Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
MARKAÐIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fiskverð heima
Fiskmarkaður
Hafnarfjarðar
Faxamarkaður
Fiskmarkaður
Suðurnesja
Um fiskmarkaðina þrjá hér syðra fóru alls 66,8 tonn af þorski í
síðustu viku. Um Fiskmarkaðinn hf. í Hafnarfirði fóm 17,8 tonn
og var meðalverðið 152,01 kr./kg., um Faxamarkað fóru 13,8 tonn
á 152,23 kr./kg og um Fiskmarkað Suðurnesja fóru 35,3 tonn á
155,56 kr./kg. Af karfa voru seld 67,7 tonn. í Hafnarfirði á 80,67
kr./kg.(9,81), á Faxamarkaði á 55,44 kr/kg (0,71) og á Fiskmarkaði
Suðurnesja á 72,49 kr./kg (57,31). Af ufsa voru seld 35,1 tonn.
í Hafnarfirði á 67,75 kr./kg (21,01), á Faxamarkaði á 62,65 kr./kg
(4,61), en á 59,70 kr./kg (9,51) á Fiskmarkaði Suðurnesja.
Af ýsu voru alls seld 84,3 tonn. Á Fiskmarkaðnum hf. í Hafnarfirði
á 122,43 krAg (7,71), á Faxamarkaði á 126,31 krikg (36,31) og
á 146,29 kr./kg (40,21) að meðaltali á Fiskmarkaði Suðurnesja.
PorskurmsBv * Karfi Ufsi w Skarkoli'
Alls voru seld 136 tonn af fiski í Bremerhafen í síðustu viku.
Þar af voru 129 tonn af karfa á 115,41 kr. hvert kíló að meðaltali.
Alls voru seld
594,6 tonn af fiski
á fiskmörkuðum í
Grimsby í 37. viku.
Meðalverð á þorski
var 254,95 kr./kg,
248,73 kr./kg á ýsu
og 245,63 kr./kg á
kola. Fiskverðvar
sem hér segir...
Lægsta Hæsta
Þorskur kr/k9 kr/k9
Stór 317
Meðal 261
Lítill 187
Ýsa
Stór 280
Meðal 261
Lítil 205
Koli
Stór 298
Meðal 252
Lítill 187
Staða íslenskra sjávarafurða
sterk í upphafí aldarinnar
Slagurinn um neytendurna
verður þó sífellt harðari
Samkeppnishæfni
og markaðsstaða
sjávarafurða frá ís-
landi á erlendum
mörkuðum verður
sterk í upphafi nýrrar aldar. Ymsar blikur eru þó á lofti og slagurinn um
neytendur verður sífellt harðari. íslensk markaðsfyrirtæki þurfa því að
miða að því að ná enn sterkari markaðsstöðu og efla upplýsingaflæði til
neytenda. Þetta kom meðal annars fram í erindum forsvarsmanna stóru
sölusamtakanna þriggja sem flutt voru á aðalfundi Samtaka fiskvinnslu-
stöðva í síðustu viku.
Gunnar Örn Kristjánsson, for-
stjóri Sölusambands íslenskra fisk-
framleiðenda, sagði íslensk fyrir-
tæki hafa sterka stöðu í hefðbund-
inni dreifingu til fagaðila eða heild-
sala. Þar hefðu þeir yfir sterkum
vörumerkjum að ráða en vandinn
væri hins vegar sá að almenningur
þekkti þessi merki lítið og milliliðir
í dreifileiðum héldu þeim lítið á
lofti. Þannig ættu íslensku mark-
aðsfyrirtækin mikið verk óunnið
varðandi bein ítök í neytendum
með eigin vörumerld. Gunnar benti
á að mikil samþjöppun hefði orðið í
svokallaðri nútímadreifingu, dreif-
ing matvæla færðist æ meir til stór-
verslana en þeim fækkaði nú óðum
með yfirtökum eða samruna þeirra
stóru, til dæmis með samruna Wal-
mart og ASDA annars vegar og
Carrefour og Promodes hins vegar.
Þessi stóru fyrirtæki leituðu eftir
undirverktökum til pökkunar undir
þeirra eigin merkjum. Þessir aðilar
stýrðu einnig aðgangi að hilluplássi
og þar með neytendum.
Gunnar sagði að til að sækja fram
verði íslendingar að ná sterkri
samningsstöðu við þessi stóru fyrir-
tæki. Þróa þyrfti nýjar afurðir í
nánu samstarfi við þessa aðila en
einnig væri mikilvægt að þróa sjáv-
arútveginn í takt við þessar breyt-
ingar á markaðnum. Sagði Gunnar
að stór markaðsfyrirtæki með sterk
vörumerki væru trúlega ein væn-
legasta leiðin fyrir ísland til að
verða leiðandi á markaðnum en ekki
þolendur utanaðkomandi breytinga.
Samþjöppun í matvæladreifingunni
gæti þannig vissulega verið ógnun
við frumframleiðslu og veiðar. Til að
mæta þessari samþjöppun sé
stækkun markaðsfyrirtækjanna
eðlilegt andsvar til að tryggja
samningsstöðuna. Gunnar benti á
að framleiðendur fiskafurða á ís-
landi væru að stækka en spurði
hvort þeir yrðu nokkum tíma nægi-
lega stórir til að mæta þörfum
dreifingaraðilanna. Taldi hann að
þeir sem réðu yfir dreifileiðum á
markaðnum myndu hafa ráðandi
stöðu við alla samninga um verð og
afhendingar. Gunnar sagði að ís-
lensk fyrirtæki yrðu að geta nálgast
markaðinn á eigin forsendum nú og
í næstu framtíð. Benti hann meðal
annars á að neytendur leituðu að
öryggi, besta verði, þægindum og
þjónustu. Auk þess tækju þeir sí-
fellt meira tillit til siðferðislegra
þátta, svo sem umhverfismála og
sjálfbæra nýtingu auðlinda. Mark-
aðssetning íslensku íyrirtækjanna
yrði því að höfða sterkt til þessara
þátta, bæði fyrir íslenskan fisk og
fiskafurðir með annan uppruna.
Gunnar sagði Islendinga því þurfa
að byggja upp eigin vörumerki sem
neytandinn þekkir, vörumerki sem
nútímadreifingin verði að hafa í sín-
um hillum fyrir viðskiptaaðila sína.
Nútímadreifingin vilji eiga viðskipti
við stóra aðila með breiða vörulínu,
ekki marga smáa.
Auka þarf hróður
frosna fisksins
Gunnar Svavarsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
benti í erindi sínu á að gæði og
þægindi fiskirétta skiptu sífellt
meira máli á neytendamarkaðnum.
Gæði máltíðarinnar endurspegluðu
ekki aðeins kröfur um bragðgæði,
heldur einnig ferskleika, öryggi og
að ánægjulegt væri að njóta henn-
ar. I þessu sambandi sagði Gunnar
að frystur fiskur ætti í vök að verj-
ast í samkeppni við önnur matvæli.
Ferskur fiskur væri í meiri háveg-
um hafður en frystur fiskur, sem
sæist meðal annars af því að greitt
er fyrir hann hærra verð. Kannanir
sýndu einnig að neytendur á Norð-
urlöndum telja frystan fisk óspenn-
andi hversdagsmáltíð. Sannleikur-
inn væri hins vegar sá að ferskt
fryst hráefni er það sem næst
kemst nýveiddum fiski. Frystur
fiskur hafi hins vegar á sér lélega
gæðaímynd og jafnvel enn þann
dag í dag væri frystur fiskur mis-
góður og neytandinn ætti í mestu
erfiðleikum með að velja á milli.
„Markaðurinn í dag byggist annars
vegar á sterkum merkjum fram-
leiðenda og þá veltur á gæðakröf-
um þeirra hvemig til tekst. Hins
vegar fer vaxandi að verslunarkeðj-
ur selji undir eigin vörumerkjum
og blandi saman fiski frá mörgum
aðilum. Hætta er á að lítil þekking
á fiski og eilífar kröfur um lægra
verð leiði til þess að hann fái ekki
notið sín sem sá góði matur sem
hann getur verið.“
Gunnar sagði að þótt frystur
fiskur væri í harðri samkeppni við
önnur matvæli þýddi það ekki að
leggja ætti árar í bát. Hér væri að-
eins áhugavert og spennandi verk
að vinna og tækifærin væru til stað-
ar. „Það þarf að koma meiri gæðum
til skila til hins endanlega neyt-
anda. Auka þarf vöruþróun og
koma með spennandi nýjungar.
Ennfremur má auka framboð
kælds fisks í neytendavænum
pakkningum í stórmörkuðum en
hluti þessa fisks getur verið kæld-
ur, uppþýddur fiskur. Það þarf að
koma með máltíðarlausn fyrir neyt-
endur, þar sem hugað er að sam-
setningu, framsetningu og því
hvernig elda skal. Einnig þarf að
efla trú og tryggð viðskiptavinarins
með merkingum og upplýsinga-
streymi og tryggja stöðugt fram-
boð og beita herferðum til að
breyta afstöðu fólks til fisks,“ sagði
Gunnar.
Fískveiðistjórnun grundvöllur
sterkrar markaðsstöðu
Finnbogi Jónsson, forstjóri Is-
lenskra sjávarafurða hf„ taldi sam-
keppnishæfni og markasstöðu sjáv-
arafurða frá Islandi verða mjög
sterka í upphafi nýrrar aldar. Það
sagði hann meðal annars liggja í því
hagkvæma fiskveiðistjómunarkerfi
sem þjóðin býr við. Það hafi klár-
lega leitt til hagræðingar í útgerð
og fiskvinnslu sem og aukinnar
verðmætasköpunnar. Gæði þess
hráefnis sem á land berst séu enn-
fremur meiri og samhæfing veiða
og vinnslu mun markvissari en áð-
ur. Vonaðist Finnbogi til að íslend-
ingar bæru gæfu til þess að ekki
yrðu gerðar grundvallarbreytingar
á komandi árum. Þá sagði Finnbogi
afburða góða þekkingu og reynslu
íslenskra sjómanna og útgerða vera
mikinn styrk og þýða mjög sam-
keppnishæfar fiskveiðar í framtíð-
inni. Einnig benti hann á að fram-
farir í fiskvinnslu og framleiðslu-
tækni hefðu verið gífurlegar á síð-
asta áratug, sem sjá megi bæði á
stóraukinni framlegð sem og fram-
leiðni fyrirtækjanna. Þá væri staða
sölufyrirtækja mjög sterk og þekk-
ing þeirra og reynsla muni efla
stöðu sjávarafurða frá íslandi á er-
lendum mörkuðum í upphafi nýrrar
aldar. Ennfremur taldi Finnbogi að
öflugt þróunarstarf í sjávarútvegi,
stærri og sterkari sjávarútvegsfyr-
irtæki og framfarir í flutninga- og
upplýsingatækni efla greinina til
muna. Þá taldi Finnbogi að greinin
væri orðin mun áhugaverðari og
laðaði þannig til sín menntað ungt
fólk.
Helstu fiskútflutningsafurðir Norðmanna, jan.-júlí '99 mi|y Tonn NOK
Ferskur eldislax 108.131 3.011.914 I
Frystur makrill 111.008 559.113
Fryst sild 101.302 345.923
Blautv. saltflskur 14.039 749.960
Frystþorskflök 24.535 1.006.169
Saltaður þorskur 30.403 1.136.291 |
Blautverkaður ufsi 11.745 314.033
Frystar rækjur (pillaðar) 9.563 474.229 |
Heilfrystur eldislax 17.517 517.599
Fryst laxaflök 9.729 570.303
Norðmenn öflugir
í eldislaxinum
• NORÐMENN fluttu út rúm
108 þúsund tonn af ferskum eld-
islaxi á fyrstu 7 mánuðum ársins
og var verðmæti hans rúmir 30
milljarðar íslenskra króna. Það
er 7,36% aukning frá sama tíma-
bili sfðasta árs í magni talið en
6,73% aukning í verðmætum.
Ferskur lax er langverðmætasta
sjávarútflutningsvara Norð-
manna. Reyndar flytja þeir meira
út af frosinni sfld eða um 101.302
tonn á fyrstu 7 mánuðum ársins
en verðmæti hennar nam tæpum
3,5 milljörðum íslenskra króna.
Utflutningur á frosinni sfld hefur
dregist saman um meira en þriðj-
ung frá sama tímabili síðasta árs.
ý»x
Útflutningur Norðmai^n|., .,
á laxi, jan.-júlí '99
Tonrr NOK
Ferskur, heill 127.183 3.530.226
Ferskur, hausaður 1.220 38.911
Ferskur, annað 82 3.380
Heilfrystur 17.517 517.599
Frosinn, hausaður 7.159 233.671
Frystflök 9.729 570.303
Fersk flök 9.863 482.821
Reyktur 1.604 128.156
Marin./graftnn 141 11.452
Annar unninn 221 16.716
í loftþéttum umb. 43 2.913
• HEILDARÚTFLUTNINGUR
Norðmanna á laxi á fyrstu sjö
mánuðum ársins varð um 175
þúsund tonn og var verðmætið
um 55 milljarðar króna. Það er
um 16,67% aukning í magni en
um 19,69% aukning í verðmæt-
um. Langmest var flutt út af heil-
um ferskum laxi eða um 127.183
tonn en næstmest af frosnum
heilum laxi eða um 17.517 tonn.
Þá hefur útflutningur Norð-
manna á urriða aukist verulega
en alls fluttu þeir út um 17.835
tonn af frosnum urriða á túnabil-
inu, að verðmæti um 5,9 miHjarð-
ar íslenskra króna. Það er um
37% aukning í magni en um 73%
aukning á verðmætum.