Morgunblaðið - 10.08.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.08.1999, Qupperneq 1
177. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Borís Jeltsín rekur stjórnina Hyggst styðja Pútín í forsetakosninsrunum iuters. Moskvu. Reuters. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti gerði jafnt stuðningsmenn sína sem andstæðinga agndofa í gær með því að reka alla ríkisstjómina og til- nefna Vladímír Pútín, fyrrverandi njósnara KGB, næsta forsætisráð- herra og forsetaefni sitt í kosningunum á næsta ári. Þetta er í fyrsta sinn sem Jeltsín lýsir því afdráttarlaust yfir hvem hann hyggist styðja í forsetakosn- ingunum og í fimmta sinn á 17 mán- uðum sem hann tilnefnir nýjan for- sætisráðherra. Forsetinn tilkynnti einnig í sjón- varpsávarpi nokkrum klukkustund- um eftir að hann rak stjóm Sergejs Stepasjíns, sem hafði aðeins starfað í þrjá mánuði, að kosningamar til dúmunnar, neðri deildar þingsins, ættu að fara fram 19. desember. „Kosningamaraþonið er hér með hafið,“ sagði Jeltsín. Gengi rúblunnar lækkaði um þrjú prósent gagnvart dollamum eftir brottvikningu stjórnarinnar þrátt fyrir íhlutun seðlabankans. Gengi rússneskra hlutabréfa lækkaði um 10,67%. Vill vernda „Fjölskylduna" Stjómmálaskýrendur sögðu að Jeltsín væri mjög umhugað um að tryggja að næsti forseti Rússlands veitti honum og „Fjölskyldunni“, eins og helstu bandamenn hans hafa verið kallaðir, friðhelgi frá ákæm. Pútín stundaði njósnir í Þýska- landi fyrir sovésku öryggislögregl- una KGB og starfaði síðar í borgar- stjóm Sankti Pétursborgar. Hann er náinn samstarfsmaður Anatolís Tsjúbajs, sem skipulagði umdeilda einkavæðingu rússnesku stjórnar- innar og er talinn vera í nánum tengslum við „Fjölskylduna11. Fréttastofan Interfax hafði eftir Pútín að hann hygðist ekki gera miklar breytingar á stjóminni. Dúm- an fær nú viku til að greiða atkvæði um tilnefninguna og talið er að at- kvæðagreiðslan verði á föstudag. Ekki var ljóst í gær hversu miklar líkur væra á því að tilnefningin yrði samþykkt. Nokkrir fréttaskýrendur sögðu ólíklegt að hún yrði samþykkt í fyrstu atrennu en flestir telja að dúman leggi blessun sína yfir Pútín í JELTSÍN við lestur sjónvarps- ávarpsins í gær, þar sem hann tilkynnti ráðherraskiptin. annami eða þriðju atkvæðagreiðsl- unni. Hafni dúman tilnefhingu forsetans þrisvar sinnum hefur hann vald til að leysa hana upp. Yfirkjörstjóm Rúss- lands sagði þó í gær að kosningunum yrði ekki flýtt ef Pútín yrði hafnað. „Algjört brjálæði“ Orðrómur hafði verið á kreiki í Moskvu síðustu daga um að Jeltsín hefði séð ofsjónum yfir þeim hlýju móttökum sem Stepasjín hefur feng- ið á ferðum sínum erlendis og væri óánægður með störf hans fyrir þing- kosningarnar í desember. Ekki var ljóst hvort átökin í Da- gestan um helgina höfðu áhrif á ákvörðun Jeltsíns. Líklegra þótti að forsetinn hefði ákveðið forsætisráð- herraskiptin nokkra áður en átökin blossuðu upp. Kommúnistar í dúmunni lýstu brottvikningu stjórnarinnar sem brjálæði og jafnvel stuðningsmenn Jeltsíns tóku í sama streng. „Þetta er algjört brjálæði," sagði Borís Nemtsov, fyrrverandi aðstoðarfor- sætisráðherra Rússlands sem var áður talinn líklegur til að bjóða sig fram í forsetakosningunum með stuðningi Jeltsíns. ■ Talinn vilja vemda/28 Flösku- skeyti skilar sér eftir 42 ár Brussel. Reuters. FLÖSKUSKEYTI, sem belgískur hermaður stílaði á kanadíska vinkonu sína og varpaði í sjóinn úti á miðju Atlantshafi fyrir 42 áram, barst aldrei til Kanada. En það hefur nú skilað sér í hend- ur höfundarins, eftir að ís- lenzk stúlka fann flöskuna. Flaskan fannst á íslenzkri strönd í fyrra, og skilaboðin í henni vora enn læsileg. Þar stóð nafn og þáverandi heimil- isfang höfundarins, Pierre Latinis, sem skrifaði flösku- póstinn 4. júní 1957 er hann var við herþjónustu um borð í flugvélamóðurskipi. Fyrir milligöngu íslenzku og belgísku utanríkisþjónustunn- ar tókst að hafa uppi á Latinis þar sem hann býr í Belgíu. „Mér finnst þetta alveg ótrúlegt," sagði Latinis er honum var færður flöskupóst- urinn. Hann viðurkenndi, að hafa misst sjónar á hinni kanadísku vinkonu sinni fyrir margt löngu. Rússneski herinn í átökum við skæruliða Hætta sögð á tapi Dagestans Moskvu, Makatsjkala. AP, Reuters. UNGIR Kosovo-Albanar hrópa slagorð að frönskum liðsmönnum KFOR / bænum Kosovska Mitrovica, en þar kom til átaka milli friðar- gæzluliða og æstra Kosovo-Albana þriðja daginn í röð í gær. Reynt að hemja hefndarþorsta Kosovo-Albana Enn slegizt við friðargæzluliða Belgrad, Kosovska Mitrovica. Reuters, AFP, AP. Sólmyrkv- ans beðið SÓLMYRKVI verður sjáanlegur í fjölmörgum löndum á morgun, og hafa yfirvöld varað þá sem hyggjast fylgjast með honum að horfa beint í sólina, þar sem var- anlegur augnskaði getur hlotist af því. Verslunareigendur og vöruframleiðendur víða um lönd hafa auglýst sérstök gleraugu sem gera eiga mönnum kleift að horfa í átt að sólu og verða vitni að myrkvanum án þess að hljóta af því skaða. Þessir Qórmenning- ar í hafnarborginni Sidon í Suð- ur-Libanon hafa þó greinilega ekki látið slíkar auglýsingar hafa áhrif á sig, heldur bjuggu sig í gær undir sólmyrkvann með því að máta þessa logsuðuhjálma af gömlu gerðinni. ■ Mikill áhugi/30 SERGEI Stepasjín, fráfarandi for- sætisráðherra Rússlands, varaði við því í gær að hætta væri á því að Rússland missti Kákasus-héraðið Dagestan úr sambandsríkinu. Her- menn rússneska hersins og öryggis- sveita rússneska innanríkisráðuneyt- isins áttu í gær í vopnuðum átökum við skæraliða róttækra múslíma í Dagestan, þriðja daginn í röð. Ekki fréttist af hörðum bardögum í gær, en spenna er mikil. Er ástandinu lýst þannig að rússnesk yfirvöld hafi ekki staðið frammi fyr- ir erfiðari viðureign frá því upp- reisnarmenn í Tsjetsjníu, sem er vestan við Dagestan, bratust undan áhrifum Moskvuvaldsins í stríði sem stóð með hléum á áranum 1994-1996. Talsmaður héraðsstjómarinnar í Dagestan sagði rússneska herinn saka skæraliða um að hafa skotið að rússneskum þyrlum í Dagestan í gær, þar á meðal einni sem Anatolí Kvasnín, yfirmaður rússneska her- aflans, var farþegi í. Stór flokkur vopnaðra manna fór á laugardag yf- ir landamærin frá Tsjetsjníu til Da- gestan og hertók nokkur þorp þar í fjöllunum. Stepasjín forsætisráð- herra skipaði hernum á vettvang, en honum hefur ekki tekizt að flæma skæraliðana á brott. Hvað fyrir innrásarliðinu vakir er að miklu leyti óljóst, en fregnir herma að liðsmenn þess séu félagar í Wahhabi-hreyfingu róttækra múslíma, sem vilja koma á íslamskri stjóm í öllum Kákasus-lýðveldum Rússlands og sameina Dagestan Tsjetsjníu. Staðið við skipanir Stepasjíns „Ástandið í Dagestan í dag er mjög alvarlegt,“ sagði Sergei Stepa- sjín á síðasta ríkisstjórnarfundinum undir hans stjórn í Kreml. „Ég held að svo gæti farið að við töpuðum Da- gestan.“ Arftaki hans í embætti, Vladimír Pútín, hét því að staðið yrði við framkvæmd allra þeirra skipana um aðgerðir í Kákasus, sem Stepasjín hefði undirritað. ÁTÖK brutust út á ný í gær milli franskra friðargæzluliða og Kosovo- Albana í bænum Kosovska Mitrovica, á brú sem aðskilur hverfi albanskra og serbneskra íbúa bæjar- ins, en gærdagurinn var sá þriðji í röð sem til slíkra átaka kom. Albanskir íbúar Kosovska Mitrovica vildu fylkja liði í serbneska hluta bæjarins til að fá þar útrás fyrir hefndarþorsta vegna þeirra þjáninga og eyðileggingar sem þeir þurftu að þola frá hendi Serba í stríðinu sem lauk fyrir tæp- um tveimur mánuðum. í bænum Zitinje stóðu í gær síð- ustu húsin sem byggð vora Serbum í Ijósum logum. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir alþjóðasamfélagsins og viðleitni friðargæzluliða KFOR um að Kosovo-Albanir hafi hemil á hefndarfýsn sinni fyrir það sem þeir þurftu að þola í herför Serba gegn þeim, hefur illa gengið að hindra hefndarárásir sem era langt komnar með að flæma alla Kosovo-Serba úr héraðinu. Flestir hinna 200.000 Serba sem bjuggu í Kosovo hafa haft sig á brott á síðustu vikum. Hashim Thaci, leiðtogi Frelsishers Kosovo (KLA), vísaði því á bug í gær að samtökin hefðu staðið á bak við átökin í Kosovska Mitrovica. Sagði hann „hroka“ frönsku friðargæzlu- liðanna um að kenna. Einn Frakkinn særðist illa í átökunum, en að undan- förnu hafa árásir á friðargæzluliða færzt í aukana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.