Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðhorfskönnun meðal íbúa á þjónustu Reykjavíkurborgar
Morgunblaðið/Þorkell
Niðurstaða viðhorfskönnunar Gallup fyrir Reykjavíkurborg kynnt. Frá vinstri: Gerður G. Oskarsdóttir
fræðslustjóri, Kristín Árnadóttir, aðstoðarkona borgarstjóra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri,
Halldóra Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri upplýsinganiála, Steinþór Einarsson, markaðsstjóri ITR, og Helena
Jónsdóttir og Þóra Ásgeirsdóttir frá Gallup.
Yfir 50% telja hana
góða eða frekar góða
MEÐAL niðurstaðna í könnun
Gallup fyrir Reykjavíkurborg á við-
horfi borgarbúa til þjónustu borgar-
innai- er að 53% telja hana í heild
mjög góða eða frekar góða, 34%
telja hana í meðallagi og 13% telja
hana frekar slæma eða mjög slæma.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir að niðurstöður könn-
unarinnar verði notaðar tO að bæta
enn þjónustu borgarinnar og taka
mið af þeim áherslum borgarbúa
sem þar koma fram.
Könnunin fór fram dagana 1. til
21. júní og var hringt í 1.200 ein-
stakinga í Reykjavík á aldrinum 16
ára til 75. Alls svöruðu 775 og er
svarhlutfallið 70,5% þegar frá hafa
verið dregnir þeir sem voru látnir,
veikir eða búsettir erlendis. Mark-
miðið var að kanna viðhorf borgar-
búa til þjónustu borgarinnar, til ým-
issa borgarmálefna og á hvaða
þætti borgarbúar viidu leggja
áherslu á í framtíðinni.
Borgarstjóri vakti á því athygli
þegar könnunin var kynnt fjölmiðl-
um í gær að hér væri um við-
horfskönnun að ræða en ekki beina
könnun meðal notenda á þjónust-
unni sem spurt var um. Því séu nið-
urstöðurnar almenn vísbending um
viðhorf borgarbúa og segir hún
frekari kannanir nauðsynlegar ef
skoða eigi nákvæmlega viðhorf not-
enda með þjónustu einstakra stofn-
ana. Borgarstjóri kvaðst gera ráð
fyrir að ráðist yrði aftur í gerð sams
konar könnunar enda mætti þróa
slíkar kannanir og nota sem mæli-
tæki og í raun stjórntæki.
Hreinsunardeildin og ÍTR
hlutu hæstu einkunn
Hæstu einkunn í spumingu um
viðhorf til nokkurra þjónustustofn-
ana borgarinnar hlutu hreinsunar-
deildin og íþrótta- og tómstundaráð,
eða fjögur stig af fimm mögulegum.
Dagvist barna og SVR hlutu 3,5 í
einkunn og Félagsþjónustan og
Gatnamálastjóri 3,3. Steinþór Ein-
arsson, markaðsstjóri ITR, sagði
ætlunina að kynna starfsfólki ITR
þessa góðu einkunn og yrði hún not-
uð sem hvatning til að gera enn bet-
ur. Hann sagði könnunina staðfesta
það sem frarn hefði komið í könnun-
um á vegum ITR, m.a. á viðhorfi til
þjónustu sundstaða, á sumarstarfi
fyrir börn og starfi félagsmiðstöðva
fyrir unglinga að þar væru menn á
réttri braut.
Ein spuming var um á hvaða
málaflokka leggja skyldi áherslu.
Þar vora grunnskólar efstir á blaði
en fast á eftir fylgdi þjónusta við
aldraða. Þar á eftir komu dagvistar-
þjónusta og umhverfismál og sagði
Ingibjörg Sólrún að umhverfismálin
hefðu verið ofarlega á blaði í við-
horfi manna. Þá vom málefni
gmnnskóla og aldraðra þau sem
flestir vildu gera að forgangsmál-
um. Gerður G. Óskarsdóttir
fræðslustjóri sagði að ljóst væri af
niðurstöðum könnunarinnar að
menn vildu leggja áherslu á skóla-
málin og gefa þeim aukið vægi. Hún
sagði þetta hvatningu til að gera
betur og að ábendingar hefðu komið
fram um hvar gera mætti betur.
Yfir 60% í bókasafn
en 30% í Árbæjarsafn
Þá kom fram að 63,3% svarenda
nota sér þjónustu Borgarbókasafns-
ins en 30,6% höfðu heimsótt Árbæj-
arsafn síðustu 12 mánuðina. Rúm
33% komu í Gerðuberg og rúm 36%
heimsóttu Kjarvalsstaði. Borgar-
stjóri sagði þetta vekja upp þá
spumingu hvort Árbæjarsafn væri
markaðssett með réttum hætti ef
viðhorfið væri það að mönnum
nægði að hafa komið þangað einu
sinni. Yfir 60% borgarbúa koma
vikulega eða oftar í miðborgina og
52% telja sig frekar eða mjög ör-
ugga í borginni. Um 34% telja sig
frekar eða mjög óörugga. Kom fram
á fundinum að þeir sem einkum
telja sig óömgga era öryrkjar, kon-
ur og ellilífeyrisþegar en þeir sem
telja sig öragga í borginni eru með-
al annarra íbúar I vesturbæ norðan
Hringbrautar. Þá kom fram að talið
er að aukin löggæsla sé helst til
þess fallin að auka öryggið í borg-
inni.
Ein spurning var um hvort borg-
in ætti að leggja meiri áherslu á að
laða til sín fleira fólk. Töldu 80% að
leggja ætti litla eða frekar litla
áherslu á það en 12% töldu að
leggja bæri á það mjög mikla eða
frekar mikla áherslu.
Athugasemd
frá Trygginga-
stofnun ríkisins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Trygg-
ingastofnun ríkisins:
„I tilefni af fréttum undanfarna
daga varðandi skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um lífeyristryggingasvið
TR vill stofnunin koma á framfæri
eftirfarandi athugasemdum.
í tengslum við úttekt Ríkisendur-
skoðunar á lífeyristryggingasviði
TR vora gerðar tvenns konar at-
huganir á öryggi í greiðslum stofn-
unarinnar til skjólstæðinga sinna.
Fyrri athugunin beindist að þeim
einstaklingum sem eru komnir í
nokkuð fastan farveg í bótakerfí
stofnunarinnar. Sú síðari tók til
þeirra einstaklinga sem höfðu gefið
tekjuyfírlýsingu á síðari hluta árs-
ins 1996 vegna veigamikilla breyt-
inga á eigin högum sem líklegt var
að hefðu áhrif á lífeyrisgreiðslur.
í skýrslunni kemur fram að nið-
urstöður fyrri athugunarinnar, þ.e.
varðandi þá sem eru komnir í nokk-
uð fastan farveg í bótakerfi stofnun-
arinnar og telja um 90% lífeyris-
þega, bendi til þess að yfirleitt væri
öryggi greiðslna með ágætum. Hins
vegar vora niðurstöður síðari at-
hugunar Ríkisendurskoðunar á þá
leið að um 20% þeirra lífeyrisþega,
sem gefið höfðu tekjuyfirlýsingu á
síðari hluta ársins 1996, hafi fengið
ofgreiddar bætur en sá hópur er að-
eins um 10% heildarfjölda lífeyris-
þega.
Af fréttum má dæma að 20% allra
lífeyrisþega hafi fengið ofgreiddar
bætur á árinu 1997. Hér er hins
vegar um ranga túlkun á niðurstöð-
um Ríkisendurskoðunar að ræða.
Hið rétta er að 20% þeirra lífeyris-
þega sem gáfu tekjuyfirlýsingu
fengu ofgreiddar bætur en eins og
áður hefur komið fram er þessi hóp-
ur aðeins um 10% allra lífeyrisþega.
Hér er því í raun verið að ræða um
ofgreiðslur til hóps sem telur um
2% af heildarfjölda allra lífeyris-
þega, en ekki 20% eins og skilja hef-
ur mátt af fréttum.
Könnun Ríkisendurskoðunar
nær yfir greiðslur á árinu 1997.
Frá þeim tíma hefur innra eftirlit
lífeyristryggingasviðs verið styrkt
til muna og verklagi breytt þannig
að nú eru allar tekjuyfirlýsingar
skoðaðar u.þ.b. hálfu ári eftir gerð
þeirra. Með þessu móti má ætla að
Viðhorfskönnun meðal íbúa Reykjavíkur
Unnin af Gallup fyrir Reykjavíkurborg í júní 1999. Tilviljunarúrtak úr
þjóðskrá alls 1200 einstaklingar og af þeim svöruðu 775 eða 70,5%.
Jákvæð afstaða til einkavæðingar eftir aldri og menntun
16-24 ára 55%
25-34 ára 48%
35-44 ára 49%
45-54 ára 45%
55 ára og eldri 30%
Skyldunám 42%
Stúdentspróf 53%
Starfsmenntunarpróf 38%
Háskólapróf 54%
Ef á að færa Reykjavíkurflugvöll annað en á landfyllingu
í Skerjafirði, hvert á að færa hann?
28%
Keflavík 24%
Hafnarfjarðarhraun 18%
í Engey 13%
Sandskeið l l 3%
Frá byggð, innan borgarmarka 0 1 %
Kjalarnes/Kjós 0 "*0/,°
Annað
14%
Stöðvuð vegna
krafna áhafnar
Odincovu
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi athúgasemd frá Borgþóri
S. Kjærnested, eftirlitsfulltrúa
ITF, vegna umfjöllunar um togar-
ann Erlu:
„Hróbjartur Jónatansson vand-
ar mér og ITF ekki kveðjurnar í
Mbl. 24. september sl. Umbjóð-
endur þessa ágæta lögfræðings
eru tryggingafyrirtæki sem nú
kemur upp á yfirborðið í máli
þessu í hlutverki banka. Trygg-
ingafyrirtækið hefur verið að lána
íslensku atvinnufyrirtæki fé til að
viðkomandi atvinnurekandi yrði
fær um að ráða til sín láglaunafólk
úr Eystrasalti til samkeppni við ís-
lenska sjómenn! Tryggingafyrir-
tækið hefur hér hlaupið í hlutverk
banka væntanlega vegna þess að
engir bankar hafa þorað að taka
áhættuna í drullumalli þessara at-
vinnurekenda.
Erlan var stöðvuð vegna krafna
ofgreiðslum vegna tekjuyfiriýsinga
muni fækka enn frekar eins og
reyndar kemur fram í skýrslunni.
Þá ber að geta þess að starfandi er
vinnuhópur innan TR sem leitar
leiða til að gera enn betur í þessum
efnum. Við þetta má síðan bæta að
langstærstur hluti þeirra of-
greiðslna sem eiga sér stað inn-
heimtist og því ekki hægt að álykta
sem svo að um glatað fé sé að
ræða.
TR fagnar skýrslu Ríkisendur-
skoðunar og telur gott að fjallað sé
um einstaka málaflokka almanna-
trygginga á jafnvíðum grundvelli og
raun ber vitni. Greina verður þó á
milli hvenær verið er að fjalla um
lífeyristryggingar almennt og
hvenær umfjöllunin beinist að líf-
eyristryggingasviði TR, sbr. t.d.
skipulag endurhæfingarmála. í
þessu sambandi má einnig benda á
að löggjöf um almannatryggingar,
fjárhæð bóta og hvernig bætur
skulu ákvarðaðar með hliðsjón af
mismunandi vægi tekna er ekki á
valdsviði TR.“
áhafnar Odincovu, þar sem áhöfn
Erlunnar vildi sýna samstöðu með
félögum sínum um borð í Od-
incovu til að þeir gætu fengið
lausn sinna mála. ITF fór hins
vegar þá leið sem helst var talin
fær fyrir dómstólum. Nú er reynt
að leiða að því rök að skipin, Erla
og Odincova, séu í eigu tveggja
aðskildra fyrirtækja. Heiti út-
gerða skipanna er sitt hvort sam-
kvæmt skráningu 25. febrúar
1999, þ.e. eftir að Odincova er
komin til hafnar í Reykjavík. Fyr-
ir þann tíma hét eigandi beggja
skipanna Fanney ehf. Eigendur
umræddra fyrirtækja eru í báðum
tilvikum þeir sömu, Ásdís Hildur
Jónsdóttir, Sæmundur Árelíusson
og börn þeirra hjóna. Fram-
kvæmdastjóri beggja „fyrir-
tækja“ er sá hinn sami Sæmund-
ur. Augljósara getur drullumallið
varla orðið. Eimskip hefur komið
að sölu afla og ýmislegs annars í
tengslum við þessa starfsemi og
stærsti einstaki eigandi trygg-
ingafyrirtækisins, sem hér kemur
við sögu sem banki, er Eimskipa-
félag Islands.
Lögfræðingurinn telur orðið
vandséð hvort áhöfn Erlunnar hafi
hag af áframhaldandi afskiptum
ITF af málefnum hennar. Það er
hans mál. ITF og íslenskir sjó-
menn telja hins vegar vandséð
hvort láglaunamenn í Eystrasalts-
löndunum hafi mikinn hag af að-
komu íslenskra útgerðarmanna að
kvótaveiðum þessara þjóða. Við
munum því beita okkur fyi-ir því að
slíku kvótaframsali verði hætt af
hálfu stjórnvalda þar eystra hið
allra fyrsta verði vandi Odincovu-
manna leystur á allra næstu dög-
um. Hvernig má það vera að ís-
lensk stjórnvöld geti þegjandi og
hljóðalaust horft upp á þær að-
stæður sem nú ríkja hér í höfninni
í Reykjavík, svo ekki sé talað um
framferði íslenskra útgerðar-
manna í norskum og kanadískum
höfnum?"