Morgunblaðið - 23.06.1999, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 23.06.1999, Qupperneq 27
Wiliam Shatner leikur sjálfan sig í myndinni „Free Enterprise". ég var að troða upp. Það kom þó að því, ekki fyrir löngu. Ég fór að kynna mér máliö, ræða viö fólk, komast að því hvar og hvenær uppákomurnar hófust o.s.frv. Afraksturinn er bók sem nefnist „Get a Life“ og kom út í apríl. Að auki er fimmta Star Trek-skáldsagan Dark Victory komin út sem fjallar eins og hinar um ævin- týri skipstjórans Kirk.“ Hvernig lýsirðu Star Trek-að- dáendunum í bókinni, spyr blaðamaður á sinni bjöguðu ensku og allt í einu fær Shatner þá flugu í höfuðið að blaðamaður sé franskur og byrjar að svara á flaumósa frönsku. Nei, nei, ég er ís- lenskur, flýtir blaóamaður sér að segja. „Ó, ertu íslenskur?" segir hann og lyftir brúnum. „Mér fannst ég greina franskan hreim," segir hann og bætir við glottandi: „Frakkar horfa á mig með sama furöusvipnum þegar ég byrja aö tala frönsku." Blaðamaður á bágt með að trúa því en Shatner heldur áfram: „Temmilegur áhugi breyttist í einskæra uppljómun þegar ég fór aó kynna mér að- dáendur Star Trek. Ég upp- götvaði að þeir allra hörðustu eru áhugasamari um sjálfa sig og félaga sfna í samtökunum en leikarana. Þeir fara á samkundur sem tengjast Star Trek til þess að fá viðurkenningu hver frá öðr- um. Hvað svo sem veldur þvf aö þeir eru á skjön við samfé- lagiö er þeim tekið opnum örmum í Star Trek-samtökun- um vegna þessa sameiginlega áhugamáls. Þessi viöurkenn- ing er þeim óendanlega mikil- væg og snertir þá djúpt. Ég gerði mér betur og betur grein fyrir þessu eftir því sem ég talaði við fleiri. Áhangendur sem mættu á svona ráðstefn- ur gerðu það sjálfra sín vegna, til að hitta gamla vini og skemmta sér og nærvera okkar skipti í sjálfu sér engu máli. Það var bara rúsínan í pylsuendanum." MÆTTI í BÚNINGNUM í KVIÐDÓM Hvað um aðdáendur á borð við Barböru Adams sem kom fyrir í heimildarmyndinni Trekkies og gengur allan dag- inn í Star Trek-búningi, mætti jafnvel þannig til fara þegar hún sat í kviðdómi í Banda- ríkjunum? „Það virðist dálítið fáránlegt í fyrstu," svarar Shatner. „En þegar maöur rýnir lengra þá er þetta eins og hvert annað áhugamál. Sumir hafa gaman af því að klæða sig sem sögu- hetjur úr Star Trek. En mönn- um hættir til að yfirsjást að þeir eru aðeins að ganga einu skrefi lengra en að mæta í venjulegum fötum eða klæða sig upp í tískuföt. Þá er ég ekki að tala um öfgafólkiö sem trúir því að það sé hold- gervingar viðkomandi söguper- sóna. Máliö er að það er margt í gangi á Star Trek-ráð- stefnum sem varla nokkur veit um nema áhangendurnir sjálf- ir. Það er t.d. starfræktur 30 ára reynsla Hljóðeinangrunar- gier Alumina Lux kerruvagn OrvaUcí er fyjáokkur 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.