Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 11

Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 11 FRÉTTIR Endanleg sölugögn vegna sölu á 51% hlut 1 Fjárfestingarbanka atvinnulífsins lögð fram ENDANLEG sölugögn vegna sölu á 51% hlut ríkisins í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins liggja nú frammi hjá Ríkiskaupum, en þar er að finna upplýsingar um starfsemi og efnahag FBA, auk ítarlegrar lýsinga en áður hefur komið fram á þeim reglum sem gilda við sölu hlutabréfa ríkisins í bankanum. Jafnframt er leitast við að eyða allri hugsanlegi'i óvissu að þvi er varðar reglur um yfirtökutilboð og sjálf- stæði aðila innan hvers hóps bjóð- enda er undirstrikað í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um dreifða eignaraðild við frumsölu, að því er fram kemur í frétt fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu af þessu tilefni. I sölugögnunum kemur fram að um sé að ræða hlutabréf alls að nafnvirði 3.468 milljónir króna. Um yfirlit söluferils segir: • Afhending sölugagna hefst 28.9.1999, kl. 14.00 hjá Ríkis- kaupum • Frestur til að skila inn fyrir- spumum rennur út 15.10.1999, kl. 14.00 • Svör við fyrirspurnum liggja fyrir 18.10.1999, kl. 14.00 • Skil á þátttökutilkynningum fyr- ir 21.10.1999, kl. 14:00 • Aðvörun vegna þátttökuskilyrða fyrir 25.10.1999 • Frestur til lagfæringa er til 29.10.1999, kl. 14:00 • Tilkynning um hæfi til þátttöku og afhending tilboðseyðublaða fyrú 1.11.1999, kl. 14:00 • Opnun tilboða fer fram 5.11.1999, kl. 14:00 • Staðgreiðsla kaupverðs eigi síð- ar en 15.11.1999, kl. 14:00 • Gildistími tilboða rennur út 10.12.1999, kl. 14:00 Þá segir: „Öllum er heimilt að gera tilboð í 51% eignarhlut ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. (FBA) á grundvelli þeirra skil- yrða sem um söluna gilda sam- kvæmt sölulýsingu þessari. Áhugasamir aðilar (einstakling- ar, félög og/eða fyrirtæki) skulu mynda með sér hóp, sem uppfylli skilmála sölunnar varðandi eignar- hlut, skyldleika og fjárhagsleg tengsl. Hópurinn kemur sér saman um tilboðsgengi sem aðilar innan hans skuldbinda sig til að leggja til grundvallar við kaup á 51% hlut ríkisins í FBA skv. þeirri skiptingu milli aðila hópsins sem lýst er í þátttökutilkynningu. 2.3. Þátttökutilkynning Fyi'ir kl. 14:00 fimmtudaginn 21. október 1999 skulu áhugasamir hópar skila tilkynningu í lokuðu Itarl egri lýsing en áður á reglum sem gilda um söluna umslagi til Ríkiskaupa með upplýs- ingum um innbyrðis samsetningu og hlutfallslega skiptingu eignai'- hluta innan hópsins. Þar skal koma fram yfirlýsing um að bjóðendur uppfylli öll skilyrði útboðsins, eftir bestu vitund þeirra, nafn, kennitala og dagsetning, ásamt eiginhand- ai-undirritun frá hverjum aðila inn- an hópsins. Hver hópur tilkynni jafnframt um sameiginlegan um- boðsmann sinn til að koma fram fyrir hönd hópsins gagnvart fram- kvæmdai'aðila sölunnar. Af hálfu framkvæmdaraðila sölunnar verður gætt fulls trúnaðar á þessu stigi um samsetningu væntanlegra bjóðenda ög aðeins tilkynnt opinberlega um fjölda þeirra hópa sem uppfylla skilmála sölunnar. Komi aðeins einn hópur fram getur fram- kvæmdaraðili sölunnar hvort held- ur sem er hætt við sölu eða boðið þeim hópi að kaupa allan hlut ríkis- ins á lágmarksgengi skv. tölulið 2.6 og gegn staðgreiðslu með þeim hætti og á þeim tíma, sem kveðið er á um skv. tölulið 2.7 enda uppfylli hópurinn skilyrði sölunnar um skyldleika og fjárhagsleg tengsl og um eignarhlutdeild hvers aðila inn- an hópsins.“ Ennfremur segir: „Þátttökutil- kynningar sem berast eftir að ofan- greindur frestur er runninn út verða ekki teknar til greina. 2.4. Könnun skilyrða Framkvæmdaraðili sölunnar hef- ur tilnefnt Hrein Loftsson, hrl., Jón Sveinsson, hrl. og Brynjólf Sigurðs- son, prófessor, til að fara yfir þátt- tökutilkynningar og kanna hvort þær uppfylla skilyrði um skyld- leika, fjárhagsleg tengsl og um eignarhlutdeild hvers aðila innan hópanna. Ef í ljós kemur að einhver hópur uppfyllir ekki greind skilyrði skal viðkomandi umboðsmanni gert að- vart í síðasta lagi kl. 14:00 mánu- daginn 25. október 1999 og hópnum veittur frestur til kl. 14:00 föstu- daginn 29. október 1999 til að lag- færa þau atriði sem leiðrétta verð- ur. Ef einhver skilyrði eru þá enn ekki í lagi má veita viðkomandi hóp stuttan frest, þó aldrei lengri en einn sólarhring, til þess að bæta úr göllum. 2.5. Tilboðseyðublað Umboðsmönnum hópa sem upp- fylla greind skilyrði verður afhent tilboðseyðublað merkt nafni um- boðsmanns hópsins eigi síðar en mánudaginn 1. nóvember 1999 kl. 14:00. Aðeins verður tekið við til- boðum sem berast í lokuðu umslagi, á því tilboðseyðublaði sem viðkom- andi umboðsmanni hefur verið af- hent fyrir hönd hópsins. 2.6. Opnun tilboða Tilboðum skal skilað til Ríkis- kaupa fyi’ir kl. 14:00 föstudaginn 5. nóvember 1999. Þar skulu þau opn- uð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Við opnun verða les- in upp nöfn umboðsmanna og til- boðsgengi. Þar skal framkvæmdar- aðili útboðsins jafnframt upplýsa um nöfn tilboðsgjafa innan hvers hóps er skilað hafa tilboði. Tilboð þeirra aðila sem standa saman að hópi skulu samanlagt ná til alls 51% hlutar ríkisins í FBA á tilgreindu gengi. Tilboðsgengi skal tilgreint með fimm aukastöfum. Ekki verður tekið við lægri tilboðum en sem miðast við gengið 2,80000. Nú er gengið að boði tilboðsgjafa í einum hópnum og eru tilboðsgjafar í öðr- um hópum þó bundnir af boðum sínum þar til greiðsla hefur farið fram af hálfu allra tilboðsgjafa í þeim hópi sem átti hæsta boðið, þó aldrei lengur en til kl. 14:00 föstu- daginn 10. desember 1999. Nú berst aðeins tilboð frá tilboðboðs- gjöfum í einum hópi og skal þá gengið að þeim enda uppfylli þeir tilboðsgjafar greind skilyrði um skyldleika, fjárhagsleg tengsl og um eignarhlutdeild hvers þeirra svo og skilyrði um lágmarksgengi. 2.7. Greiðsla kaupverðs Tilboð skulu miðuð við stað- greiðslu sem skal fara fram hjá Ríkisféhirði eigi síðar en kl. 14:00 mánudaginn 15. nóvember 1999. Hver og einn kaupandi innan hóps hæstbjóðanda greiðir sinn hluta kaupverðsins skv. þeirri skiptingu sem fram kemur í þátttökutilkynn- ingu. Þegar allir kaupendur innan hópsins hafa greitt fyrir sinn hlut verða hlutabréfin afhent hverjum þeirra fyrir sig. Nú stendur einn eða fleiri þeirra tilboðsgjafa sem áttu hæsta boð ekki í skilum á til- skyldum tíma og getur fram- kvæmdaraðili útboðsins þá ákveðið hvort heldur sem er, að halda kaupunum upp á viðkomandi og af- henda hinum aðilum hópsins sín bréf eða ganga að boði þeirra aðila sem standa að þeim hópi sem á næst hæsta boð og síðan koll af kolli. 2.8. Samsetning hópa Tilboð þeirra aðila sem standa að hverjum hópi skulu samanlagt ná til alls 51% hlutar ríkisins í FBA án þess að til félags aðila innan hvers hóps hafi verið stofnað um eignar- hlutinn. Bjóðendur kynni sér V. kafla laga nr. 34/1998 og reglugerð nr. 432/1999 um yfirtökutilboð. Það er á valdi og á ábyrgð hvers hóps bjóðenda hvernig staðið er að sam- starfi innan hópsins með tilliti til ákvæða þeirrar reglugerðar. Samsetning aðila í hverjum hópi bjóðenda skal vera þannig að skyld- ir og/eða fjárhagslega tengdir aðil- ar séu ekki í tilboðinu skráðir fyrir meiru en sem nemur 6% nafnverðs hlutabréfa í bankanum og lág- markshlutur hvers aðila innan hópsins skal vera sex milljónir króna að kaupverði. Þetta hlutfall er óháð því hvað viðkomandi aðili, aðilar skyldir honum eða fjárhags- lega tengdir, eiga fyrir í bankanum. 2.9. Skilgreining á skyldum aðilum Með hugtakinu „skyldir aðilai' og/eða fjárhagslega tengdir" er átt við: • Hjón eða sambýlisaðila. • Skyldmenni í beinan legg, bræð- ur eða systur, systkinabörn, systkini föður eða móður eða tenging milli aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. For- eldrar, börn, bræður og/eða systur maka eða sambýlisaðila. • Samstæða félaga, móðurfélög og dótturfélög. • Ef einstakur aðili (einstakling- ur eða lögaðili) á meira en 35% eignarhlut eða atkvæðisrétt í lögaðila eða ef einstakur aðili eða skyldir aðilar eiga saman- lagt meira en 35% eignarhlut eða atkvæðisrétt í tveimur lög- aðilum eða fleiri, skulu þeir að- ilar teljast fjárhagslega tengdir. Bönkum í meirihlutaeigu ríkisins er óheimilt að mynda hóp með öðr- um innlendum bönkum eða spari- sjóðum. Sparisjóðir teljast ekki skyldir aðilar samkvæmt framansögðu. Ef ágreiningur er um tengsl aðila skal við úrlausn hans höfð hliðsjón af 2. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafé- lög, 5. gr. laga nr. 91/1991, um með- ferð einkamála, og 3. gr. stjórn- sýslulaga nr. 37/1993. 2.10. Afhending hlutabréfanna Eftir að tilboði hefur verið tekið verður hlut ríkisins skipt og ein- stakh' hlutir síðan framseldir til hvers aðila fyrir sig innan viðkom- andi hóps bjóðenda, í samræmi við þann lista um skiptingu sem hópur- inn hefur lagt fram í þátttökutil- kynningu sinni sbr. 2.3. Það er á ábyi'gð bjóðenda hvort þeir bindast frekai'a samstarfi eftir að kaupin hafa farið fram með tilliti til reglu- gerðar nr. 432/1999 um yfirtökutil- boð. 2.11. Tilboðstrygging Ekki eru gerðar kröfur um til- boðstryggingar. 2.12. Fjárhagslegt mat Fjárhagslegt mat verður ekki lagt á bjóðendur.“ Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins og talsmaður Samfylkingarinnar Mikil umskipti í málflutningi MARGRÉT Frímannsdóttir, formaður Al- þýðubandalagsins, segir að grein Árna Þórs Sigurðssonar, varaþingmanns Sam- fylkingarinnar og formanns Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík, í Morgunblaðinu í gær komi ekki á óvart miðað við þann málflutn- ing sem hann hafi verið með inn í fram- kvæmdastjóm Alþýðubandalagsins. Hins vegar verði hún að segja að þetta séu mikil umskipti á málflutningi, þar sem Árni Þór hafi eftir kosningar verið helsti talsmaður þess að það yrði stofnaður flokkur sem allra allra iyrst. „Hitt er svo alveg rétt hjá Áma að það er landsfundur sem fer með æðsta vald í málefnum Alþýðubandalagsins. Við erum að undirbúa þá umræðu sem þar fer fram, bæði um málefni og eins um framtíð vinstrihreyfingar í landinu og þá um leið er náttúrlega meginumfjöllunarefnið framtíð Alþýðubandalagsins," sagði Margrét. Hún sagði að ekki kæmi til greina annað, af hennar hálfu eða framkvæmdastjórnar- manna sem væru af einurð að undirbúa landsfundinn, en þar ætti sér stað málefna- leg umræða um reynsluna af samstarfinu, pólitíkina og framtíðina, „en ég tek undir það með Árna að það er tímabært að þessi umræða fari fram,“ sagði Margrét. Hún sagði að landsfundur yrði haldinn í nóvember. Mjög mörg félög innan Alþýðu- bandalagsins hefðu nú þegar hafið undir- búning að stofnun Samfylkingarfélags og í sumum kjördæmum væri búið að stofna slík félög, þannig að vilji mjög margra flokksmanna stæði til þess að Samfylkingin yrði að formlegu stjórnmálaafli og hún ætti von á því að um það sköpuðust góðar og málefnalegar umræður á landsfundi. Formlegt stjórnmálaafl verði til Margrét sagði að ekki hefði staðið til að leggja fram tillögu um það að Alþýðu- bandalagið yrði lagt niður. Eins og hún hefði margsagt áður væri Alþýðubandalag- ið með ýmsar skuldbindingar fram í tímann sem það hefði fullan hug á að standa við og það þyrfti að leysa úr ýmsum tæknilegum atriðum hjá flokkunum. Samþykktin hefði gengið út á kosningabandalag til fjögurra ára. „Viljinn innan þessa kosningabanda- lags er að það verði til formlegt stjórn- málaafl á bakvið það og ég hélt nú að reynsla Árna Þórs og fleiri, sem til dæmis hafa starfað í Reykjavíkurlistanum þar sem ekki hefur verið um að ræða formlegt bakland eða formlega stofnun félags á bak við Reykjavíkurlistann, að hún væri sú að menn teldu það skynsamlegra að gera það,“ sagði Margrét. Hún sagði aðspurð að orð Árna Þórs í greininni um það að Samfylkingin gæti ekki orðið samnefnari vinstrimanna í utanríkis- málum, umhvei'fismálum eða hvað varðaði afstöðuna til einkavæðingar opinberra fyrir- tækja væri eins og hver önnur della og full- yrðing út í loftið. I fyrsta lagi hefði legið iyr- ir frá því fyrir kosningar ákveðið samkomu- lag varðandi utanríkismálin og við það yrði að sjálfsögðu staðið. Ef Samfylkingin yrði til sem formlegt stjómmálaafl myndi hún auð- vitað móta sína stefnu. Hún sagði að frá upphafi hefði stefna Samfylkingarinnar í umhverfismálum verið mjög skýr. Ef Árni Þór væri að horfa þar til annars flokks, Vinstri grænna, þá sæi hún nú ekki að það væri neitt sem skildi á milli í raun og veru í því málefni. Hvað varðaði einkavæðingu, sagði Margrét, að ef það ætti að vera sérstakt sameiningar- merki vinstrimanna að segja algjört nei við einkavæðingu þá væri þessi fullyrðing rétt. Hins vegai- hefðu þau viljað í þeim efnum taka rekstur ríkisins fyrir í heild sinni og ákveða með skýrum hætti hvaða verkefni ættu að vera hjá ríkinu og hver annars staðar og í þeim efnum þyi'fti að fara yfir hvert einasta ráðuneyti og stofnanir og endurskipuleggja út frá breyttum tímum. Margrét sagði aðspurð hvort ekki væri þarna um að ræða framhald á þeim klofn- ingi sem varð í Alþýðubandalaginu þegar Samfylkingin varð til að það væri svolítið skrítið þegar menn hefðu tekið þátt í starfi Samfylkingarinnar frá upphafi, tekið þátt í prófkjörum, en Árni Þór væri varaþing- maður Samfylkingarinnar, að fara með svona umræðu út í fjölmiðla, sérstaklega þar sem rökstuðningurinn væri ekki trú- verðugur. Það væri svo sannarlega kominn tími til að menn gerðu upp hug sinn meira en ári eftir að Alþýðubandalagið hefði sam- þykkt að ganga til samstarfs við Kvenna- lista og Alþýðuflokk um Samfylkinguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.