Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 16

Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 16
□ FöMt Á sunnudagsmorgni seint í febrúar renndi David Strickland upp aö veitingastað í Los Angeles ásamt vinum sínum og virtist fullkomlega hamingjusamur. Hann og kærasta hans, Tiffani-Amber Thiessen úr Beverly Hills 90210, ásamt leikkonunni Brooke Shields og eiginmanni hennar fyrrverandi Andre Agassi hlógu og slógu á létta strengi að sögn þeirra sem til sáu. Flestir töldu þvf að Strickland nyti lífsins sem vin- sæll leikari eftir að hafa sleg- ið í gegn sem treggáfaði mein- leysinginn og tónlistargagnrýn- andinn í þáttunum Suddenly Susan eða Laus og liðug. Færri vissu að á hrekkjavök- unni árið 1998 lenti hann í kókaínhandtöku og þurfti f kjölfar hennar að halda sig frá eiturlyfjum, fara í meðferö og mæta reglulega í viðtöl til dómara ellegar lenda í fang- elsi. HARMUR í HOLLYWOOD Að morgni mánudagsins 22. mars átti hann einmitt aö fara í slíkt viðtal en hann mætti aldrei. I stað þess leigöi hann sér herbergi á móteli f Las Ve- gas, bjó til snöru úr lakinu af rúminu og hengdi sig. Hann var aðeins 29 ára að aldri. Öllum var brugðiö, sérstak- lega í Ijósi þess aó fáir vissu af handtökunni árið áður. „Ég er eyöilögö yfir að missa besta vin minn sem geislaöi af hæfileikum og kímni," sagði í tilkynningu sem Brooke Shields, meðleikkona hans í Suddenly Susan, sendi frá sér. „Ég bið Guð að gæta hans góða hjarta, sem hefur nú fengið hvíld." Margir vissu aö Strickland glímdi við áfengisvandamál auk eiturlyfja en hann hafði haldið því svo fjarri vinum sín- um og samstarfsfólki að fæsta grunaði að í óefni væri komið. UNGUR ÁFENGIS- SJÚKLINGUR Vandamálið var þó langt frá því að vera nýtt af nálinni. Strickland flutti sem unglingur til Pacific Palisades, sem er auðugt úthverfi í Los Angeles. Þeir sem þekktu hann á þeim árum segja hann hafa veriö Ovæntur harmleikur Tveimur dögum áður en hann lést mætti Strickland í veislu vegna Óskarsverðlaunahátíðarinnar. Brooke Shields og David Strickland voru góðir vinir og léku saman í þáttunum Suddenly Susan. Kærustuparið Davld Strickland og Tiffani- Amber Thiessen meðan allt lék í lyndi. David Strickland úr Lausrí og liðugri myndarlegan og ungan áfeng- issjúkling. Eftir að hann út- skrifaöist árið 1989 hóf hann að reyna fyrir sér sem leikari. Hann lék í nokkrum unglinga- myndum auk þess sem hann kom fram f sjónvarpsþáttun- um Roseanne og Mad About You. Árið 1995 átti að hefja framleiðslu á þáttunum Max þar sem Strickland hefði farið með aðalhlutverk. En erfiðleik- ar komu upp í samstarfi fram- leiöandans og sjónvarpsstöðv- arinnar svo ekkert varð úr gerð þáttanna. Margir telja að með þeim hefði Strickland fengið uppreisn æru og slegió í gegn. Eftir þessi vonbrigði ákvað hann að taka aö sér aukahlut- verk í Lausri og liðugri. Þætt- irnir komu honum á kortið og honum fóru að bjóðast hlut- verk í kvikmyndum. í myndinni „Forces of Nature" fór hann með aukahlutverk og var mjög ánægður með bæði hlutverkió og samstarfsfólkió, sem hældi honum í hástert. ÖNNUR VONBRIGÐI En þegar hann sá myndina fullbúna varð hann fyrir von- brigðum því mörg af þeim at- riöum sem hann lék í höfðu verið klippt út. „Slíkt er alltaf aö gerast í Hollywood-myndum en Strickland tók því ööruvísi en flestir," sagði náinn vinur leikarans. „Hann brotnaði nið- ur og þurfti nauðsynlega að verða sér úti um kókaín á stundinni." Á meðan hálfur heimurinn fylgdist með Óskarsverð- launaafhendingunni kvöldið áður en Strickland stytti sér aldur var hann að skemmta sér f Las Vegas. Hann hitti vændiskonu fyrir utan Oasis- mótelið og leigði með henni herbergi. Um miðnætti yfirgaf hann herbergiö og hélt áfram að heimsækja öldurhús. Hann kom aftur á mótelher- bergið seinna um nóttina, keypti sér kippu af bjór, drakk hana og hengdi sig, nokkrum klukkustundum áöur en hann átti að mæta í viötaliö til dómarans. Fráfall hans er harmaó í kvikmyndaborginni og flestir gáttaðir á því að jafn ungur, efnilegur og vinsæll leikari og hann skyldi ekki sjá neina leið út úr vandanum. 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.