Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 C 5jf
Morgunblaðið/Amaldur
efndi skoraði annað mark KR gegn Fram. Bjarki Gunnlaugsson er
st með Guðmundi.
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram
Áttum að fá
vrtaspymu
Valsmönn-
um fyrir-
munað
að skora
ÞAÐ voru sprækir Valsmenn sem mættu til leiks á Ólafsfjarðar-
velli í gær og þeir blésu strax til sóknarknattspyrnu. Leifturs-
menn urðu að láta sér lynda að verjast og má fá glögga mynd
af gangi mála í fyrri hálfleik með því að líta á markskot liðanna,
en Valsmenn áttu 15 skot að marki en heimamenn aðeins 4.
Vörn Leifturs stóðst álagið og leikur liðsins skánaði í seinni
hálfieik en úrslitin urðu 0:0 þrátt fyrir góð marktækifæri á báða
bóga.
Asgeir Elíasson, þjálfari Fram,
var ekki ánægður með fyrsta tap
liðsins í deildinni er þeir lutu í gi-as
fyrir KR í Frosta-
Ua/ur skjólinu, 3:1. „Ég við-
Jónatansson urkenni að þetta var
skrifar ekki nægilega gott
hjá okkur. Við vorum
hræddir framan af leik og spiluðum
ekki nægilega skynsamlega. Við vor-
um að láta þá taka af okkur boltann
of aftarlega á vellinum. Eins voru
sendingarnai' íram völlinn hjá okkur
ekki góðar. Vonandi eigum við eftir
að bæta leik okkai' enn frekar,“ sagði
Ásgeir.
„Það var meira sem féll þeim í hag í
þessum leik. Þeir máttu í raun þakka
fyrir að við fengum ekki vítaspymu
og jöfnuðum leikinn. Dómarinn hafði
engin tök á leiknum. Hann var ragur
og þorði ekki að dæma viti á Kristján
Finnbogason sem stökk inn í bakið á
einum leikmanna minna. Það munar
auðvitað miklu að fá ekki víti þegar
lið eiga að fá víti og það átti líka að
reka Kristján útaf fyrir brotið. Þetta
ei'u allt atriði sem skipta máli. Við
fengum tækifæri til að skora fleiri
mörk, en þau féllu ekki fyrir okkim.
Eftir að þeir gerðu þriðja markið var
þetta orðið erfitt fyrir okkur.“
Þetta vai- fyrsta tap ykkar í deild-
inni, er KR með besta liðið sem þið
híifið spilað á móti það sem af er
móti?
„Ég veit það nú ekki. Ég tel að það
sé enginn stór munur á liðunum í
deildinni. KR-ingai' era með flinka
leikmenn frammi og mótherjar þeirra
verða að passa sig að láta þá ekki
stela af sér boltanum því þá er voðinn
vís. Ef þeir fá pláss eru þeir hættu-
legir. Ég hef horft á þrjá leiki með
KR-ingum í sumar og þeir hafa ekk-
ert verið betri en andstæðingurinn.
Það getur því allt gerst enn á Islands-
mótinu,“ sagði þjálfai-inn.
Bjarki Gunnlaugsson skoraði
þriðja mark KR-inga í leiknum,
skaut fóstu skoti utan vítateigs sem
smau& undir Ólaf
Björnlngi Pétursson, markvörð
Hrafnsson Framara. Bjarki
skrifar hafði áður farið illa
með tvö sannkölluð
dauðafæri og þá hafði Ólafur séð við
honum með góðri markvörslu. En
dæmið snerist við í þriðja sinn og
Bjarki var mjög kátur með markið
og sigurinn í leikslok.
Sigurinn var mikilvægur fyrir okk-
ur og gefúr toppsætið,“ sagði hann.
„Ég fór illa með tvö dauðafæri og skil
eiginlega ekkert í því, en náði að
bjarga mér með mai'kinu í þriðju til-
raun. Ég hef hins vegar alltaf sagt að
framherji eigi fyrst að fara að hafa
áhyggjur ef hann skapar sér ekki
tækifæri. Ég náði alltént að skapa
mér tækifæri.“
Heimamenn voru varla með
fyrstu 20 mínútur leiksins.
Valsmenn spiluðu ágætlega,
dreifðu spilinu vel,
Stefán Þór sóttu hratt og ör-
Sæmundsson ugglega og skutu að
skrífar marki þegar færi
gafst en þótt þeir
væru á skotskónum virtust þeir
hafa gleymt markaskónum heima.
Ólafur Ingason átti þrumuskot í
þverslá á 18. mínútu eftir góða
rispu upp miðjuna, Arnór
Guðjohnsen náði boltanum en
skoti hans var bjargað. Leiftur
fékk reyndar eina færið sitt í hálf-
leiknum mínútu síðar þegar Alex-
ander Santos komst inn að mark-
teig en skaut úr þröngri stöðu og
Hjörvar Hafiiðason varði auðveld-
lega. Á 32. mín. pressuðu Vals-
menn gríðarlega, fyrst var skoti
bjargað naumlega eða nánast á
marklínu og síðan skaut Jón Stef-
ánsson boltanum í þverslá og nið-
ur.
Valsmenn voru mun öflugri í
hálfleiknum og virtust koma
heimamönnum í opna skjöldu.
Leiftur ætlaði að leika sóknar-
bolta, það voru aðeins þrír menn í
vörn og höfðu þeir nóg að gera og
Bjarki segir að óþarfa vandræði
hafi skapast fyrir leikinn vegna út-
tektar á Fram-liðinu í KR-blaðinu, en
sér þyki raunar að viðbrögðin við
greininni hafí verið heldur ýkt.
„Þetta voru sjónarmið eins manns og
hann hefur beðist afsökunar og þar
með er málið úr sögunni. En ég er
ekki viss um að svo mikið hefði verið
gert úr málinu hefði annað félag átt í
hlut. En það breytii' ekki því að
pressan er nóg á KR-ingum fyrir og
við eigum ekki að gera hlutina erfið-
ari með þessum hætti.“
Fyrir mánuði var Bjarki leikmaður
Brann í Noregi, en nú er hann lykil-
maður í KR-liðinu á toppi 0611031000-
ar á Islandi. „Þetta eru frábær um-
skipti. Ég var kominn á botninn í
knattspyrnunni og það er algjör
draumur að vera nú kominn á fulla
ferð í svona góðu liði. Síðan spillir
ekki fyrir að okkur gengur vel. Ég er
stóðu fyrir sínu, sérstaklega Hlyn-
ur Birgisson. Þorvaldur S. Guð-
björnsson og Sergio Barbosa voru
á köntunum og þurftu þeir að
hlaupa mikið aftur, enda sóknar-
þungi Vals mikill en sóknartilburð-
ir Leifturs máttlitlir.
Seinni hálfleikur var jafn fram-
an af, Leiftursmenn þó heldur
beittari. Santos átti ágætan skalla
að marki sem Hjörvar varði vel en
á 64. mín. fékk Valsmaðurinn Ólaf-
ur Ingason óvænt færi eftir mistök
Páls Gíslasonar í vörninni en Jens
Martin varði skot hans í horn. Páll
Guðmundsson og Uni Arge
komust síðar í ágæt skotfæri við
Valsmarldð en tókst ekki að skora.
Þrátt fyrir markaleysið var leik-
urinn býsna skemmtilegur. Það
var gaman að fylgjast með vinnslu
og leikni Arnórs á miðjunni hjá
Val og Sigurbjörn Hreiðarsson var
líka mjög sterkur. Með sama spili
og meiri heppni upp við mark and-
stæðinganna ættu Valsmenn að
fara að hala inn stig. Hjörvar var
afar öruggur í markinu og hefur
sannarlega sprungið út. Hjá
Leiftri voru Hlynur og Steinn V.
Gunnarsson góðir og Jens Martin
stóð fyrir sínu að vanda.
alls ekki kominn í fulla leikæfingu, en
batna með hverjum leiknum og er
auðvitað ánægður og hamingjusamur
með að leika án meiðsla. Ég hef ekki
náð að leika svo marga leiki í röð í
sex til sjö ár og nýt þess nú að leika
knattspyrnu eftir tveggja ára baráttu
við meiðsli.“
KR-ingar sitja í toppsætinu hið
minnsta fram á kvöld og hafa tveggja
stiga forskot á Eyjamenn, er liðin
hafa bæði leikið sex leiki. Eyjamenn
geta þó náð toppsætinu aftur í kvöld
með sigri á Víldngum á Laugardals-
velli og KR-ingar eiga erfiðan útileik
gegn Leiftri á sunnudag. „Það er frá-
bært að vera á toppnum og þar ætlum
við að vera sem lengst, helst í allt
sumar. En það er vissulega erfið töm
framundan og mikið í húfi. Leift-
ursleikurinn er á sunnudag, svo bikar-
leikur gegn Fylki á miðvikudag og úti-
leikur í Keflavík sunnudaginn á eftir.“
FOLK
■ ÞÓR Björnsson, markvörður og
fyrirliði handknattleiksliðs Fram,
hefur ákveðið að leggja skóna á
hilluna. Þetta kemur fram á heima-
síðu félagsins á Netinu. Á sama
stað kemur fram að Páll Beck,
leikmaður Fram, ætli einnig að rifa
seglin, a.m.k. um stundarsakir.
■ LEÓ Örn Þorleifsson, línumað-
urinn sterki úr KA, hefur afþakkað .
tvö tilboð frá erlendum handknatt-
leiksliðum, samkvæmt því sem
fram kemur á heimasíðu hand-
knattleiksdeildar KA. Danska 1.
deildarliðið Kolding og nýliðar 1.
deildarinnar þýsku, Nordhom,
báru víurnar í Leó en höfðu ekki
erindi sem erfiði.
■ LEÓ Örn ætlar sér í nám í Há-
skóla Islands, en hefur ekki enn
gert upp hug sinn með hvaða liði
hann leikur á næstu leiktíð.
■ NEWCASTLE hefur keypt
spænska varnarmanninn Elena
Marcelino frá Mallorca fyrir um
600 milljónir króna. Hann mun
leika við hlið Alains Goma, fyrrver-
andi leikmanns París St. Germain,
sem nýlega er genginn til liðs við
Newcastle.
■ REAL Sociedad, sem hefur haft
augastað á Þórði Guðjónssyni, hef-
ur keypt kólumbíska landsliðsmið-
herjann Victor Bonilla, sem er 29
ára. Samningurinn er til þriggja
ára og kaupverðið talið vera um
300 milljónir króna. Hann á að fylla
skarð Júgóslavans Darko
Kovacevic, sem var seldur til Ju-
ventus á dögunum.
■ STEFAN Malz, miðvallai'leik-
maður 1869 Miinchen, er á förum
til Arsenal fyrir óþekkta upphæð.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, bjóst við að Malz félli vel
inn í liðið.
■ RÚSSNESKI markmaðurinn
Dmitri Kharine er á leið til skoska
Uðsins Celtic. Kharine sat á vara-
mannabekk Chelsea bróðurpart
síðasta tímabils. Hann hafði ekki
áhuga á að endumýja samning
sinn við félagið.
■ MILEN Petkov, landsliðsmaður
Búlgaríu, er á leið til enska úrvals-
deildarliðsins Southampton frá
CSKA Sofía. Hann mun væntan- .
lega skrifa undir þriggja ára samn-
ing við félagið í dag, eftir að hann
hefur gengist undir læknisskoðun
hjá enska félaginu. Kaupverðið er
tvær milljónir punda.
■ STILIAN Petrov, sem lék með
Petkov hjá CSKA Sofía, hefur
skrifað undir samning við Celtic og
er kaupverðið 2,8 milljónir punda.
■ JEVGENY Kutsjerevskí, fyrr-
um þjálfari ólympíuliðs Rússa í
knattspyrnu, hefur hætt störfum
sem þjálfari rússneska úrvalsdeild-
arUðsins Uralan Elista eftir aðeins
viku í starfi. Kutsjerevski, sem er
57 ára tíkraínumaður, hefur hætt
hjá tveimur félögum á síðustu
þremur vikum, en hann hætti hjá
1. deildarliðinu Arsenal Tula fyrr í
þessum mánuði. „Ég þarf bara að
hvíla mig frá knattspyrnunni."
Hann gerði Dnepr Dnepropetr-
ovsk af sovéskum meistara árið
1988 og þjálfaði ólympíulið Rússa
1993 til 1994.
■ BENYAMINAS Zelkyavichus,
aðstoðarlandsliðsþjálfari Litháen,
hefur tekið við rússneska liðinu
Shinnik Yaroslavl og er þriðji
þjálfari liðsins á árinu. Zelkya-
vichus vann fyrsta leikinn semT
hann stjórnaði liðinu, 3:1 á Dyna-
mo Moskvu um síðustu helgi og var
það aðeins annar sigur liðsins í 12
leikjum.
■ RACING Santander, sem Magn-
ús Bergs lék með á árum áður, hef-
ur tryggt sér Argentínumanninn
Marcelo Espina, sem skrifaði undiiv
fjöguraa ára samning við liðið.
Nýttum ekki færin
INGI Björn Albertsson, þjálfari
Vals, var ekki sáttur við úrslitin í
leikslok. „Nei, ég tel að ef við
hefðum náð að nýta eitthvað af
færunum okkar í fyrri hálfleik
hefðum við farið býsna langt með
það að vinna leikinn. Seinni
hálfleikur var miklu jafnari. Við
erum að ná góðum takti í spilið,
sóknarboltinn gengur vel og
varnarleikurinn er mikið að lagast
og ég get því ekki annað en verið
bjartsýnn á framhaldið,“ sagði
Ingi Björn.
Páll Guðmundsson, fyrirliði
Leifturs, var þokkalega sáttur við
jafnteflið. „Ég held þó að þetta sé
aðeins að koma til hjá okkur en
það vantar miklu meiri kraft í
allar sóknaraðgerðir, alveg frá
öftustu línu og fram. Við erum of
fáir sem komum fram, en við
erum alltaf að reyna að laga leik
okkar,“ sagði Páll.
Sigurinn mikilvægur