Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 11
FRÉTTIR
Endanleg sölugögn vegna sölu á 51% hlut 1 Fjárfestingarbanka atvinnulífsins lögð fram
ENDANLEG sölugögn vegna sölu
á 51% hlut ríkisins í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins liggja nú
frammi hjá Ríkiskaupum, en þar er
að finna upplýsingar um starfsemi
og efnahag FBA, auk ítarlegrar
lýsinga en áður hefur komið fram á
þeim reglum sem gilda við sölu
hlutabréfa ríkisins í bankanum.
Jafnframt er leitast við að eyða allri
hugsanlegi'i óvissu að þvi er varðar
reglur um yfirtökutilboð og sjálf-
stæði aðila innan hvers hóps bjóð-
enda er undirstrikað í samræmi við
markmið ríkisstjórnarinnar um
dreifða eignaraðild við frumsölu, að
því er fram kemur í frétt fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu
af þessu tilefni.
I sölugögnunum kemur fram að
um sé að ræða hlutabréf alls að
nafnvirði 3.468 milljónir króna. Um
yfirlit söluferils segir:
• Afhending sölugagna hefst
28.9.1999, kl. 14.00 hjá Ríkis-
kaupum
• Frestur til að skila inn fyrir-
spumum rennur út 15.10.1999,
kl. 14.00
• Svör við fyrirspurnum liggja
fyrir 18.10.1999, kl. 14.00
• Skil á þátttökutilkynningum fyr-
ir 21.10.1999, kl. 14:00
• Aðvörun vegna þátttökuskilyrða
fyrir 25.10.1999
• Frestur til lagfæringa er til
29.10.1999, kl. 14:00
• Tilkynning um hæfi til þátttöku
og afhending tilboðseyðublaða
fyrú 1.11.1999, kl. 14:00
• Opnun tilboða fer fram
5.11.1999, kl. 14:00
• Staðgreiðsla kaupverðs eigi síð-
ar en 15.11.1999, kl. 14:00
• Gildistími tilboða rennur út
10.12.1999, kl. 14:00
Þá segir: „Öllum er heimilt að
gera tilboð í 51% eignarhlut ríkisins
í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
hf. (FBA) á grundvelli þeirra skil-
yrða sem um söluna gilda sam-
kvæmt sölulýsingu þessari.
Áhugasamir aðilar (einstakling-
ar, félög og/eða fyrirtæki) skulu
mynda með sér hóp, sem uppfylli
skilmála sölunnar varðandi eignar-
hlut, skyldleika og fjárhagsleg
tengsl. Hópurinn kemur sér saman
um tilboðsgengi sem aðilar innan
hans skuldbinda sig til að leggja til
grundvallar við kaup á 51% hlut
ríkisins í FBA skv. þeirri skiptingu
milli aðila hópsins sem lýst er í
þátttökutilkynningu.
2.3. Þátttökutilkynning
Fyi'ir kl. 14:00 fimmtudaginn 21.
október 1999 skulu áhugasamir
hópar skila tilkynningu í lokuðu
Itarl egri lýsing en
áður á reglum sem
gilda um söluna
umslagi til Ríkiskaupa með upplýs-
ingum um innbyrðis samsetningu
og hlutfallslega skiptingu eignai'-
hluta innan hópsins. Þar skal koma
fram yfirlýsing um að bjóðendur
uppfylli öll skilyrði útboðsins, eftir
bestu vitund þeirra, nafn, kennitala
og dagsetning, ásamt eiginhand-
ai-undirritun frá hverjum aðila inn-
an hópsins. Hver hópur tilkynni
jafnframt um sameiginlegan um-
boðsmann sinn til að koma fram
fyrir hönd hópsins gagnvart fram-
kvæmdai'aðila sölunnar. Af hálfu
framkvæmdaraðila sölunnar verður
gætt fulls trúnaðar á þessu stigi um
samsetningu væntanlegra bjóðenda
ög aðeins tilkynnt opinberlega um
fjölda þeirra hópa sem uppfylla
skilmála sölunnar. Komi aðeins
einn hópur fram getur fram-
kvæmdaraðili sölunnar hvort held-
ur sem er hætt við sölu eða boðið
þeim hópi að kaupa allan hlut ríkis-
ins á lágmarksgengi skv. tölulið 2.6
og gegn staðgreiðslu með þeim
hætti og á þeim tíma, sem kveðið er
á um skv. tölulið 2.7 enda uppfylli
hópurinn skilyrði sölunnar um
skyldleika og fjárhagsleg tengsl og
um eignarhlutdeild hvers aðila inn-
an hópsins.“
Ennfremur segir: „Þátttökutil-
kynningar sem berast eftir að ofan-
greindur frestur er runninn út
verða ekki teknar til greina.
2.4. Könnun skilyrða
Framkvæmdaraðili sölunnar hef-
ur tilnefnt Hrein Loftsson, hrl., Jón
Sveinsson, hrl. og Brynjólf Sigurðs-
son, prófessor, til að fara yfir þátt-
tökutilkynningar og kanna hvort
þær uppfylla skilyrði um skyld-
leika, fjárhagsleg tengsl og um
eignarhlutdeild hvers aðila innan
hópanna.
Ef í ljós kemur að einhver hópur
uppfyllir ekki greind skilyrði skal
viðkomandi umboðsmanni gert að-
vart í síðasta lagi kl. 14:00 mánu-
daginn 25. október 1999 og hópnum
veittur frestur til kl. 14:00 föstu-
daginn 29. október 1999 til að lag-
færa þau atriði sem leiðrétta verð-
ur. Ef einhver skilyrði eru þá enn
ekki í lagi má veita viðkomandi hóp
stuttan frest, þó aldrei lengri en
einn sólarhring, til þess að bæta úr
göllum.
2.5. Tilboðseyðublað
Umboðsmönnum hópa sem upp-
fylla greind skilyrði verður afhent
tilboðseyðublað merkt nafni um-
boðsmanns hópsins eigi síðar en
mánudaginn 1. nóvember 1999 kl.
14:00. Aðeins verður tekið við til-
boðum sem berast í lokuðu umslagi,
á því tilboðseyðublaði sem viðkom-
andi umboðsmanni hefur verið af-
hent fyrir hönd hópsins.
2.6. Opnun tilboða
Tilboðum skal skilað til Ríkis-
kaupa fyi’ir kl. 14:00 föstudaginn 5.
nóvember 1999. Þar skulu þau opn-
uð að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska. Við opnun verða les-
in upp nöfn umboðsmanna og til-
boðsgengi. Þar skal framkvæmdar-
aðili útboðsins jafnframt upplýsa
um nöfn tilboðsgjafa innan hvers
hóps er skilað hafa tilboði. Tilboð
þeirra aðila sem standa saman að
hópi skulu samanlagt ná til alls 51%
hlutar ríkisins í FBA á tilgreindu
gengi. Tilboðsgengi skal tilgreint
með fimm aukastöfum. Ekki verður
tekið við lægri tilboðum en sem
miðast við gengið 2,80000. Nú er
gengið að boði tilboðsgjafa í einum
hópnum og eru tilboðsgjafar í öðr-
um hópum þó bundnir af boðum
sínum þar til greiðsla hefur farið
fram af hálfu allra tilboðsgjafa í
þeim hópi sem átti hæsta boðið, þó
aldrei lengur en til kl. 14:00 föstu-
daginn 10. desember 1999. Nú
berst aðeins tilboð frá tilboðboðs-
gjöfum í einum hópi og skal þá
gengið að þeim enda uppfylli þeir
tilboðsgjafar greind skilyrði um
skyldleika, fjárhagsleg tengsl og
um eignarhlutdeild hvers þeirra
svo og skilyrði um lágmarksgengi.
2.7. Greiðsla kaupverðs
Tilboð skulu miðuð við stað-
greiðslu sem skal fara fram hjá
Ríkisféhirði eigi síðar en kl. 14:00
mánudaginn 15. nóvember 1999.
Hver og einn kaupandi innan hóps
hæstbjóðanda greiðir sinn hluta
kaupverðsins skv. þeirri skiptingu
sem fram kemur í þátttökutilkynn-
ingu. Þegar allir kaupendur innan
hópsins hafa greitt fyrir sinn hlut
verða hlutabréfin afhent hverjum
þeirra fyrir sig. Nú stendur einn
eða fleiri þeirra tilboðsgjafa sem
áttu hæsta boð ekki í skilum á til-
skyldum tíma og getur fram-
kvæmdaraðili útboðsins þá ákveðið
hvort heldur sem er, að halda
kaupunum upp á viðkomandi og af-
henda hinum aðilum hópsins sín
bréf eða ganga að boði þeirra aðila
sem standa að þeim hópi sem á
næst hæsta boð og síðan koll af
kolli.
2.8. Samsetning hópa
Tilboð þeirra aðila sem standa að
hverjum hópi skulu samanlagt ná
til alls 51% hlutar ríkisins í FBA án
þess að til félags aðila innan hvers
hóps hafi verið stofnað um eignar-
hlutinn. Bjóðendur kynni sér V.
kafla laga nr. 34/1998 og reglugerð
nr. 432/1999 um yfirtökutilboð. Það
er á valdi og á ábyrgð hvers hóps
bjóðenda hvernig staðið er að sam-
starfi innan hópsins með tilliti til
ákvæða þeirrar reglugerðar.
Samsetning aðila í hverjum hópi
bjóðenda skal vera þannig að skyld-
ir og/eða fjárhagslega tengdir aðil-
ar séu ekki í tilboðinu skráðir fyrir
meiru en sem nemur 6% nafnverðs
hlutabréfa í bankanum og lág-
markshlutur hvers aðila innan
hópsins skal vera sex milljónir
króna að kaupverði. Þetta hlutfall
er óháð því hvað viðkomandi aðili,
aðilar skyldir honum eða fjárhags-
lega tengdir, eiga fyrir í bankanum.
2.9. Skilgreining á skyldum aðilum
Með hugtakinu „skyldir aðilai'
og/eða fjárhagslega tengdir" er átt
við:
• Hjón eða sambýlisaðila.
• Skyldmenni í beinan legg, bræð-
ur eða systur, systkinabörn,
systkini föður eða móður eða
tenging milli aðila með sama
hætti vegna ættleiðingar. For-
eldrar, börn, bræður og/eða
systur maka eða sambýlisaðila.
• Samstæða félaga, móðurfélög og
dótturfélög.
• Ef einstakur aðili (einstakling-
ur eða lögaðili) á meira en 35%
eignarhlut eða atkvæðisrétt í
lögaðila eða ef einstakur aðili
eða skyldir aðilar eiga saman-
lagt meira en 35% eignarhlut
eða atkvæðisrétt í tveimur lög-
aðilum eða fleiri, skulu þeir að-
ilar teljast fjárhagslega tengdir.
Bönkum í meirihlutaeigu ríkisins
er óheimilt að mynda hóp með öðr-
um innlendum bönkum eða spari-
sjóðum.
Sparisjóðir teljast ekki skyldir
aðilar samkvæmt framansögðu.
Ef ágreiningur er um tengsl aðila
skal við úrlausn hans höfð hliðsjón
af 2. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafé-
lög, 5. gr. laga nr. 91/1991, um með-
ferð einkamála, og 3. gr. stjórn-
sýslulaga nr. 37/1993.
2.10. Afhending hlutabréfanna
Eftir að tilboði hefur verið tekið
verður hlut ríkisins skipt og ein-
stakh' hlutir síðan framseldir til
hvers aðila fyrir sig innan viðkom-
andi hóps bjóðenda, í samræmi við
þann lista um skiptingu sem hópur-
inn hefur lagt fram í þátttökutil-
kynningu sinni sbr. 2.3. Það er á
ábyi'gð bjóðenda hvort þeir bindast
frekai'a samstarfi eftir að kaupin
hafa farið fram með tilliti til reglu-
gerðar nr. 432/1999 um yfirtökutil-
boð.
2.11. Tilboðstrygging
Ekki eru gerðar kröfur um til-
boðstryggingar.
2.12. Fjárhagslegt mat
Fjárhagslegt mat verður ekki
lagt á bjóðendur.“
Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins og talsmaður Samfylkingarinnar
Mikil umskipti í
málflutningi
MARGRÉT Frímannsdóttir, formaður Al-
þýðubandalagsins, segir að grein Árna
Þórs Sigurðssonar, varaþingmanns Sam-
fylkingarinnar og formanns Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík, í Morgunblaðinu í gær
komi ekki á óvart miðað við þann málflutn-
ing sem hann hafi verið með inn í fram-
kvæmdastjóm Alþýðubandalagsins. Hins
vegar verði hún að segja að þetta séu mikil
umskipti á málflutningi, þar sem Árni Þór
hafi eftir kosningar verið helsti talsmaður
þess að það yrði stofnaður flokkur sem
allra allra iyrst.
„Hitt er svo alveg rétt hjá Áma að það
er landsfundur sem fer með æðsta vald í
málefnum Alþýðubandalagsins. Við erum
að undirbúa þá umræðu sem þar fer fram,
bæði um málefni og eins um framtíð
vinstrihreyfingar í landinu og þá um leið er
náttúrlega meginumfjöllunarefnið framtíð
Alþýðubandalagsins," sagði Margrét.
Hún sagði að ekki kæmi til greina annað,
af hennar hálfu eða framkvæmdastjórnar-
manna sem væru af einurð að undirbúa
landsfundinn, en þar ætti sér stað málefna-
leg umræða um reynsluna af samstarfinu,
pólitíkina og framtíðina, „en ég tek undir
það með Árna að það er tímabært að þessi
umræða fari fram,“ sagði Margrét.
Hún sagði að landsfundur yrði haldinn í
nóvember. Mjög mörg félög innan Alþýðu-
bandalagsins hefðu nú þegar hafið undir-
búning að stofnun Samfylkingarfélags og í
sumum kjördæmum væri búið að stofna
slík félög, þannig að vilji mjög margra
flokksmanna stæði til þess að Samfylkingin
yrði að formlegu stjórnmálaafli og hún ætti
von á því að um það sköpuðust góðar og
málefnalegar umræður á landsfundi.
Formlegt stjórnmálaafl verði til
Margrét sagði að ekki hefði staðið til að
leggja fram tillögu um það að Alþýðu-
bandalagið yrði lagt niður. Eins og hún
hefði margsagt áður væri Alþýðubandalag-
ið með ýmsar skuldbindingar fram í tímann
sem það hefði fullan hug á að standa við og
það þyrfti að leysa úr ýmsum tæknilegum
atriðum hjá flokkunum. Samþykktin hefði
gengið út á kosningabandalag til fjögurra
ára. „Viljinn innan þessa kosningabanda-
lags er að það verði til formlegt stjórn-
málaafl á bakvið það og ég hélt nú að
reynsla Árna Þórs og fleiri, sem til dæmis
hafa starfað í Reykjavíkurlistanum þar
sem ekki hefur verið um að ræða formlegt
bakland eða formlega stofnun félags á bak
við Reykjavíkurlistann, að hún væri sú að
menn teldu það skynsamlegra að gera
það,“ sagði Margrét.
Hún sagði aðspurð að orð Árna Þórs í
greininni um það að Samfylkingin gæti ekki
orðið samnefnari vinstrimanna í utanríkis-
málum, umhvei'fismálum eða hvað varðaði
afstöðuna til einkavæðingar opinberra fyrir-
tækja væri eins og hver önnur della og full-
yrðing út í loftið. I fyrsta lagi hefði legið iyr-
ir frá því fyrir kosningar ákveðið samkomu-
lag varðandi utanríkismálin og við það yrði
að sjálfsögðu staðið. Ef Samfylkingin yrði til
sem formlegt stjómmálaafl myndi hún auð-
vitað móta sína stefnu.
Hún sagði að frá upphafi hefði stefna
Samfylkingarinnar í umhverfismálum verið
mjög skýr. Ef Árni Þór væri að horfa þar
til annars flokks, Vinstri grænna, þá sæi
hún nú ekki að það væri neitt sem skildi á
milli í raun og veru í því málefni. Hvað
varðaði einkavæðingu, sagði Margrét, að ef
það ætti að vera sérstakt sameiningar-
merki vinstrimanna að segja algjört nei við
einkavæðingu þá væri þessi fullyrðing rétt.
Hins vegai- hefðu þau viljað í þeim efnum
taka rekstur ríkisins fyrir í heild sinni og
ákveða með skýrum hætti hvaða verkefni
ættu að vera hjá ríkinu og hver annars
staðar og í þeim efnum þyi'fti að fara yfir
hvert einasta ráðuneyti og stofnanir og
endurskipuleggja út frá breyttum tímum.
Margrét sagði aðspurð hvort ekki væri
þarna um að ræða framhald á þeim klofn-
ingi sem varð í Alþýðubandalaginu þegar
Samfylkingin varð til að það væri svolítið
skrítið þegar menn hefðu tekið þátt í starfi
Samfylkingarinnar frá upphafi, tekið þátt í
prófkjörum, en Árni Þór væri varaþing-
maður Samfylkingarinnar, að fara með
svona umræðu út í fjölmiðla, sérstaklega
þar sem rökstuðningurinn væri ekki trú-
verðugur. Það væri svo sannarlega kominn
tími til að menn gerðu upp hug sinn meira
en ári eftir að Alþýðubandalagið hefði sam-
þykkt að ganga til samstarfs við Kvenna-
lista og Alþýðuflokk um Samfylkinguna.