Morgunblaðið - 30.07.1999, Side 3

Morgunblaðið - 30.07.1999, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 B 3 FRJÁLSÍÞRÓTTIR / EM 22 ÁRA OG YNGRI (ÞRÓTTIR Morgunblaðið/Sverrir VALA Flosadóttir átti ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í úrslitum stangarstökkskeppni Evr- ópumótsins í gær - stökk aðeins einu sinni. Vala og Þórey komust í úrslit Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir komust í úrslit í stangarstökki á Evrópumeistara- ■■■■■■ móti 22 ára og yngri Hasse Sjögren sem hófst í Gauta- skrifar borg í gær. Vala frá Svíþpð gtökk 3>90 metra j fyrstu tilraun og nægði það henni til þess að komast áfram. Þórey, sem ekki hefur keppt í rúman mánuð vegna bakmeiðsla, byrjaði á því að fara yfir 3,65 metra og síðan 3,80 í annarri umferð. Sá árangur nægði henni einnig til þess að komast áfram. Úrslitakeppni stangarstökksins fer fram á laugar- dag. Annað kvöld keppir Vala á hinu árlega DN Gala-móti í Stokk- hólmi og verður þar í hópi nokk- urra þekktustu frjálsíþróttamanna heims. Sveinn Margeirsson hlaupari er einnig á meðal keppenda á Evrópu- meistaramótinu. Hann hljóp síðdeg- is í gær í undanrásum 3.000 metra hindrunarhlaupsins. Gekk honum ekki sem skildi og komst hann ekki í úrslitin. Sveinn fékk næstlakasta tíma 23 keppenda, 9.00,21 mínútu, sem er tæpum sex sekúndum frá hans besta. Hlaupið var mjög hratt og þrátt fyrir að Sveinn hafi reynt að fylgja andstæðingum sínum eftir var getan ekki fyrir hendi að þessu sinni og virkaði hann þreyttur. Til þess að komast áfram þurfti að hlaupa á 8.45,41. Þess má geta að það er u.þ.b. þremur sekúndum betri tími en íslandsmet Jóns Dið- rikssonar. Búast má við því að hörkukeppni verði í úrslitum stangarstökksins á sunnudaginn en meðal keppenda þar auk Völu og Þóreyjar má nefna Þjóðverjann Nastja Ryshich, sem varð heimsmeistari innanhúss sl. vetur. Hún stökk einnig 3,90 í und- ankeppninni í gær og sýndi að hún er til alls vís. Meðal þeirra sem ekki komust í úrslitin var Mariana Sanchez frá Spáni, en hún hefur hæst stokkið 4,15 metra í ár. Sanchez felldi byrjunarhæðina í gær, 3,50 metra. Genk steinlá í Slóveníu BELGÍSKA meistaraliðið Genk, lið bræðranna Þórðar, Bjarna og Jóhannesar Guðjónssona, fékk heldur en ekki útreið í for- keppni Meistaradeildarinnar í gær. Genk steinlá þá á útivelli gegn Maribor frá Slóveníu, 5:1, og á aðeins fjarlæga möguleika á að komast í þriðju umferð for- keppninnar, en sigur í henni gefur sæti í sjálfri Meistara- deildinni í vctur. Þórður Guðjónsson var í byijunarliði Genk í leiknum, en bróðir hans, Bjarni, kom inn á sem varamaður í seinni hálf- leik. Bjarni segir að Genk hafi alls ekki fundið sig í leiknum, þjálfari liðsins hafi breytt um leikaðferð skömmu fyrir leik og breytt verulega út frá því fyrir- komulagi sem liðið hafði beitt í æfingaleikjum að undanförnu. „Þetta gafst alls ekki nægi- lega vel. Við áttum samt nokk- uð í leiknum í fyrri hálfleik, en svo hrundi leikur okkar í þeim seinni og þá hreinlega gengu þeir yfir okkur,“ sagði Bjarni. Keppni hefst í belgísku deild- inni annan laugardag og fyrsti leikur Genk er gegn Ostend. Bjarni segir að mikill hugur sé í herbúðum Genk fyrir tímabilið, þrátt fyrir áfallið i Slóvemu og að sjálfsögðu sé stefnt að því að verja meistaratitilinn. „Belgísk- ir Qölmiðlar gera mikið úr styrkleika Anderlecht og telja liðið líklegt til að vinna alla þá titla sem í boði eru,“ segir hann. Þess má geta að nýráðinn þjálfari Anderlecht gerði Genk einmitt að meisturum á síðustu leiktíð. Genk hefur leikið á annan tug æfingaleikja að undanförnu og hafa bræðurnir Þórður og Bjarni tekið þátt í þeim flestum. Þórði hefur gengið sérlega vel í þessum leilqum, skorað þrettán mörk i sjö leikjum, og hefúr oft- ast leikið á miðjunni fyrir fram- an miðherja liðsins. Bjarni seg- ist einnig bjartsýnn á sæti í lið- inu. „Mér sýnist allt stefna í það. Ég geri auðvitað mitt besta og staðan mín í liðinu nú er á hægri kantinum," sagði hann. ÞADSEM ÚTIFRÝS Ummæli Bjarna Jóhannsson- ar, þjálfara íslands- og bik- armeistara IBV i knattspyrnu karla, í Morgunblaðinu eftir leik íA og ÍBV fyrr í mánuðinum hafa vakið mikla athygli. í viðtali við undirritaðan laugardaginn 17. júlí sl. undir fyrirsögninni „Geta bara étið það sem úti frýs“ svaraði þjálfarinn fjór- um spumingum. Er rétt að birta hluta við- talsins aftur. Þú hefw verið gagn- rýndw talsvert fyrir leikskipulag liðsins og menn eru ekki á eitt sáttir við það fyrir- komulag þitt að hafa Steingrím Jóhannesson einan í framlínunni. Hverju vilt þú svara þessu? „Ég segi það bara að við höfum unnið deildina nú tvö ár í röð með þessu fyrirkomulagi, þ.e. 4-3-3, og Steingrímur hefur aldrei á sín- um ferli skorað jafn mörg mörk á sama tíma. Hann er oft mjög sáttur við að vera einn í framiín- unni hjá okkur, er markahæsti leikmaður deildarinnar í ár og tölumar tala sínu máli. Stein- gilmur hefur skorað 31 mark í þessu leikkerfi, 4-3-3, og það er ekki svo lítið. Þess vegna frnnst mér að þeii- geti bara étið það sem úti frýs, þeir aðilar sem gagnrýna mig og þetta fyrir- komulag." Eti þú kannast við þessa gagn- rýni? „Jú, ég hef heyrt þetta. Þetta er hins vegar mitt svar við slíku tali. Hitt er annað að leikkerfi eru alltaf aðeins leikur að tölum og leikmenn em alltaf ellefu á móti ellefu í hverjum leik. Það sem kannski hefur vantað hjá okkur Eyjamönnum að undanförnu er færsla á fremsta miðjumanninum og vængmönnunum. Og það ætl- um við að reyna að laga.“ Ummæli Bjama eru endurbirt hér vegna viðtals við hann í Fréttum, sem út komu í Vest- mannaeyjum í gær. Þar er Bjarni spurður hvort sama leikskipulag verði við lýði áfram. Hann svarar: „Já, það verður, enda hefur það hentað okkur veí. Auðvitað era ákveðnir hlutir sem hægt er að laga frá leik til leiks og það ger- um við þegar þarf. En ég vil nota þetta tækifæri til að leiðrétta orð sem höfð voru eftir mér í blaða- viðtali í Morgunblaðinu fyi-ir skömmu. Það viðtal fór fyrir brjóstið á mörgum og það er skilj- anlegt því að orð mín voru þar al- gerlega slitin úr samhengi. Eins og þau orð vora upp sett mátti skilja þau sem ég væri að skamm- ast út í stuðningsmenn ÍBV. Slíkt er mér víðs fjarri enda era stuðn- ingsmenn ÍBV þeir altryggustu og bestu sem ég hef nokkum tíma kynnst á mínum ferli.“ Morgunblaðið hafði samband við Bjarna í gær og fór þess á leit að hann drægi fyrrgreind um- mæli sín til baka. Hann hafnaði því og hafnaði jafnframt að hlýða á segulbandsupptöku af áður- nefndu yiðtali. Sú upptaka er til og sannar að fráleitt er að halda því fram að ummæli þjálfarans hafi verið „algerlega slitin úr samhengi" og sett upp á einhvern óeðlilegan máta. Viðtal blaða- manns við Bjarna hljóðaði upp á ijórar spurningar og svör við þeim og því undarlegt að hugsa sér hvemig slíta hefði mátt þau úr samhengi eins og þjálfarinn vill vera láta. Hvorki undirritaður né Morg- unblaðið getur setið undir því að vera sakað um að hafa ekki rétt eftir. Öllum er frjálst að hlýða á áðurnefnda upptöku, en Bjama Jóhannssyni er ekki sæmandi að bera fram ásakanir af þessu tagi. Sé hann ósáttur við ummæli sín ætti hann að viðurkenna það í stað þess að falla í þá gamal- kunnu gildra að skjóta sendiboð- ann. . Björn Ingi Hrafnsson Fráleitl er að halda því fram að ummæli þjálfarans hafi verið „algerlega slitin úr samhengi“ Norræn knatt- spyrnusambönd þinga í Reykjavík Arlegur fundur formanna og framkvæmdastjóra allra knatt- spymusambanda á Norðurlöndum verður haldinn í Reykjavík 7. ágúst næstkomandi. Eggert Magnússon, formaður Knattspymusambands íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að á fundinum yrði rætt um sameigin- leg málefni norrænu knattspymu- sambandanna innan knattspymu- sambands Evrópu (UEFA) og Al- þjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) og það sem efst væri á baugi innan knattspyrnunnar. Þá yrði rætt um ýmis sérmál, um hvemig leikmenn norrænna liða gætu tekið þátt í landsleikjum án vandkvæða og um tryggingamál. Einnig yrði fjallað um fyrirhugaða sameiginlega umsókn Norðurlanda um að halda Evrópukeppnina í knattspymu árið 2006, en leikið yrði í Finnlandi, Noregi, Danmörku og Svíþjóð ef umsóknin yrði samþykkt. Sérstakt Evrópuþing yrði haldið hér á landi áður en keppnin færi fram, ef af yrði. Eggert sagði að árlegur fundur norrænu knattspymusambandanna hefði verið haldinn síðast hér á landi árið 1993. Hann sagði að forystu- menn sambandanna gerðu fleira en að sitja fundi og fyrirhugað væri að þeir gætu fylgst með úrslitaleikjum opna Norðurlandamóts 21 árs- landsliða kvenna, farið á hestbak og í fljótareið niður Hvítá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.