Morgunblaðið - 24.09.1999, Síða 6

Morgunblaðið - 24.09.1999, Síða 6
6 C FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Næringar- rík og lítið eitruð mjólk MATARÆÐI íslenskra kvenna með börn á brjósti er almennt gott og næringargildi íslenskrar brjóstamjójkur mikið, samkvæmt rannsókn Onnu Sigríðar Olafs- dóttur næringarfræðings á mataræði og tengslum þess við samsetningu bijóstamjólkur. „Næg vítamín voru í flestum til- fellum í fæðu kvenna með börn á brjósti, með fáum undantekning- um á borð við D- og E-vítamín og fólasín. Einnig eru stein- og snefilefni í talsverðu magni í fæðunni en járn, joð og selen undir þeim mörkum sem ráðlögð eru,“ segir hún. Fram kemur sér- staða íslensks mataræðis vegna mikillar neyslu á fiski og lýsi. Samkvæmt rannsókninni taka 44% mæðra með börn á brjósti lýsi en 22% mæðra eldri barna. Þá kemur í Ijós að hlutfall kol- vetna í móðurmjólk hérlendis sé of lítið miðað við það sem mælt sé með og að magn fitu sé helst til hátt, sérstaklega mettaðrar fítu. Loks er bent á skaðleg áhrif reykinga á samsetningu brjósta- mjólkur. Eiturefni í bijóstamjólk eru öðru hverju til umræðu og segir dr. Kristín Ólafsdóttir sérfræð- ingur í umhverfíseiturfræði við HI að þrávirk, lífræn klórefni mælist nú í n\jólk manna og dýra alls staðar. „Yíðast hvar er magn efnanna þó það lítið að kostir móðurmjólkur eru taldir yfir- gnæfa mögulega hættu af þeirra völdum. Helstu heilsufarslegu áhrif sem rakin eru til mikils magns eiturefna í móðurnyólk eni neikvæð áhrif á greind barna, áhrif á fijósemi, skert starfsemi ónæmiskerfís og hugsanlega myndun krabbameina. Á Islandi hafa fundist ýmis þrávirk, lffræn klórefni í svipuðu eða heldur meira magni en finnst á öðrum Norðurlöndum. Magnið er hins vegar að meðaltali 50-100 sinnum lægra en það sem talið er skaða þroska ungbarna," segir hún. Kristín segir að í raun og veru sé engin lífvera jarðarinnar óhult fyrir þrávirkum, lífrænum klór- efnum, sem oft séu í 10.000 sinn- um meira magni í líkama þeirrar sem efst er í fæðukeðjunni miðað ' við þá sem neðst er. Fyrir ofan þá efstu trónir síðan bijóstmylk- ingurinn og því full ástæða fyrir vísindamenn að fylgjast með magni þessara efna í umhverf- inu. Eiturefni losuð með móðurmjólk Þrávirk, lífræn efni eru bæði stöðug og fítuleysin og safnast fyrir í lífverum. „Flest önnur fitu- leysin efni sem berast í líkamann tekst okkur að Iosna við, því þeim er breytt í vatnsleysanleg efni sem losuð eru út með þvagi. En þar sem þessi efni hafa ákveðna jbyggingu og innihalda mikið af klórefnum tekst líkamanum ekki að bijóta þau niður svo þau safn- ast smátt og smátt fyrir í fituvef. Hjá karlmönnum og karldýrum gerist þetta smátt og smátt alla ævi en konur geta hins vegar los- að sig við hluta þessara efna með móðurmjólkinni. Urtur hafa til dæmis mjög feita móðurinjólk og losna nánast alveg við þessi líf- rænu klóríð meðan kóparnir eru á spena,“ segir hún. Loks segir Kristín að lífræn klóríð séu með örfáum undan- 'tekningum, svo sem díoxíni, ekki bráðeitruð og því þurfi tiltölu- lega mikið af þeim til þess að drepa. „Hins vegar höfum við áhyggjur af langtímaáhrifum þeirra því við erum í snertingu við efnin alla ævi, allt frá fóstur- skeiði til dauðadags." Móðurmjólk er besta næring sem hægt er að gefa barni með tilliti til vaxtar og þrbska ' og vilja samtök barnalækna víða um heim að barn Km| sé á brjósti eingöngu í hálft ár og fái móðurmjólk til jafns við aðra næringu í ár. Helga Kristín Einarsdóttir hlustaði á tíu erindi um brjóstagjöf, JA mataræði, tengslamyndun XjjSTp og næringu ungbarna á afmælisráðstefnu Ljósmyndir/Presslink Þótt mælt sé með reglufestu við umönnun ungbarna eiga þau sjálf að ráða ferðinni, en ekki amma, „tengdó" eða klukkan. SAMTÖK bamalækna víða um lönd hafa mótað heildar- stefnu til þess að vinna að aukinni brjóstagjöf, mæla með henni einni saman fyrstu sex mánuðina og að henni sé haldið áfram með annarri næringu að minnsta kosti sex mánuði til við- bótar, segir Magnús Jóhannsson læknir, sérfræðingur í líflyfjafræði og prófessor við HI. Ahugafélagið Barnamál hélt 15 ára afmælisráðstefnu á dögunum og var Magnús einn flytjenda tíu erinda um ýmiss konar áhrif brjóstagjafar. Hann segir rannsóknir á brjóstagjöf mæðra í þróunarlöndunum sýna greinilegt samband á milli brjósta- gjafar annars vegar og minni hættu á niðurgangi vegna sýkinga, lungna- bólgu, barkabólgu, _ eyrnabólgu og heilahimnubólgu. ,Á síðustu árum hefur jafnframt verið sýnt fram á samskonar samband milli brjósta- gjafar og minni sýkingarhættu í Bandaríkjunum, Kanada, Evrópu og Ástralíu. Einnig eru vissar vís- bendingar um að böm sem fá fulla brjóstagjöf í tiltekinn tíma séu i minni hættu að fá ofnæmi og hafi hærri greindarvísi- tölu. Þetta er að vísu afar umdeilt," segir hann. I einstaka sjaldgæfum tilvikum er brjóstagjöf talin óráðleg og er það helst ef móðirin er smituð af alnæmi eða berklum, eða ef hún þarf að taka lyf sem eru heilsu hennar nauðsyn- leg en geta skaðað barnið. I öðrum tilfellum er brjóstagjöf talin það besta fyrir heilsu og þroska barns- ins, að Magnúsar sögn. „Brjóstagjöf á að byrja eins fljótt og hægt er eftir fæðingu, að öllu jöfnu innan klukkutíma. Nýbura á að setja á brjóst eins oft og þeir sýna merki um hungur, allt að því 8-12 sinnum á sólarhring til þess að byrja með. Fyrstu sex mánuði þarf enga viðbót við brjóstamjólkina, hvorki vatn né annan vökva, um það eiga allir að geta verið sammála sem skoða staðreyndir málsins. Brjósta- mjólk er ekki bara nærandi heldur hið besta sem hægt er að gefa með Ábót ó brjósta mjólk óþörf fyrstu 6 mónuðina tilliti til vaxtar og þroska barnsins," segir hann. Dregið úr líkum á vöggudauða Magnús segir samþykktir barna- læknanna um æskilega lengd brjóstagjafar byggja á niðurstöðum fjölmargra rannsókna. Vöggudauði hefur lengi verið læknum ráðgáta og minnist Magnús til dæmis á ráðlegg- ingar kanadískra lækna hvað hann varðar. „Þar hefur verið bent á ferns konar ráðstafanir sem dregið geta úr líkum á vöggudauða. í fyrsta lagi að láta barnið sofa á baki eða hlið, ekki á maganum, í öðru lagi að ekki sé reykt í námunda við barnið, í þriðja lagi að herbergishiti sé ekki of hár og miðaður við það sem fullorðnum þykir þægilegt, en sumir hafa til- hneigingu til þess að hækka hitann þegar lítið barn er komið á heimilið. Síðast en ekki síst er mælt með brjóstagjöf, en menn telja sannað að __________ með því að fara eftir þessum ábendingum megi draga úr líkum á vöggudauða," segir hann. Bæði er hægt að meta áhrif brjóstagjafar á heilsu ungbarnsins til ““““““““ langs og skamms tíma og segir Magnús alveg klárt að sýking- ar séu færri hjá brjóstmylkingum en pelabörnum, sama hvert litið sé í heiminum. „Síðastliðin tíu ár hafa þónokkuð margar rannsóknir verið gerðar, sem sýna ótvírætt að hið sama gildi í okkar heimshluta. I þró- unarlöndunum dregur brjóstagjöf sjö- til tífalt úr líkunum á því að barn deyi fyrstu fjóra mánuðina,“ segir hann og bætir við að þótt heilbrigðis- ástand sé auðvitað allt annað í okkar heimshluta séu jákvæð áhrif brjósta- gjafar ótvú'æð, að minnsta kosti til skamms tíma. Tíu ára sjúkdómsvörn? Meiri vafí leikur á langtímaáhrif- unum segir Magnús en vitnar í „til- tölulega stóra og mjög vandaða sænska rannsókn" sem sýnt hafí að brjóstagjöf veiti barni nokkra vörn gegn sýkingum í allt að því tíu ár, en ónæmiskerfi þess nær ekki fullum þroska fyrr en við 4-5 ára aldur. „Aðrar rannsóknir hafa ekki verið gerðar til þess að skoða þetta sér- staklega þannig að vísindamenn treysta sér ekki til þess að fullyrða nokkuð. Margt bendir þó til þess að vörnin geti varað í þónokkurn tíma eftir að brjóstagjöf lýkur. Einnig sjást þess sterklega merki að börn sem hafa verið á brjósti taki betur við bólusetningum. Ástmi hefur ver- ið vaxandi vandamál í heiminum, ásamt ofnæmi, sem sumir vilja rekja til aukinnar mengunar, en þau teikn eru á lofti að brjóstagjöf veiti vissa vernd hvað það varðar, þó að það sé ekki fullsannað. Brjóstagjöf er talin geta dregið úr hættunni á insúlín- háðri sykursýki og þá eru til veikar vísbendingar í þá veru að hún geti dregið úr áhættunni á MS-sjúk- dómnum og liðagigt. Líka er talað um að brjóstmylkingar séu með lægra kólesteról í blóði mjög lengi eftir að brjóstagjöf lýkur og ein- hverja vísbendingu er að finna um vissa vörn gegn krabbameini. Hins vegar er ekkert hægt að full- yrða í þessu sambandi." Magnús segir mótefni gegn sýklum í brjósta- mjólk, aðailega svokallað slímhúðarmótefni. „Móðirin myndar mótefni gegn sýklum í umhverfinu sem síðan skilst út í mjólkina og verndar barnið. Fullorðin manneskja framleiðir um 2,5 grömm á dag af mótefni og þar af fer hálft til eitt gramm út í mjólkina, sem er risa- skammtur fyrir pínulítið barn. Einnig eru í brjóstamjólk fitur og fá- sykrungar sem vitað er að drepa sýkla, bæði bakteríur og veirur. Því teljum við okkur skilja nokkuð vel hvernig móðurmjólkin ver barnið fyrir sýkingum á meðan brjóstagjöf stendur yfir. Það sem gerist að henni lokinni er kannski svolítið óljósara,“ segir hann. Lítil brjóstagjöf hugsanlega gagnslaus Niðurstöður voru birtar á þessu ári í erlendri rannsókn á sambandi milli magns brjóstamjólkur og áhrifa, þar sem fylgst var með 7.000 brjóstmylkingum í sex mánuði. Var magni mjólkur sem börnin fengu skipt í fimm flokka, það er fulla gjöf, þar sem barn fékk ekkert annað, mikla gjöf, þar sem meirihluti fæð- unnar var brjóstamjólk og gjöf til hálfs, þar sem móðurmjólk var til jafns við aðra næringu. Þá var hópur sem fékk innan við helming næring- ar úr brjóstamjólk og sá flmmti fékk enga móðurmjólk. „I ljós kom greini- legt samband milli magns og áhrifa á algengar sýkingar. Ávinningur af fullri brjóstagjöf í sex mánuði var mestur. Þegar brjóstamjólkin var minna en helmingur næringar sáust engin áhrif, sem olli nokkrum von- brigðum, en enginn marktækur munur var á þeim hópi og börnum sem fengu enga brjóstamjólk. Þetta er að vísu ekki síðasta orðið og fyi'sta rannsóknin þar sem flokkun á magni brjóstamjólkur er svo ná- kvæm. Niðurstöðurnar eru að minnsta kosti vísbending þess að sem allra mest magn brjóstamjólkur sé best fallið til árangurs,“ segir hann. Þá vitnar Magnús í rannsókn frá 1997 á sam- bandinu milli eyrnabólgu og þrjóstagjafar. „Skoð- að var nýgengi eyrnabólgu á tilteknu tímabili þar sem 54% pelabarna höfðu fengið eyrnabólgu sex mánaða og 76% við eins árs aldur. Hlutfall slíkra sýkinga hjá brjóstmylkingum var hins vegar 25% eftir hálft ár og 51% eftir eitt ár.“ Loks segir hann brjóstagjöf að langflestu leyti mjög holla fyrir móð- urina líka og að sífellt komi fleiri já- kvæð áhrif hennar í ljós. „I fyrsta lagi léttast mæður sem hafa börn á brjósti meira en hinar og legið dregst hraðar saman og jafnar sig fyi-r. Hætta á þungun er minni, því flestai' konur með barn á brjósti eru ófrjóar, sem og líkur á brjósta- krabbameini. Margir hafa haft áhyggjur af áhrifum brjóstagjafar á kaíkbúskap konunnar í kjölfarið, en nú hefur komið í ljós að hún dregur úr hættu á beinþynningu eftir tíða- hvörf, sem eru tíðindi," segir Magn- ús Jóhannsson að síðustu. Brjóstagjöf dregur úr hættu ú bein- þynningu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.