Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913
220. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fnðargæzla á Austur-Tímor
Vígamenn eltir
og afvopnaðir
Dili. AP, Reuters.
FULLTRÚAR Sameinuðu þjóðanna
unnu að því í gær að undirbúa rann-
sókn á óhæfuverkum í Austur-
Tímor, en samtímis því bárust fregn-
ir af því að hermenn Indónesíuhers
og vígamenn honum tengdir fremdu
fjöldamorð á óbreyttum borgurum,
jafnvel eftir að friðargæzluliðar tóku
sér stöðu á eyjarhlutanum.
Hermenn hins fjölþjóðlega friðar-
gæzluliðs lentu í þyrlum í bænum
Com, þar sem nunna og átta aðrir
hjálparstarfsmenn á vegum kaþ-
ólsku kirkjunnar voru mjrt úr laun-
sátri á laugardag.
Friðargæzluliðarnir héldu inn í
Com í ljósaskiptunum á mánudags-
kvöld og handtóku 15 vopnaða menn.
Pykir aðgerðin ein sú bezt heppnaða
frá því friðargæzluliðið, sem Astralir
fara fyrir, kom til A-Tímor fyrir
rúmri viku.
Liðið hefui- síðustu daga notað
Blackhawk-herþyi’lur til að gera
skyndiáhlaup á stöðvar vígamanna,
sem hafa með óhæfuverkum reynt
að gera niðurstöðu atkvæðagreiðsl-
unnar um sjálfstæði A-Tímor að
engu. Miðast þessar aðgerðir friðar-
gæzluliðsins ekki sízt að því að
hleypa kjarki í það fólk sem flúið
hefur heimahagana undan víga-
mönnum.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagðist vilja að
gengið yrði í það hratt og örugglega
að rannsaka grimmdarverk á A-
Tímor, „í því skyni að fá staðreynd-
irnar á hreint svo sækja megi þá sem
ábyrgð bera [á óhæfuverkum] til
saka“.
Sérsveitarmenn
meðal handtekinna
Forystumenn friðargæzluliðsins
áttu í gær fundi með leiðtogum
Falintil, stærstu skæruliðahreyfing-
arinnar sem barðist gegn indónes-
ískum yfirráðum á A-Tímor. Ekki
voru gerðar tilraunir til að afvopna
skæruliðana, en það þótti mörgum
Indónesum rangt, þar sem friðar-
gæzluliðinu beri að sýna hlutleysi.
Ástralskir talsmenn friðargæzlu-
liðsins greindu frá því í gær, að meðal
þeirra handteknu væru um 10 liðs-
menn hinna svokölluðu Kopassus-sér-
sveita Indónesíuhers. Þær voru úr-
valssveitir Suhartos fyrrverandi
Indónesíuforseta og eru taldar hafa
séð um framkvæmd ýmissa leynilegra
aðgerða á 32 ára valdatíma hans.
S Reuters
Áfram gengið gegn Milosevic
MÓTMÆLI almennings í Serbíu
gegn Slobodan Milosevic Jú-
góslavíuforseta liéldu áfram í
mörgum borgum í gær, áttunda
daginn i röð. I höfuðborginni
Belgrad fóru trymblar fyrir um
9.000 manna fjöldagöngu framhjá
byggingum serbneska forsetaemb-
ættisins og þingsins. Þetta var öllu
minni þátttaka en á mánudag, þeg-
ar um 10.000 manns tóku þátt í
göngu dagsins, og á sunnudag,
þegar um 50.000 höfuðborgarbúar
lögðu sitt lóð á vogarskálarnar til
að krefjast afsagnar Milosevics.
Talsmenn bandalags stjórnar-
andstöðuaflanna í Serbíu sögðu í
gær að í dag myndu mótmæla-
göngumenn haída til íbúðarhúss
Milosevics, þar sem mikil öryggis-
gæzla er fyrir. Telja frétta-
skýrendur að komið geti til
árekstra öryggisvarða forsetans
og mótmælenda.
Rússar lialria áfram árásum á stöðvar skæruliða í Tjsetsjníu
ESB og Bandaríkin
lýsa yfir áhyggjum
Grosní, Moskvu. Reuters.
Rússneskur hermaður matast í vélbyssuhreiðri sínu á landarnærum
Dagestans og Tsjetsjníu. Rússneskar herflugvélar héldu áfram loft-
árásum á valin skotmörk í Tsjetsjníu í gær.
Chilestjórn vill fyrir Alþjóðadómstólinn
Pinochet fari
fyrir rétt í Chile
London, Haag. Reuters, AP, AFP.
ÞUSUNDIR tsjetsjenskra borgara
flúðu heimili sín í gær, þegar Rússar
gerðu loftárásir á landið sjötta dag-
inn í röð. Talsmaður rússneska varn-
armálaráðuneytisins ítrekaði að
árásirnar beindust að „ákveðnum
svæðum“, þar sem talið væri að ís-
lamskir skæruliðar hefðust við, en
væri ekki beint gegn óbreyttum
borgurum.
Rússneskar herþotur fóru í fímm-
tán árásarferðir í gær og lögðu með-
al annars olíuvinnslustöð, olíugeymi
og rafstöð nálægt höfuðborginni
Grosní í rúst. Rússneska Interfax-
fréttastofan hafði eftir yfirmönnum
hersins í Norður-Kákasus-héruðun-
um að byggingarnar hefðu verið á
valdi skæruliða, sem seldu olíu til að
fjármagna vopnakaup.
Aslan Maskhadov, forseti Tsjet-
sjníu, og Magomed Magomedov,
héraðsstjóri Dagestans, eiga fund í
dag til að ræða ástandið.
Stöðugleika stefnt í hættu
Talsmenn Evrópusambandsins
lýstu í gær yfir áhyggjum vegna
ástandsins á landamærum Rúss-
lands og Tsjetsjníu, og hvöttu stórn-
völd í Rússlandi til að gera allt sem í
þeirra valdi stæði til að koma í veg
fyrir að spenna ykist enn frekar. Þá
hvatti Bandaríkjastjórn báða aðila til
að hlífa óbreyttum borgurum, en í
yfirlýsingu hennar segir að átökin
gætu stefnt stöðugleika í þessum
heimshluta í hættu.
Háttsettir embættismenn innan
rússneska hersins lýstu í gær
ánægju með framgang aðgerðanna í
Tjsetsjníu, þrátt fyrir að herinn ætti
við fjárskort að stríða og væri að
mestu leyti skipaður ungum og
óreyndum mönnum. ígor Sergejev,
varnarmálaráðherra Rússlands,
sagðist í viðtali í dagblaðinu Krasna-
ya Zvezda vongóður um að aðgerð-
irnar bæru góðan árangur, þrátt fyr-
ir vanda hersins. Lofaði hann þá
ákvörðun Borís Jeltsíns Rússlands-
forseta að færa málefni hersins
fremst í forgangsröð sína.
Innanríkisráðherra Rússlands,
Vladímír Rushaílo, átti í gær fund
með Jeltsín til að skýra honum frá
árangri baráttunnar gegn hryðju-
verkum skæruliða. Sagði Rushaílo
að lögregla hefði enn mikinn viðbún-
að vegna sprengjutilræðanna und-
anfarið. Fullyrti hann að 16 spreng-
ingum hefði verið afstýrt vegna að-
gerða lögreglu síðustu daga og að
fundist hefði 521 tonn af sprengiefni.
Um 100 menn hafa verið teknir
höndum vegna gruns um aðild að til-
ræðunum.
■ Markmiðið/28
STJORNVOLD í Chile ráðgera að
höfða mál fýrir Alþjóðadómstólnum í
Haag til að fá því komið í kring að
Augusto Pinochet verði leiddur fyrir
rétt í heimalandi sínu en ekki á
Spáni, fari svo að krafa spænskra
lögfræðinga um framsal einræðis-
herrans fyrrverandi til Spánar nái
fram að ganga í dómsölum í London.
Sendimaður Chilestjómar sagði i
Haag að líklega yrði formleg máls-
höfðun lögð fram þar fyrir árslok.
Chilestjórn er þeirrar skoðunar að
spænskir dómstólar hafi ekki lög-
sögu í málinu en spænskir lögfræð-
ingar sem standa að baki máia-
rekstrinum gegn Pinochet hafa hald-
ið fram hinu gagnstæða.
Spænsk stjórnvöld hafa aftur á
móti gefið í skyn að þau séu reiðubú-
in að beita sér fyrir því að málið
verði leyst fyrir Alþjóðadómstólnum.
Þrátt fyrir að forsætisráðherra
landsins, Jose Maria Aznar, hafi sagt
að hann vilji að dómstólar verði látn-
ir óáreittir um lausn málsins, er
hermt að hann muni fagna því ef
unnt verði að leysa málið án þess að
þurfí að koma til framsals Pinochets
til Spánar.
Segja ekki hægt að
sanna ábyrgð Pinochets
I gær héldu áfram réttarhöld í
London þar sem fjallað er um fram-
salskröfu spænsku lögmannanna.
Krafan byggist á sönnunargögnum
sem varða pyntingar á 34 chileskum
borgurum á árunum 1988-1989.
Verjendur Pinochets sögðu að til
að hann fengist framseldur væri ekki
nóg að lýsa þeim pyntingum sem
framdar hefðu verið á valdatíma
hans, heldur yrði að sýna fram á að
Pinochet væri ábyrgur fyrir þeim.
„Það eru engar slíkar sannanir fyrir
hendi í þessu máli og þess vegna ber
honum að njóta friðhelgi,11 sagði
Clive Nicholls, einn verjendanna.
■ Tekist á um/29
Þrjótur hét-
ar að myrkva
Belgíu
Brussel. Reuters.
TÖLVUÞRJÓTUR hefur hótað
að brjótast inn í tölvukerfi
belgíska raforkuframleiðand-
ans Electrabel eftir hádegið í
dag, og slá út rafmagninu í öllu
landinu.
„A morgun mun ég gera
Belgíu rafmagnslausa, og það
er ekki erfitt,“ tjáði hinn ónafn-
greindi tölvuþrjótur belgíska
dagblaðinu Het Nieuws. „Á
miðvikudaginn mun ég brjótast
inn í tölvur Electrabel milii kl.
13:30 og 15:30 og slá út öllu raf-
magni.“
Talsmenn Electrabel, sem
hefur svo að segja einokunar-
stöðu á belgíska raforkumark-
aðnum, sögðu fyrirtækið taka
hótunina alvarlega en álitu litl-
ar líkm- til að tölvuþrjótnum
tækist ætlunarverk sitt.