpið sýnir 6. júlí kl. 20.10 breska heimildamynd þar sem fjallaö er um afbrot af þessu tagi og rætt við kon- ur sem hafa lent I þessum óhugnaöi. Myndin ætti að vekja áhuga margra, því þessi vandi hefur gert vart við sig hér á landi, og er umræöan um hann þónokkur. GANGA LÍKT OG í SVEFNI Þórunn Þórarinsdóttir hjá Stígamótum segir að fyrsta konan hafi leitað til þeirra fyrir sjö árum vegna þess gruns aö henni hafi verió byrlað svefnlyf og hún síöan misnotuð kyn- feröislega. „Það koma nokkur fórnar- lömb á ári til okkar, auk þeirra sem fá ráögjöf í gegnum síma. Og sjálfsagt eru fjölmörg sem hafa ekki samband. Tilvikum hefur samt fjölgaö, en vonandi er það bara aukin umræða sem gerir þeim auöveldara fyr- ir aö leita sér hjálpar." - Er einhver sérstakur hópur kvenna, sem verður frekar fyrir barðinu á þessum nauðgurum en annar? „Nei, þetta getur komiö fyrir alla, en hefur alltaf gerst t skemmtistaðaferð. Þar verða konurnar t öllum tilvikum við- skila við manninn sinn eða vinkonurnar, og hverfa. Við álítum aö nauögararnir setji lyfið t glasið, fylgist með við- komandi og um leiö og hún fer eitthvert ein frá er hún numin á brott. Svo vakna þær annað hvort á víöavangi eöa heima hjá.sér, illa út leiknar og allar mjög lasnar með mjög sterk þynnkueinkenni. Fórnarlömbin geta gengið undir áhrifum lyfsins, en verða stjörf og ganga líkt og í svefni, með starandi augu og hægar hreyfingar. í raun ekki ólíkt því og ef um ofurölvun væri að ræða. Flestar sem hafa hringt drekka venjulega mjög í hófi, og hafa fengið hvatningu frá vinkonum sínum til að hringja þar sem þær urðu vitni að því að viökomandi drakk nánast ekki neitt, og að þetta er alls ekki f lagi.“ - Þær vita ekkert hvað hefur gerst? „Nei, og skelfingin er svo of- boðsleg, því þær vita ekki hvar þær voru, með hverjum, hvað var gert við þær, hverjir sáu þær eða hversu margir komu að þessu. Þetta er hreint hel- víti, og við vitum þess dæmi að þessi óvissa hafi algjörlega eyðilegt líf fórnarlambanna." ALLIR í HÆTTU - Hvað er hægt að gera í þessum málum? „Við segjum öllum að fara strax upp á neyðarmóttöku í rannsókn. Síðan að koma í viðtöl til okkar til að reyna að vinna úr vandanum, og grafast fyrir um hvað geröist. Það skiptir fórnarlambið rosalega miklu máli að komast að ein- hverju, þótt það sé mjög erfitt. Við hvetjum alla sem hafa grun um að eitthvaö hafi gerst í þessa áttina eða óljóst og skrítiö, að hafa samband jafn- vel þótt það sé langt um liöið. Það er betra að vera viss.“ - Eru fórnarlömbin alltaf konur? „Öll þau tilvik sem við höf- um annast hafa veriö konur, en við vitum að þau eru bara brot þeirra sem eiga sér stað, og getum ekki sagt til um hvort karlmenn séu teknir fyrir líka. En það hlýtur eigin- lega að vera, þótt konurnar séu fleiri." - Er satt að í Bandaríkjun- um hafi litarefni verið sett út í þessi svefnlyf? „Já, út í róhypnol svefnlyfið sem hefur mest verið notaö í þessum tilfellum. Þá breytir drykkurinn um lit, alveg sama hver hann er. En litaö ró- hypnol hefur hingað til ekki verið flutt inn til ísiands." - Er þá eitthvað til varnar? „Það eina sem við getum ráölagt fólki er að skilja aldrei drykkina sfna eftir eftirlits- lausa á skemmtistað, einsog ef allir fara saman á dansgólf- ið. Hver og einn verður að vera á varðbergi, og ef minnsti grunur leikur á rmisnotkun að fara strax í neyðarmóttökuna, þaö getur skipt sköpum." CIÍHSÍSVICI II ■ HÖICHillt I ■ CttÐAIOKCI 7 ■ ttlHClUHHI ■ ÍHtHtllSIIIII 15 ■ HilDIICÖIII II 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.