Morgunblaðið - 25.06.1999, Síða 8
TENNIS/WIMBLEDON
Reuters
Sigri fagnað
JELENA Dokic fagnar hér sigri á Martinu Hingis á Wimbledon-
tennismótinu í fyrstu umferð. Sigur þessarar ungu áströlsku
tennisstjörnu, sem er fædd í Belgrad í Serbíu, vakti heimsat-
hygli. Hún hélt sigurgöngu sinni áfram f gær. Hér til hliðar sést
Hingis eftir tapið - vonbrigðin eru mikil.
Iartina Hingis sigraði
Wimbledon tennismótið 16
ára. Nú er hún 18 ára og hefur verið
í toppsæti heimslistans í nokkurn
tíma. Hún tapaði óvænt niður góðri
stöðu í úrslitum Opna franska
meistaramótsins fyrr í mánuðinum
og á þriðjudaginn datt hún út úr
Wimbledon-mótinu í fyrstu umferð.
Klukkustundum eftir þann ósigur
dró hún sig út úr keppni í tvíliða-
leik. Hingis er ekki fjTsta unga
stúlkan sem lendir í vandræðum
eftir skjótan frama í tennisheimin-
um.
Hverju má annars búast við þegar
böm vinna Ferrari-bfla áður en þau
fá bflpróf, ferðast um heiminn á
fyrsta farrými, eyða meiri tíma á hót-
elherbergjum en heima hjá sér og
eru daglega undir álagi sem jafnaldr-
amir þekkja aðeins úr prófum? Það
er að minnsta kosti hægt að nefna
nokkur dæmi um ungar stúlkur sem
hafa farið illa á þessum lifnaði.
Tracy Austin sigraði Opna banda-
ríska meistaramótið 16 ára en
stuttu síðar varð hún að hætta
vegna þess að líkami hennar þoldi
ekki álagið.
Annað dæmi er Jennifer Capriati,
sem var komin á topp tíu á heims-
listanum 14 ára. Hún brotnaði niður
andlega eftir að hafa fallið úr keppni
í fyrstu umferð á Opna bandaríska
meistaramótinu árið 1993.
Að síðustu má nefna Andreu Ja-
eger sem náði öðm sæti heimslist-
ans 16 ára en hætta þá.
Martina Hingis hefur átt í vand-
ræðum eftir tapið á Opna franska
mótinu, þar sem hún deildi við dóm-
arann og þótti koma óíþróttamanns-
lega fram. Eftir mótið reiddist hún
móður sinni, sem hefur þjálfað hana
frá tveggja ára aldri. Þær hafa ekki
talast við síðan og móðirin mætti
ekki til að sjá Martinu leika á
Wimbledon. Ekkert er þó vitað um
hve alvarlegir erfiðleikar Hingis em
og allt eins líklegt að hún mæti
sterk á næsta mót.
Jelena Dokic, stúlkan 16 ára,
sem sigraði Hingis í Wimbledon,
gæti átt svipaða reynslu fyrir
höndum. Hún var efst á heimslista
unglinga í fyrra en álagið hefur nú
aukist til muna. Hún fluttist ásamt
fjölskyldu sinni frá Belgrad til
Astralíu fyrir fimm árum og nú
keppast íþróttavömframleiðendur
um að gera við hana samning. Um-
boðsmaður hennar, Jorge Salkeld,
sagði það mikilvægt að hún fengi
góða vernd. „Það er aðalatriðið að
hún skaðist ekki á því að henni sé
ætlað um of.“ Salkeld sagði hana
vera nógu yfírvegaða til að takast á
við allar þær kröfur sem nú eru
gerðar til hennar. „Hún er einbeitt,
leggur hart að sér og þyrstir í að
sigra.“
faam
Ali Daei
til Hertha
Bertín
BAYERN Munchen hefur
selt íranska landsliðs-
manninn Ali Daei til
Hertlia Berlín fyrir um
220 milljónir króna. Daei,
sem leikur á miðjunni,
hefur gert þriggja ára
samning við Hertha.
Hann var ósáttur með að
vera ekki fastur maður í
byrjunarliði Bayern og
gafst upp á að vera hjá
félaginu þegar hann fékk
ekki tækifæri til að
spreyta sig á móti
Manchester United í úr-
slitum Meistaradeildar
Evrópu.
Daei mun fá tækifæri
til að leika í Meistara-
deildinni með Hertha en
liðið mun leika í fyrsta
sinn í Evrópukeppni í 21
ár.
Borgaryfirvöld í Berlín
hafa þurft að ráðast í
miklar framkvæmdir á
Ólympíuleikvanginum í
Berlín svo hann uppfylli
þær kröfur sem alþjóða-
knattspyrnusambandið
gerir til valla sem notaðir
eru fyrir stórleiki. Leik-
vangurinn verður tilbúinn
næsta haust og mun hann
taka 60.000 manns í sæti.
Nú tekur hann um 75.000
en þar af eru aðeins
16.000 sæti.
Erfitt líf tennisstúlkna
,Æfi
alltaf
með
pabba“
JELENA Dokic vakti heimsat-
hygli þegar hún sló Martinu
Hingis út úr Wimbledon-tennis-
mótinu í fyrstu umferð. Hún er
fiedd árið 1983 í Belgrad í Ser-
bíu. Árið 1994 flutti hún ásamt
fjölskyldu sinni til Sydney í
Ástralíu og er nú ástralskur rík-
isborgari.
Hún á að baki glæstan feril í
unglingaflokki, sigraði meðal ann-
ars á Opna bandaríska meistara-
mótinu ‘98 og var í efsta sæti
heimslista unglinga þegar hún
gerðist atvinnuníaður árið 1998.
Síðan þá, og fram að sigrinum á
Martinu Hingis, vakti mesta at-
hygli góður árangur hennar á
Hopman Cup-mótinu. Þar sigraði
hún í tvenndarleik ásamt Mark
Philipoussis. Henni gekk einnig
vel í einiiðaleik og lagði þar meðal
annarra Aranxta Senchez-Vicario,
sem er nr. 4 á heimslistanum. I
janúar komst hún í þriðju umferð
á Opna ástralska meistaramótinu
en tapaði þá fyrir Hingis.
Dokic var að vonum himinlif-
andi eftir sigurinn. „Ég lék mun
betur í dag en þegar við mætt-
umst á ástralska mótinu. Nú
mætti ég til leiks með það í huga
hvernig ég yrði að spila til að
vinna svo að það var mikill mun-
ur á,“ sagði hún strax eftir sigur-
inn. f gær komst Dokic áfram í
þriðju umferð þegar hún sigraði
Katarinu Studenikovu frá
Slóvakíu 6-0 4-6 8-6. Hún er
einnig komin áfram úr fyrstu
umferð í tvíliðaleik.
Dokic og Hingis eiga það sam-
eiginlegt að þær
hafa alltaf verið
þjálfaðar af öðru
foreldri sínu. Hing-
is af móður sinni
en Dokic af föður
sínum. Hún sagði
föður sinn hafa
haft mikil áhrif á sig. „Ég æfi
alltaf með pabba og nokkrum æf-
ingarfélögum. Hann hefur hjálp-
að mér að ná eins langt og ég hef
náð og fyrir það stend ég honun í
þakkarskuld. Hann fylgist með
öllum mótunum sem ég leik á og
sér hvað ég þarf að bæta,“ sagði
hún.
Það er sjálfsagt ekki tími fyrir
mikið annað en tennis í lífi Dokic
en að áhugamálum hefur hún að
renna sér á línuskautum, fara á
ströndina og hlusta á Spice Girls.
Fyrir Wimbledon-mótið var hún í
129. sæti á heimslistanum en er
þegar komin upp um að minnsta
kosti 80 sæti.