Morgunblaðið - 23.06.1999, Page 29

Morgunblaðið - 23.06.1999, Page 29
Spurningaþátturinn Sperrið eyrun Kynslóðabilið brúað Nýr spurningaþáttur Önnu Pál- ínu Árnadóttur sem ber nafnið Sperrið eyrun verður á dagskrá Rásar 1 á fimmtudögum klukk- an 13.05 f sumar. Anna Pálína segir þáttinn höfða til allra ald- urshópa og segja megi að hann brúi kynslóöabiliö þvf hvert tveggja manna liö sam- anstendur af einum fullorðnum einstaklingi og liösmanni sem er yngri en átján ára. Spurningarnar byggjast að mestu leyti á því að þekkja efni úr safni útvarpsins bæði gamalt og nýtt. Spurt er um raddir, söng og aðra tónlist, höfunda laga og Ijóða og um- hverfishljóö svo dæmi séu nefnd. Þetta er útsláttarkeppni þar sem átta lið hefja leikinn og Anna Pálína Árnadóttir að sögn Önnu Pálfnu voru keppendur valdir af handahófi Þeir eiga það þó allir sameig- inlegt að vera þekktir af störf- um sínum og hafa margir þeirra verið lengi f sviösljós- inu. Fyrsta keppnin verður á milli liðs Elínar G. Ólafsdóttur og liðs sr. Árna Pálssonar og verður hún á dagskrá 1. júlí. □ Fóílc Smits glímir við djöfladýrkanda Leikarinn Jimmy Smits, sem þekktur er fyrir leik sinn f sjónvarpsþáttunum „Lagakrókum" og „NYPD Blue“, mun leika aðalhlut- verkið í nýrri kvikmynd leik- stjórans Chuck Russell, sem leikstýrði m.a. „Grímunni". Myndin ber nafnið „Bless the Child" og er hrollvekja með yfirnáttúrlegu fvafi. Smits leikur þar lögreglu- mann sem aðstoðar konu við að halda barni frá djöfladýrkanda, en konuna leikur Kim Basinger. Smits hefur aldeilis ekki setiö aðgerðalaus frá þvf hann hætti aö leika í sjón- varpsþáttum, því hann er búinn að leika í tveimur öðr- um kvikmynd- um sem eru í vinnslu. Annarri er leikstýrt af Wim Wenders og ber hún nafnið „Milljón doll- ara hótelið", en þar leikur hann á móti Mel Gibson og Millu Jovovich, og hin kem- ur frá New Line Cinema og heitir „Price of Glory". Jimmy Smits TUþjóðlegt lið frá Liverpool • Erlendir leikmenn eru þrisvar sinnum fleiri en Eng- lendingar hjá enska úrvals- deildarliðinu Liverpool, að því er fram kemur í norska dag- blaöinu Dagbladet. Segir í blaðinu að ekkert félag hafi jafn marga erlenda leikmenn, eða 20 talsins, á sínum snær- um og Liverpool. Dagblaðið segir að erlendu leikmennirnir komi frá Noregi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Rnn- landi, Sviss, Tékklandi, Ka- merún, Gfneu og Bandaríkjun- um, en nefnir ekki að íslenski leikmaöurinn Haukur Ingi Guönason sé á samningi hjá félaginu. Segir að sjö leikmenn liösins séu Englendingar og aðeins fjórir þeirra séu ættaðir frá borginni og nágrenni. Hafi fjölg- un útlendinga verið gagnrýnd meðal stuöningsmanna liðsins en forráðamenn þess hafa tek- ið allri gagnrýni með ró. Beinar út- sendingar i sjónvarpi Miðvíkudagur 23. júní Sýn 01.00 NBA New York - San Antonio Fimmtudagur 24. júnf Sýn 19.55 Landssímadeildin Laugardagur 26. júní Sýn 18.50 Spænski boltinn. Úr- slitaleikur bikarkeppninnar. 01.00 Hnefaleikar. Johnny Tapia - Paulie Ayala Sjónvarpið 11.55 Formúla 1. Tímataka. Sunnudagur 27. júní Sjónvarpið 11.30 Formúla 1 Miðvikudagur 30. júnf Sýn 22.30 Suöur-Ameríku bikar- inn. Chile - Mexíkó Fimmtudagur 1. júlí Sýn 23.00 Suður-Ameríku bikar- inn. Úrúgvæ - Kólumbía Föstudagur 2. júlí Sýn 01.00 Suöur-Ameríku bikar- inn. Paragvæ - Japan Laugardagur 3. júlí Sýn 19.00 Suöur-Amerfku bikar- inn. Brasilfa - Mexíkó Mánudagur 5. júlí Sýn 19.50 Landssímadeildin. Fram - Valur SPARnTILROOl 29

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.