Morgunblaðið - 29.09.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.09.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 220. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fnðargæzla á Austur-Tímor Vígamenn eltir og afvopnaðir Dili. AP, Reuters. FULLTRÚAR Sameinuðu þjóðanna unnu að því í gær að undirbúa rann- sókn á óhæfuverkum í Austur- Tímor, en samtímis því bárust fregn- ir af því að hermenn Indónesíuhers og vígamenn honum tengdir fremdu fjöldamorð á óbreyttum borgurum, jafnvel eftir að friðargæzluliðar tóku sér stöðu á eyjarhlutanum. Hermenn hins fjölþjóðlega friðar- gæzluliðs lentu í þyrlum í bænum Com, þar sem nunna og átta aðrir hjálparstarfsmenn á vegum kaþ- ólsku kirkjunnar voru mjrt úr laun- sátri á laugardag. Friðargæzluliðarnir héldu inn í Com í ljósaskiptunum á mánudags- kvöld og handtóku 15 vopnaða menn. Pykir aðgerðin ein sú bezt heppnaða frá því friðargæzluliðið, sem Astralir fara fyrir, kom til A-Tímor fyrir rúmri viku. Liðið hefui- síðustu daga notað Blackhawk-herþyi’lur til að gera skyndiáhlaup á stöðvar vígamanna, sem hafa með óhæfuverkum reynt að gera niðurstöðu atkvæðagreiðsl- unnar um sjálfstæði A-Tímor að engu. Miðast þessar aðgerðir friðar- gæzluliðsins ekki sízt að því að hleypa kjarki í það fólk sem flúið hefur heimahagana undan víga- mönnum. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagðist vilja að gengið yrði í það hratt og örugglega að rannsaka grimmdarverk á A- Tímor, „í því skyni að fá staðreynd- irnar á hreint svo sækja megi þá sem ábyrgð bera [á óhæfuverkum] til saka“. Sérsveitarmenn meðal handtekinna Forystumenn friðargæzluliðsins áttu í gær fundi með leiðtogum Falintil, stærstu skæruliðahreyfing- arinnar sem barðist gegn indónes- ískum yfirráðum á A-Tímor. Ekki voru gerðar tilraunir til að afvopna skæruliðana, en það þótti mörgum Indónesum rangt, þar sem friðar- gæzluliðinu beri að sýna hlutleysi. Ástralskir talsmenn friðargæzlu- liðsins greindu frá því í gær, að meðal þeirra handteknu væru um 10 liðs- menn hinna svokölluðu Kopassus-sér- sveita Indónesíuhers. Þær voru úr- valssveitir Suhartos fyrrverandi Indónesíuforseta og eru taldar hafa séð um framkvæmd ýmissa leynilegra aðgerða á 32 ára valdatíma hans. S Reuters Áfram gengið gegn Milosevic MÓTMÆLI almennings í Serbíu gegn Slobodan Milosevic Jú- góslavíuforseta liéldu áfram í mörgum borgum í gær, áttunda daginn i röð. I höfuðborginni Belgrad fóru trymblar fyrir um 9.000 manna fjöldagöngu framhjá byggingum serbneska forsetaemb- ættisins og þingsins. Þetta var öllu minni þátttaka en á mánudag, þeg- ar um 10.000 manns tóku þátt í göngu dagsins, og á sunnudag, þegar um 50.000 höfuðborgarbúar lögðu sitt lóð á vogarskálarnar til að krefjast afsagnar Milosevics. Talsmenn bandalags stjórnar- andstöðuaflanna í Serbíu sögðu í gær að í dag myndu mótmæla- göngumenn haída til íbúðarhúss Milosevics, þar sem mikil öryggis- gæzla er fyrir. Telja frétta- skýrendur að komið geti til árekstra öryggisvarða forsetans og mótmælenda. Rússar lialria áfram árásum á stöðvar skæruliða í Tjsetsjníu ESB og Bandaríkin lýsa yfir áhyggjum Grosní, Moskvu. Reuters. Rússneskur hermaður matast í vélbyssuhreiðri sínu á landarnærum Dagestans og Tsjetsjníu. Rússneskar herflugvélar héldu áfram loft- árásum á valin skotmörk í Tsjetsjníu í gær. Chilestjórn vill fyrir Alþjóðadómstólinn Pinochet fari fyrir rétt í Chile London, Haag. Reuters, AP, AFP. ÞUSUNDIR tsjetsjenskra borgara flúðu heimili sín í gær, þegar Rússar gerðu loftárásir á landið sjötta dag- inn í röð. Talsmaður rússneska varn- armálaráðuneytisins ítrekaði að árásirnar beindust að „ákveðnum svæðum“, þar sem talið væri að ís- lamskir skæruliðar hefðust við, en væri ekki beint gegn óbreyttum borgurum. Rússneskar herþotur fóru í fímm- tán árásarferðir í gær og lögðu með- al annars olíuvinnslustöð, olíugeymi og rafstöð nálægt höfuðborginni Grosní í rúst. Rússneska Interfax- fréttastofan hafði eftir yfirmönnum hersins í Norður-Kákasus-héruðun- um að byggingarnar hefðu verið á valdi skæruliða, sem seldu olíu til að fjármagna vopnakaup. Aslan Maskhadov, forseti Tsjet- sjníu, og Magomed Magomedov, héraðsstjóri Dagestans, eiga fund í dag til að ræða ástandið. Stöðugleika stefnt í hættu Talsmenn Evrópusambandsins lýstu í gær yfir áhyggjum vegna ástandsins á landamærum Rúss- lands og Tsjetsjníu, og hvöttu stórn- völd í Rússlandi til að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir að spenna ykist enn frekar. Þá hvatti Bandaríkjastjórn báða aðila til að hlífa óbreyttum borgurum, en í yfirlýsingu hennar segir að átökin gætu stefnt stöðugleika í þessum heimshluta í hættu. Háttsettir embættismenn innan rússneska hersins lýstu í gær ánægju með framgang aðgerðanna í Tjsetsjníu, þrátt fyrir að herinn ætti við fjárskort að stríða og væri að mestu leyti skipaður ungum og óreyndum mönnum. ígor Sergejev, varnarmálaráðherra Rússlands, sagðist í viðtali í dagblaðinu Krasna- ya Zvezda vongóður um að aðgerð- irnar bæru góðan árangur, þrátt fyr- ir vanda hersins. Lofaði hann þá ákvörðun Borís Jeltsíns Rússlands- forseta að færa málefni hersins fremst í forgangsröð sína. Innanríkisráðherra Rússlands, Vladímír Rushaílo, átti í gær fund með Jeltsín til að skýra honum frá árangri baráttunnar gegn hryðju- verkum skæruliða. Sagði Rushaílo að lögregla hefði enn mikinn viðbún- að vegna sprengjutilræðanna und- anfarið. Fullyrti hann að 16 spreng- ingum hefði verið afstýrt vegna að- gerða lögreglu síðustu daga og að fundist hefði 521 tonn af sprengiefni. Um 100 menn hafa verið teknir höndum vegna gruns um aðild að til- ræðunum. ■ Markmiðið/28 STJORNVOLD í Chile ráðgera að höfða mál fýrir Alþjóðadómstólnum í Haag til að fá því komið í kring að Augusto Pinochet verði leiddur fyrir rétt í heimalandi sínu en ekki á Spáni, fari svo að krafa spænskra lögfræðinga um framsal einræðis- herrans fyrrverandi til Spánar nái fram að ganga í dómsölum í London. Sendimaður Chilestjómar sagði i Haag að líklega yrði formleg máls- höfðun lögð fram þar fyrir árslok. Chilestjórn er þeirrar skoðunar að spænskir dómstólar hafi ekki lög- sögu í málinu en spænskir lögfræð- ingar sem standa að baki máia- rekstrinum gegn Pinochet hafa hald- ið fram hinu gagnstæða. Spænsk stjórnvöld hafa aftur á móti gefið í skyn að þau séu reiðubú- in að beita sér fyrir því að málið verði leyst fyrir Alþjóðadómstólnum. Þrátt fyrir að forsætisráðherra landsins, Jose Maria Aznar, hafi sagt að hann vilji að dómstólar verði látn- ir óáreittir um lausn málsins, er hermt að hann muni fagna því ef unnt verði að leysa málið án þess að þurfí að koma til framsals Pinochets til Spánar. Segja ekki hægt að sanna ábyrgð Pinochets I gær héldu áfram réttarhöld í London þar sem fjallað er um fram- salskröfu spænsku lögmannanna. Krafan byggist á sönnunargögnum sem varða pyntingar á 34 chileskum borgurum á árunum 1988-1989. Verjendur Pinochets sögðu að til að hann fengist framseldur væri ekki nóg að lýsa þeim pyntingum sem framdar hefðu verið á valdatíma hans, heldur yrði að sýna fram á að Pinochet væri ábyrgur fyrir þeim. „Það eru engar slíkar sannanir fyrir hendi í þessu máli og þess vegna ber honum að njóta friðhelgi,11 sagði Clive Nicholls, einn verjendanna. ■ Tekist á um/29 Þrjótur hét- ar að myrkva Belgíu Brussel. Reuters. TÖLVUÞRJÓTUR hefur hótað að brjótast inn í tölvukerfi belgíska raforkuframleiðand- ans Electrabel eftir hádegið í dag, og slá út rafmagninu í öllu landinu. „A morgun mun ég gera Belgíu rafmagnslausa, og það er ekki erfitt,“ tjáði hinn ónafn- greindi tölvuþrjótur belgíska dagblaðinu Het Nieuws. „Á miðvikudaginn mun ég brjótast inn í tölvur Electrabel milii kl. 13:30 og 15:30 og slá út öllu raf- magni.“ Talsmenn Electrabel, sem hefur svo að segja einokunar- stöðu á belgíska raforkumark- aðnum, sögðu fyrirtækið taka hótunina alvarlega en álitu litl- ar líkm- til að tölvuþrjótnum tækist ætlunarverk sitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.